Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Side 14
14
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
Frjálst, óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aöstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
RitsÁórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar flölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Rlmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim.
Tilveruréttur íslensks kúakyns
Innflutningur fósturvísa af norsku kúakyni, í tilrauna-
skyni, er alls ekki hættulaus. Sú er niðurstaða Sigurðar
Sigurðarsonar, dýralæknis á Keldum. Dýralæknirinn
hefur tjáð sig um málið að gefnu tilefni. Landssamband
kúabænda hefur sótt um leyfi til innflutnings fóstur-
vísanna og meirihluti stjómar Bændasamtaka íslands
hefur tekið undir óskina.
Landssambandið vill kynbæta íslenska kúakynið, fá
stærra og afurðameira kyn, gripi sem mjólka meira og
gefa af sér meira kjöt. Sú afstaða er skiljanleg, sé einung-
is litið á efnahagslega hlið málsins, en fleira kemur til.
Full ástæða er til að fara með gát í málinu. Því er eðlilegt
að stjómvöld taki sér tíma og ani ekki að ákvörðun und-
ir þrýstingi kúabænda. Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra hefur raunar látið svo ummælt að hann standi
frammi fyrir erfiðustu ákvörðun hérlendra valdsmanna í
þúsund ár. Ætli það sé ekki ofmælt hjá ráðherranum en
ábyrgðin er engu að síður mikil.
Það er eftir því tekið sem Sigurður Sigurðarson segir í
athugasemdum sínum. Hann telur það skyldu sína, sem
sérfræðings í nautgripasjúkdómum, að vara við því að
þetta skref verði stigið, skref sem hann segir illa undir-
búið og illa rökstutt af hálfú umsækjenda. Dýralæknir-
inn, sem vísar til þess að fleiri dýralæknar séu á sama
máli, meðal annarra Páll Agnar Pálsson, fyrrum yfir-
dýralæknir, bendir réttilega á að þetta komi ekki kúa-
bændum einum við heldur öðrum bændum og reyndar
þjóðinni allri. Þeir telja misráðið að taka þá áhættu sem
fýlgir innflutningi hins norska kúakyns.
í rökstuðningi kemur fram að tilraunin geti orðið af-
drifarík. Innflutningurinn brjóti skarð í varnargarð sem
vel hefúr dugað gegn því að hingað berist nýir smitsjúk-
dómar í nautgripi. Dýralæknirinn bendir á að í ná-
grannalöndunum séu margir sjúkdómar í kúm sem ekki
hafa borist hingað. Kýr ganga úti hluta ársins og þá til
dæmis í bland við sauðfé. Sauðfé getur þannig dreift inn-
fluttum kúasjúkdómum.
Bent er á að innflutningur norsku kúafósturvísanna sé
ekki sambærilegur innflutningi á frjóvguðum hænueggj-
um eða lifandi svínum sem átt hafa sér stað. í þeim dýra-
tegundum eru flestir þeir smitsjúkdómar sem finnast í
nágrannalöndunum. Svín eru auk þess lokuð á húsi alla
sína ævi við stranga sjúkdómavöm.
Landbúnaðarráðherrann stendur frammi fyrir sinni
ákvörðun. Hann verður að meta rök kúabænda og ann-
arra þeirra sem tilbúnir eru að taka áhættuna af inn-
flutningnum í því skyni að auka afurðir kúa. En ekki
vega síður þungt rök þeirra sérfræðinga sem gerst þekkja
þá hættu sem tilrauninni fylgir. Vamaðarorð þeirra
hljóta að vega þungt.
Þá má og nefna að kjötið af íslenska kúakyninu þykir
bragðgott svo af ber og hefur vakið athygli fyrir þær sak-
ir ytra. Því má heldur ekki gleyma að hérlent kúakyn á
sér tilverurétt og hefur fylgt okkur frá landnámi. Það
kann að vera smágerðara en önnur kyn en verðmætt
engu að síður. Það þurfa því að liggja sterk rök fýrir því
að fóma kyninu fyrir stórgerðari norskar skepnur.
Standi slíkt til má taka undir með Sigurði dýralækni sem
kallar eftir ítarlegri úttekt og jafnvel umhverfismati, svo
sem tíðkast í öðrum og umdeildum málum. Menn verði
að gera sér grein fyrir kostum og göllum svo dýrrar og
afdrifaríkrar gjörðar.
Að óreyndu verður ekki öðru trúað en Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra standi vörð um íslenska kúakynið.
Jónas Haraldsson
Hæstiréttur hefur brugðist þolendum sifjaspella og það verður erfitt að endurvekja traust á dómskerfinu, segir
m.a. í grein Álfheiðar. - (Tekið skai fram að mynd þessi tengist ekki umræddum sýknudómi Hæstaréttar.)
http://haestirettur.is
fellingar fyrir sakar-
giftir „án þess að
þær hafi verið sann-
aðar“. Þetta er
rangt. Ég vil ekki
láta dæma saklausa
menn. Ég tel hins
vegar ótvírætt eftir
lestur þeirra skjala
sem opinber eru í
þessu máli að sekt
hafi verið sönnuð og
vafalaus og það
töldu líka 5 héraðs-
dómarar af 6 og 2 af
5 hæstaréttardómur-
um!
En um leið og lög-
maðurinn átelur
aðra fyrir að hafa
skoðanir á dómnum,
„Dómurinn afhjúpar ótrúlega
slæma réttarstöðu og nær algert
varnarleysi barna þegar kemur
að sifjaspellum: Þeim er einfald-
lega ekki trúað og ekkert tillit
tekið til sérfræðiálita sem stað-
festa trúverðugleika þeirra. “
Kjallarinn
Álfheiður
Ingadóttir
ritstjóri
Jón Steinar Gunn-
laugsson sendi mér
tóninn í DV sl. þriðju-
dag. Lögmaðurinn vill
sérstaklega mótmæla
opinberri umræðu um
sýknudóm hæstaréttar
í siijaspellsmáli nr.
286/1999. Ég er ein af
þeim sem er ekki sam-
mála niðurstöðu meiri-
hluta hæstaréttar - en
leyfíst okkur ekki að
hafa slíkar skoðanir?
Og orða þær í ræðu og
riti? Jafnvel á Netinu?
Og fyrst menn eru að
tala um mannréttindi -
hvað varð þá eiginlega
um málfrelsið og
prentfrelsið?
Fagna umræðunni
Dómurinn afhjúpar
ótrúlega slæma réttar-
stöðu og nær algert
vamarleysi bama þeg-
ar kemur að sifjaspell-
um: Þeim er einfald-
lega ekki trúað og ekk-
ert tillit tekið til sér-
fræðiálita sem stað-
festa trúverðugleika
þeirra. Þetta er ekkert
nýtt. En nú gerðist nokkuð sem ég
held að hljóti að vera einsdæmi í
málum sem þessum: Kona, sem er
náskyld umræddri dóttur og gjör-
þekkir málavexti, mótmælti dóms-
niðurstöðunni á málefnalegan hátt
í blaðagrein. Hvílíkur kjarkur! Og
hvílíkt happ fyrir stúlkuna að eiga
svona sterka fjölskyldu að.
Grein Ólafar Guðnýjar varð mér
hvatning til að heimsækja heima-
síðu hæstaréttar, lesa dóminn
vandlega og hvetja í netbréfi
nokkrar vinkonur mínar til að
gera það sama. Markmiðið var
einfalt: Látum ekki aðra segja okk-
ur hvað stendur í dómnum. Lesum
það sjálfar og látum það ganga!
Sönnuð sekt og vafalaus
í DV fullyröir Jón Steinar
Gunnlaugsson að þeir sem taka til
máls í þessum efnum krefjist sak-
átelur hann sjálfur þá sem ekki
dæmdu honum í vil en töldu sekt
sannaða. Hann segir þessa sjö
dómara „ekki hafa virt grundvall-
arreglur", hafa „brugðist skyldum
sínum“ og ekki fært „neinar tæk-
ar röksemdir fyrir sakfellingu
sinni“. Ég á ekki von á að dómar-
ar eða saksóknari svari slíkum
skeytum, en ég hlýt að svara ásök-
un hans um að við sem mótmæl-
um þessum dómi viljum sakfella
hinn sýknaða „án þess að vita
neitt um atriði málsins".
Þetta er rangt. Þeir eru margir
sem vita - og sumir af biturri
reynslu - margt um afleiðingar
sifjaspella. Vita t.d. að böm sem
verða fyrir sifjaspelli láta sem þau
sofi, - lýsa því hvemig þau svífa
úr líkamanum; hvernig bamssálin
hverfur á vit draumsins meðan
likaminn verður eftir í hryllingn-
um miðjum. Það er líka vel þekkt
að eldri systkini, sem hafa orðið
fyrir sifjaspelli, grípa jafnvel til ör-
þrifaráða til að koma í veg fyrir að
yngri systkini lendi í því sama.
Þeir sem hafa kynnt sér þessi
einkenni sifjaspella skilja vel af
hverju dóttir kærir fóður sinn þá
fyrst þegar hann krefst þess að fá
að umgangast yngri systurina
einn. Þeim dettur ekki í hug að
þar sé á ferð handbendi heiftugrar
móður eins og lesa má út úr fram-
burði ákærða og dómsorði meiri-
hluta hæstaréttar.
Réttlætiskennd misboðið
Hæstiréttur hefur bmgðist
þolendum siijaspella. Það verður
erfitt að endurvekja traust á dóms-
kerfinu enda eru sifjaspell að
flestra mati alvarlegustu glæpir
sem framdir em. Ein af mörgum
hugmyndum sem fram hafa
komið þessa síðustu daga á Net-
inu er að hjá ríkislögreglustjóra
verði komið á fót kynferðis-
brotadeild með sama sniði og
efnahagsbrotadeild embættisins.
Þar verði sérfræðingum á sviði
kynferðisbrota ásamt sér-
þjálfaðri lögreglu falið að rann-
saka kærur og undirbyggja mál.
Eitt er víst að með aukinni
þekkingu í þessum efnum myndu
fleiri mál leiða til ákæm og sakfell-
ingar en nú er og líðan og hegðan
þolenda síður verða lögð þeim til
lasts.
Viðbrögð við þessum óréttláta
dómi hafa verið sterk og sýna að
hann misbýður réttlætiskennd fjöl-
margra. 8000 heimsóknir á heima-
síðu hæstaréttar á einum sólar-
hring, þar af 5000 á dómasíðuna,
staðfesta að hér er ekki á ferð „æst-
ur múgur" sem vill koma á fót „net-
dómstól" götunnar eins og látið er í
veðri vaka. Hér er á ferð upplýstur
flöldi karla og kvenna sem vill
kynna sér málin af eigin raun og tjá
hæstarétti skoðun sína undir fullu
nafni. Það er eðli lýðræðisins,
prentfrelsis og málfrelsis á nettím-
um, enda kveinkar hæstiréttur sér
ekki undan slíku. - Það gerir bara
Jón Steinar Gunnlaugsson.
Skoðanir annarra
Blaðamenn - milliliðir
„Eitt einkenni nútíma blaðamennsku er hraði og
geysimikið upplýsingastreymi.Við emm að drukkna í
upplýsingum - ómeltum ... Núna hvarflar varla að
nokkrum blaðamanni að skrifa sjálfstæða frásögn af
fféttnæmum viðburðum, heldur snúa þeir sér undir-
eins til opinberra aðilja, lögreglunnar o.s.frv. og taka
viðtöl við þá sem voru á staðnum. Blaðamennirnir er
þvi orðnir að hreinum milliliðum - þeir upplýsa ekki
sjálfir lesendur sína um það sem er að gerast, heldur
koma áleiðis til lesenda skilningi yfirvalda og sjónar-
votta á atburðarásinni. Ósjálfstæði íslenskra blaða-
manna gerir það m.a. að verkum að skoðanamyndun
í landinu er um of undir oki sérfræðinga og hags-
munagæslumanna. “
Jakob F. Ásgeirsson í Mbl. 11. nóv.
Hæstiréttur dæmir klofið
„Síðustu dagana hafa margir orðið til þess að veit-
ast harkalega að Hæstarétti vegna nýlegrar niður-
stöðu meirihluta dómsins í kynferðisbrotamáli ...
Þetta er reyndar í annað sinn á stuttum tíma sem
Hæstiréttur lendir í því að klofna svo rækilega við
uppkvaðningu dóms í alvarlegu máli - og komast um
leið að meirihlutaniðurstöðu sem gengur þvert á að
minnsta kosti verulegan hluta almenningsálitsins í
landinu ...! báðum málunum réðist það þannig af af-
stöðu eins dómara af þremur hvonun megin meiri-
hlutinn lenti ... Má ljóst vera, að í svo viðkvæmum
málum er afar óheppilegt að æðsti dómstóll landsins
skuli klofna með slíkum hætti.“
Elías Snæland Jónsson í Degi 9. nóv.
„Þrátt fyrir að mikið vatn hafi runnið til sjávar á
siðustu árum er ríkið enn að stofna fyrirtæki. Nýsköp-
unarsjóður atvinnulífsins er gott dæmi um það að í
raun er alveg glórulaust að ríkið skuli eiga slíka
áhættufjárfestingarsjóði. Nokkur slík félög eru nú þeg-
ar rekin hér á landi og lifa góðu lífi á Verðbréfaþingi
íslands, t.d. Þróunarfélagið hf. og Eignarhaldsfélagið
Alþýðubankinn. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
gæti verið afar áhugaverður fiárfestingarkostur á VÞÍ
sem tæki nokkra áhættu í sínum fiárfestingum. Það er
því með öllu óskiljanlegt að ríkið skuli standa í svona
rekstri nú, á tímum einkavæðingar... Ríkið er enn allt
of umfangsmikið í rekstri fyrirtækja."
Bjarni Már Gylfason í Viðskiptabiaðinu 10. nóv.
Ríkið enn of umfangsmikið