Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Qupperneq 14
14
MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1999
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI 8JÖRN KÁRASON
Aóstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrífstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11, 105 RVÍK,
SlMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Rlmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af jreim.
Samkeppni og hugsjónir
í frjálsu samfélagi manna er fátt gleðilegra en þegar
stórhuga einstaklingar taka sig saman og ráðast af
krafti á rótgróið fyrirtæki sem um áratugaskeið hefur
setið eitt á markaði. Slíkir menn eru reknir áfram af
hugsjónum, en þó umfram allt hagnaðarvoninni. Besta
trygging fyrir samkeppni er hagnaðarvonin, sem rekur
einstaklinga áfram til efnahagslegra verka, en ekki op-
inberar stofnanir sem reyna að viðhalda eða koma á
samkeppni.
Mikil breyting átti sér stað í innanlandsflugi 1. júlí
1997 þegar samkeppni var leyfð. Áður höfðu Flugleiðir,
sem nú hafa sett innanlandsflugið inn í sérstakt félag -
Flugfélag íslands - setið eitt að öllum helstu flugleiðmn
í krafti sérleyfa. íslendingar eru bundnir þeirri áráttu
að binda allt sérstökum leyfum, enda margir sem lifa í
þeirri trú að allt sé bannað sem er ekki sérstaklega
leyft. Þannig eru höfð endaskipti á hlutunum.
Afnám sérleyfa í innanlandsflugi hleypti nýju blóði í
samkeppnina og verðstríð hófst á milli Flugfélags ís-
lands og íslandsflugs. Farþegar nutu þessarar sam-
keppni sem birtist í aukinni þjónustu og lægra verði.
Hvorki Flugfélag íslands né íslandsflug hafa orðið
feit á innanlandsflugi, samkeppnin hefur verið hörð -
stundum óvægin. Fyrrnefnda félagið hefur hins vegar
burði til að berja af sér samkeppni og einmitt þess
vegna hefur Samkeppnisstofnun talið sér skylt að fylgj-
ast vel með starfsháttum félagsins og setja því ákveðn-
ar skorður. Vandinn er hins vegar sá að með því að
setja Flugfélagi íslands of þröngar skorður kann Sam-
keppnisstofnun að ganga þvert á hagsmuni þeirra sem
hún ætlar sér að vernda - flugfarþega. Þetta hefur kom-
ið berlega í ljós þegar stofnunin bannaði félaginu að
bjóða upp á síðdegisflug á áætlunarleiðinni Reykjavík
- Egilsstaðir, í beinni samkeppni við íslandsflug.
Eins og kemur fram í fréttaljósi hér í DV í dag taldi
Samkeppnisráð að Flugfélag íslands væri markaðsráð-
andi fyrirtæki sem væri að hindra minni keppinaut.
Slíkt væri sérstaklega alvarlegt þegar haft væri í huga
að félagið hefði i krafti sérleyfa getað byggt upp sína
markaði.
Ríkar ástæður þurfa að liggja fyrir því að yfirvöld
samkeppnismála skerði frelsi fyrirtækja og einstak-
linga til efnahagslegra verka. Vandinn í innanlands-
fluginu liggur hins vegar í því að lítið fyrirtæki er að
brjótast inn á markað þar sem annað stærra hefur set-
ið eitt í krafti lögbundinna sérréttinda. Einmitt þess
vegna kann að vera réttlætanlegt að komið sé í veg fyr-
ir að samkeppni sé brotin niður um leið og frelsi er
veitt.
Innanlandsflugið er hins vegar langt frá því að vera
eina dæmið þar sem stórir aðilar hafa komið sér vel
fyrir í skjóli lögvarinnar einokunar. Næst þegar Sam-
keppnisstofnun hefur áhyggjur af samkeppninni ættu
starfsmenn hennar að huga að lífeyrismálum lands-
manna. Meginhluti lifeyrissparnaðar landsmanna er
undanskilinn samkeppni þar sem flestir hafa lítið eða
ekkert val um aðild að lífeyrissjóðum. Með því er líf-
eyrissjóðunum veitt betri samkeppnisstaða á markaði
fyrir lífeyrissparnað og á hliðarmarkaði fyrir útlán en
sjálfstæðum frjálsum lífeyrissjóðum. Það yrði saga til
næsta bæjar ef yfirvöld samkeppnismála tækju á þessu
meini.
Óli Björn Kárason
Samfylkingin er hreyfing vinstri-
manna í mótun. Nú þegar hafa sam-
fylkingarfélög verið stofnuð í fimm
kjördæmum af átta i gömlu kjör-
dæmaskipaninni. Þessi félög eru
sameiginglegur vettvangur fólks úr
Alþýðubandalagi, Alþýðuflokki,
Kvennalista og hópi óháðra sem
vilja hafa mótandi áhrif á stefnu og
uppbyggingu Samfylkingarinnar.
Á næstu mánuðum og misserum
verða stofnuð fleiri samfylkingarfé-
lög, m.a. í Reykjavík. Þessi félög
ásamt stofnunum þeirra flokka sem
stóðu að kosningabandalagi Sam-
fylkingarinnar í kosningum til Al-
þingis i vor, munu ákveða sameigin-
lega hvernig Samfylkingin verður
byggð upp í framtíðinni og hvaða
mál hún mun setja efst á forgangs-
lista í upphafi nýrrar aldar.
Vandaður undirbúningur
Það hefur eðlilega gætt nokkurrar
óþreyju hjá þeim fjölmörgu stuðn-
ingsmönnum Samfylkingarinnar
sem ekki hafa verið félagar í þeim
flokkum og samtökum sem buðu
fram saman undir merkjum hennar
í vor. En það er líka mikilvægt að
„Við uppbyggingu Samfylkingarinnar í vetur eru ailir vinstrimenn og fé-
lagshyggjufólk kallað inn á völlinn," segir Margrét undir lok greinar sinn-
ar. - Þingflokkur Samfylkingar kemur saman.
Hreyfing í
vexti og mótun
málefni sem Alþýðu-
bandalagið mun leggja
megin áherslu á innan
Samfylkingarinnar á
næstu árum.
Miklir breytinga-
tímar
Það eru miklir breytinga-
og mótunartímar í ís-
lenskum stjórnmálum.
Þróun íslenskra stjórn-
mála er nátengd því sem
verið hefur að gerast i
löndunum í kring um
okkur allan síðasta ára-
tug. Við mótun stefnu
Samfylkingarinnar sem
formlegs stjórnmálaafls
þarf að vega og meta
þessa þróun fordóma-
„Þróun íslenskra stjórnmála er
nátengd því sem verið hefur að
gerast í löndunum í kring um
okkur allan síöasta áratug. Viö
mótun stefnu Samfylkingarinnar
sem formlegs stjórnmálaafls
þarf aö vega og meta þessa þró-
un fordómalaust. “
Kjallarinn
talsmaður Samfylking-
arinnar
vanda vel allan und-
irbúning að framtíð-
arskipulagi Sam-
fylkingarinnar. Um
það er allt forystu-
fólk hennar sam-
mála og fólk hefur
ekki setið auðum
höndum frá kosn-
ingum, eins og
stofnun samfylking-
arfélaga um allt
land og málatilbún-
ingur þingflokks
Samfylkingarinnar
nú í haust sýnir
m.a.
Innan Alþýðu-
bandalagsins hefur
átt sér stað mikil
umræða um framtíð
Samfylkingarinnar
og þátttöku flokks-
ins í mótun hennar.
Þann 10. október
sendi miðstjórn
flokksins frá sér
skýr skilaboð í þess-
um efnum og beindi
því til landsfundar
flokksins sem hald-
inn verður í nóvem-
ber, að fundurinn
gefi forystu Alþýðu-
bandalagsins fullt
og óskorað umboð
til viðræðna við
samstarfsaðila
flokksins um skipulag og framtíð
Samfylkingarinnar.
Á landsfundinum verður farið
yfir reynsluna af Samfylkingunni
allt frá því aukalandsfundur sam-
þykkti þátttöku Alþýðubandalagsins
í henni í júlí 1998. Landsfundarfull-
trúar munu einnig fara yfir þau
laust. Þó má segja að ein megin lína
í stefnu Samfylkingarinnar hafi leg-
ið fyrir frá upphafi. Alger samstaða
hefur ríkt um þrjár megin stoðir í
stefnu Samfylkingarinnar sem
varða velferðarmál, heilbrigðismál
og menntamál.
Til að efla megi þessar stoðir þarf
að taka verkefni hins opinbera og
forgangsröðun þeirra til gagngerrar
endurskoðunar. Núverandi ríkis-
stjórnarflokkar hafa ekki sýnt neitt
frumkvæði í þessum efnum. En ef ís-
lendingar ætla að byggja upp al-
mannatryggingakerfi, heilbrigðis-
kerfi og menntakerfi sem stendur
öllum jafnt til boða og er á við það
besta sem þekkist í heiminum, þarf
að móta nýja sýn á forgangsröðun
verkefna hins opinbera.
Upp úr skotgröfunum
Það þarf líka að nálgast utanríkis-
mál með hliðsjón af breyttum að-
stæðum. Þar ber fyrst og síðast að
hafa heildarhagsmuni þjóðarinnar í
huga og koma af stað umræðu sem
gerir öllum almenningi kleyft að
mynda sér skoðun og stefnu sem
tryggir stöðu íslands og þátttöku ís-
lendinga í alþjóðasamfélaginu á
næstu öld. Til þess að sú umræða
geti átt sér stað og verið gefandi
þurfa allir að yfirgefa þær pólitísku
skotgrafir sem einkennt hafa um-
ræðuna um utanríkismál síðustu
fimmtíu árin. Án þess verður
ómögulegt að komast að vitrænni
niðurstöðu enda væru menn þá að
láta úreltar forsendur ráða gangi
umræðunnar.
Við uppbyggingu Samfylkingar-
innar i vetur eru allir vinstrimenn
og félagshyggjufólk kallað inn á völl-
inn. Samfylkingin byggir á sterkum
stoðum sem er ríkur og einlægur
vilji vinstrimanna um breiðfylkingu
félagshyggjufólks. Ekkert fær stöðv-
að þá framrás og við Alþýðubanda-
lagsmenn göngum til þeirra vérka
sem nauðsynlegt er að vinna full-
vissir um að framtíðin sé okkar ef
við náum að virkja samtakamáttinn.
Margrét Frímannsdóttir
Skoðanir annarra
Bætt aflanýting
„Nýting og vinnsla aukaafurða úr þorski er orðinn
mikilvægur þáttur í íslenskum sjávarútvegi...Auðlindir
sjávar eru takmarkaðar og þess vegna skiptir höfuðmáli
fyrir þjóðarbúið, að sem mest verðmæti fáist fyrir afurð-
irnar. Með engum hætti er hægt að fallast á, að verð-
mætum sé fleygt i sjóinn. Hversu mikið er i húfi má
marka af 2,5 milljarða verðmæti aukaafurða þess hluta
þorskaflans, sem nýttur var til þeirrar vinnslu. Sjávar-
útvegurinn getur ljóslega aukið verðmætasköpun með
bættri nýtingu aflans.“ Úr forystugreinum Mbl. 14. okt.
Úlfur og refur sameinast
„Sama fólkið og heimtar strangari löggæslu og harð-
ari dóma og fer hinum laklegustu orðum um afbrota-
menn er allt í einu orðið að.verndurum fanganna og
kvartar yfir ómannúðlegri meðferð ríkisvaldsins á
þeim og eru gjörðir þeirra gleymdar og grafnar. Reynt
er að verða við þessum kröfum og hælast fangelsisjdlr-
völd um síbættan aðbúnað. Umhyggjan er slík að elsku
englabassamir mega ekki hafa á tilfmningunni að þeir
séu sviptir frelsi og því varast að rimlar og læsingar
beri fyrir þeirra viðkvæmu augu...Allt er þetta gott og
blessað, og vonandi verður batnandi aðbúnaður til
þess að enn fleiri komi út úr fangelsum betri menn og
hæfari...En það breytir ekki tvískinnungnum í umræð-
unni um glæpi og refsingu, sem sýnir að „oft er á ferli
úlfur og refur í einum og sama manninum.““
Oddur Ólafsson í Degi 14. okt.
Kynningarskattur á launþega?
„Því miður er það svo að almennt hafa útlendir menn
í besta falli yfirborðskenndar hugmyndir um ísland og
menningarþjóðina einstöku sem það byggir. Að auki má
fullyrða að erlendum þjóðum er upp tO hópa öldungis
hulið á hvem veg íslensk þjóð hefur haft mótandi áhrif
í veraldarsögunni. Það er skylda okkar íslendinga að
koma þessari vitneskju á framfæri en það verður trú-
lega ekki gert án þess að stórauknum flármunum verði
varið til kynningar á islenskri arfleifð og menningu er-
lendis. Til álita hlýtur að koma að sérstakur skattur
verði lagður á launþega og fyrirtæki til að unnt reynist
að standa með fullri reisn að slíku kynningarstarfi."
Ásgeir Sverrisson í Mbl-pistli 14. okt.