Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Page 8
8
MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1999
Utsala
30 - 70 % afsláttur
til manaöamota.
IIVEUFISGÖTU 11211
Sím 502 2322
IJPllA
$ SUZUKI
-✓///------
Suzuki Baieno GLX 4x4, skr.
6/96, ek. 78 þús. km, bsk., 4 d.
Verð 990 þús.
Suzuki Baleno Wagon 4x4, skr.
4/97, ek. 63 þús. km, bsk., 5 d.
Verð 1.220 þús.
Suzuki Baleno Wagon 4x4, skr.
10/96, ek. 113 þús. km, bsk.,
5 d.Verð 980 þús.
Suzuki Baleno GL, skr. 9/97,
ek. 34 þús. km, bsk., 4 d.
Verð 1.040 þús.
Susuki Vitara 2,0 dísil, skr. 6/97,
ek. 56 þús. km, bsk., 5 d.
Verð 1.800 þús.
Susuki Vitara JLX ,skr. 11/98,
ek. 24 þús. km, ssk., 5 d.
Verð 1.850 þús.
Suzuki Baleno GL, skr. 1/96,
ek. 77 þús. km, bsk„ 3 d.
Verð 720 þús.
Suzuki Swift GLS.skr. 4/96, ek.
56 þús. km, bsk., 3 d.
Verð 680 þús.
Suzuki Vitara JLX, skr. 5/99, ek.
18 þús. km, bsk., 5 d.
Verð 1.690 þús.
Suzuki Sidekick JX, skr. 9/97,
ek. 117 þús. km, ssk„ 5 d.
Verð 760 þús.
Suzuki Vitara JLX, skr. 9/95,
ek. 72 þús. km, bsk„ 5 d.
Verð 1.230 þús.
Suzuki Baleno Gl, skr. 2/97,
ek. 58 þús. km, bsk„ 3 d.
Verð 790 þús.
Suzuki Jimmy, skr. 3/99,
ek. 22 þús. km, bsk„ 3 d.
Verð 1.250 þús.
Suzuki Swift GLX„ skr. 6/97,
ek. 56 þús. km, bsk„ 5 d.
Verð 760 þús.
Suzuki Swift GLX ,skr. 6/98,
ek. 22 þús. km, bsk„ 5 d.
Verð 870 þús.
Suzuki Swift GX ,skr. 2/97,
ek. 55 þús. km, bsk„ 5 d.
Verð 680 þús.
Suzuki Swift GX, skr. 1/96,
ek. 81 þús. km, bsk„ 5 d.
Verð 570 þús.
Suzuki Vitara JLX, skr. 4/99,
ek. 17 þús. km, bsk„ 5 d.
Verð 1.690 þús.
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17 • Sími 568 5100
www.suzukibilar.is
RAUTT LJÓS
þýöir að stöðva skuli
ökutæki skilyrðislaust.
UMFERÐAR
RÁÐ
MUNUM EFTIR
LÖGGÆSLU-
MYNDAVÉLUNUM
Utlönd
Musharraf hershöföingi:
Áfram á
valdastóli
Þrátt fyrir viðvaranir frá Evrópu-
sambandinu og Alþjóða gjaldeyris-
sjóðnum sagði Pervez Musharraf
hershöfðingi ekkert um það
í ávarpi sínu í gær hvenær
sett yrði á laggirnar borg-
araleg stjóm í Pakistan.
Stofnanirnar höfðu hótað
því að hætta við fjárhags-
lega aðstoð segði herfor-
ingjastjórnin, sem rændi
völdum í síðustu viku, ekki
hvenær lýðræði yrði komið
á aftur.
Pakistanskur stjórnmála- Pervez
fræðingur, Shireen Mazari,
sagði það gott að Musharraf
hefði ekki beygt sig fyrir Vesturlönd-
um. „Það voru ekki gefin nein fölsk
loforð," sagði Mazari.
í ávarpi til pakistönsku þjóðarinn-
ar í gær sagði Musharraf að herinn
yrði ekki lengur við völd en nauðsyn-
legt væri. Hann sagði jafnframt að
stofnað yrði þjóðaröryggisráð sem
ætti að stýra landinu. Musharraf
lagði á það áherslu að hann vildi
milda kjarnorkuvopnastefnu Pakist-
ans. Hershöfðinginn boðaði
einnig fækkun pakist-
anskra hermanna við
landamæri Indlands. Fækk-
un hermannanna nær þó
ekki til þeirra sveita sem
staðsettar eru meðíram lín-
unni sem skiptir Indlandi
og Kasmír. Viðbrögð Ind-
verja við ávarpi Mus-
harrafs í gær voru varkár.
Einn leiðtoga stjórnar-
andstöðrmnar í Pakistan,
Iqbal Haider, sem er þing-
maður flokks Benazir Bhutto, fyrr-
verandi forsætisráðherra, lýsti yfir
ánægju sinni með loforð Musharrafs
um að komið yrði á raunverulegu lýð-
ræði. Sagði hannHaider opinn og
hreinskiptinn og öðruvísi en þeir
hershöfðingjar sem stýrt hefðu
Pakistan í áratugi.
Musharraf
hershöfðingi.
Símamynd Reuter
Tugir særðust f Minsk f Hvíta-Rússlandi f gær í átökum lögreglu og
mótmælenda. Um 20 þúsund manns höfðu safnast saman tll að mótmæla
áformum Lukashenkos forseta um að sameina Hvíta-Rússland Rússlandi.
Albright og Cook:
Sendiráðsárásin ekki
gerð að yfirlögðu ráði
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, og Robin
Cook, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, vísuðu því á bug í gær-
kvöld að NATO hefði að yfírlögðu
ráði gert loftárás á sendiráð Kína í
Belgrad til að eyðileggja íjarskipta-
búnað þar sem Júgóslavar höfðu
afnot af. Breska blaðið Observer og
danska blaðið Politiken höfðu það í
gær eftir heimildarmanni innan
NATO, sem ekki vildi láta nafns
sins getið, að þegar ráðist var á
bústað Slobodans Milosevics
Júgóslavíuforseta 23. april síðast-
liðinn hefðu fjarskipti hætt í sólar-
hring. Þegar merkjasendingar náð-
ust á ný komu þær frá kínverska
sendiráðinu, að þvi er haft er eftir
heimildannanninum. Þann 7. mai
síðastliðinn var skotið þremur
stýriflaugum á sendiráðið. Þrír
Kínverjar létu lífið í árásinni og 27
særðust.
Stjórnir Bandaríkjanna og
NATO fullyrtu síðastliðið vor að
árásin á sendiráöið hefði verið
gerð vegna mistaka. Opinber skýr-
ing Bandaríkjanna var sú að kort-
in, sem notuð hefðu verið, hefðu
verið úrelt.
Blaðið Observer veltir því fyrir
sér hvort Kínverjar hafi boðist til
að hjálpa Milosevic meðal annars
til þess að fá upplýsingar um
tæknibúnað I bandarísku Stealth-
flugvélinni sem skotin var niður í
Kosovostríðinu.
Stuttar fréttir dv
Leynileg kjarnorkustöö
íbúar í Derby á Englandi eru í
uppnámi eftir að í ljós kom að
Rolls-Royce samsteypan hafi um
árabil framleitt kjarnorkuelds-
neyti fyrir kafbáta í bænum án
vitundar þeirra.
Búa sig undir írenu
íbúar 1 N-Karólinu í Bandaríkj-
unum bjuggu sig í gær undir
komu fellibylsins írenu sem vald-
ið hefur miklum usla í Karíbahafi
undanfarna daga.
Gegn drottningu
Repúblikanar i Ástralíu hófu í
gær opinbera herferð sína fyrir
því að Elísabet
Englands-
drottning verði
ekki lengur
þjóðhöfðingi
þeirra. Við
þjóðaratkvæða-
greiðslu 6. nóv-
ember næst-
komandi taka
11 milljónir kjósenda afstöðu til
þess hvort þeir vilji að Ástralía
verði lýðveldi með kjömum þjóð-
höfðingja.
Lögmaöurinn bjartsýnn
Högni Hoydal, lögmaður Fær-
eyja,_segir að stefht sé að því að
viðræðum Færeyinga og Dana
um framtíðarsamskipti þeirra
ljúki fyrir áramót. Högni kveöst
bjartsýnn á að Færeyingar segi já
í vor í þjóðaratkvæðagreiðslu um
aukið sjálfstæði.
Svíar vilja í NATO
Háttsettir sænskir herforingjar
krefjast þess nú að Svíþjóð gangi
í NATO þar sem Svíar geti ekki
sjálfir varið sig.
Sprengjutilræði
Leiðtogi Lýðræðisflokksins í
Valjevo í Serbiu slapp í gær
ómeiddur úr sprengjuárás á
heimili hans. Leiðtoginn, Nebojsa
Andric, hafði ítrekað gagnrýnt
Slobodan Milosevic Júgóslavíu-
forseta.
Mótmæli við hús Baraks
Þúsundir ísraelskra landnema
efndu í gær til mótmæla við heim-
ili Ehuds
Baraks, forsæt-
isráðherra ísra-
els. Landnem-
arnir em æfir
yfir því að
hluti þeirra
þarf að yfirgefa
landsvæðið __________
sem þeir reistu sér heimili á án
leyfis yfirvalda og fyrir friðarvið-
ræður ísraela og Palestínumanna.
Grýtt til bana
íranskur dómstóll hefur úr-
skurðað að grýta eigi konu til
bana vegna hjúskaparbrots. Elsk-
hugi hennar var dæmdur til
dauða fyrir að hafa drepið eigin-
mann konunnar.
Stórfundur um Glistrup
Ráðgert er að halda stórfund í
danska Framfaraflokknum um
stefnu flokksins í kjölfar yfirlýs-
ingar Mogens Glistmps um að
fleygja eigi núverandi stefnu í
ruslatunnuna.
Gefast ekki upp
Aslan Maskhadov, forseti
Tsjetsjeníu, sagði í gær að her
sinn myndi ekki gefast upp fyrir
rússneskum hermönnum.
Tekinn af lífi
Saddam Hussein íraksforseti
hefur látið taka af lífi yfirmann
öryggisþjón-
ustu sinnai',
að því er vest-
rænir stjórn-
arerindrekar
og stjórnar-
andstæðingar
greina frá.
Saddam sak-
aði yfirmanninn, Rafeh Dahham
Majoul Takriti, um að hafa lekið
upplýsingum um leynilegan
vopnasamning við Rússa.