Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1999, Blaðsíða 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
25
Sport
Bland i poka
í undanúrslitum Eggjabikarkeppn-
innar í körfuknattleik munu eftirtal-
in félag leika saman: Keflavikingar
mæta Grindvíkingum og Tindastóll
mætir Njarðvíkingum. Leikirnir fara
fram í Laugardalshöllinni laugardag-
inn 13. nóvember og úrslitaleikurinn
verður á sama stað daginn eftir.
Andre Agassi frá Bandaríkjunum
heldur áfram efsta sæti á styrkleika-
lista alþjóða tennissambandsins. í
öðru sæti er Rússinn Yevgeny
Kafelnikov og í þriðja sæti er Pete
Sampras frá Bandaríkjunum.
Hjá kylfingum er Bandaríkjamaður-
inn Tiger Woods langefstur á styrk-
leikalistanum með 18,29 stig. Landi
hans David Duval kemur næstur
með 13,57 stig og Bretinn Colin
Montgomerie kemur í þriðja sæti
með 10,26 stig.
Fiorentina, sem mætir Arsenal í
meistardeildinni annað kvöld, er sem
höfuðlaus her eftir að Giovanni
Trappatoni hætti sem þjálfari liðs-
ins um helgina. Fiorentina óskaði eft-
ir þvi við Trappatoni að hann héldi
áfram störfum en hann hafnaði því.
Bandariski hnefaleika-
maðurinn Mike Tyson
á ekki sjö dagana sæla
um þessar mundir. Ef
ekki úr rætist á næst-
unni er kappinn á góðri
leið með að verða gjald-
þrota. Talið er að tekjur
hans á ferlinum nemi
um 200 milljónum doll-
arar svo halda mætti að
hann væri vel stöndugur. Það er öðru
nær því lánardrottnar vilja hið allra
fyrsta fá greiddar 20 milljónir dollara
og segist Tyson ekki eiga dollar til
greiðslu þeirri kröfu. Ekki er útséö
hvort hann fær greitt verðlaunaféð
frá bardaganum um næstu helgi en ef
engir peningar koma þaðan er kapp-
inn í verulega vondum málum.
Það er ekki tekió út með sældinni að
vera dómari en því fékk dómari i
þýsku áhugamannadeildinni að
kynnast um helgina. Þegar rúmar tíu
mínútur voru eftir af leik Homher og
Vatan Sport hljóp áhangandi síð-
arnefnda liðsins inn á völlinn og tók
dómarann hálstaki. Áður en verra
hlaust af var árásarmaðurinn hand-
tekinn og er hann í haldi lögreglu.
Norski netmiðillinn
Nettavisen valdi þá
Rúnar Kristinsson
hjá Lilleström og
Tryggva Guðmunds-
son, Tromsö, í lið árs-
ins í norsku A-deild-
inni. Rúnar var á dög-
unum valinn leikmað-
ur ársins af leikmönn-
um deildarinnar og
Tryggvi Guðmundsson
skoraði 13 mörk í deildinni.
Enska B-deildar liðiö Manchester
City er enn á höttunum eftir Rik-
harði Daðasyni hjá Viking í Stavan-
ger. Ljóst er að enska liðið og Hearts
frá Skotlandi hítast hart um íslenska
landsliðsmanninn. Skoska liðið er
talið reiðubúið að greiöa um eina
milljón punda fyrir Ríkharð eins og
kom fram í DV fyrir helgina.
Körfuknattleiksmaðurinn Eiríkur
Önundarson hefur staðið sig vel með
danska A-deildar liðinu Holbæk í
upphaft leiktíðarinnar. Eiríkur, sem
leikur í stöðu leikstjómanda, hefur
skorað 15 stig að meðaltali i leik í
fyrstu 6. umferðunum og er einn af
stigahæstu leikmönnum liðsins.
Holbœk hefur ekki gengið sem
skyldi og hefur aðeins unnið einn
leik í fyrstu sex umferðunum. Banda-
ríski leikmaðurinn i liði Holbæk hef-
ur átt við meiðsli að stríða og hefur
lítiö getað beitt sér. Forráðamenn
Holbæk brugðu á það ráð að fá
Kanadamann til aö bæta upp útlend-
ingamissinn en sá úlnliðsbrotnaði á
fyrstu æfingunni og var sendur heim.
Nœstsiðasta umferðin
í riðlakeppni Meistara-
deildar Evrópu hefst í
kvöld. Eyjólfur Sverris-
son, til vinstri, og félag-
ar i Hertha Berlin, sem
standa afar vel að vigi i
H-riðli, mæta
Galatasaray í Berlin.
„Það er á okkar hendi
að klára dæmið og
tryggja okkur endan-
lega áfram,“ sagði Michael Preetz,
leikmaður Hertha, í gær.
íslenska drengjalandsliðió í knatt-
spyrnu gerði markalaust jafntefli við
heimamenn í fyrsta leik sínum i
riðiakeppni Evrópumóts landsliða
sem fram fer þessa dagana á Norður
frlandi. -GH/JKS
DV
DV
Sport
Enska knattspyrnan í gærkvöldi:
Newcastle úr fallsætinu
Lið Newcastle komst 1
fyrsta skiptið úr fallsæti á
þessari leiktíð þegar það lagði
Derby að velli í ensku A-
deildinni í knattspyrnu í
gærkvöldi.
Sigur heimamanna var
fyllilega sanngjarn og svo
virðist sem Bobby Robson sé
að takast að koma Newcastle á
rétta braut eftir afleita byrjun
á leiktíðinni þegar Ruud
Gullitt var við stjómvölinn.
Italinn Stefano Eranio
skoraði sjálfsmark í fyrri
hálfleik og Alan Shearer
innsiglaði svo sigurinn í
seinni hálfleik með sínu 11.
marki á tímabilinu.
Newcastle er í fjórða neðsta
sæti deildarinnar með 10
stig, einu meira en Derby
sem er í þriðja neðsta
sætinu. -GH
Úrvalsdeildin í körfubolta:
Guðjón með á fimmtudag
Möguleiki er á að Guðjón Skúlason spili með
úrvalsdeildarliði Keflvíkinga gegn KR-ingum
á fhnmtudagskvöldið en Guðjón hefur verið
frá í nokkrar vikur eða frá því hann
handarbrotnaði á æfingu ÍBR-liðsins.
Guðjón fer í myndatöku í dag og eftir hana
skýrist hvort læknar gefi honum grænt ljós á
að spila. -GH
Stjórn knattspyrnudeildar ÍBV vill koma eftirfarandi á framfæri:
Jens Martin gekk á bak orða sinna
Að gefnu tilefni vill stjórn knatt-
spymudeildar ÍBV koma eftirfarandi á
framfæri:
ÍBV hefur ekki lagt það í vana sinn
að senda frá sér greinargerð í fjölmiðla
þótt samningaviðræður við leikmenn
hafi ekki gengið upp, enda aldrei gefist
tilefni til, fyrr en nú.
í byrjun siðustu viku var ljóst að
ÍBV myndi líklega missa markvörð
sinn og íslenska landsliðsins, Birki
Kristinsson. Ákveðið var að ræða við
Jens Martin Knudsen, markvörð Leift-
urs og færeyska landsliðsins, í fram-
haldi af því en hann var með lausan
samning.
Framkvæmdastjóri knattspyrnu-
deildar hafði fyrst samband við hann
símleiðis þriðjudaginn 19. október sl.
um þann möguleika að hann kæmi til
ÍBV. Jens tók strax vel í það en gerði
ÍBV það ljóst að hann væri einnig i
viðræðum við fleiri félög.
Viðræðurnar við Jens Martin gengu
vel og síðastliðinn fostudag náðist
samkomulag um öll stærstu atriði
samningsins. Viðræðurnar fóru fram i
gegnum síma og svo voru samnings-
drög send með simbréfl á milli land-
anna.
Samningsdrögin voru á íslensku en
Jens Martin vildi að þau yrðu sett upp
á dönsku sem var auðsótt mál af okk-
ar hálfu og sá Jens sjálfur um það.
Á laugardaginn sendi Jens ÍBV
dönsku útgáfuna af samningnum.
Þurfti að lagfæra nokkur smáatriði en
seinni partinn á laugardaginn var það
frágengið og Jens sendi ÍBV lokaútgáf-
una til undirritunar. Framkvæmda-
stjóri knattspyrnudeildar skrifaði und-
ir samninginn kl. 15.30 síðastliðinn
laugardag fyrir hönd ÍBV og faxaði til
Færeyja og hringdi svo í Jens. Hann
var hinn ánægðasti, sagðist ætla að
faxa samninginn daginn eftir. Jens
sagðist nú ætla að opna viskíflösku og
halda upp á þetta og óskaði ÍBV jafn-
framt til hamingju með að hafa fengið
einn af tíu bestu markvörðum heims
til sín!
Á sunnudaginn var reynt að hi-ingja
allan daginn í Jens en ekki náðist í
hann fyrr en seinni partinn þann
dag. Var ákveðið að Jens skyldi koma
til Vestmannaeyja um næstu helgi en
þá fer fram lokahóf ÍBV. Þar gæfíst
honum tækifæri til þess að hitta þjálf-
arann, stjórnarmenn og leikmenn ÍBV.
í lok samtalsins sagðist Jens ætla að
faxa samninginn eftir kvöldmat. Jafn-
framt var honum tilkynnt að fréttatil-
kynning yrði send í fjölmiðla og gerði
hann enga athugasemd við það.
Eftir kvöldmat hringdi fram-
kvæmdastjóri ÍBV aftur í Jens Martin
til þess að spyrja hvort hann væri bú-
inn að faxa samninginn til Vest-
mannaeyja. Þá er komið annaö hljóð í
Jens Martin því hann sagðist vera bú-
inn að skipta um skoðun! Hann hefði
fengið tilboð frá öðrum klúbbi sem
hann fengi bara einu sinni á ævinni og
því gæti hann einfaldega ekki hafnað
og ákvörðun sinni yrði ekki haggað.
Var Jens spurður hvort það væri frá
Leiftri en Jens neitaði því staðfastlega
í samtali við framkvæmdastjóra ÍBV.
Lauk símtali þeirra með því að fram-
kvæmdastjóri ÍBV bað Jens að hringja
milliliðalaust í varaformann knatt-
spyrnudeildar ÍBV og tilkynna honum
þessa ákvörðun sína.
Jens hringdi í varaformann ÍBV síð-
ar um kvöldið og tilkynnti honum
ákvörðun sina. Það fyrsta sem varafor-
maðurinn spurði Jens var hvort hann
væri að fara í Leiftur en hann neitaði
því aftur.
í DV í gær (mánudag) er svo birt
frétt þess efnis að Jens Martin Knud-
sen hafi verið ráðinn þjálfari Leifturs.
Af framangreindu er ljóst að Jens
Martin hefur ekki komið heiðarlega
fram, hvorki við stjórn ÍBV eða Leift-
urs. ÍBV hefði aldrei farið að senda
fréttatOkynningu á helstu fjölmiðla
landsins ef minnsti vafl hefði leikið á
því að samningur við Jens Martin
væri í höfn.
Fyrir utan það að ganga á bak orða
sinna um að samningurinn við ÍBV
væri klár og hann hefði undirritað ein-
tak f höndunum frá ÍBV varð hann
uppvís að því í tvígang að segja bæði
varaformanni ÍBV og framkvæmda-
stjóra ósatt.
ÍBV þykir leitt að þessi snjalli mark-
vörður skyldi ekki standa við orð sín
og málið skuli hafa þróast með þessum
hætti. í svona máli stendur enginn
uppi sem sigurvegari heldur skaöast
allir hlutaðeigandi, þ.e. Jens, ÍBV og
Leiftur.
ÍBV óskar Leiftri til hamingju með
nýjan þjálfara og óskar honum vel-
farnaðar í nýju verkefni þar sem reyn-
ir umfram allt á heiðarleika manna.
Evrópumót stúlknalandsliða í knattspyrnu:
Góð byrjun
- 4-1 sigur á Slóvökum í fyrsta leik
íslenska stúlknalandsliðið, skipað
leikmönnum undir 18 ára, tekur nú
þátt í undankeppni Evrópumótsins
sem fram fer í Sviss. ísland er í riðli
með Slóvakíu, Sviss og Spáni og lék
gegn Slóvökum I dag.
íslensku stelpurnar tóku leikinn
strax í sínar hendur og á 10. mínútu
skoraði Rakel Logadóttir fyrir
ísland og þannig stóð í hálfleik.
Slóvakar jöfnuðu leikinn, 1-1,
snemma í síðari hálfleik en Erna
Erlendsdóttir, Laufey Jóhannsdóttir
og Elín Anna Steinarsdóttir
skoruðu sitt markið hver fyrir
leikslok og tryggðu Islandi 4-1
sigur.
-ih
Tim Sherwood, hinn öflugi
miðjumaður Tottenham, þarf að
gangast undir aðgerð i nára. Þetta er
mikið áfall fyrir Tottenham og enska
landsliðið enda hefur Sherwood
leikið mjög vel á leiktíðinni. Það er
því ljóst að hann verður ekki með
enska landsliðinu í leikjunum gegn
Skotum en þeir leikir skera úr um
hvor þjóðin kemst i úrslit
Evrópukeppninnar á næsta sumri.
Enski
landsliðsmaðurinn
Paul Scholes hjá
Manchester United
þarf sömuleiðis að
fara i aðgerð vegna
kviðslits og verður frá
í 6 vikur. Alex
Ferguson, stjóri
United, leggur hart að
Scholes að spila næstu
tvo Evrópuleiki áður en hann fer í
aðgerðina enda nýbúinn aö missa
Nicky Butt 1 meiösli.
Svíinn Jesper Blomqvist, sem
ekkert hefur leikið með Manchester
United á leiktíðinni vegna
hnjámeiðsla, reiknar með að verða
klár í slaginn eftir 3-4 vikur.
Blomqvist þurfti að fara í aðgerð
fyrir sex vikum og hefur verið I
meðferð síðan þá.
Brasilíumaðurinn Marcelo gekk í
gær til liðs við Birmingham frá
ShefField United. Birmingham greiddi
60 milljónir króna
fyrir framherjann.
Ólafur H.
Kristjánsson lék
allan tímann fyrir
AGF þegar liðið gerði
jafntefli, 1-1, gegn
Viborg á útivelli t
dönsku A-deildinni í
knattspymu um
helgina. Tómas Ingi
Tómasson kom ekki við sögu í
leiknum. AGF er í mikilli fallhættu.
Liðið er í þriðja neðsta sæti með 11
stig eins og Vejle og Esbjerg sem eru
í failsætunum.
Hörð keppni er á toppi dönsku A-
deildarinnar. AB er efst með 26 stig
en þar á eftir koma Bröndby, AaB og
Herfólge öll með 25 stig.
Hácken tryggói sér um helgina sæti
í sænsku A-deildinni í knattspyrnu
og leikur þvl á meðal þeirra bestu á
ný. Þjálfari liðsins er
Akureyringurinn Gunnar Gislason,
fyrrum landsliðsmaður, sem lék á
árum áöur með liðinu. Það var
SundsvaU sem fylgdi Hácken upp í A-
deildina.
a 1. DEIID KVEHHA
Sigurður Jónsson
gæti verið á leiðinni
til Stoke til að taka
við þjálfun hjá liðinu
auk þess að spila
með því.
Ellefu mörk hjá Shearer
Alan Shearer, fyrirliði Newcastle, var
enn á skotskónum í 2-0 sigri liðsins ó
Derby í gær og gerði sitt 11. deildar-
mark fyrir liðið í vetur. Reuters
Keflavík er eina liðið í kvennakörfunni
sem hefur ekki tapað leik í vetur eftir að
það vann Stúdínur, 52-65, hitt ósigraða lið-
ið í 1. deild kvenna, í Kennaraháskólanum
í gær. Keflavík hefur þvi unnið alla fimm
leiki sína i deildinni til þessa en ÍS situr
við hlið Islandsmeistara KR í öðru sæti
með sex stig af átta mögulegum.
Keflavík byijaði leikinn vel í gær og
komst í 4-22 en þá tóku heimastúlkur við
sér, minnkuðu muninn í 23-31 fyrir hálf-
leik og svo alveg niður í 6 stig, 39-45, þeg-
ar 10 mínútur voru eftir. Keflavík var
samt sterkara á lokakaflanum og kom
muninum upp í 13 stig fyrir leikslok.
Stúdínur léku án lykilamannsins í gær
þar sem Signý Hermannsdóttir er meidd
en eftir erfiða byrjun náði ÍS upp magn-
aðri baráttu sem gerði Keflavík oft líflð
leitt. 16 sóknarfráköst án þess að vera með
sinn mesta frákastara lýsir vel baráttuhug
þeirra sem ekki náði þá að skila stigunum
í hús.
Hafdís Helgadóttir lék best Stúdína en
Jófríður Halldórsdóttir, Kristjana Magn-
úsdóttir og María Leifsdóttir stóðu sig
vel. Hjá gestunum var Erla Þorsteinsdótt-
ir sterkust sem oft áður og hitti meðal
annars úr öllum 10 vítum sínum sem þýð-
ir að hún hefur hitt úr 19 vítum í röð og
alls 30 af 34 i vetur. Anna María Sveins-
dóttir gerði sitt en hitti illa (5 af 16) en það
var einkum góð vítanýting Keflavíkur í
seinni hálfleik (16 af 17, 94%) sem skilaði
stigunum báðum suður með sjó í gær.
Stig ÍS: Hafdís Helgadóttir 11 ( 4 varin skot),
Kristjana Magnúsdóttir 11, María B. Leifsdóttir
11, Jófríður Halldórsdóttir 7, Georgia Kristian-
sen 7, Júlía Jörgensen 3, Svana Bjamadóttir 2.
Stig Keflavíkur: Erla Þorsteinsdóttir 22, Krist-
ín Blöndal 15 (5 stolnir), Anna María Sveinsdótt-
ir 13 (8 stoðsendingar, 10 fráköst), Alda Leif
Jónsdóttir 8 (8 fráköst, 5 stolnir), Marín Rós
Karlsdóttir 4, Kristín Þórarinsdóttir 2, Bima
Guðmundsdóttir 1. -ÓÓJ
íslenskir körfuboltadómarar:
Næg verkefni
íslenskir körfuboltadómarar hafa nóg að gera
erlendis við dómgæslu á næstu vikum en allir
tslensku FIBA-dómaramir em búnir aö fá leiki hjá
FIBA í næstu umferð Evrópumóta félagsliða.
Kristinn Albertsson fær tvo leiki, hann dæmir
tvisvar í Finnlandi, einn leik í Saporta-bikamum mili
Honka Espoo frá Finnlandi og AEK frá Grikklandi og
svo leik Huima og Nancy sem eru með ÍRB í riðli.
Kristinn Óskarsson dæmir leiki Lulea frá Sviþjóð
og Aalst frá Belgíu og leik liðs Fals Harðarsonar,
Topo, í Finnlandi og Novo Mesto frá Slóveniu en
báðir leikimir em í Saporta-bikamum.
Helgi Bragason dæmir leiki liðs Helga
Guðfinnsonar, Telindus Antwerpen og Fuenlabrada
frá Spáni og leik Quaregon frá Belgíu og Bayer
Leverkusen frá Þýskiandi en báðir þeir leikir em i
Korac-bikamum.
Leifur Garðarsson fékk að lokum Ieik Lulea frá
Svíþjóð og Adecco Milano frá Ítalíu. -ÓÓJ
Ivar maður leiksins
DV, Englandi:
Eyjamaðurinn
ívar Ingimarsson,
sem leikur með
Torquay í ensku D-
deildinni, skoraði
jöfnunarmarkið í
2-1 sigri liðsins á
toppliði Barnet um
helgina.
ívar var valinn
maður leiksins af
blaðinu The Sun
þar sem hann stóð
sig með mikilli prýði í þessum
óvænta sigri liðsins.
I blaðinu Daily Star fékk ívar
8 í einkunn af 10 mögulegum
sem var besta ein-
kunnin sem gefin var
í leiknum.
Torquay er nú í 3.
sæti í D-deildinni en
Barnet heldur topp-
sætinu þrátt fyrir
fyrsta ósigur á
heimavelli á tímabil-
inu. ívar er í láni hjá
hjá liðinu en ef vel
gengur gætu samn-
ingar náðst á milli
ívars og Torquay.
ívar hefur verið lykil-
maður í liði ÍBV undanfarin
þrjú tímabil ásamt því að leika
með U-21 árs landsliði íslands.
-ÍBE
- Keflavík vann ÍS, 65-52
Teitur fékk frest
Teitur Þórðarson, landsliðsþjálfari Eistlands og þjálfari Flora Tallinn,
hefur enn ekki gert upp hug sinn varðandi þjálfun á næsta tímabili. Hann
er með tilboð frá þremur stöðum, frá eistneska knattspyrnusambandinu, frá
gríska A-deildar liðinu Ionikos og frá norska A-deildar liðinu Brann.
Teitur átti fund með stjórnarmönnum Brann í Noregi á sunnudaginn og
á þeim fundi bað hann um frest til að svara tilboðinu fram í næstu viku.
Teitur hélt með landslið Eistlands til Sameinuðu arabísku furstadæmanna í
gær en Eistar taka þar þátt í æfingamóti. -GH
Jens Martin Knudsen um ÍBV-málið:
Átti ekki að fréttast
Færeyska dagblaðið Sosialurin flallar í dag um mál Jens Martins
Knudsens, landsliðsmarkvarðar Færeyja, sem er tekinn við þjálfun
knattspymuliðs Leifturs eftir að hafa hætt við að ganga til liðs við ÍBV á
síðustu stundu í fyrrakvöld. Jens Martin segir við Sosialurin að hann hafl
átt í viðræðum við ÍBV og um þær hefði ekki átt að fréttast. Það hefðii hins
vegar lekið út til flölmiðla á sunnudaginn, einhverra hluta vegna, áður en
hann hefði verið búinn að taka endanlega ákvörðun. Þá hefði hann hringt í
Eyjamenn og tilkynnt þeim að hann tæki ekki samningstilboði þeirra. -VS
Norski knattspymumaðurinn John
Arne Riise, sem er 19 ára gamall,
hefur framlengt samning sinn við
franska A-deildar liðið Monaco til
ársins 2006 og fær í árslaun um 45
milljónir króna. Riise kom til
Monaco sem óskrifað blað í fjTra en
hann var ekki lengi að heilla
forráðamenn félagsins upp úr
skónum. Ensku liðin Liverpool,
Manchester United, Leeds og Arsenal
hafa lengi haft augastað á piltinum
en Monaco hefur nú tryggt að hann
verði hjá félaginu
næstu 7 árin.
fslendingaliðin i
grisku
knattspymunni
unnu bæði leiki sína
í gær. Panathinaikos
lagði Ethnikos á
útivelli, 1-2. Helgi
Sigurðsson var i
byrjunarliðinu en
var skipt út af á 54. mínútu. AEK
lagði Paniliakos á útivelli, 0-1. Arnar
Grétarsson var I byrjunarliði AEK
en var tekinn af veíli á 71. mínútu.
Olympiakos er efst eftir 5 umferðir
með 15 stig, Panathinaikos er með 13
stig, Salonika 11 og AEK10. -GH
hægri, „stelur her
boltanum af Öldu Leif
Jónsdóttur, leikmanni
Keflavíkur, í gær en
þetta var fyrsti leikur
Öldu gegn sínum
gömlu félögum.
DV-mynd E. Ól.
mmm
■
Tilvonandi íslensku fjárfestarnir í Stoke:
-
Keflavik
KR
ÍS
Grindavik
KFÍ
Tindastóll
Anna Maria Sveinsdóttir var t 200.
sinn i sigurliði I efstu deild á
ferlinum i gærkvöld er Keflavík vann
ÍS 1 Kennaraháskólanum. Anna náði
þessum árangri í stnum 237.
deildarleik með félaginu. -ÓÓJ
- frá Dundee United sem spilandi þjálfara
Islensku flárfestarnir sem hyggjast kaupa
meirihlutann í enska knattspymuliðinu Stoke
hafa áhuga á því að kaupa Sigurð Jónsson frá
skoska liðinu Dundee United og bætist
Sigurður því í hóp þeirra íslensku leikmanna
sem gætu komið til Stoke.
Þetta kemur fram í skosku útgáfu enska
blaðsins The Sun í gær. I fréttinni kemur fram
að jafnframt spilamennskunni myndi Sigurð-
EM kvennalandsliða:
Úrslitin standa
KSÍ barst í gær tilkynning frá
UEFA, knattspymusambandi
Evrópu, þess efnis að úrslit leiks
Úkrainu og íslands sem fram fór 22.
ágúst í Evrópukeppni kvenna-
landsliða skuli standa óbreytt en
sambandið hafði áður dæmt íslandi
3-0 sigur vegna ólöglegs
leiksmanns Úkrainu. Þetta er
endanlegur dómur UEFA en það
hafði reyndar fullyrt það áður með
hinn úrskurð sinn. -ÓÓJ
ur verða éinn af þjálfurum liðsins. Samningur
Sigurðar við skoska liðið rennur út eftir yflr-
standandi timabil. Eins og áður hefur komið
fram hafa fiárfestamir hug á að fá fleiri ís-
lenska leikmenn og hafa Rúnar Kristinsson
hjá Lilleström, Brynjar Björn Gunnarsson, Ör-
gryte, og Eyjamaðurinn ívar Ingimarsson, sem
nú er á leigusamningi hjá Torquay í Englandi,
verið nefndir í því sambandi. -VS/JKS
Sámal Joensen
til Leifturs?
Sámal Joensen,
landsliðsmaður
Færeyja í knatt-
spyrnu, er væntan-
legur til Leifturs
í Ólafsflrði
síðar í
ari viku til
viðræðna um
að hann leiki
með liðinu
næsta sumar.
Sámal, sem er 24 ára
miðjumaður, var á
leiðinni til Leifturs
fyrir nýliðið tímabil
en félag hans í Fær-
eyjum, GÍ frá Götu,
vildi ekki sleppa
honum nema fyrir
háa upphæð sem
Ólafsfirðingar
ekki til-
að
greiða.
Hann lék því
með GÍ út þetta
tímabil en er nú
væntanlega laus
allra mála við
æreyska félagið.
-VS