Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1999, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999
Fréttir
Fyrsta réttarhaldið í hátt í 30 milljóna króna skaðabótamáli Kios Briggs gegn ríkinu:
Kio fær gjafsókn
- var að sjálfsögðu fjarstaddur - í Danmörku - og hafði ekki hugmynd um réttarhaldið
íslenska ríkið mun greiða máls-
kostnað við rekstur hátt í 30 millj-
óna króna skaðabótamáls Kios Al-
exanders Briggs gegn ríkinu
sjálfu. Bretinn fær því gjafsókn.
Helgi Jóhannesson, lögmaður
Kios, lagði fram gjafsóknargögn
frá dómsmálaráðuneytinu við
fyrsta réttarhald málsins í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær.
„Eigum við ekki að leiða stefn-
anda fram í málinu,“ spurði
Skarphéðinn Þórisson ríkislög-
maður í glettnum tón þegar Hjört-
ur O. Aðalsteinsson héraðsdóm-
ari hafði sagt rétt settan i gær.
Bæði dómarinn og Helgi lögmað-
ur Kios, brostu.
við verðum þá
að fara
_________ Dan-
merk-
ur,“ sagði
Hjörtur og þótti
spurning ríkislög- ''
manns greinilega ekki af
verri endanum.
Helgi upplýsti í gær að
hann hefði ekkert séð eða
heyrt í Kio Briggs síðan í
sumar. „Hann var þá
sennilega í Amsterdam,"
sagði Helgi. Aðspurður
af blaðamanni DV hvort
Kio vissi yfir höfuð um
réttarhaldið i gær - sitj-
andi í einangrun í Dan-
mörku - sagði Helgi að
Bretinn hefði örugglega
ekki vitað um þing-
haldið í gær. Helgi
kvaðst engu að síður
hafa sagt Kio í sumar
að réttarhöld í skaða-
bótamáli hans yrðu
sennilega í upphafi
8
„Ætli árs 2000 - nokkuð sem stenst enda
ekki ákvað Hjörtur dómari í gær
til að aðalmeðferð
yrði 27. janúar.
Við ____________
rétt-
arhaldið
sjálft í gær -
og í tengslum við
'cs' spurningu ríkislög-
manns hvort ekki ætti
að færa Briggs fyrir
dóminn hér heima -
sagði Helgi aö málið
snerist í raun einungis
um bótaskyldu ríkissjóðs
gagnvart skjólstæðingi sín-
um. Kio myndi engu bæta
við þann málflutning með
nærveru sinni. Helgi benti á
1^^ að skaðabótamálið væri al-
V gjörlega einangrað frá mála-
f
Kíó Briggs er sjálfsagt himinlif-
andi með gjafsóknina. Hann
veit þó minnst um máliö enda
heldur hann jól í dönsku fang-
elsi.
gegn Kio í sakamáli þar sem hann
situr nú inni.
„Hann er reyndar saklaus enn
þá,“ sagði Skarphéðinn ríkislög-
maður.
„Já, og þetta myndi heldur
engu skipta þótt hann yrði dæmd-
ur sekur í Danmörku," sagði þá
lögmaður Kios. Rikislögmaður
var þessu samþykktur og sagði að
einungis yrði tekist á um lög-
fræðileg atriði í skaðabótamálinu.
Að síðustu, og áður en dómar-
inn ákvað hvenær réttarhöldin
færu fram, þ.e. sóknar- og varnar-
ræður í málinu, upplýsti Helgi að
hann myndi ekki tala lengi þegar
þar að kæmi - að minnsta kosti
ekki lengur en hálftíma. En hver
er skýringin á því að Kio Briggs
fær gjafsókn frá íslenska ríkinu?
Jú, vegna þess að lög hafa verið
sett nýlega um að hver sá sem
sýknaður er af sakargiftum en
hefur setið inni í gæsluvarðhaldi
fái gjafsókn vilji hann fara í
skaðabótamál vegna frelsissvipt-
ingar sinnar. -Ótt
Mæörastyrksnefnd:
Biðröðin lengist enn
Fólk í biöröö hjá Mæörastyrksnefnd á Sólvallagötunni. DV-mynd E.ÓI.
Hangikjötsilmur liggur í loftinu en
biðröðin er hljóð á öðrum degi mat-
arúthlutunar Mæðrastyrksnefndar
við Sólvallagötu. Hingað kemur fólk
ekki til að skrafa heldur bíður i þögn
eftir að röðin komi að því. Við borð
sitja eldri konur, líkar ömmum i önn-
um, og ræða við fólkið af samúð og
með skilyrðislausan skilning í aug-
um. Kerti loga á borðum og skapa
eldhættu þegar þrengslin eru sem
mest og dúnúlpurnar flaksa í logana.
Margir eru með böm í fanginu eða
sér við hönd, aðrir með staf eða
hækjur. Unglingar og gamalmenni í
bland. Einn á línuskautum. Biðröðin
er lengri en í fyrra.
„Ég var hér líka í fyrra en var að
vona að jólin í ár yröu mér auðveld-
ari. En hingað er ég komin aftur þvi
ég get ekki annað. Þótt ég fái ekki
nema fimm þúsund króna matarút-
tekt í Bónusi þá bjargar það jólunum.
Umhverfisvinir:
Bjóöa
ráðherrum
á tónleika
„Þetta eru tónleikar meö
fremstu listamönnum lýðveldis-
ins,“ segir Jakob Frímann Magn-
ússon, talsmaöur Umhverfisvina,
um tónleika samtakanna í kvöld
klukkan 22 í beinni útsendingu á
Skjá einum. „Þama verða Sigur-
rós, Quarashi, Páll Óskar, Ensími,
Jón Gnarr, KK og Magnús Eiríks-
son, Maus, Bubbi og fjölmargir
aðrir,“ segir Jakob.
Og Jakob lofar góðum tónleik-
um. „Þetta er bein útsending og
verða tónleikamir haldnir í mynd-
veri Skjás eins að viðstöddum
áhorfendum og fólk getur nálgast
miða á skrifstofu Umhverfisvina
að Síðumúla 34. í takmörkuðu upp-
lagi. Tónleikamir em tileinkaðir
hinu mikla hitamáli um Eyja-
bakka og þama verða kynnt bæði
sjónarmið umhverfissinna og
virkjunarsinna. Það hefur verið
boðiö bæði ráðherrum, talsmönn-
um Austfirðinga og talsmönnum
umhverfisvemdarsinna.“
-hdm
Kannski fæ ég líka kjötlæri og þá er
ég góð,“ segir Sigga sem er að vestan
og á tvö böm heima. Stefán er í leð-
urjakka, tekinn til augnanna og sítt
hárið er farið að þynnast í hvirflin-
um: „Eitthvað verður maður aö éta á
jólunum,“ hreytir hann út út sér og
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofunnar um mannfjölda á
landinu 1. desember síðastliðinn
hefur landsmönnum fjölgað um
3438 á árinu. Fjölgun landsmanna
er misskipt eftir landshlutum
þetta árið eins og mörg undanfar-
in ár.
Þannig fjölgar íbúum höfuðborg-
arsvæðisins um 3555 eða 117 íbú-
um meira en heildarfjölgun lands-
manna er. Fjölgunin á Reykjavík-
ursvæðinu er samsvarandi því aö
allir íbúar Sandgerðis, Bolungar-
heldur svo áfram að þegja. Bryndís
úr Breiðholtinu segist vera þakklát
Mæðrastyrksnefnd fyrir allt: „Án
kvennanna hér hefði verið heldur
dapurlegt hjá okkur mömmu. Við
búum saman tvær og höfum ekkert
nema tryggingamar."
víkur, Seyðisfjarðar og flestallir
íbúar Biskupstungna hefðu tekið
sig upp og flutt þangað. Á höfuð-
borgarsvæöinu fjölgar hlutfalls-
lega mest í Mosfellsbæ eða 6,42%.
Ibúafjölgunin er mest í Reykja-
vík, 1444, og Kópavogi, 1198. I
þrem kjördæmum utan Reykjavík-
ur fjölgar fólki. Á Suðumesjum
um 1,43%, Suðurlandi um 1,36%
og Vesturlandi 0,76%. íbúar höfuð-
borgarsvæðisins eru nú orðnir
61,5% af heildarfjölda á landinu
öllu en voru 1989 56,8%.
Fyrir síöustu jól deildi Mæðra-
styrksnefnd út 1100 matarmiöum að
verðmæti 5000 krónur hver. Úthlut-
unin í ár fer fram klukkan 14-17 að
Sólvallagötu 48 dag hvern fram aö
jólum.
Af landsbyggðarkjördæmum er
fækkunin mest á Vestfjörðum eða
3,41%. Á Vestfjörðum búa nú sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Hagstof-
unnar 8308 manns, þar hefur fækk-
að um 1532 íbúa frá árinu 1989 eða
15,6%. Það samsvarar því aö allir
Bolvíkingar hafl flutt suður en
fjölgað hefur um 27.650 íbúa á höf-
uðborgarsvæðinu eða 19,2%. í öör-
um kjördæmum hefur fækkaö á
Austurlandi um 1,29%, Norður-
landi vestra um 1,38% og Norður-
landi eystra um 0,55%. -NH
-EIR
íbúum á höfuðborgarsvæðinu Qölgar mest:
Vestfirðingar með
met í fólksflótta
- fækkun á áratug samsvarar öllum íbúum í Bolungarvík
Stuttar fréttir dv
Guðni frestar
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra hefur ákveðið að fresta
því að taka
ákvörðun um
hvort leyft verð-
ur að flytja inn
kýrfósturvísa
frá Noregi.
Þriggja manna
starfshópur á
að meta hvort
gæði mjólkurinnar breytist verði
innflutningurinn leyfður.
Höfnuðu kröfu
Upp úr slitnaði í samningavið-
ræðum aðildarfélaga Verka-
mannasambands íslands og Sam-
taka atvinnulífsins en þær sner-
ust um frestun viðræðuáætlunar í
allt að ár en á móti kæmu kjara-
bætiu- til þeirra lægst launuðu.
Var krafan 11.000 krónur ofan á
lægstu taxta. Þessu höfnuðu at-
vinnurekendur. RÚV greindi frá.
Óttast ofhitnun
Bandarísku matsfyrirtækin
Moody’s Investors Service og
Standard & Poor’s hafa staðfest
mat á lánshæfl íslenska ríkisins.
Fyrirtækin segja mikinn hagvöxt
á Islandi vekja áhyggjur um ofhit-
un í hagkerfinu.
Nýr rektor
Menntamálaráðherra hefur
skipað doktor Ólaf Proppé rektor
Kennaraháskóla íslands til næstu
fimm ára.
Ódýrari í Reykjavík
Jólatrén eru ódýrari i Reykjavík
en á landsbyggðinni og gildir einu
hvort um innflutt eða íslensk tré er
að ræða. RÚV sagði frá.
Ármann látinn
Ármann Kr. Einarsson, rithöf-
undur og kennari, er látinn, 84
ára að aldri.
Mannekla
Fækkun lögreglumanna i Graf-
arvogi og styttri opnunartíma lög-
reglustöðvar
má meðal ann-
ars rekja til
þess að erfitt er
að fá menntaða
lögreglumenn
til starfa. Þetta
kom fram hjá
Geir Jóni Þóris-
syni aðstoðaryfirlögregluþjóni á
fundi hverfisnefndar Grafarvogs.
Ríkið greiði
Hæstiréttur staðfesti dóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur um að ríkið
hefði brugðist þeirri skyldu að
tryggja konu laun úr ábyrgðar-
sjóði launa við gjaldþrot að ís-
lenskum rétti og væri því skaöa-
bótaskylt. Bylgjan greindi frá.
Ekki hert eftirlit
Stjómarflokkamir höfnuðu
hertu skattaeftirliti til tekjuöflun-
ar þegar fjárlög ársins 2000 voru
afgreidd sem lög frá Alþingi í
gær. Höfnuðu þeir líka að taka
upp 2700 kr. gjald á hvert tonn af
kvótaúthlutun. Allar tillögur VG
til eflingar velferðarkerfmu vom
felldar. Dagur greindi frá.
Tap af virkjun
Guðmundur Ólafsson, lektor í
hagfræði við HÍ, segir 12-13 millj-
arða tap blasa við af Fljótsdals-
virkjun. Hjálmar Ámason, for-
maður iðnaðarnefndar, segir
hann gefa sér rangar forsendur.
Ekki fengið svar
Bjöm Bjarnason menntamála-
ráðherra hefur í greinum á vef-
síðu sinni gagn-
rýnt Lyfjaeftir-
lit ríkisins fyrir
viðskiptahindr-
anir á tiltekn-
um fæöubótar-
efnum. Hann
segist ekki enn
hafa fengiö
lokasvör frá eftirlitinu vegna fyr-
irspurnar sinnar um fæðubótar-
efnið VM-75 sem ekki má flytja til
landsins. -hlh