Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Page 12
12
MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1999
Spurningin
Ætlarðu í verslunarferð fyrir
jólin?
Guðlaugur Bragason nemi: Nei.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson hag-
fræðingur: Nei, en ég ætla að reyna
að komast upp í hestagirðingu.
Ólafur Þorláksson nemi: Já, St.
John’s.
Inga Maren Rúnarsdóttir nemi:
Ég efast um það.
Símon Elvar Vilhjálmsson nemi:
Nei.
Lilja Sigurjónsdóttir vaktstjóri:
Nei.
Lesendur
Skoðanakúgun og
tvöfalt siðgæöi RUV
„Fjölmargir fréttamenn hafa árum saman unnið hjá Ríkisútvarpinu ásamt því
að taka þátt í pólitísku starfi," segir m.a. f bréfinu. - Á fréttastofu Ríkissjón-
varpsins.
Óskar Óskarsson skrifar:
Fyrir skömmu var sagt frá því í
dálkaskrifum DV og einnig í Degi
að einhverjir fréttamenn á Ríkisút-
varpinu hygðust sitja þing Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna í frí-
tíma sínum. Dálkarnir greindu skil-
merkilega frá því um hvaða frétta-
menn var að ræða og fylgdu málinu
frá degi til dags líkt og um stórglæp
væri að ræða hjá fréttamönnum að
hafa sjálfstæðar stjómmálaskoðan-
ir. Fréttastjóri sjónvarps brást strax
við og bannaði þeim að sækja þing-
ið. - Þessi ákvörðun fréttastjórans
er ekkert annað en skoðanakúgun
og mismunun hjá RÚV.
Fjölmargir fréttamenn hafa árum
saman unnið hjá Ríkisútvarpinu
ásamt því að taka þátt í pólitísku
starfi. Þegar flokksmálgögn vinstri
flokkanna, Þjóðviljinn og Alþýðu-
blaðið, vom lögð niður voru flestum
blaðamönnum smám saman útveg-
aðar stöður við fréttamennsku eða
dagskrárgerð hjá RÚV. Þeir urðu
ekki skoðanalausir við það eitt að
skipta um vinnustað og héldu áfram
að þjóna flokkunum sínum frá
fréttastofum ríkisfjölmiðlanna.
Þegar grunur vaknaði hjá göml-
um blaðamönnum af Þjóðviijanum
og Alþýðublaðinu um að einhverjir
nýráðnir vinnufélagar þeirra á
Sjónvarpinu hefðu aðrar stjórn-
málaskoðanir en þeir heimtuðu þeir
aðgerðir. Fréttastjórinn var fljótur
að hlýða og banna fréttamönnunum
ungu að fara á SUS-þingið. Ekki var
talin ástæða til að bregðast svona
fljótt við þegar fréttamaður hjá
Sjónvarpinu og þekktur framsókn-
armaður var í framboði fyrir Fram-
sóknarflokkinn á Reykjanesi og
gegndi varaþingmennsku þar á
sama tíma og hann var fréttamaður
hjá RÚV. - Þessi miklu pólitísku af-
skipti háðu fréttamanninum ekki
meira í starfi en svo að hann fékk
stöðu varafréttastjóra fyrir síðustu
borgarstj órnarkosningar.
En mismunun og tvöfalt siðgæði
eru ekki bara ríkjandi á Sjónvarp-
inu. í vikunni var sagt frá því i DV
að Egill Helgason hefði verið ráðinn
pistlahöfundur á Rás 2 og var tekið
fram að það hefði ekki komið í veg
fyrir ráðninguna að hann ynni jafn-
framt á öðrum ljósvakamiðli. Ekki
eru hins vegar mörg ár síðan eini
hægrisinnaði pistlahöfundurinn á
Rás 2, dr. Hannes Hómsteinn Giss-
urarson prófessor, var rekinn. Þær
ástæður sem gefnar voru fyrir upp-
sögninni voru að það samrýmdist
ekki starfi pistlahöfundar að gegna
jafnframt störfum fyrh- aðra ljós-
vakamiðla.
Öraskaður dómur í Hæstarétti
- eykur barnaníðingum ásmegin
Helgi Sigurðsson skrifar:
Ég vil byrja á því að taka undir það
sem stóð í bréfi frá Þorbjörgu Páls-
dóttur, sem birtist í Morgunblaðinu
fyrir nokkru, undir fyrirsögninni
„Réttlæti". Þar var Þorbjörg að lýsa
hneykslan sinni yfir dómi Hæstarétt-
ar, þar sem fimm dómarar réttarins
staðfestu áður genginn dóm héraðs-
dóms yfir rúmlega sextugum manni í
Suður-Þingeyjarsýslu sem beitti tæp-
lega 5 ára stúlkubarn kynferðislegu
ofbeldi - bam sem hann og kona hans
höfðu tekiö við til vistunar frá bama-
verndarnefnd Hafnarfjarðar. Ríkis-
saksóknari hafði skotið málinu til
Hæstaréttar og krafist þess að refsing
yrði þyngd.
Ég þakka Þorbjörgu fyrir framtak
hennar og kjark að ríða á vaðið og
lýsa yfir undrun á hinum væga dómi
gagnvart kynferðisbroti á ungabörn-
um sem og raunar á konum í þessu
þjóðfélagi. Giæpir af þessu tagi kom-
ast oft ekki upp og það er með ein-
dæmum að svona atvik skuli ekki
dæmd þyngra en með 15 mánaða refs-
ingu, eins og gerðist í ofangreindu til-
viki.
Ég skora á fjölmiðla að gera könn-
un á því hvemig svona dómur geti
samrýmst réttarfari nú á dögum. -
Jafnvel þótt viðkomandi kynferðisaf-
brotamaður „hafi átt flekklausan fer-
il“ fram að því er dómur gekk. Hvað
segja dómarar t.d. um bamið sem
brotið var á? Er réttarkerfinu ekki
skylt að taka tillit til þess? Barnið vex
úr grasi og það geymir þessa minn-
ingu með sér; hún máist ekki úr hug-
anum. Dómar af þessu tagi auka barn-
aníðingum ásmegin. Spurningin nú er
einungis sú, hverjir munu taka af
skarið um hert viðurlög á þéssu sviði.
í þoku og hálku
Kristinn Snæland skrifar:
Fyrir skömmu gerðist það í þoku á
fjallvegi austur á fjöröum að bilalest
nam staðar í kurteisisskyni. Lögreglu-
bílar voru þar í bak og fyrir en ekki
munu aðvörunarljós hafa logað á öft-
ustu bílunum. Bar þá að flutningabíl
og lá við slysi. Bíll sá nam staðar
þversum á veginum, rúman metra frá
aftasta bílnum. Hafa skáldjöfrar og
fréttamenn farið mikinn við útlistun
atviks þessa og hallar þá mjög á lög-
gæslu.
Hitt virðast skáldskaparins menn
þjónusta
allan sólarhringinn
H r1 fcÉsfiiP
Lesendur geta sent mynd af
sér með bréfum sínum sem
birt verða á lesendasíðu
Reglan gullvæga: Hver bifreiðarstjóri skal haga akstri
sínum með tilliti til ástands vegar, skyggnis, gerðar og
búnaðar ökutækis.
sjá síður að hver bifreiðarstjóri skal
haga akstri sínum með tilliti til
ástands vegar, skyggnis, gerðar og
búnaðar ökutækis.
Á fiallvegi í þoku getur verið bilað-
ur bíll og þótt neyðarljós hafi verið
tendruð getm hann tímans vegna ver-
ið orðinn rafmagnslaus og því torséð-
ur í þoku. Ekki hefm heldur spmst út
að sauðfé eða hross á
Austfjörðum séu
búin þvi rafmagni að
dugi til neyðarlýs-
ingar. Niðurstaðan í
þessu umrædda máli
er því sú, að minu
áliti, að Eiríkur
blessaðm ók of hratt
miðað við aðstæðm
og má því sannar-
lega þakka fyrir að
ekki kom bíll á móti
þegar bíll hans
sveigði yfir á rangan
vegarhelming.
Það gölmiðlafár sem
af atviki þessu varð
hefði mátt enda á
spmningunni: Eiríkur minn, ókstu
ekki bara of hratt miðað við aðstæð-
m? - Sama spuming er vitanlega
einnig viðeigandi varðandi þá bíl-
stjóra sem ollu árekstrum á Hellis-
heiði nýlega eða óku þar út af þvers
og kruss. - Bjáifarnir geta svo spurt:
Hvers vegna saltar Vegagerðin ekki
tímanlega?
DV
Þungir orku-
reikningar
Jakob hringdi:
Ég er áreiöanlega ekki einn um
að finnast orkureikningarnir
farnir að þyngjast óþægilega mik-
ið. Og að borga þessa reikninga á
tveggja mánaða fresti getm tekið
freklega í veskið hjá manni, nú
eða greiðslukortið, hafi maðm
þann háttinn á greiðslufyrir-
komulagi. Þótt notkun sé áætluð
yfir árið og upphæð greiðslunnar
á tveggja mánaða fresti sé miðuð
við það er satt að segja óþægilegt
að greiða þessar háu upphæðir.
Mun betra væri að geta greitt
þessa reikninga mánaðarlega, þá
yrði um minni upphæðir að ræða
í senn. Auk þess sem maðm er þó
meira og minna kvitt við orkufyr-
irtækin eftir mánaðaruppgjörið.
Ég hvet Rafveitu og Hitaveitu til
að skipta yfir í mánaðaráætlanir.
Konurí
atvinnurekstri
Hildur skrifar:
í siðasta tölubl. Viðskiptablaðs-
ins las ég grein um 10 áhrifa-
mestu konumar í atvinnmekstri
hér á landi. Þær voru taldar upp
og eiga allar það sameiginlegt
utan ein að stjórna eða vera í for-
svari fyrir fyrirtækjum í einka-
rekstri. Þessi eina kona sem ekki
getur talist vera i atvinnurekstri
en er sett þarna á blað er borgar-
stjórinn í Reykjavík, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir. Það er ekki at-
vinnurekstm, hvað þá sjálfstæð-
m, að reka borgarapparatið, sem
sækir peninga til okkar skatt-
greiðenda. Það er lítill vandi að
reka fyrirtæki og geta sótt rekstr-
arféð til almennings. Ég skil ekki
hvernig Viðskiptablaðið flokkar
„áhrifamiklar konur í atvinnu-
rekstri". En það þýðir ekki að
bjóða mér svona flokkun, hún
stenst ekki.
Bónusfeðgar
seint á ferð
Guðjón Jónsson skrifar:
Þeir Bónus-feðgar segja í frétta-
viðtali að minnsti granm um við-
skipti fyrirtækis þeirra við aðila
sem átt hafi aðild að slíku við-
bjóðsmáli sem svokallað Stóra
fikniefnamálið er komi í veg fyrir
viðskipti við kjötiðnaðarfyritækið
Rimax sem staðsett er í Eldshöfð-
anum, í sama húsi og birgðastöð
Bónus-verslana. Mér finnst þetta
vel mælt hjá þeim Bónus-feðgum.
Ég hefði þó alveg haldið áfram að
kaupa þetta Rimaxkjöt eða „tann-
læknakjöt" eins og gárungamir
kalla það. Hins vegar finnst mér
Bónus-feðgar vera seint á ferð að
fjarlægja kjötbirgðir Rimax-kjöts-
ins úr hillum verslana sinna, því
um miðjan september bárast
fréttir um að Rimax kæmi við
sögu í fikniefnamálinu og bíll
merktur fyrirtækinu var gerður
upptækur af lögreglunni - og þar
starfaði einmitt einn hinna hand-
teknu. Nú verða Bónusmenn bara
að finna annan kjötheildsala sem
býður svo gott verð að við höldum
okkur við kjötkaupin í Bónusi.
Kjúklingar í
Hagkaupi
Sigríður Stefánsdóttir hringdi:
Ég versla gjarnan í Hagkaupi
sem ekki er í frásögur færandi.
Þar er vöruúrval gott og verð í
skárra lagi eftir því sem neyt-
endakannanir segja okkur. Eitt
finnst mér þó að þeir Hagkaups-
menn mættu gera fyrir kúnn-
ann. Þeir mættu hafa kjúklinga
frá fleiri en einum framleiðanda
á boðstólum. Vegna þeirrar um-
ræðu sem verið hefur í gangi vill
fólk gjaman fá að velja hvaðan
það kaupir sína kjúklinga. Nú er
bara hægt að kaupa frá einum
ffamleiðanda. - Bætið úr þessu,
Hagkaupsmenn, og þá verða all-
ir ánægðir.