Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1999, Síða 28
cíð.vinna
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999
Ráðherraskipti:
Fer ekki í fýlu
- segir Páll Pétursson
„Ég stend ekki upp úr ráðherra-
stólnum óbeðinn. En það hefur aldrei
staðið á því að ég geri það óski meiri-
hluti þingflokks-
ins þess. Ég fer
ekki i fýlu,“ sagði
Páll Pétursson fé-
lagsmálaráðherra
í morgtm um frétt
Ríkissjónvarpsins
þess efnis að ráð-
herraskipti Fram-
sóknarflokksins
um áramótin
væru frágengin.
„Ég held þá bara
áfram sem
óbreyttur þing-
maður enda hef ég
verið það lengi og
bara kunnað því
vel,“ sagði Páll.
Valgerður
Sverrisdóttir, sem
að öOum líkindum
sest í ráðherrastól
Páls Péturssonar um áramót, sagði í
morgun: „Hér er aUt undir kontrol. Ég
tái mig ekki frekar um málið." -EIR
Blönduós:
Ók á staur
** Ökumaður á Blönduósi varð fyrir
því óhappi að missa stjóm á bifreið
sinni í gærdag með þeim afleiðing-
um að lenda á staur. Óhappið átti
sér stað við söluskálann á Víðigarði
í Víöidal. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar á Blönduósi er öku-
maðurinn ómeiddur en ljósastaur-
inn féll með braki og brestum. -hól
Valgeröur Sverr-
isdóttir.
ERU BARA RÆKTAÐIR
SVARTIR SAUÐIR?
Snjóflóð féll í fyrrinótt úr Höföabrekkuhálsi í Mýrdal en mikið hefur snjóaö þar undanfariö. Flóöið féll milli fjárhúss
og starfsmannabústaðar en fólk var þar í fastasvefni. Heimamenn segja það alvanalegt að flóð falli á þessum stað
en það fór óvenjulangt eða eina sextíu metra og hreif með sér steypuhrærivél og jeppakerru. DV-mynd SK
Álit umhverfisnefndar á Fljótsdalsvirkjun:
Þetta er bara
sýndarrannsókn
- hörð gagnrýni á vinnubrögð stjórnvalda
„Það er engu líkara en þeir sem
ráða þinginu vilji koma í veg fyrir
að kafað verði djúpt ofan í þetta
mál sem staðfestir það í mínum
augum að þetta er bara sýndar-
rannsókn," sagði Össur Skarphéð-
insson alþingismaður sem sæti á í
umhverfisnefnd, en nefndin klofn-
aði og skilar þremur álitum á um-
hverfisþáttum Fljótsdalsvirkjunar
í dag.
í áliti stjómarþingmannanna
Ólafs Arnar Haraldssonar og
Katrínar Fjeldsted um umhverfis-
þátt Fljótsdalsvirkjunar, sem þing-
menn stjómarandstöðunnar styðja
og gera raunar að sínu, segir m.a.
að ekki hafi verið skorið úr mikilli
lagalegri óvissu um hvort unnt sé
að ráðast í framkvæmdina án lög-
formlegs . umhverfismats. Rann-
sóknum á gróðurfari og dýralífi á
svæðinu sé verulega ábótavant,
Össur Skarp- Hjálmar Árna-
héöinsson. son.
valkostir séu alls ekki kannaðir til
hlítar og það skorti algerlega full-
nægjandi mótvægisaðgerðir. Þing-
mennirnir leggja áherslu á að
virkjunin fari í lögformlegt um-
hverfismat.
„Við fengum aUtof lítinn tíma til
að rannsaka málið. Við vorum
búin að viða að okkur miklum
gögnum þegar klippt var á vinnu
nefndarinnar," sagði Össur við DV
í morgun. „ Við áttum að skila í
gærkvöld en það verður ekki tekin
ákvörðun um að senda málið frá
iðnaðamefnd fyrr en á mánudag í
næstu viku. Maður spyr sjálfan sig
hvemig í ósköpunum standi á því
að við gátum ekki fengið þessa
viku sem út af stendur til þess að
fara i málið. Hvemig stendur á því
að við fengum bara tvo daga af svo-
kallaðri nefndarviku."
Hjálmar Ámason, formaður iðn-
aðamefndar, sagði að umhverfis-
nefnd hefði ekki beðið formlega
um lengri tima. Þá þurfi iðnaðar-
nefndarmenn tíma til að kynna sér
álit umhverfisnefndar en það geri
þeir í dag og á morgun. Iðnaðar-
nefnd þurfi tíma til að leggja mat á
álit umhverfisnefndar og aðra
þætti málsins, sem séu a.m.k. fjór-
ir til viðbótar, áður en hún ljúki
málinu í næstu viku. -JSS
Veðrið á morgun:
Þurrt vest-
anlands
Á morgun verður norðaustlæg
átt, víðast 8-13 m/s. Þurrt á suð-
vestur- og Vesturlandi en snjó-
eða slydduél í öðmm landshlut-
um.
Hiti veðrar á bilinu 0 til 3 stig
sunnan- og vestanlands að degin-
um ana annars vægt frost.
Veðrið í dag er á bls. 37.
Bændur vilja
enn meira
Á aðalfundi sauðfjárbænda, sem
haldinn er í Bændahöllinni í dag,
verða lagðar fram róttækar hugmynd-
ir um breyttan og aukinn stuðning
við greinina. í
stað þess að stuðn-
ingur ríkisins
verði háður
greiðslumarki
vilja sauðflár-
bændur leggja
áherslu á að
stuðningur verði
við framleiðslu-
hætti og vegna
landnýtingar.
„I hugmyndum okkar felst að kvót-
inn sem slíkur er orðinn veigaminni.
Til lengri tíma er óheppilegt að stuðn-
ingur við atvinnugreinina miðist ekki
við að framleiða vöruna. Slíkt býður
heim hættu á að framleiðslan verði,
kannski ekki aukaatriði, en ekki eins
mikilvæg," segir Ari Teitsson, for-
maður Bændasamtakanna.
Hann segir að samkvæmt núver-
andi búvörusamningi fái sauðfjár-
bændur sem nemur rúmum 2. millj-
örðum króna á ári þegar allt er
talið. Bág staða sauðfjárbænda kalli
á hærra framlag hins opinbera.
„Við þurfum að fá meira fjár-
magn,“ sagði Ari en vildi ekki upp-
lýsa hvað hugmyndirnar þýddu í
beinhörðum peningum. Sauðfé á ís-
landi er um 480 þúsund en var um
helmingi fleira árið 1978. Sam-
kvæmt núverandi búvörusamningi
er stuðningur ríkisins á hvem sauð
sem nemur tæpum 5 þúsund krón-
um. -rt
Ari Teitsson.
Tíu bílar skemmdust eða eyðilögð-
ust í umferöaróhöppum í vonsku-
veðri á Suðurlandi í gær. DV-mynd SK
Suðurlandsvegur:
Eignatjón
Mikið eignatjón varð af völdum
vonskuveðurs á Suðurlandi i gær.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnnar á Selfossi skemmdust tíu
bílar í aðskildum óhöppum á sama
staðnum rétt fyrir neðan Kambana.
Mannháir skaflar söfnuöust upp og
minnast lögreglumenn ekki svona
mikils fannfergis í mörg ár. Til-
kynnt var um fimm bíla árekstur
um hádegisbil í gærdag. Af bílunum
fimm voru fjórir ónýtir. Flytja
þurfti eina konu á Sjúkrahús
Reykjavíkur til nánari skoðunar.
Ekki urðu alvarleg slys á fólki.
Alls var tilkynnt til lögreglunnar
um nítján bda sem höfðu orðið fyr-
ir óhöppum i gærdag. -hól
Dráttarvélar
meö kerru
í miklu úrvali
Sími 567 4151 & 567 4280
Heildverslun með leikföng og gjafavömr