Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1999, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Skólastjóraátökin í Tónlistarskóla Garöabæjar:
Draumurinn sem
varð að martröð
- segir yfirkennarinn sem gengur út 1. janúar
„Maöur er búinn að berjast
harðri baráttu fyrir nýbyggingu
tónlistarskólans í ellefu ár. Svo
loksins þegar draumurinn rætist
verður hann að martröð," sagði
Smári Ólason, yflrkennari Tónlist-
arskóla Garðabæjar, vegna átaka
um ráðningar í starf skólastjóra
við skólann. Skólanefnd hafði talið
Smára hæfastan í umsögn sinni.
Hann kvaðst ekki fá skýringu á
hvaöa ástæður lægju að baki
ákvörðunar bæjarstjómar um að
ráða Agnesi Löve í starfið. Hann
kvaðst því myndu ganga út 1. jan-
úar nk.
„Það hljóta einhverjar upplýs-
ingar að liggja fyrir bæjarstjómar-
fulltrúum sem ég fæ ekki að vita
um, eitthvað sem þolir ekki dags-
ins ljós. Það hlýtur eitthvað að
hafa verið sagt sem gerir það að
verkum að ég er ekki talinn æski-
legur, eitthvaö sem ekki er í mín-
um gögnum og ekki hjá skóla-
nefnd,“ sagði Smári.
Aðspurður hvort ágreiningur
hefði verið með honum og bæjar-
stjóm kvað hann svo ekki vera.
Hins vegar hefðu hann og skóla-
stjórinn, annars vegar og bæjar-
stjóri hins vegar tekist hart á um
stærð tónlistarskólans þegar hann
var byggður fyrir tveimur árum.
Bæjarstjóri hefði viijað minnka
húsið frá því er teikningar gerðu
ráð fyrir en þeir ekki viljað gefa
það eftir. Sú afstaða hefði verið
mótuð með tillitit til faglegra sjón-
armiða.
„Ég er gjörsamlega miður mín
vegna þessa máls og i hvaða farveg
það er komið,“ sagði Smári. „Þetta
er verulega slæmt fyrir skólann."
Smári kvaðst hafa vitneskju um
að gögn sem hann hefði látið fylgja
umsókninni hefðu aldrei verið
lögð fyrir vinnunefnd, skólanefnd,
bæjarráð né bæjarstjóm. Þar hafi
verið um að ræöa meðmæli og
önnur gögn.
„Hvað sem veldur þá er þetta
ótrúlegt klúður,“ sagði Smári.
„Mér skilst að meðmæli annarra
hafi verið ljósrituð bak og fyrir og
dreift með umsóknunum."
Ingimundur Sigurpálsson bæjar-
stjóri sagði að niðurstaða í málinu
væri óbreytt. Menn teldu sig hafa
tekið rétta ákvörðun. Bæjarstjóri
kvaðst þess fullviss að bæjarfull-
trúar hefðu aflað sér itarlegra upp-
Kennarar tónlistarskólans samþykktu á fundi sínum í
gærkvöld ytirlýsingu þar sem fariö er fram á aö starf
skólastjóra veröi auglýst upp á nýtt. Einnig vilja þeir aö
formgalli í meöferö umsókna veröi rannsakaöur.
lýsinga og metið
umrædda ráðn-
ingu sem rétta
ákvörðun út frá
heildarhagsmun-
um bæjarins og
skólans.
„Þetta tengist
m.a. stöðu skól-
ans í þessu bæj-
arsamfélagi,
samstarfi tónlist-
arskóla og
grunnskóla.
Menn sjá fram á
endurskipulagningu á starfi tón-
listarskólans á grundvelli nýrrar
aðalnámskrár. Bæjarstjóm var
sammála að fá utanaðkomandi að-
Ua að þessu verkefni og var sam-
mála um að Agnes Löve væri best
tU þess falllin. Hún hefur bæði far-
sæla reynslu sem skólastjóri og
tónlistarmaöur."
Hvað varðaði samskipti við yfir-
kennarann sagði bæjarstjóri að því
væri ekki að leyna að upp hefði
komið ágreiningur um málefni
skólans á undanfomum árum sem
ekki hefði farið hátt. -JSS
Björk var kjörin tónlistarmaöur aldarinnar viö mikinn fögnuö áheyrenda í gærkvöld.
Björk tónlistarmaður aldarinnar
Björk Guömundsdóttir og Bubbi
Morthens voru sigurvegarar kvöldsins
í gær þegar veitt voru verðlaun fyrir
góðan árangur tónlistarmanna á öld-
inni á aldamótaveislu í Háskólabíói.
Björk var valin tónlistarmaður aldar-
innar og jafnfram besta söngkonan á
öldinni. Bubbi var valinn rokkari ald-
arinnar og gamla hljómsveitin hans,
Utangarðsmenn, var valin rokkhljóm-
sveit aldarinnar. Plata aldarinnar var
Lifun með hljómsveitinni Trúbrot en
besta lagið var valið Vegir liggja tU
allra átta eftir Sigfús HaUdórsson. VU-
hjálmur Vilhjálmsson var valinn
söngvari aldarinnar og Stuðmenn voru
að lokum valdir ballhljómsveit aldar-
innar.
„Við þökkum öUum sem komu og
lögðu góðu málefni lið.“ sagði Einar
Bárðarson sem stjórnaði skemmtuninni
sem nú var haldin annað árið í röð.
Fjöldi landsþekktra tónlistarmanna
kom ffam í Háskólabíói og var kvöldið
vel heppnað enda húsfyUir. Það voru
DV, VífilfeU, ÍÚ, Háskólabíó og Hard
Rock sem stóðu að Aldamótaveislunni
en aUur ágóði rann tU Styrktarfélags
krabbameinssjúkra bama og Um-
hyggju. Að sögn Einars Bárðarsonar
náðist það takmark sem sett var, tvær
miUjónir króna söfnuðust og renna þær
óskiptar tU samtakanna. -hdm
Útvarpskona hvatti aöra til að eignast aldamótabarn:
Tók starfiö alvarlega
og varð sjálf ófrísk
„Ég tók vinnuna svo bókstaflega að
ég varð sjáU' ólétt,“ segir úvarpskon-
an Hulda Bjarnadóttú sem staðið hef-
ur fyrir kappleik um áramótabarnið.
Starfsmenn Fíns Miðils gerðu sér
að leik að reikna út hvenær geta ætti
áramótabamið og stóðu fyrir léttum
leik með hlustendum sínum hver
myndi eignast annað barnið á öld-
inni. Samkvæmt útreikningum hefði
getnaður átt að eiga sér stað 9. aprU.
Eflaust hafa fleúi reiknað út hvenær
Hulda Bjarnadóttir berar bumbuna
en allt viröist stefna aö því aö hún
hljóti vinninginn í eigin leik.
DV-mynd Pjetur
getnaður ætti að eiga sér stað til að
fæða bamið í byrjun ársins 2000 enda
ekki amalegt að eiga afmælisdaginn
01/01/00. Vinningurinn í leiknum er
glæsUegur en m.a. fær annað barnið
á öldinni birgðir af barnamat og
bleium, auk þess að fá utanlandsferð
fyrir sig og foreldra sína.
„Við leigðum hótelherbergi fyrú
eitt parið. Þeim varð að ósk sinni og
stúlkan varð ólétt en málið var að ég
varð það líka,“ sagði Hulda hlæjandi
í samtali við DV í gær. Barnið henn-
ar Huldu átti samkvæmt úúeikning-
um að vera komið í heiminn en það
lætur bíða eftir sér. „Ég er að springa
og var að koma úr skoðun en ekkert
gerist. Ég hef reynt að gera ýmislegt
og tekið mér hressUegar gönguferðir
upp og niður Laugaveginn án árang-
urs,“ segir Hulda.
En er ekki tU mikUs að vinna að
halda baminu nokkrum dögum leng-
ur? „Það er rosaleg pressa á mér að
halda í mér. Ég myndi gera aUt vit-
laust á vinnustaðnum ef ég ætti ann-
að bamið á árinu en samkvæmt
vinnureglum ætti það ekki að gerast
að ég hlyti vinninginn. En þetta er
fyrsta barnið mitt og því ekki ólíklegt
að ég gangi með einhverja daga fram
yfir áætlaðan fæðingardag," segú
Hulda.
Sjávarútvegsrisi
Eitt alúa öfl-
ugasta sjávarút-
vegsfyrirtæki
heims varð til í
gær með sam-
runa Sölusam-
bands íslenskra
fiskframleiðenda
og íslenskra sjáv-
arafúrða. Nýja félagið heitú SÍF hf.
Fjarnám
Undúritaður hefúr verið samning-
ur mUIi Háskólans á Akureyri, Mið-
stöðvar símenntunar á Suðumesjum
og HeUbrigðisstofnunar Suðumesja
um fjamám í hjúkrunarúæði á
Reykjanesi. Dagur greindi frá.
Aukið verðmæti
Verðmæti fyrútækja á Verðbréfa-
þingi íslands hefur aukist um 100
milljarða á árinu. RÚV greindi frá.
Falskar forsendur
Sýknudómur Hæstaréttar, þar
sem faðú var sýknaður af að hafa
beitt dóttur sína kynferðislegu of-
beldi, byggú á fólskum forsendum,
að sögn Boga Andersen, sérfræðings
í sameindaerfðafræði og lyflæknis-
fræði við læknadeUd Kalifomíuhá-
skóla i San Diego. RÚV greindi frá.
Methalli
AUt stefnú nú í að góðærið 1999
verði gert upp með meúi viðskipta-
halla en nokkru sinni síðan 1982 og
tvöfalt meúi en meðalhaUa síðustu
þriggja áratuga. Samkvæmt Hagvís-
um Þjóðhagsstofhunar stefnú í 38
mUljarða haUa á utanrikisviðskipt-
um á þessu ári. Dagur greindi frá.
Fá háskólapróf
Samkvæmt könnun sem Dagur
segú frá hafa einungis um 1 af
hverjum 10 starfsmönnum fyrú-
tækja innan Samtaka iðnaðarins
lokið háskólaprófi.
Á vaktinni
2000 nefndin,
sem Haukur Ingi-
bergsson veitú
formennsku,
verður á vakt
fyrstu viku nýs
árs og mun fylgj-
ast grannt með
gangi mála. Vökt-
un neöidarinnar stendur frá klukk-
an 11 þann 31. desember 1999 tU
klukkan 16 þann 7. janúar.
Orkurisi
Um áramót verður tU orkurisi í
Reykjavík en þá sameinast vatns-
veitan og Orkuveita Reykjavíkur.
Salmonella drepur
SalmoneUusýking hefúr drepið
þrjú hross á bænum Vetleifsholti í
Ásahreppi í RangárvaUasýslu.
Óheimil skerðing
Héraðsdómur Reykjavikur komst
að þeúri niðurstöðu að ríkinu hefði
verið óheimUt að skerða örorkubæt-
ur vegna tekna maka.
Fær heiðursverðlaun
Hermann Pálsson prófessor hlýt-
ur árleg heiðursverðláun verðlauna-
sjóðs Ásu Guðmundsdóttur Wright.
Rannsaka öldrun
Rannsóknarstofa Háskóla íslands
og Sjúkrahúss Reykjavíkur í öldrun-
arfræðum verður formlega opnuð í
dag. Mbl. greindi frá.
19-20 breytt
Fréttaþættmum 19-20 á Stöð 2
verður breytt um áramót. Fréttatím-
ar kvöldsins verða þrú, kl. 18.55,
19.30 og 20.
Ást og friður
Samemuðu
þjóðúnar hafa
útnefht árið 2000
ár friðarmenn-
ingar að frum-
kvæði Friðar
2000, ef marka
má opið bréf sem
Ástþór Magnús-
son hefur sent Davíð Oddssyni for-
sætisráðherra af þessu tilefni.
Mikið sprengt
Bæði menn og skepnur hafa orðið
fyrir ónæði af völdum ótimabærra
áramótasprenginga undanfarin
kvöld.
-hlh
-hól