Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 JP « Messur Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Organleikari: Pavel Smid. Vænst er þátttöku væntanlegra fermingarbarna og foreldra þeirra i guðsþjónustunni. Barnaguösþjón- usta kl. 13. Bamakór kirkjunnar syngur undir stjórn Margrétar Dannheim. Bænir - fræðsla, söngv- ar, sögur og leikir. Foreldar - afar - ömmur em boðin velkomin með börnunum. Prestarnir. Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjón- usta kl. 11. Guðsþjónusta á sama tíma. Organisti: Daníel Jónasson. Tómasarmessa kl. 20 í samvinnu við félag guðfræðinema og kristi- legu skólahreyfinguna. Fyrirbænir og fjölbreytt tónlist. Kaffisopi í safnaðarheimilinu að messu lok- inni. Gísli Jónasson. Digraneskirkja: Kl. 11. Messa. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti: Örn Falkner. Sunnu- dagaskóli á sama tíma. Léttur máls- veröur eftir messu. Eyrarhakkakirkja: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Sóknarprestur. Fella- og Hólakirkja: Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti Lenka Mátéová. Barnaguðsþjónusta á sama tíma. Umsjón Margrét Ólöf Magnúsdóttir. Prestamir. Flateyrarkirkja: Almenn guðs- þjónusta kl. 11. Athugið breyttan messutíma. Barnastarf á sunnudög- um kl. 11.15. Guðspjallið i myndum, ritningarvers, bænir, sögur, söngv- ar. Afmælisbörn fá sérstakan glaðning. Sr. Gunnar Björnsson. Fríkirkjan i Reykjavík: Bama- guðsþjónusta kl. 11. Fuglunum gef- ið brauð í lok samveru. Guðsþjón- usta kl. 14. Prestur sr. María Ágústsdóttir. Aldraðir úr Kópavogi koma í heimsókn. Tónleikar í kirkjunni kl. 20. Kór Skálholts- kirkju syngur ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur. Hjörtur Magni Jóhannsson. Grafarvogskirkja: Sunnudaga- skóli í Grafarvogskirkju kl. 11. Prestur sr. Vigfús Þór Árnason. Umsjón: Hjörtur og Rúna. Org- anisti: Hörður Bragason. Sunnu- dagaskóli í Engjaskóla kl. 11. Prest- ur sr. Sigurður Arnarson. Umsjón: Signý, Guðrún og Guðlaugur. Hátíðarguðsþjónusta í Grafarvogs- kirkju kl. 14. Sóknarpresturinn á Sigluflrði, sr. Bragi Ingibergsson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Vigfúsi Þór Árnasyni, sóknarpresti Grafarvogskirkju. Kirkjukaffi að lokinni guðsþjón- ustu. Prestarnir. Hjallakirkja: Tónlistarguðsþjón- usta kl. 11. Sr. íris Kristjánsdóttir þjónar. Kammerkór Hjallakirkju syngur og leiðir safnaðarsöng. Org- anisti: Jón Ólafur Sigurðsson. Bamaguðsþjónusta í kirkjunni kl. 13 og í Lindaskóla kl. 11. Við minn- um á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Prestarnir. Kópavogskirkja: Barnaguðsþjón- usta í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Organisti: Hrönn Helgadóttir. Lágafellskirkja: Guðsþjónusta kl. 14. „Vorboðarnir", kór aldraðra í Mosfellsbæ, kemur í heimsókn og syngur nokkur lög. Kirkjukaffi í skrúðhússalnum. Bamastarf í safn- aðarheimilinu kl. 11. Jón Þorsteins- son. Njarðvíkurkirkja: Sunnudaga- skóli kl. 11 sem fram fer í Ytri- Njarðvíkurkirkju. Bíll fer frá safn- aðarheimilinu í Innri-Njarðvík kl. 10.45. Ytri-Njarðvíkurkirkja: Sunnu- dagaskóli kl. 11. Fermingarböm að- stoða við brúðuleikhús. Leikið á fiðlu. Guðsþjónusta kl. 14. Baldur Rafn Sigurðsson. Selfosskirkja:Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sóknarprestur. Seljakirkja: Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskars- dóttir þjónar. Kórar kirkjunnar leiða söng. Organisti og kórstjóri er Gróa Hreinsdóttir. Ath., guðsþjón- ustunni verður útvarpað. Guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðs- son prédikar. Fermd verður Sigrún Valsdóttir, Heiöarseli 4, Reykjavík. Altarisganga. Organisti er Gróa Hreinsdóttir. Guðsþjónusta í Skóg- arbæ kl. 16. Sr. Irma Sjöfn Óskars- dóttir prédikar. Organisti er Gróa Hreinsdóttir. Sóknarprestur. Skálholtskirkja: Messa verður sunnudag kl. 11. Unglingakór Hall- grímskirkju syngur. Sóknarprest- ur. Torfastaðakirkja: Bamaguðsþjón- usta kl. 14. Söngur - fræðsla - sög- ur - bænir - samfélag. Sóknarprest- m:. Afmæli Guðmundur G. Þórarinsson Guðmundur G. Þórarinsson verk- fræðingur, Rauðagerði 59, Reykja- vik, er sextugur í dag. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík. Hann varð stúdent frá MR 1959, tók fyrrihlutapróf í verkfræði frá HÍ 1963 og próf í byggingarverkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn 1966. Gumundur kenndi við MR 1962-63, við MH 1970-71, og við TÍ 1971-73, var verkfræðingur hjá Reykjavíkurborg 1966-70, rak eigin verkfræðistofu í Reykjavík 1970-79, breytti henni þá í fyrirtækið Fjör- hönnun hf. í eigu starfsmanna, stofnaði, ásamt fleirum, Verkfræði- skrifstofu Suðurlands á Selfossi 1973, var forstjóri Þýsk-íslenska verslunarfélagsins 1983, var borgar- fulltrúi í Reykjavík 1970-74, var varaþm. 1974-79 og alþm. 1979-83 og 1987-91, rak með fleirum fiskeldis- stöðina ísþór hf. 1985-90, og rekur verkfræðistofu í Reykjavík frá 1991. Guðmundur sat í framkvæmda- stjórn og miðstjórn Framsóknar- flokksins, var gjaldkeri hans 1979-86, átti sæti í Evrópuráðinu í Strassborg 1979-83 og 1983-87, sat í stjórn Stéttarfélags verkfræðinga 1969-70, varaformaður þar 1970-71, sat í aðalstjórn Verkfræðingafélags íslands og formaður þess 1993-94, ritstjóri Árbókar VFÍ 1995 og var sæmdur gullmerki félagsins, situr í ráðgjafarstjóm verkfræðideildar Hf frá 1994, var Reykjavíkurmeistari í glímu f flokkakeppni 1959, var formaður nefndar FÍB sem hélt fyrstu rallaksturskeppnina, útgefandi tímaritsins Skák, ásamt fleirum, 1962, keppti á heimsmeistaramóti stúdenta í skák í Póllandi 1964, var forseti Skáksam- bands íslands 1969-74 og hafði þá forgöngu um að heimsmeistaraein- vígi Fischers og Spasskys var hald- ið í Reykjavík 1972, og aftur forseti þess 1992-97, forseti Skáksambands Norðurlanda 1970-71 og er heiðurs- félagi Skáksambands íslands. Guömundur sat í hafnarstjórn Reykjavíkur 1970-74, í stjórn Inn- kaupastofnunar Reykja- víkur 1970-74, var for- maður byggingarnefndar Listasafhs íslands, sat í stjóm Þróunarfélagsins og í samninganefnd um orkufrekan iðnað, var stjórnarformaður Ríkis- spítalanna 1987-91 og er það nú frá 1995, og hefur setið í fjölda opinberra nefnda. Fjölskylda Fyrri kona Guðmund- ar er Anna Björg Jónsdóttir, f. 15.5. 1939. Þau skildu. Böm Guðmundar og Önnu eru Kristín Björg, f. 10.12. 1962, dýra- læknir í doktorsnámi í Kaupmanna- höfn en maður hennar er Árni Sig- urðsson veðurfræðingur og eiga þau tvo syni; Þorgerður, f. 23.5. 1966, leikskólastarfsmaður í Reykjavík og á hún tvo syni; Jón Garðar, f. 30. 4. 1968, viðskiptafræðingur í Barcelona en kona hans er Margrét Arna Hlöðversdóttir lögfræðingur og eiga þau einn son; Ólafur Gauti, f. 15. 2. 1978, verkfræðinemi í Reykjavík. Kona Guðmundar er Sigrún Valdimarsdóttir, f. 7.6. 1950, lyfja- fræðingur. Sonur Guðmundar og Sigrúnar er Valdimar Garðar, f. 12.11. 1987. Alsystkini Guðmundar eru Jó- hann Þórir Jónsson, f. 21.10.1941, d. 2.5.1999, ritstjóri og útgefandi Tíma- ritsins Skákar; íris Guðfinna, f. 27.1. 1943, húsmóðir í Reykjavík. Hálfsystkini Guðmundar, sam- feðra, eru Kristján Bjarnar, f. 19.11. 1944, framkvæmdastjóri við Mývatn; Kristlaug Dagmar, f. 21.1. 1945, búsett á Selfossi; Kristín, f. 26.11. 1945, starfsmaður hjá RÚV; Símonía Ellen, f. 21.4. 1949, búsett á Akranesi; Ingveldur Guðfinna, f. 21.4. 1947, húsmóðir í Reykjavík; Helgi, f. 7.5. 1948, búsettur í Noregi; Sigurður Reynir, f. 13.11.1950, bóndi á Borgarholti; Ragnheiður, f. 22.12. 1951, verslunarmaður í Hveragerði; Kolbrún, f. 22.12. 1951, húsmóðir í Garðabæ; Þórunn Guð- jóna, f. 21.4.1954, húsmóð- ir í Reykjavík; Einar Matthías, f. 2.1. 1955, bóndi á Hrútsholti; Jakob Sigurjón, f. 1.7. 1956, lögregluvarðstjóri, búsettur á Selfossi; Ólaf- ur, f. 3.11. 1959, tæknimaður i Reykjavík. Hálfsystkini Guðmundar, sammæðra, eru Ingibjörg Kristjánsdóttir, f. 19.7. 1947, skrifstofumaður í Hafnarfirði; Ómar Krist- jánsson, f. 3.9. 1948, framkvæmda- stjóri tlugstöðvar Leifs Eiríkssonar; Jósteinn Kristjánsson, f. 21.3. 1950, framkvæmdastjóri L.A. kaffi. Foreldrar Guðmundar: Þórarinn Bjamflnnur Ólafsson, f. 12.7.1920, d. 7.5. 1977, verkamaður í Reykjavík, og Aðalheiður Sigríður Guðmunds- dóttir, f. 18.9. 1922, d. 14.2. 1990, hús- móðir. Ætt Þórarinn var sonur Ólafs, verka- manns í Kaupmannahöfn Péturs- sonar, sjómanns í Reykjavík Þor- varðssonar, bróður Sveinbjamar, langafa Friðriks Ólafssonar stór- meistara. Bróðir Péturs var Óli, afl Inga R. Jóhannssonar, alþjóðlegs skákmeistara. Móðir Þórarins var Guðfinna Helgadóttir. Aðalheiður er dóttir Guðmundar, sjómanns í Ólafsvík Þórðarsonar, b. í Ytri-Bug í Fróðárhreppi Þórarins- sonar af Kópsvatnsættinni, bróður Þórarins, föður Þórarins ritstjóra. Annar bróðir Guðmundar var Krist- ján, afi Vigdisar Bjarnadóttur, deildarstjóra skrifstofu forseta ís- lands, konu Guðlaugs Tryggva. Guð- mundur var sonur Þórðar, b. í Ytri- Bug í Fróðárhreppi, hálfbróður Árna, afa Halldóra Ingólfsdóttur, ekkju Kristjáns Eldjárns forseta. Móðir Aðalheiðar var Ólafla Sveins- dóttir. Guðmundur og Sigrún taka á móti gestum á Grand Hótel (Háteigi) í dag milli kl. 17 og 19. Guðmundur Garðar Þórarinsson. Pálína Pálsdóttir Pálína Pálsdóttir hús- móðir, Suðurvíkurvegi 10 B, Vík í Mýrdal, verður áttræð á mánudaginn, 1.11. n.k.. Starfsferill Pálína fæddist á Selja- landi í Fljótshverfi í Vest- ur-Skaftafellssýslu, ólst þar upp og var þar búsett til 1942. Þá flutti hún að Hraungerði í Álftaveri og hóf þar búskap með eigin- manni sínum. Þar var hún búsett í 1986 er hún ílutti til Víkur í Mýrdal þar sem hún býr enn, ásamt syni sín- um. Á búskaparárum sínum í Hraun- gerði tók Pálína þátt í ýmsum félags- störfum í sveitinni, var m.a. formaður kvennfélagsins Framtíðin um nokk- urra ára skeið. Auk þess starfaði hún í sóknarnefnd Þykkvabæjarklausturs- kirkju. Hún er nú félagi í Samherjum, félagi eldri borgara og tekur virkan þátt í starfsemi þess. Fjölskylda Pálína giftist í júní 1943 Eggert Oddssyni, f. 21.5. 1905, d. 27.6.1981, bónda að Hraungerði. Hann var son- ur Odds Brynjólfssonar og Hallfríðar Oddsdóttur, bænda í Þykkvabæjar- klaustri í Álftaveri. Böm Pálínu og Eggerts eru Málfríður, f. 10.10. 1943, húsmóðir, gift Högna Klemenssyni; Svanhildur, f. 1.2. 1945, sjúkraliði; Halldór, f. 23.7. 1946, trésmiður, kvæntur Önnu R. Friðjónsdóttur; Þórarinn, f. 23.7. 1946, bóndi, kvæntur Kristínu Jónsdóttur; Þórhálla, f. 29.1. 1948, húsmóðir, gift Herði Mar; Oddur, f. 12.10. 1949, d. 27.7.1994, trésmiður, kvæntur Ágústu Sigurðardóttur; Páll, f. 5.4. 1951, bóndi, kvæntur Margréti Harðardótt- ur; Hafdís, f. 19.9.1953, verkakona, gift Sveini Þorsteinssyni; Gottsveinn, f. 21.4. 1955, bóndi, kvæntur Svönu Sig- urjónsdóttur; Jón, f. 21.11.1956, verka- maður. Barnabörnin eru nú tuttugu og þrjú en langömmubörnin eru fjórtán tals- ins. Systkini Pálínu: Þórarinn, f. 1899; Jón, f. 1902; Kristín, f. 1903; Helgi, f. 1904; Bjarni, f. 1905; Valdimar, f. 1905; Helgi, f. 1907; Helga, f. 1908; Valgerður, f. 1909; Guðríður, f. 1911; PáU, f. 1912; Þórarinn, f. 1913; Sigurður, f. 1915; El- ías, f. 1916; Málfríður, f. 1918. Auk Pálínu eru flmm systkini hennar á lífi. Foreldrar Pálínu voru Páll Bjarna- son frá Hörgsdal, f. 29.1. 1875, d. 1922, bóndi í Seljalandi í Fljótshverfi, og k.h., Málfríður Þórarinsdóttir, f. 6.11. 1877, d. 7.3. 1946, húsmóðir. Ætt Páll var sonur Bjarna Bjarnasonar í Hörgsdal, og Helgu Pálsdóttur, prófasts í Hörgsdal. Málfríður var dóttir Þórarins Þór- arinssonar, b. á Seljalandi, og Kristín- ar Jónsdóttur frá Dalshöfða. Pálína tekur á móti gestum á Hótel Lunda í Vík, laugardaginn 30.10. milli kl. 15 og 18. Pálína Pálsdóttir. Snæfellingur - afmælisrit Snæfellingur AFMÆUSRIT FtLAGS SNÆFEUINGA OG HNAPPDÆLA í REYKJAVÍK í tilefni af sextíu ára afmæli Fé- lags Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík hefur félagið gefið út myndarlegt afmælisrit, Snæfelling, 32 síður. Blaðið hefur verið sent öll- um félögunum og inn á hvert heim- ili í Snæfells- og Hnappadalssýslu og auk þess allmörgum Snæfelling- um annars staðar sem til hefur náðst. Það er vilji félagsins að sem flestir Snæfellingar eigi þess kost að fá blaðið og verður það látið liggja frammi á afmælishátíð félagsins i Agogeshúsinu, Sóltúni 3, laugardag- inn 6. nóvember kl. 18.30. Þar verð- ur veislustjóri Ellert Kristinsson úr Stykkishólmi, heiðursgestur verður Ásbjöm Ólafsson, formaður héraðs- nefndar Snæfellsness, góð skemmti- atriði verða á hátíðinni, m.a. Snæ- fellingakórinn undir stjórn Friðriks Kristinssonar, og matseðillinn verð- ur glæsilegur. H1 hamingju með afmælið 29. október 90 ára Hulda B Kristjánsdóttir, Víðivöllum, Hálshr., S-Þing. 85 ára Aðalheiður Snorradóttir, Reynihvammi 3, Kópavogi. 80 ára Jón Stefánsson, Munkaþverá, Eyjafjarðarsveit. 75 ára Ragnheiður Jóhannesdóttir, Hjallaseli 49, Reykjavík. 70 ára Ragnheiður Bjömsdóttir, Lyngbrekku 17, Kópavogi. Torfi Guðbjörnsson, Neðstutröð 8, Kópavogi. 60 ára Ármann Búason, Myrkárbakka, Skriðuhr., Eyf. Daníel Guðmundsson, Helgastöðum, Eyjafjarðarsveit. Finnur S Sigurðsson, Sléttahrauni 22, Hafnarfirði. Þórir Finnsson, Hóli, Borgames. 50 ára Gunnar Benedikt Skarphéðinsson, Hjallalundi 22, Akureyri. Jólína Bjarnason, Brekastíg 5a, Vestmannaeyjum. Sigrún Guðjónsdóttir, Akurholti 1, Mosfellsbæ. Skúli Bjarnason, Vesturgötu 97, Akranesi. Þór Stefánsson, Smáratúni 3, Keflavík. 40 ára Birna Jónasdóttir, Háafelli 5, Egilsstöðum. Björg Guðmxmdsdóttir, Stararima 53, Reykjavík. Elín Sólveig Steinarsdóttir, Nesvegi 65, Reykjavík. Guðfinna A Þorláksdóttir, Tjarnarlundi 14h, Akureyri. Guðni Pétursson, Spóahólum 20, Reykjavík. Jóhanna Ágústa Steinþórsdóttir, Grænahjalla 19, Kópavogi. Marlino C Enriquez, Rauðhömram 10, Reykjavik. Óskar Hrafn Guðmundsson, Ásbúðartröð 3, Hafnarfirði. Rannveig María Þorsteinsdóttir, Lækjasmára 94, Kópavogi. Sigurlaug Finnbogadóttir, Eskiholti 19, Garðabæ. Zophonías Einarsson, Hallormsstaðarskóla, Egilsstöðum. Þorsteinn Magnússon, Galtalind 1, Kópavogi. Leiðrétting Þau leiðu mistök áttu sér stað í DV í gær að ranglega var farið með nafn Kolbeins Bjamasonar flautuleikara. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.