Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1999, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 27. DESEMBER 1999
Fréttir
Maður sem fór í jóladagsgönguferð í fjallinu fyrir ofan Staðarfell í Dölum:
Þeyttist á annað
hundrað metra niður
- eftir að hafa misst fótanna og farið fram af harðfennislænu við klettabelti
„Hann var heppinn, þessi maður
sem var á gönguferð við fjallsbrún-
ina ofan við húsin á Staðarfelli, þeg-
ar hann missti fótanna í hjarni og
fór fram af harðfennislænu. Félagi
hans hafði horft á eftir honum og
búist við að maðurinn myndi líta
upp. En þá hafði hann farið fram af
klettunum og þeyst niður hlíðina,“
Guðbjörg Guömundsdóttir, móöir
Guðmundar ísars. DV-mynd HH
Látins sonar og
vinar minnst
í dag mun hópur unglinga úr
Hagaskóla minnast látins vinar
síns, Guðmundar ísars Ágústs-
sonar sem lést af slysförum þenn-
an dag fyrir einu ári. Gangan er
kölluð Gúndaganga en Guðmund-
ur heitinn var kallaður Gúndi.
Minningargangan hefst með
stuttri athöfn í Neskirkju klukk-
an 17 í dag en þar mun séra Hall-
dór Reynisson fara með bæn
Gengið verður með kyndla að
leiði hins látna í Fossvogskirkju-
garði.
Gangan er gengin undir slag-
orðinu „Unglingar gegn of hröð-
um akstri" en megintilgangur
hennar er að vekja til umhugsun-
ar um afleiðingar hraðaksturs.
„Þessi hugmynd kviknaði þegar
sonur minn var jarðsettur en vin-
ir hans voru í djúpri sorg vegna
fráfalls hans. Því ákváðum við að
minnast hans með þessu móti,“
sagði Guðbjörg Guðmundsdóttir,
móðir Gúnda. -hól
sagði Sigvaldi Guðmundsson, lög-
regluvarðstjóri í Búðardal, í samtali
við DV um mann sem hafði verið á
meðferðarheimilinu Staðarfelli á
Skógarströnd í Dölum þegar jóla-
dagsgönguferð fékk óvæntan endi.
Maðurinn hafði haft þónokkuð
fyrir þvi að komast upp að fjalls-
brún en á örfáum sekúndum var
hann kominn aftur langleiðina nið-
ur að húsunum við Staðarfell eftir
vel á annað hundrað metra rennsli í
mjög bröttu hjami fyrir ofan - þar
af talsvert I frjálsu falli.
Félagi mannsins hafði horft á eft-
ir honum uppi við brún og búist við
að bann gægðist nú upp aftur. En þá
heyrði hann bara eitthvert óp.
Menn sem voru fyrir neðan komu
hins vegar auga á manninn þegar
þeir heyrðu í honum þeytast æp-
andi niður eftir hlíðinni, að sögn
Sigvalda.
„Hann lá fyrst eins og dauður þeg-
ar að var komið en síðan kom í ljós
að hann gat gengið studdur inn í hús.
Hann var meðal annars með opið
framhandleggsbrot," sagði Sigvaldi
sem óskaði eftir að þyrla yrði send
vestur. TF-SIF kom á vettvang í Stað-
arfelli á fimmta tímanum síðdegis á
jóladag. Henni var lent við Borgar-
spítalann laust fyrir klukkan sex.
Að sögn læknis á slysadeild Borg-
arspítalans marðist maðurinn tals-
vert og rispaðist auk þess sem hann
fékk lítilvæg meiðsl á höfði, fyrir
utan beinbrotin tvö. Hann er því tal-
inn hafa sloppið ótrúlega vel. Sig-
valdi lögreglumaður telur það hafa
hjálpað mikið að maðurinn var í
„heilum kuldagalla". -Ótt
Unniö er af krafti viö aö brjóta um hina merku bók sem fjallar um framættir íslendinga, eftir Sigurgeir Porgrímsson,
fyrrum forstööumann ættfræöisíðu DV. Bókin veröur yfir 300 blaðsíður, skreytt fjölda mynda af íslendingum fyrr og
nú. Þá er fjöldi mynda af hinum ýmsu ættaróðulum á íslandi og á meginlandinu. Á myndinni er Guðmundur Steins-
son umbrotsmaöur, sitjandi við tölvuna. Ritstjórinn, Theodór Árnason verkfræðingur, fylgist meö ásamt nánum aö-
stoðarmanni, Guðlaugi Tryggva Karlssyni, hagfræöingi og hestamanni.
...og þá eru eftir fjórir
jJmhj/j
Það er mikið um að
vera hjá Framsóknar-
flokknum þessa dag-
ana. Ljóðið um 10 litla
negrastráka á við um
flokkinn en óvíst er
þó um að allir snúi
þeir aftur. Fiokkurinn
hefur jafnt og þétt tap-
að fylgi og er nú kom-
inn á þau mörk að
spurt er um útrýming-
arhættu. Halldór for-
maður Ásgrímsson
hefur náð að fitu-
skerða flokkinn
þannig að allir fá eitt-
hvað fallegt, í það
minnsta bankastjóra-
stól. Styrkur Fram-
sóknar liggur í fá-
menninu sem gerir að
verkum að allir hafa
hlutverk. Það sem
brennur þó á fólki
þessa dagana er hver framsóknarmannanna
verður það jólabarn sem lagt verður í jötu
Seðlabankans. Páll Pétursson hefur það frá
vitringum að hann geti ekki farið í hanka
vegna þess að sonur hans, formaður Fjármála-
eftirlitsins, sér um að passa að siðleysi nái
ekki inn í raðir bankamanna. Þannig verður
Höllustaðabóndinn að una því að vera áfram í
pólitík. Valgerður Sverrisdóttir, þingmaður
Norðurlands eystra, hefur uppi í erminni lof-
orð um að verða ráðherra. Hún er loðdýra-
bóndi og er orðin þreytt á að bíða eftir því að
Halldór komi undan feldinum. Það liggur fyr-
ir að Halldór horfir sjálfur hýru auga til jöt-
unnar í Seðlabankanum. Hann er í eðli sínu
friðsæll og myndi sóma sér vel sem jólabarn
Framsóknar. En Halldór er ábyrgur með
eindæmum og þrátt fyrir að vera kominn
með flokkinn niður í meðfærilega stærð þá
er hann ekki alveg tiibúinn að yflrgefa skút-
una til að fara í jötuna. Því er spurning hver
eigi að hreppa hnossið. Finnur Ingólfsson er
næstur Halldóri að völdum. Hann hefur
marga fjöruna sopið á ferli sínum og vili
gjarnan verða jólabarn. Það myndi leysa ým-
is vandamál. Þannig yrði til skarð fyrir Val-
gerði sem þar með gæti loksins farið í nýju
dragtina sem hangiö hefur inni í skáp allt
síðan ráðherrajobbinu var lofað. Páll Péturs-
son fær að dansa í félagsmálaráðuneytinu
áfram. Umhverfissinninn Ólafur Örn Har-
aldsson verður ofan á í Reykjavík og flokk-
urinn fær nýja ímynd þar. Lausnin er fund-
in. Finnur verður jólabarn flokksins og fer í
Seðlabankann og Valgerður sá sjötti sem
eitthvað fær „og þá eru eftir eru íjórir" eins
og segir í bamagælunni. En tíminn er næg-
ur, nú þegar ekki er fjórðungur liðinn af
kjörtímabilinu. Bankastjórastólar eða ráð-
herrasæti hljóta að falla til fyrir þá sem enn
hafa ekkert fengið. Enn eru til framsóknar-
menn svo fylla megi stólana. Flokkurinn sem
bauð fram undir slagorðinu „Fólk í fyrirrúmi"
meinti auðvitað „Framsóknarfólk í fyrirrúmi"
og áfram er sungið um 10 litla framsóknar-
stráka. Dagfari
sandkern
Ekki á Torgið
Kristjáni Þór Júlíussyni bæjar-
stjóra á Akureyri mun hafa borist
beiðni um það frá nokkrum bæjar-
búum að hann fyrir hönd Akureyr-
arhæjar beitti sér fyr-
ir því að bæjarbúar
söfnuðust saman
sem flestir á Ráðhús-
torgi skömmu fyrir
miðnætti 31. desem-
ber nk. og fögnuðu
þar nýju ári saman,
teldu niður sek-
úndur o.s.frv. Bæj-
arstjóri er sagður
hafa tekið erindinu heldur fá-
lega, enda fmnst víst sumum að lítil
ástæða sé til að vera að stefna fólki
saman að óþörfu á þessum tíma,
slíkt myndi víst varla hafa annað í
för með sér en fjöldaölvun og ein-
hver fleiri vandræði. Akureyringar
munu því fagna þúsaldamótunum
heima við eins og jpeir eru vanir að
gera um áramót.
Vandræði hjá Elínu
Mikill vandræðagangur er hjá
sveitarstjóminni í Húnaþingi vestra
vegna ráðningar í stöðu skólastjóra
við skólabúðimar að Reykjum í
Hrútafirði. Sveitar-
stjórn réð karl til
starfsins, en ekki
konu sem einnig var
meðal umsækjenda
þrátt fyrir að skóla-
nefnd mælti með
ráðningu konunn-
ar. Máliö er komið
tU kasta kæru-
nefndar Jafnréttis-
ráðs. Og þá kemur það vandræðalega
í málinu. Elín R. Líndal framsóknar-
kona er oddviti sveitarstjórnarinnar
sem réð karlinn, en hún er einnig for-
maður Jafnréttisráðs. Og vaknar nú
sú spurning hvort framsóknarkonan
Elín hafi beitt sér í því að koma að
einhverjum fiokksbróður sínum.
Lofrulla
Sveinn Jónsson i Kálfsskinni i
Eyjafirði, ferðamálafrömuður með
meiru, sagði eftir að formaður at- s
vinnumálanefndar Akureyrar hafði
haldið smáræðu og
afhent Sveini 500
þúsund króna hvatn-
ingarverðlaun
vegna baráttu hans
fyrir kláfferju upp
á brún Hlíðarfjalls,
að ræðan hefði
verið lofrulla sem
hann hefði ekki
átt skUið. Sveinn kom
því reyndar „pent“ að við þetta
tækifæri að bæjaryfirvöld á Akur-
eyri hefðu lengst af „dregið lappirn- !
ar“ í málinu, en nú væri annað uppi
á teningnum. Þrátt fyrir afstöðu
bæjaryfirvalda lengi vel sér nú fyrir
endann á málinu, og gæti kláfferjan
komist í gagniö sumarið 2001 gangi
björtustu vonir Sveins eftir.
Fékk líka vinnu
Við sögðum frá því á dögunum að
Árni Gunnarsson varaþingmaður
Framsóknarflokksins á Norðurlandi
vestra og fyrrum aðstoðarmaður
Páls Péturssonar í
félagsmálaráðuneyt-
inu hefði tekið við
nýju starfi hjá Fisk-
iðju Sauðárkróks
sem er í eigu Kaup-
félags Skagfirð-
inga. En það fengu
fleiri nýja vinnu á
dögumun. Vinnu-
málastofnun réð ráðgjafa að Svæð-
isvinnumiðlun á Norðurlandi vestra
á Blönduósi sem er í sjálfu sér ekki
í frásögur færandi. Hjá Vinnumála-
stofnun höfðu menn hins vegar ekki
.þann hátt að auglýsa þessa opin-
beru stöðu heldur réðu eiginkonu
umrædds Árna Gunnarssonar, og
hefur hún aðsetur á Sauðárkróki
hjá karli sínum. Já, þeir hugsa um
sína, framsóknarmennimir.
Umsjón Gylfi Kristjánsson
Netfang: sandkorn @ff. is
4