Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1999, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1999, Síða 15
MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1999 15 Boðun kirkjunnar Slakir predikarar? Eigi þessi dómur við rök að styðjast má spyrja hver sé skýringin. Er það svo að ís- lenskir prestar séu slakir predikarar? Án efa má í „Verra er að oft sitja áheyrendur undir persónulegum vangaveltum um álitamál úr þjóðlffinu án þess að fá að leggja orð í belg.“ Kjailarinn Hjalti Hugason prófessor Fyrir nokkru fjallað sr. Örn Bárður Jóns- son á þessum vett- vangi (14/10) um trú og boðun íslensku þjóðkirkjunnar. Þar komst hann að þeirri niðurstöðu að predik- anir íslenskra presta væru fremur fyrir- lestrar en frásagnir og í þeim væri „lagt út af ákveðnum texta í Biblíunni... og „fílósó- ferað“ um lífið og til- veruna.“ Engar rann- sóknir hafa farið fram á íslenskum predikun- um þó að það sé verð- ugt viðfangsefni. Rúsínan í pylsuendanum Að likindum hefur Örn Bárður samt á réttu að standa. E.t.v. má bæta því við greiningu hans að oft séu predikanimar tvískiptar. Fjallar þá annar hlutiim um guð- spjall dagsins en hinn „um lífið og tilveruna." Oftar en ekki myndar sá hlutinn uppi- stöðu ræðunnar og snýst ým- ist um dægurmál, gildi trú- arinnar eða gæsku Guðs. Tíðum er torvelt að koma auga á efnislegt samhengi miili ræðuhlutanna tveggja eða sjá hvað 1 texta dagsins leiðir predikarann að „rúsín- unni í pylsuendanum". Þarna liggur helsti veik- leiki íslenskra predikana í dag: í þær skortir oft rök- rænt samhengi, tengsl þeirra við guðspjall dagsins eru óljós og framvindan frá ein- um sunnudegi til annars lít- il. Afleiðingin verður sú að áheyrendur kunna smám saman að fá það á tilfhming- una að þeir hlusti stöðugt á sömu ræðuna sem þó sé end- urskoðuð í takt við það sem er efst á baugi hverju sinni. langflestum tilvikum svara þeirri spum- ingu neitandi. Ekk- ert af fyrrgreindum einkennum er heldur sér-íslenskt. Þvert á móti eiga þau öll við í grannkirkjum okk- ar og eru oft til um- ræðu þar. Hugsan- lega er skýringin miklu frekar sú að prestum liggi al- mennt mikið á hjarta og að þeir reyni að slá fullmargar flugur í einu höggi. Frá fomu fari hefur boðun kirkjunnar farið fram á mörgum ólíkum sviðum og við hana verið beitt ólíkum aðferðum, t.d. predik- un, sálgæslu og andlegri leiðsögn. Hlutverk predikunarinnar er að fræða söfnuðinn og efla trú hans. Sé byggt á guðspjöllum kirkjuárs- ins fæst ár hvert fjölbreytt yfirlit yfir líf og kenningu Krists. I sál- gæslu er glímt við persónuleg vandamál og einstaklingi í neyð boðuð nálægð Guðs. Leiðsögninni sinna kirkjunnar þjónar hins veg- ar er þeir fást við þann almenna vanda sem í því felst að vera mað- ur í síbreytilegum heimi. Ef glímt er við öll þrjú hlutverk- in í stólræðunni einni er hætt við að margt fari úrskeiðis. í stað þeirrar fjölbreyttu myndar sem guðspjöll kirkjuársins gefa af Kristi að starfi er sunnudag eftir sunnudag dregið fram handahófs- kennt úrval úr fréttum fjölmiðla eða brugðið upp ópersónulegri staðalmynd af hrelldri sál. Flestir glima eflaust við svipaðan vanda í einkalífinu. Því getur limkinn sálusorgari miðlað dýrmætri reynslu i predik- un. Verra er að oft sitja áheyrendur undir persónu- legum vangavelt- um um álitamál úr þjóðlífinu án þess að fá að leggja orð í belg. Það orkar tví- mælis í lýðræð- islegri kirkju. Af þeim sökum er brýnt að gera skýran greinarmun á predikun og leiðsögn sem hvort tveggja eru þó mikilvægir þættir í boðun kirkjunnar. Guðsþjónustan er umgjörð predikunarinnar en samræðan eða fjölmiðlarnir vett- vangur leiðsagnarinnar. Hjalti Hugason „í stað þeirrar fjölbreyttu myndar sem guðspjöll kirkjuársins gefa af Kristi að starfí er sunnudag eftir sunnudag dregið fram handahófs- kennt úrval úr fréttum fjölmiðla eða brugðið upp ópersónulegri staðalmynd af hrelldri sál.“ Um múgæsingar í tilefni af pistli Guðmundar Andra Thorssonar í DV 20. nóvem- ber vil ég taka fram: 1. Eftir að Hæstiréttur sýknaði skjólstæðing minn af ákærum um kynferðisofbeldi gegn dóttur sinni, hefur því verið haldið stift að almenningi í landinu, að Hæstirétt- ur hafi kveðið upp rangan dóm. Rétt hefði verið að sakfella manninn. Málflutningur um þetta hefur verið mjög hlutdrægur og hafa verið færð- ar fram rangar staðhæfingar um efni málsins. Niðurstaðan hefur orð- ið sú, að fjöldi manna fellir með sjálfum sér þann dóm, að maðurinn sé sekur um þessa glæpi, auk þess sem ráðist hefur verið með óvægn- um hætti að Hæstarétti. 2. Ég þekki þetta dómsmál vel, þar sem ég var verjandi mannsins. Ég veit því, að Hæstiréttur var að- eins að gera skyldu sína. Mér finnst það vera skylda mín, að reyna að koma mönnum í skilning um það. Aðrir verða varla til þess. Efnt hefur verið til múgæs- inga eftir þennan dóm, sem í mín- um huga fela fyrst og fremst í sér kröfu um að ein þýðingar- mesta mann- réttindaregla rétt- arríkisins, þess efnis að menn skuli teljast sak- lausir þar til sekt þeirra sannast, verði afnumin á íslandi i þessum málaflokki. Ef ekki er tekið til varna gegn' þessum málflutningi er hann til þess fallinn að vinna á dómurum í landinu, sem eru bara fólk eins og við hin. 3. Úti í bæ situr maður sem var sýknaður og allar líkur eru á að hafi ekki drýgt þá glæpi sem hann var sakaður um. Hann er skotspónn þessara múgæsinga. Almenningur hefur verið fenginn til að sakfella hann án þess að hafa til þess nægar forsendur. Það gerir Guðmundur Andri líka. Það er nefnilega svo auðvelt að fella svona dóma. Með þvi eru menn að sýna fólkinu í kringum sig hvað þeir séu góðir menn. Allar múg- æsingar hafa með einum eða öðrum hætti verið kyntar með svona eldiviði. Þetta brýlur gegn réttlætiskennd minni. Ég finn hjá mér knýjandi þörf á að reyna að rétta hlut mannsins. Aðrir verða varla til þess. 4. Það er mikill misskilningur hjá Guðmundi Andra, að ég hafi í vörn minni kastað ryki í augu dómenda. Ég vona að málflutningur minn hafi nýst þeim til að skilja kjamann frá hisminu í þessu erfiða máli. Heiður- inn af því að virða grunnreglur í réttarríki í málaflokki þar sem mik- il pressa er á að gera það ekki, er aðeins þeirra. 5. Þátttaka mín í umræðum eftir dóminn helgast ekki af eigin hags- munum mínum. Satt að segja myndi það sjálfsagt þjóna þeim betur að þegja og láta menn halda að snilli minni hafi mátt þakka að sekur maður var sýknaður, eins og reyndar Guðmundur Andri virðist telja. Ekk- ert er fjær sanni. Hann heldur þessu fram vegna þess að það hent- ar málflutningi hans um að vist sé maðurinn sek- ur. Hann getur ekki fremur en ýmsir aðrir viðurkennt að sýknu- dómurinn gekk einfald- lega vegna þess, að dóm- ararnir voru að gera rétt. Það er mikil van- þekking á dómstarfinu, að halda, að málflytj- endur geti blekkt dóm- ara til rangra dóma. 6. Það er rétt sem Guð- mundur Andri segir, að það sé ógeð- fellt að fjalla um viðkvæm og sorg- leg málefni þessarar fjölskyldu á op- inberum vettvangi. En þegar hann biður mig um að gera það ekki, er hann í raun að krefjast þess að hann sjálfur og sá fjöldi annarra sjálfskip- aðra dómara í málinu, sem sakfella nú manninn, fái einir að tala um þetta. Þar er réttu máli hallað í stór- um stíl og fyrir verður maður sem sýknaður hefur verið. Þetta get ég ekki látið eftir honum. Jón Steinar Gunnlaugsson Þátttaka mín í umræðum eftir dóminn helgast ekki af eigin hags- munum mínuni. Satt að segja myndi það sjálfsagt þjóna þeim betur að þegja og láta menn halda að snilli minni hafí mátt þakka að sekur maður var sýknaður, eins og reyndar Guðmundur Andri virðist telja. Ekkert er fjær sanni. Kjallarinn Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður Með og á móti Tekst Guðjóni Þóröarsyni að koma Stoke í ensku A- deildina í knattspyrnu? Guðjón Þórðarson tók við Stoke City á dögunum, fyrstur íslenskra þjálfara og íslenskir fjárfestar keyptu meirihluta f félaginu, sem leikur í C-deildinni. Hef tröllatrú á Guðjóni „Ég hef tröllatrú á Guðjóni Þórðarsyni og var búinn að segja að hann ætti að hætta með lands- liðið og taka við Liverpool eða einhverju öðru bresku stórliði. Stoke hefur burði til að verða stórt fé- lag á ný, er með glæsilegan völl og getur hæglega farið f efstu deildina á nokkrum árum. Þetta stend- ur þó og fellur með því að Guð- jón komist strax inn í breska hugarfarið. Hann verður líka að passa sig á því að fá ekki of marga íslendinga í liðiö, ekki fleiri en tvo tij þrjá. Hann veröur að byggja upp á ungum og efni- legum enskum leikmönnum. Takist honum að fara með liðið upp um deUd 1 ár, spái ég því að þaö verði komið í efstu deild þremur árum síðar. Það kæmi mér ekki á óvartþó Guðjón yrði búinn að móta efnilega leikmenn hjá Stoke sem myndu spUa með Englendingum í heimsmeistara- keppninni árið 2006.“ Verulegt fjármagn þarf „Guðjón Þóraarson er um margt í svipaðri stöðu í dag og Kevin Keegan, núverandi lands- liðsþjálfari Englendinga, var þeg- ar hann tók við Fulham fyrir nokkrum árum. Það tók Keegan tvö ár að rétta Ful- ham við f 2. deildinni. LykiUinn að þeirri breyt- ingu lá fyrst og fremst í því að Keegan hafði Fayed að baki sér, Harrod’s-jarl- inn sem á ógrynni fjár og var óspar á framlög tU leikmanna- kaupa. Án þess bakhjarls væri Fulham enn í neðri hluta 2. deUdar. Guðjón er ekkert minna en afburðaþjálfari. En það er með hann eins og aðra þjálfara; ef mannskapurinn er ekki nægilega sterkur næst enginn árangur. Við þurfum ekki út fyrir land- steinana til að finna þeirri kenn- ingu stoð. Af því að dæma sem ég hef les- ið um Stoke virðist liðið skorta sterkari leikmenn tU þess að komst upp úr þeirri gryfju sem 2. deildin er. Liðið stendur þó þokkalega að vígi og mér finnst það ekki fjarlægur draumur að komast upp í 1. deildina í annarri eða þriðju atrennu. En úrvalsdeildarlið verður Stoke City ekki nema til komi verulegt fjármagn. Á sama hátt og ég dáist að frumkvæði íslendinganna sem keyptu meirihlutann í félaginu leyfi ég mér að efast mn að þeir búi yfir þvl fjármagni sem þarf tU að ná því takmarki að Stoke verði úrvalsdeildarlið á næstu 5-7 árum. Tækist það yrði enginn glaðari en ég því ég hef óbUandi trú á Guðjóni. -VS Siguröur Sverris- son blaðamaöur. Mohammed A1 Magnús V. Péturs- son, kaupmaöur í Jóa útherja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.