Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Side 30
y 42
MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1999
Afmæli
Björn Kristjánsson
Björn Kristjánsson veitingamað-
ur, Efstalandi, Ölfusi, er sextugur í
dag.
Starfsferill
Bjöm fæddist i Meltungu í Kópa-
vogi og ólst þar upp og í Kleppsholt-
inu í Reykjavík og Snóksdal í Döl-
um.
Á unglingsárunum stundaði
Björn verkamannavinnu og vann á
búi foður síns. Hann festi kaup á
vörubifreið 1963 og stundaði síðan
vömbifreiðarakstur til 1995. Jafn-
framt breytti hann fjósi og hlöðunni
að Efstalandi í veitingastað en hann
hefur starfrækt þar veitingastaðinn
Básinn frá 1989. Haustið 1998 opnaði
hann svo Ingólfsskála á sama stað.
Fjölskylda
Björn kvæntist 13.7.
1963 Sigríði Svövu Gunn-
arsdóttur, f. 12.4. 1942,
fyrrv. bankastarfsmanni.
Hún er dóttir séra Gunn-
ars Jóhannessonar, f. 7.6.
1904, d. 14.2. 1965, prests
að Skarði í Gnúpverja-
hreppi, og k.h., Áslaugar
Gunnlaugsdóttur, f. 2.8.
1900, kennara.
Börn Björns og Svövu
era Gunnar Björnsson, f.
28.1. 1963, kvæntur Kristínu
Hauksdóttur, f. 18.5. 1963, og eru
börn þeirra Andri Már, f. 19.8.
1982, og Svava Björk, f. 26.8. 1989;
Hrafnkell Björnsson, f.
7.10. 1969, en unnusta
hans er Sigurlín Garð-
arsdóttir, f. 16.9. 1974;
Áslaug Björnsdóttir, f.
21.11. 1974, en dóttir
hennar er Kristín Lára,
f. 2.5. 1998.
Systkini Björns eru
Kristinn Jón Kristjáns-
son, f. 1941, fræðslu-
stjóri Kópavogs, búsett-
ur í Kópavogi, kvæntur
Valgerði Kristínu
Gunnarsdóttur; Ásgeir
Jónas, f. 1943, leigubifreiðarstjóri,
búsettur í Reykjavík, kvæntur Sig-
ríði Magnúsdóttur; Loftveig Krist-
ín Kristjánsdóttir, f. 1946, húsmóð-
ir í Reykjavík, en maður hennar er
Gunnar Þórisson; Gestur Krist-
jánsson, f. 1952, starfsmaður hjá
Jörva, búsettur í Reykjavík, en
kona hans er Svava Björk Bene-
diktsdóttir; Friðrik Kristjánsson, f.
1959, bóndi í Stóra-Saurbæ í Ölfusi,
en kona hans er Ólína Sigurðar-
dóttir.
Foreldrar Bjöms voru Kristján
Eysteinsson, f. 29.7. 1910, d. 16.2.
1967, bóndi að Hjarðarbóli, og Hall-
dóra Þórðardóttir, f. 10.6. 1918, d.
21.1. 1994, húsfreyja.
Seinni maður Halldóru var Ólaf-
ur Guðmundsson.
Björn verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Björn Kristjánsson.
Fréttir
Lokað fyrir rafmagn hjá sjúklingum 1 afvötnun:
Bærinn beinlínis óvinveittur
segir forstööumaöur Byrgisins og kvartar til bæjaryfirvalda í Hafnarfiröi
Ólafur Ólafsson, fyrrum landlæknir, hefur tekið að sér heilsugæsiustörf fyr-
ir Byrgið og hér er hann ásamt Georg H. Eyjólfssyni ráðgjafa og Guðmundi
Jónssyni, forstöðumanni í Byrginu, í Hafnarfirði í gær. DV-mynd ÞÖK.
Lokað var fyrirvaralaust fyrir raf-
magn á afvötnunardeild Byrgisins,
kristilegs liknarfélags, að Hvaleyrar-
braut 23 í Hafnarfirði á þriðjudaginn
var. Þar vora fimm áfengissjúkling-
ar í afvötnun. Lokunarmaður gerði
ekki vart við sig á skrifstofu á efri
hæð, að sögn Guðmundar Jónssonar
forstöðumanns, heldur gekk hann
\ rakleiðis inn í húsið og innsiglaði
rafmagnstöflu eftir að hafa átt
óskemmtilegan orðastað við einn
sjúklinginn á staðnum. Afvötnunar-
deildin er hins vegar lokuð deild og
óviðkomandi ekki heimill aðgangur.
„Skuldastaða Byrgisins hjá Raf-
veitu Hafnarfjaröar getur tæplega
talist svo ógnvekjandi að slíkar að-
gerðir sem þessar séu réttmætar og
löglegar," segir Guðmundur Jóns-
son sem hefur sent bæjaryfirvöld-
um kvörtunarbréf út af þessu og
ýmsu öðru sem á hefur gengið í
samskiptum við bæinn.
Þolinmæði gagnvart sjúkra-
húsum brestur
„Við förum ekki í manngreinará-
lit í þessu efni,“ sagði Jónas Guð-
laugsson, rafveitustjóri í Hafnar-
firði. „Það þarf líka talsvert til að
gripið sé til lokunar. En jafnvel þol-
inmæði okkar gagnvart sjúkrahús-
um getur þrotið," sagði Jónas. Hann
sagði að flöldi viðvarana hefði verið
sendur Byrginu.
„Okkur sýnist að bæjarfyrirvöld
hafi það helst fyrir stafni að tefja og
hindra starfsemi okkar með ýmiss
konar íhlutun og afskiptasemi. Ný-
verið hefur mikil vinna verið lögð í
að mála gular línur á allar gang-
stéttarbrúnir meðfram Vesturgötu
18 til þess að hindra að menn leggi
bílum þar og fleira má nefna þessu
líkt,“ segir Guðmundur. Hann segir
að svona hafi það gengið til í þrjú ár
í Firðinum. Engu sé líkara en bæj-
aryfirvöld séu Byrginu beinlínis
óvinveitt. Þar komi við sögu Raf-
veitan, Félagsmálastofnun, bygging-
arfulltrúi og fleiri.
„Byrgið hefur sýnt sig að vera
góð starfsémi. Þar hefur náðst ár-
angur, mörgum hefur verið bjargað
sem aðrir hafa gefist upp á,“ sagði
Tryggvi Harðarson bæjarfulltrúi í
samtali við DV í gær.
Ekki náðist í Magnús Gunnars-
son bæjarstjóra og Þorsteinn Njáls-
son var erlendis.
Vottorð landlæknis ekki gild
„Margir skjólstæðingar Félags-
málastofnunar Hafnarfjarðar hafa
verið í meðferð hjá Byrginu. í sam-
skiptum við stofnunina hefur borið
á svo augljósri óvild og stífni starfs-
manna stofnunarinnar að ekkert
hefur farið á milli mála að hér er í
gangi ógeðfellt ferli sem lýsir sér
m:a. í ófaglegum vinnubrögðum
sem einkennast af hroka, yfirgangi
og óvirðingu starfsmanna gagnvart
Byrginu og skjólstæðingum þess,“
segir Guðmundur Jónsson.
„En mér var öllum lokið þegar
starfsmaður Félagsmálastofnunar
Hafnarfjarðar sagði að læknisvott-
orð, útgefin af Ólafi Ólafssyni, fyrr-
verandi landlækni, væru ekki tekin
gild þegar verið væri að meta að-
stoðarhæfni skjólstæðinga," sagði
Guðmundur Jónsson. -JBP
7
Langar þig...
að lyfta þér upp eitt kvöld í viku ...
í örugglega skemmtilegasta og undarlegasta skólanum
í bœnum, ogfrœðast um allt sem vitað er um dulrcen
mál og samband við framliðna og hvar og hvernig þessir
handanheimar líklegast eru fyrir hófleg skólagjöld?
Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur og yfir 900
ánægðum nemendum Sálarrannsóknarskólans sl. 9 ár.
-Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um
langskemmtilegasta skólann í bænum sem í boði er í dag.
-Yfir skráningardagana er svarað í síma Sálarrannsóknar-
skólans alla daga vikunnar kl. 14 til 19.
Kynningarfundir verða í skólanum í kvöld kl. 20.30.Allir
velkomnir.
Sálarrannsóknarskólinn
- Skemmtilegasti skólinn í bænum -
Sióumúla 31
s. 561 9015 & 588 6050 j
Sauðburður í
sláturtíðinni
DV, Vesturlandi:
Þegar heimilisfólkið á Kverná
hugðist reka fé til slátrunar í síð-
ustu viku brá því heldur en ekki í
brún er ljóst var að fjölgað hafði
um einn í fjárhópnum. Um nótt-
ina leit óvænt dagsins ljós mynd-
arlegur hrútur. Móðirin er vetur-
gömul ær sem nefnd hefur verið.
Óvon, en faðernið er ekki hægt að
ábyrgjast. Ljóst er þó að einhvern
álitlegan hrútinn hefur ærin hitt í
maí.
-DVÓ / SHG
Skagaströnd
óskar eftir að ráða umboðsmann.
► | Upplýsíngar gefur Kristín Leifsdóttir
í síma 452-2703
Afgreiðsla Reykjavík, símar 550 5741 / 550 5742
Til hamingju
með afmælið
18. október
80 ára
Björn Sigurðsson,
Hrófá 2, Hólmavík.
Þórey Kristín
Guðmundsdóttir,
Hrísmóum 4, Garðabæ.
70 ára
Friðný Friðriksdóttir,
Hamarsstíg 30, Akureyri.
Haukur Eyþórsson,
Leirubakka 10, Reykjavík.
Hrefna Kristin Gísladóttir,
Vallartröð 1, Kópavogi.
Matthildur Ólafsdóttir,
Fannarfelli 10, Reykjavík.
Sigríður Helgadóttir,
Kleppsvegi 20, Reykjavík.
Sigurrós Gísladóttir,
Vallargerði 27, Kópavogi.
60 ára
Guðrún Kristjánsdóttir,
Breiðuvík 11, Reykjavík.
50 ára
Brynhildur A Ragnarsdóttir,
Dalhúsum 76, Reykjavik.
Ingiríður Karen Jónsdóttir,
Logafold 59, Reykjavík.
Ólafur Ragnarsson,
Miðengi 18, Selfossi.
40 ára
Auður Kristín Matthíasdóttir,
Lyngholti 5, ísafirði.
Eiginmaður hennar er
Aðalsteinn Ómar Ásgeirsson
útgerðarstjóri.
Aðalheiður B. Einarsdóttir,
Hjalla, Mosfellsbæ.
Baldur Ámi Björnsson,
Múlakoti, Borgarfirði.
Barbro Elísabet Glad,
Laugarbraut 12, Akranesi.
HaHa Sveinsdóttir,
Kotárgerði 28, Akureyri.
Hákon Gunnarsson,
Laugarásvegi 13, Reykjavík.
Hrafnhildur Njálsdóttir,
Skólavegi 16, Keflavík.
Jóhanna Guðný Scheving,
Skeiðarvogi 19, Reykjavík.
Jón Ágúst Pétursson,
Hálsaseli 26, Reykjavík.
Kristján Kristjánsson,
Bergstaðastræti 43, Reykjavík.
Ólafur Unnar Jóhannsson,
Nökkvavogi 36, Reykjavík.
Sigrún Jónsdóttir,
Stekkjarflöt 4, Garðabæ.
Skúli Helgason,
Árkvörn 2b, Reykjavík.
Trausti Leifsson,
Goðalandi 9, Reykjavík.
Vilhelmína S. Kristinsdóttir,
Laufásvegi 10, Reykjavík.