Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1999, Page 8
8
MÁNUDAGUR 27. DESEMBER 1999
Útlönd
Páfí segir að
fjölskylduna
verði að vernda
Jóhannes Páll páfí sagði í gær
að hefðbundnar fjölskyldur ættu
undir högg að sækja og að grípa
þyrfti til sérstakra ráðstafana til
að standa vörð um réttindi þeirra.
Páfi lét orð i þessa veru falla í
síðasta ávarpi sínu á þessu árþús-
undi til gesta og gangandi á Pét-
urstorgi. Þúsundir manna hlýddu
á boðskap páfa í gær.
Jóhannes Páll sagðist vilja nota
tækifærið nú, við þúsaldamót, til
að minna á réttindi fjölskyldunn-
ar, lífsins og æskunnar eins og
þau birtust í Mannréttindasátt-
mála SÞ. Páfi sagði að til að hægt
væri að standa vörð um mann-
réttindi yrði að standa vörð um
réttindi fjölskyldunnar.
Kúbversk þota
ferst og 22 með
Kúbversk farþegaþota, smíðuð í
Rússlandi, fórst í fjalllendi nærri
borginni Valencia í Venesúela á
laugardagskvöld og létust allir
sem um borð voru, 22 menn.
Undir kvöid í gær var ekki ljóst
hvers vegna þotan flaug á fjallið.
Þetta var í annað sinn á tæpri
viku sem þota frá kúbverska rík-
isflugfélaginu ferst. Fyrir jól fórst
vél frá flugfélaginu í Gvatemala.
Sjónarvottar sögðu að flugvélin
hefði hnitað hringi, mjög lágt á
lofti, í meira en hálftíma áður en
hún skall á fjallinu og sprakk.
Vilhjálmur prins
búinn að ná sér
Vilhjálmur prins á Englandi,
eldri sonur Karls ríkisarfa og
Díönu prins-
essu, var orðinn
nógu hress í
gær til að sækja
guðsþjónustu
með Elísabetu
drottningu,
ömmu sinni, og
öðrum úr kon-
ungsfjölskyldunni bresku. Prins-
inn var hins vegar fjarri góðu
gamni á laugardag vegna krank-
leika. Ekki hefur fengist upplýst
hvað amaði að prinsinum.
Margir aðdáendur Vilhjálms,
einkum þó ungar stúlkur, urðu
fyrir sárum vonbrigðum þegar
hann lét ekki sjá sig í kirkjunni í
Sandringhamhöll drottningar.
„Ég varð fyrir miklum von-
brigðum. Ég var meira að segja
búin að veðja við fjölskylduna um
að hann myndi smella á mig
kossi,“ sagði hin 16 ára gamla
Rebecca Vass við Sunday People.
Ekkja fer hvergi
Flugræningjar sem rændu md-
verskri farþegaflugvél á jóladag
neituðu í gær að sleppa ekkju
manns sem þeir myrtu við upphaf
flugránsins. Þotunni var rænt eft-
ir flugtak frá Katmandú í Nepal.
Flugvélin er nú í Kandahar í
Afganistan og eru 155 gíslar enn
um borð. Ræningjamir hafa farið
fram á að indversk stjórn láti
lausan pakistanskan múslíma-
leiðtoga og félaga hans í Kasmír.
Stjómvöld í Afganistan vilja
losna við vélina og veittust að SÞ
fyrir að miðla ekki málum.
Mikill veðurofsi í Evrópu um jólin:
Tugir fórust og
tjón varð mikið
Fárviðri var víða í Evrópu vest-
anverðri yfir jólahátíðina og varð
allt að flmmtíu og þremur að bana.
Óveðrið olli miklum truflunum á
jámbrautarsamgöngum, teppti vegi
og lokaði báðum flugvöllum París-
arborgar í nokkrar klukkustundir í
gær. Disney-skemmtigarðinum
skammt frá Parísarborg var lokað
vegna ótta manna um öryggi gest-
anna. Áður höfðu sex gestir slasast
þegar tré féll ofan á smáhýsi þar
sem þeir dvöldu.
Allt að tuttugu og átta manns
týndu lífi í veðurofsanum í Frakk-
landi og hálf önnur milljón heimila
var án rafmagns, að sögn yfirvalda.
Tveir hinna látnu voru að snæða
jólamáltíð þegar þakið á veitinga-
húsi féll ofan á þá. Flestir létust þó
þegar bílar þeirra urðu fyrir fljúg-
andi braki eða bílstjórinn missti
stjórn á ökutækinu. Þá fuku einnig
margir út í skurði og hafnir og
drukknuðu.
Vindstyrkurinn var hinn mesti í
manna minnum í Frakklandi. Tré
rifnuðu upp með rótum og kranar
féllu um koll í norður- og austur-
hluta landsins.
Lögreglan hvatti almenning til að
halda sig innan dyra. Slökkviliðið í
París var kallað út tíu þúsund sinn-
um vegna veðursins.
Ríkisjárnbrautarfélagið aflýsti
nær öllum ferðum um norðanvert
Frakkland og voru þúsundir reiðra
farþega strandaglópar á brautar-
stöðvum.
Vindurinn blés líka hressilega í
Sviss. Þrettán ára gamall þýskur
piltur og átján ára belgísk stúlka lét-
ust þegar skíðalyfta sem þau voru i
féll til jarðar í skíðabænum Crans
Montana. Svissneskir fjölmiðlar
sögðu að átta manns til viðbótar að
minnsta kosti hefðu látið líflð í veð-
urhamnum.
Tólf manns að minnsta kosti fór-
ust í Þýskalandi suðvestanverðu,
margir í umferðarslysum sem urðu
vegna trjáa sem féllu um koll. Tafir
urðu á flugi til og frá flugvöllunum
í Stuttgart og Múnchen, taflr urðu á
lestarsamgöngum við Sviss og raf-
magnslínur slitnuðu.
Jacques Chirac Frakklandsforseti
lýsti yflr hryggð sinni vegna dauðs-
fallanna og sendi fjölskyldum fóm-
arlambanna samúðarkveðjur sínar.
Vindurinn var svo mikill á tíma-
bili að lögreglan í París bannaði
umferð bUa og gangandi vegfarenda
um Champs Élysées breiðgötuna
vegna þess að þaksteinar fuku þar
um allt.
Parísarbúar sem vildu komast leiðar sinnar um Foch-breiögötuna í París í gær þurftu aö sneiöa hjá stórum trjám
sem höfðu rifnaö upp meö rótum eöa brotnað í fárviðrinu sem gekk yfir noröurhluta Frakklands yfir jólahelgina. Hátt
í þrjátíu manns týndu lífi í Frakklandi einu í óveðrinu. Manntjón varö einnig í Sviss og Þýskalandi.
Rússar sóttu langt inn í Grozní í gær:
Uppreisnarmenn
Rússneskir hermenn mættu
harðri mótspyrnu uppreisnar-
manna múslíma þegar þeir sóttu
langt inn í Grozní, höfuðborg
Tsjetsjeníu, í gær.
Bandarísk stjórnvöld ítrekuðu
fordæmingu sína á hernaðaraðgerð-
um Rússa. Búast má við frekari
gagnrýni vestrænna ríkja nú þegar
jólahátíðin er liðin.
Interfax-fréttastofan hafði eftir
Rússavininum Bislan Gantamírov
að hersveitir hans hefðu komist inn
í miðborg Grozní, nærri fyrrum höf-
uðstöðvum dagblaða í Grozní.
Gantamírov þessi ræður yfir átta
hundruð manna liði sem fer fyrir
árás Rússa á tsjetsjensku höfuð-
borgina.
Sjónvarpsstöðin ORT sagði að
rússneskir hermenn hefði náð til
Mínútka-torgs nærri miðborginni,
þar sem hart var barist í stríðinu
1994 til 1996. Þeirri styrjöld lauk
með því að Rússar hurfu á brott úr
Tsjetsjeníu. í úthverfunum í norð-
Rússneskur hermaöur í Tsjetsjeníu
skreytir nýárstréð sitt meö skotbelti
til aö reyna aö gera dálítiö hátíölegt
i kring um sig á vígvellinum.
tefja för
urhluta borgarinnar reyndu rúss-
nesku hermennirnir að einangra
uppreisnarmenn frá aðalbækistöðv-
um þeirra í miðborginni og nutu
við það aðstoðar flugvéla.
Tass-fréttastofan hafði eftir emb-
ættismönnum í landvarnaráðuneyt-
inu að rússnesku hermennirnir
mættu mikilli mótspymu í sókn
sinni inn i Grozní.
„Framsókn rússnesku hermann-
anna gengur mjög erfiðlega. Upp-
reisnarmenn hafa komið upp bæki-
stöðvum við nær alla mikilvæga
staði,“ hafði Tass eftir starfsmönn-
um ráðuneytisins.
Talið er að milli 1.500 og 5000
tsjetsjenskir skæruliðar hafist við í
Grozní þar sem allt að fjörutíu þús-
und óbreyttir borgarar eru enn,
matarlitlir og fátækir að eldiviði.
Fréttastofan RIA sagði að tveir
rússneskir hermenn heföu týnt lífl í
átökunum í gær og fjórir særst.
Uppreisnarmenn segjast hafa drepið
hundruð rússneskra hermanna.
Stuttar fréttir dv
Áhöfninni bjargað
Sjö manna áhöfn flutningaskips,
sem strandaði vestur af Hauga-
sundi í Noregi á jóladagskvöld, var
bjargað með aðstoð þyrlu.
Jólasveinar til Færeyja
Tveir þekktustu jólasveinarnir í
Færeyjum, þeir Kertastubbur og
Grautarsleikir,
hafa lagt til við
danska starfs-
bræður sína að
jólasveinaráð-
stefna verði
haldin í Færeyj-
um næsta sum-
ar, að því er
fram kemur í færeyska blaðinu
Dimmalætting. Dönsku sveinkarnir
munu hafa tekið vel í hugmyndina
og ætla að reyna að fá aðra nor-
ræna jólasveina með sér.
Efast um ágæti evru
Efasemdamönnum um ágæti
þess að Danir taki upp evruna,
sameiginlega mynt Evrópusam-
bandsins, fer fjölgandi meðal jafn-
aðarmanna, flokksbræðra forsæt-
isráðherrans.
Erkibiskup í æsiblaði
Geirge Carey, erkibiskup af
Kantaraborg og yflrmaður ensku
þjóðkirkjunnar, hefur fengið æsi-
blaðið News of the World í lið
með sér til að útbreiöa boðskap
kristinnar trúar. Bók Careys,
Jesús 2000, fylgir ókeypis með
blaðinu á sunnudaginn kemur.
Einstein er maöurinn
Bandaríska tímaritið hefur út-
nefnt Albert Einstein, höfund af-
stæðiskenningarinnar, mann ald-
arinnar.
Hamilton íhugar áfrýjun
Neil Hamilton, fyrrum ráð-
herra í stjórn breska Ihaldsflokks-
ins, sagðist i
gær vera að
íhuga að áfrýja
úrskurði í meið-
yrðamáli gegn
auðkýfingnum
Mohamed A1
Fayed, eiganda
Harrods-stór-
verslunarinnar. Hamilton tapaði
málinu í yflrrétti fyrr í mánuðin-
um og á yfir höfði sér gjaldþrot
vegna skulda við lögmenn sína.
Forsetinn flúinn
Henri Konan Bédié, forseti
Fílabeinsstrandarinnar, sem
valdaræningjar úr hemum settu
af á aðfangadag, kom til Lomé,
höfuðborgar Tógó, í gær. I fór
með honum voru fjölmargir úr
fjölskyldu hans.
Föngum gefið frelsi
ísraelar slepptu í gær fimm
líbönskum skæruliðum sem
höfðu verið í haldi án þess að rétt-
að hefði verið í máli þeirra. Talið
er að ísraelar séu að biðja um gott
veður í væntanlegum friðarvið-
ræðum við Sýrlendinga.
Ekki tekið hart á hassi
Breska lögreglan gaf til kynna í
gær að ekki yrði tekið hart á
þeim sem fengju sér í hasspípu
um áramótin.
Noel gegn refaveiðum
Oasispopparinn Noel Gallagher
og aðrir frægir Bretar hafa skrif-
að Tony Blair
forsætisráð-
herra bréf þar
sem þeir hvetja
til þess að refa-
veiðar verði
bannaðar. Hefð
er fyrir þvi á
Bretiandi að
halda á refaveiðar um jólaleytið
og verður blásið til veiðanna í
dag. Bretar hafa stundað refaveið-
ar í meira en 300 ár.
Við öllu búnir
Bandarískir embættismenn
reyndu að draga úr ótta almenn-
ings við hryðjuverk og tölvurof
um áramót en sögðu þó að fólk
ætti að vera á varðbergi.