Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1999, Side 24
‘32
FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999
Sviðsljós_____________________________________________________________________________
Sjaldan er góð vísa of oft kveðin:
Naomi fækkar
fötunum enn
Ofurfyrirsætan Naomi Campbell
var ekki fyrr búin að koma sér aft-
ur í spjarimar eftir að hafa setið
fyrir á nektarmyndum í karlaritið
Playboy en hún fækkaði fótum enn
á ný.
Já, Naomi kallar ekki allt ömmu
sína þegar djarfar myndir eru ann-
ars vegar. í næsta hefti karlaritsins
GQ, sem kemur út fyrir þúsalda-
mótin, verða myndir af fyrirsæt-
unni fáklæddri. Það var ítalski ljós-
myndarinn Fabrizio Enzo sem varð
þess heiðurs aðnjótandi að fá að
taka þær.
Bandaríska æsiblaðið New York
Post hafði eftir nákunnugum að Na-
omi hefði ekki átt í neinum vand-
ræðum með að afklæðast fyrir Play-
boy.
„Henni fannst gaman að þvi og
ljósmyndaranum lika. Naomi er
ekki hrædd við nokkurn hlut,“
sagði einn þeirra sem tóku þátt í
myndatökunum.
Nei, fyrirsætan er ekki hrædd.
Enn eitt dæmi um hugrekki hennar
er opinber andstaða hennar við
samtök dýravina, PETA, sem berj-
ast fyrir mannúðlegri meðferð á
dýrum.
PETA-menn eru andvígir loðfeld-
um en Naomi er aftur á móti ákaf-
lega hrifin af þeim og það kunna
siðapostular ekki að meta.
Naomi Campbell er ekki feimin víö aö sýna fagurskapaðan líkama sinn á
almannafæri. Á næstunni birtast nektarmyndir af henni í karlabiaöinu GQ.
Klámblað birtir
myndir af fræg-
um í leyfisleysi
Bandarískt klámblað hefur
bakað sér reiði margra frægra
stjarna með því að birta nektar-
myndir af þeim á Internetinu. í
leyfisleysi, að sjálfsögðu. Stjöm-
umar sem hér um ræðir eru
Madonna, Lena Olin hin sænska,
Jennifer Lopez latínubomba og
Drew Barrymore.
Klámblaðið, Celebrity Skins,
sérhæfir sig, eins og nafnið gefur
til kynna, í birtingu nektar-
mynda af frægum kvikmynda-
stjömum og öðru frægu fólki.
Myndirnar eru oft sóttar í gaml-
ar og óþekktar myndir með
þessu ágæta fólki.
Hin sænska Lena Olin er eitt
nýjasta fórnarlamb klámhund-
anna óprúttnu. Ljósmyndirnar
af henni eru úr úrvalskvikmynd-
inni Óbærilegum léttleika tilver-
unnar frá árinu 1988. Þar fækkar
Lena fötum en ekkert meira.
I>V
Natalie með
fölsuð skilríki
Leikkonan Natalie Portman er
ekkert frábrugöin öðrum átján
ára gömlum nýnemum við
Harvard-háskóla. Hún er búin að
útvega sér falsað nafnskírteini
til að komast inn á klúbbana í
Boston. Falsaði pappírinn kom
henni þó næstum í klandur um
daginn þegar lögga sem hafði af-
skipti af henni við næturklúbb í
Boston hafði orð á þvi að per-
sónuskilríki stúlkunnar væri að
öllum líkindum falsað. Natalie
slapp með skrekkinn i þetta sinn
eftir að plötusnúðurinn skarst í
leikinn.
Polanski fær
sverð fagurlista
Kvikmyndaleikstjórinn Rom-
an Polanski var gerður að ævi-
löngum félaga í fagurlistaaka-
demiunni frönsku í vikunni. Því
til staðfestingar fékk hann af-
hent forláta sverð sem er tákn
aðildar aö akademíunni. Mikil
Qöldi stjama var viðstaddur at-
höfnina, þeirra á meðal leikkon-
urnar Catherine Deneuve og
Kristin Scott Thomas, og að sjálf-
sögðu fengu gestir sér kampavín
á eftir. Hvemig má annað vera í
sjálfu Frans? Ung eiginkona hins
66 ára gamla leikstjóra og dóttir
þeirra voru líka í móttökunni.
Kryddpían Victoria Adams
sem þessa dagana kennir sig við
eiginmanninn Beckham (hvar er
stelpnavaldið? myndi einhver
spyrja) setti upp hárkollu á tón-
leikum kvennasveitarinnar vin-
sælu í Bretlandi um daginn.
Ekkert að því í sjálfu sér, nema
hvað mörgum flnnst undarlegt
að kollan er nákvæm eftirliking
af eigin kolli Victoriu. Skýringin
kann að vera sú aö henni finnist
alvömhárið þunnildislegt, renn-
sveitt í tónleikahasamum.