Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Gífurleg sprenging í borholu viö Krýsuvík:
Steypt plan sprakk
- og veitingaaðstaða stórskemmdist. Menn nýfarnir af staðnum
Sjónarvottar sem DV ræddi við
í gær sögðu að bíll starfsmanna
Hafnarfjarðarbæjar hefði verið
nýfarinn af planinu þegar
sprengingin varð. Þama lá því
við stórslysi.
Mikla gufu lagði frá holunni
síðdegis í gær og gengu leðju-
slettur þá enn upp úr henni.
-JSS
Við sprenginguna tættist þakið að hluta af
veitingaaðstöðunni og gluggar mölbrotn-
uðu. Einnig brotnaði úr veggjum. Húsnæð-
ið hefur verið í rekstri á sumrin en staðið
autt yfir vetrartímann.
Gifurleg sprenging varð í borholu
við Krýsuvík um miðjan dag í gær.
Stórt, steypt plan við borholuna tættist
upp og flugu stórir steypuhnullungar á
annað hundrað metra vegalengd. Veit-
ingaaðstaða í um 100 metra fjarlægð
frá borholunni stórskemmdist við
sprenginguna. Enginn var á svæðinu
þegar atvikið átti sér stað en sjónar-
vottar höfðu skömmu áður séð bíl á
stæðinu við húsið. Erlendir ferðamenn
koma þama daglega, þannig að mikil
mOdi var að ekki varð stórslys við
sprenginguna.
Að sögn Þorsteins Ásgeirssonar hjá
Almennu pípulagningaþjónustunni,
sem hefur verið við störf i Krýsuvík,
em 10-12 dagar síðan borholan stíflað-
ist. Hún var steypt upp en hafði hran-
ið saman. I gærdag sprakk hún og stóð
svartur leðjustrókur upp úr henni, að
sögn sjónarvotta sem DV ræddi við í
gær. Steypt plan við holuna, sem Þor-
steinn áætlaði áð hefði verið 6-8 tonn
að þyngd, fór í tætlur og dreifðust
steypuhnullungamir og leir um svæð-
ið frá holunni að veitingaaðstöðunni.
Þorsteinn Ásgeirsson með
steyptan hnullung sem hafði
borist á annað hundrað metra
og lenti á planinu fyrir framan
sjoppuna. Grjóti hafði rignt yfir
pianið og vart hefði þurft að
spyrja að leikslokum hefði ein-
hver verið þar. DV-mynd Pjetur
Eins og sjá má var varla nokkur heillegur hlutur innan dyra eftir sprenginguna.
Átök í Reykjanesbæ út af nektardansi:
Dansmeyjarnar á leið til Keflavíkur
- bíða í stellingum á flugvöllum í Evrópu
Sex nektardansmeyjar eru í við-
bragðsstöðu á flugvöllum víða í Evr-
ópu og bíða eftir kallinu frá Jóni
Harðarsyni, veitingamanni í Casinó,
sem átt hefur í stríði við bæj-
arstjórn Reykjanesbæjar um
leyfi til nektarsýninga á veit-
ingastað sínum. í því stríði
hefur Ellert Eiríksson bæjar-
stjóri gengið til liðs við
minnihlutann í bæjarstjórn
ásamt einum framsóknar-
manni til að koma í veg fyrir
væntanlegar nektarsýningar
innan bæjarmarkanna.
„Bæjarstjórinn hefur boðið
mér að hafa opið frá klukkan
11 fyrir hádegi og til klukkan 20 á
kvöldin en þá heldur hann að spill-
ingin hefjist. Sá tími hentar mér að
sjálfsögðu ekki til nektarsýninga,"
sagði Jón Harðarson, veitingamaður í
Casinó, sem áfrýjað hefur málinu til
úrskurðarnefndar dómsmálaráðu-
neytisins um hve lengi veitingastaðir
megi vera opnir. „Það eina sem ég fer
fram á er að fá að hafa opið eins lengi
og aðrir veitingamenn hér á Suður-
nesjum. Ég fæ leyfið innan
skamms ef eitthvert réttlæti
er til í þessum heimi - og í
Reykjanesbæ."
Veitingastaðurinn Casinó
er í iðnaðarhverfi nálægt
smábátahöfninni í Reykja-
nesbæ og þar skammt frá á
veitingamaðurinn hús þar
sem hann ætlar að láta
dansmeyjarnar búa: „Þetta
er 120 fermetra hús þannig
að það verður rúmt um
dansmeyjarnar. Þær verða þarna
ásamt húsverði sem fylgir þeim í og
úr vinnu. Ég veit að þær bíða spennt-
ar ytra eftir að ég láti þær vita að
leyfið sé í höfn og þá koma þær á
augabragði," sagði Jón veitingamað-
ur í Casinó. -EIR
Ellert Eiríksson
bæjarstjóri - til
p íl l!
m
Veitingastaðurinn Casinó - súlan bíður slfpuð.
Básafell tapaði 850 milljónum á síðasta rekstrarári:
Þarf að taka fyrirtækið í gegn frá grunni
- segir Guðmundur M. Kristjánsson framkvæmdastjóri
Básafell sendi Verðbréfaþingi í
gær afkomuviðvörun þar sem seg-
ir að afkoma félagsins hafi verið
mun lakari en ráð var gert fyrir.
Tap af reglulegri stárfsemi Bása-
fells skv. bráðabirgðauppgjöri er
yfir 600 milljónir á síðasta rekstr-
arári félagsins. Þar að auki eru
aðrir liðir neikvæðir um 250 millj-
ónir og verður því
heildartapið um 850
milljónir króna.
„Ja, það verður að
stöðva þennan tap-
rekstur. Það má nú
segja að ég komi ekki
að þessu fyrr en eftir
þetta rekstrarár og
Orri ÍS eitt sklpa
Básafells.
við höfum náttúrlega ver-
ið að hugsa þetta. Við
höfum til dæmis selt
Sléttanesið þó að kannski
megi deila um þá ákvörð-
un. Svo munum við bara
bregðast við þessu á
næstu vikum. Við vissum
að þetta yrði þungt en
reiknuðum alls ekki með að aðrir
liðir yrðu svona háir. Það þarf
náttúrlega að fara betur ofan í það
og skýra af hverju þessi hlutur er
svona hár og það verður gert. Ég
held að það megi segja að það sé
einhver röng uppbygging í þessu
fyrirtæki og við þurfum að taka
það í gegn í frá grunni." -hdm
Kristinn í Metropolitan
Kristinn Sig-
mundsson óperu-
söngvari syngur
á móti hinum
heimsfræga ten-
ór Placido Dom-
ingo í
Metropolitan-óp-
eranni i New
York í apríl á næsta ári. Kristinn er
þriðji íslendingurinn sem syngur í
þessu stærsta og frægasta ópera-
húsi heims en áður hefur Maríu
Markan og Kristjáni Jóhannssyni
hlotnast sá heiður. Mbl. sagði frá.
Fiskur dýrari en kjúklingar
Nýr fiskur og frosinn hefur
hækkað um tæp 46% frá því í mars
1997 og hefur sjaldan eða aldrei ver-
ið dýrari. Á sama tíma hefur al-
mennt verðlag hækkað um rúm 8%.
Að sögn Rósmundar Guðnasonar
hjá Hagstofú íslands er fiskurinn
orðinn mun dýrari en t.d. kjúkling-
ar og svínakjöt. Almennt hafa
fiskafúrðir út úr verslunum hækk-
að um ríflega 28%. Mbl. sagði frá.
350 börn í kuldanum
Tólf leikskólar Reykjavíkurborg-
ar hafa á undanfómum mánuðum
þurft að grípa tO þess ráðs að loka
einstaka deildum um hádegi með
reglulegu milTihili vegna manneklu.
í samantekt Ömu Schram kemur
m.a. fram að rekja megi þennan
vanda á leikskólum borgarinnar til
launakjara leikskólakennara og
annarra starfsmanna leikskólanna.
Mbl. sagði frá.
Meöferöarunglingum fjölgar
19 ára unglingum og yngri sem
komið hafa í meðferð á Sjúkrahús-
inu Vogi vegna áfengis- og vímu-
efnaneyslu hefúr fjölgað um helm-
ing á átta árum. Bagur sagði frá.
Fölsuö málverk hjá FBA
Opinber rann-
sókn efnahags-
brotadeildar lög-
reglunnar á
meintum fólsun-
um á ellefu lista-
verkum í eigu
FBA er hafin.
Granur vaknaði
um að hluti listaverka FBA væri
falsaður í sumar og vora innlendir
sérfræðingar fengnir til að skoða
verkin. Ólafur Ingi Jónsson forvörð-
ur segir að flest ef ekki öll verkin
hafi verið keypt í gegn um Gallerí
Borg. RÚV greindi frá.
Ríkisstofnun á hverja 1.000
Ríkisstofnanir era um 250 í land-
inu svo líklegt er að ísland eigi
heimsmetið í fjölda ríkisforstjóra,
suma bara yfir sjálfum sér og hálf-
um ritara. Dagur sagði frá.
Klámið í fastari farveg
f næstu viku er að vænta tillagna
um það hvaða breytingar mögulegt
og æskilegt er að gera til að stemma
stigu við útþenslu klámiðnaðar í
landinu. Kröfur um bann við
rekstri nektardansstaða era orðnar
háværar en sveitarfélög telja sig
skorta lagaheimiid. Dagur sagði frá.
Chase Manhattan í FBA?
Verið er að leggja lokahönd á hóp
fiárfesta tengdum Orca hópmun og
hefur verið unnið að því að fá aðra
fiárfesta tO samstarfs um tilboð í
FBA. Talið er að það verði tveir eða
þrir af stærstu lífeyrissjóðum lands-
ins, nær öragglega Lifeyrissjóður
verslunarmanna og hugsanlega líf-
eyrissjóðurinn Framsýn. Þá hefur
Chase Manhattan bankinn verið
nefndur sem líklegur kostur. RÚV
sagði frá.
Leikskólalögum breytt?
Eftir dóm Fé-
lagsdóms í máli
leikskólakenn-
ara í Árborg
virðist óhjá-
kvæmileg
skylda ríkis-
sfiómar og Al-
þingis að breyta
lögum þannig að hópuppsagnir
verði ólöglegar, segir Páll Pétursson
félagsmálaráðherra. RÚV greindi
frá.
-GAR