Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1999, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1999, Blaðsíða 28
Vinningstölw; miðvikudaginn 29.12. ’99 Heildarvinning&upphœð 42.466.440 Vinningar vinninga Vinning&upphœð 1. 6 at 6 3 12.967.740 2.5 016*., 0 2.301.190 .1.5 0(6 3 129.030 4.40(6 249 2.470 ,S-3 0(6.t. u. 553 470 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999 Hafnarfjörður: Peninga- falsarar gómaðir Tveir menn á þrítugsaldri voru gripnir í gær þegar þeir reyndu að koma folsuðum peningaseðlum i umferð í verslun í Hafnarflrði. Mennirnir hafa viðurkennt að hafa falsað 60-100 fimm þúsund króna seðla, en þeir hugðust ein- ungis reyna að koma 7 þeirra í um- ferð og höfðu losnað við fjóra seðla þegar upp um þá komst. Það var ár- vökul stúlka í verslun í Hafnarfirði sem uppgötvaði hvað um var að vera og leiddi það til handtöku mannanna. -gk Áramótaveðrið: Hvassviðri og úrkoma Seinni hluta dags er gert ráð fyrir þokkalegu veðri, suðlægri átt með skúrum eða éljum með suðurströnd- inni, sainkvæmt upplýsingum frá Veð- urstofu íslands. Með kvöldinu hvessir sunnanlands af suðaustan með 18-23 m/sek. Á morgun, gamlársdag, snýst veðrið í suðvestanátt með skúrum eða éljum og kl. 18 verður vindhraði 13-18 m/sek. Gert er ráð fyrir að lægi heldur undir miðnætti með skúrum og slyddu. Á nýársdag hvessir aftur suðvestan- lands og úrkoma eykst með slyddu eða rigningu. -JSS Landssímahúsið við Austurvöll. „Beggi litli" enn týndur Lögreglunni haföi ekki í morgun tekist að hafa upp á fanganum sem hljópst á brott frá gæslumönnum sin- um þegar verið var að flytja hann í réttarsal í gærmorgun. Fanginn sem heitir Þorbergur Berg- mann Halldórsson, þekktur sem „Beggi litli“, er 18 ára. Hann sást hlaupa inn í Landssímahúsið við Aust- urvöll eftir að hann slapp í gærmorgun en síðan hefur ekkert til hans sést.-gk Það styttist í áramótin og víðs vegar um land er verið að hlaða upp bálköstum sem kveikja á í annaö kvöld. Hér má sjá mynd frá bálkestinumi á Ægisíðu í Reykjavík, en reyndar er óvíst hvort hægt verður að kveikja í honum eða öðr- um slíkum á suðvesturhorni landsins annað kvöld vegna veðurs. DV-mynd Hilmar Þór Enginn fórst í sjóslysi Banaslys á árinu 1999 voru 33 tals- ins, næstfæst á þessum áratug. Þar af létust 24 karlar en 9 konur. Enginn fórst í sjóslysi á árinu og er það annað árið í röð sem svo er. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samantekt Slysavamafélagsins Landsbjargar um banaslys á árinu en um bráðabirgða- tölur er að ræða, miðaðar við 30. des- ember. Slysavamafélagið skiptir banaslys- um í fjóra flokka og er sá fyrsti sjóslys og drukknanir. Fjöldi látinna í þeim flokki er sex, fjórir drukknuðu í stöðu- vötnum, einn fannst látinn í Reykja- víkurhöfn og erlend kona lést í Reykja- víkurhöfn. Fjöldi drukknana er 13% af heildarfjölda. Flestir létust í umferðar- slysum á árinu, 22, eða 71% af heildar- fjölda. Ekkert banaslys varð á árinu vegna flugslysa en fimm létust í ýms- um slysum, sem gerir 16% af heildar- flölda. Þar af létust tveir í vinnuslys- um, einn vegna hraps, einn í snjóflóði og einn í tengslum við bruna. Á þessum áratug hafa 497 látið lífið í slysum, langflestir í umferðarslysum eða 225. Þar af em 40 erlendir gestir. 140 hafa látist í ýmsum slysum, 111 vegna sjóslysa og drukknana og 21 í flugslysum. Flestir létu lífið árið 1995, alls 86 mahns, en þá dóu fLestir i ýms- um slysum og má rekja það meðal ann- ars til snjóflóðanna fyrir vestan. -hdm Þrír handteknir eftir að lögregla fann töluvert magn e-taflna: E-partí aldarinnar fór út um þúfur - auglýst með dreifimiðum eins og dansleikur (E) Komið var í veg fyrir e-partí ald- arinnar þegar þrír menn á aldrin- um 17-25 ára voru handteknir af lögreglu í gær. Var lagt hald á um- talsvert magn e-taflna við húsleit hjá einum hinna handteknu. Sam- kvæmt heimildum blaðsins átti að nota e-töflurnar í árþúsundamóta- veislu sem halda átti á veitingastað í Hafnarfirði og auglýst var með dreiflmiðum eða svokölluðum „flyerum" eins og algengt er þegar e-pilluveislur eru haldnar. Á þess- um dreiflmiðum, sem á stendur ár- þúsundamót, „Tecno Trans Mast- er“, símanúmer og miðaverð, er sterklega gefið í skyn að um e-pillu- veislu yrði að ræða. Um það vitnar hringur um bókstafinn E efst í hægra homi dreifimiðans. Eftir því sem DV kemst næst var einn hinna hand- teknu, Guð- mundur Ingi Þór- oddsson, handtekinn á umrædd- um veit- ingastað eftir að húsleit hafði farið fram og e-töflumar fund- ust. Sá kom mjög við sögu í marg- frægu máli Bretans Kio Briggs fyrr á árinu en Briggs var handtekinn vegna gruns um stórfellt smygl á e- Guðmundur oddsson. Þór- töflum. Briggs situr nú í fangelsi í Danmörku vegna e-töflusmygls. Guðmundur kynntist Kio Briggs á Ku, diskó- tekum á Benidorm. Hann rak annars hinn víðfræga Saga-Bar á Benidorm sumarið 1997, þá í samvinnu við þekktan viðskiptajöfur í Reykjavík. Barinn var seldur í fyrra. Guð- mundur á að baki skrautlegan feril í skemmtanahaldi, skipulagði og seldi miða fyrir 200 þúsund krónur á dansleik fyrir Menntaskólann í Reykja- 3fþÖsundar- Boðsbréfið. vík sem aldrei var haldinn. Hann stóð einnig fyrir komu popp- stjömunnar Boy George til Islands í fyrra, þá í um- boði nemendafé- lags Menntaskól- ans við Sund. Nemendafélagið greiddi honum nokkur hundruð þúsund krónur í tryggingu en Boy George lét aldrei sjá sig. -hlh Veðurhorfur á gamlársdag 1999 Rigning norðantil? skúrir og él sunnan og vestanlands Allhvöss suðaustanátt og rigning fram eftir degi norðantil, en síðan hægari suðvestanátt og rofar til. Suðvestan 10-15 m/s og skúrir og síðan él sunnan- og vestanlands. Kólnandi veður. Veðrið í dag er á bls. 53. VSK-bílar til afgreiðslu STRAX! Ingvar Heigason Savarköfla 2 Simi 525 8000 hf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.