Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1999, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
Fréttir
sandkorn
Sex nýjar útvarpsstöövar hjá Islenska útvarpsfélaginu:
Stórstyrjöld hafin
á Ijósvakanum
- Fínn miðill býst til varnar
„Með þessum nýju útvarpsstöðvmn
viljum við renna styrkari stoðum und-
ir rekstur íslenska útvarpsfélagsins
sem er frumkvöðuli á íslenskum Ijós-
vakamarkaði," sagði Jón Axel Ólafs-
son, yfirmaður útvarpsmála hjá ís-
lenska útvarpsfélaginu, en félagið
hyggst setja sex nýjar útvarpsstöðvar í
loftið áður en langt um líður. „Við
verðum að veita erlendum gestum sem
hingað eru komnir í útvarpsrekstur
verðuga samkeppni og stöðugt að-
hald,“ sagði Jón Axel og átti þar við
Fínan miðil sem rekið hefur sex út-
varpsstöðvar í miðbæ Reykjavíkur um
skeið en fyrirtækið er að hluta til í
eigu bandaríska íjölmiðlafyrirtækisins
Saga Communication.
Fyrir rekur Islenska útvarpsfélagið
Bylgjuna, Mono og Stjömuna en eftir
áramót bætast við stöðvar sem sér-
hæfa sig i kúrekatón-
list og diskótónlist. Þá
hefjast útsendingar á
Jón Axel
Ólafsson.
nýrri útvarpsstöð Tvíhöfða og sérstök
útvarpsstöð þar sem eingöngu verður
flutt talað mál á einnig eftir að lita
dagsins ljós. „Við tökum eitt skref í
einu en þetta er allt að bresta á,“ sagði
Jón Axel Ólafsson.
í höfuðstöðvum Fíns miðils í Aðal-
stræti búast menn til vamar með nýj-
um liðsmönnum sem bættust i hópinn
þegar útgáfufélagið Vaka-Helgafeil
keypti þriðjungshlut í fyrirtækinu fyr-
ir skemmstu. -EIR
Bóksala síðustu daga fyrir jól:
Slóð fiðrildanna söluhæst
UstiLEAZJ yfir söluhæstu bækur
- síðustu viku -
1. Ólafur Jóhann Ólafsson - Slóð fiðrildanna
2. Johanna Rowling - Harry Potter og viskusteinninn
3. Anna Valdimarsdóttir - Leggðu rækt viö sjálfan þig
4. Páll Valsson - Ævisaga Jónasar Hallgrímssonar
5. Guöjón Friðriksson - Ævisaga Einars Benediktssonar II
6. Andri Snær Magnason - Sagan af bláa hnettinum
7. Óttar Sveinsson - Útkall í Atlantshafi á jólanótt
8. Ýmsir höfundar - 20. öldin
9. Þór Whitehead - Bretarnir koma —
10. Jacobsson & Olsson - Vandamál Berts
Sannkölluð bókajól eru nú að
baki og birtist nú síðasti listi DV
yfir söluhæstu bækumar fyrir jól.
Listinn tekur mið af sölu frá
sunnudeginum 19. desember til og
með 24. desember.
Bækurnar, Slóð fiðrildanna og
Harry Potter og viskusteinninn,
hafa skipst á að vera í efsta sætinu
en bók Ólafs Jóhanns, Slóð fiðrild-
anna, var sú söluhæsta síðustu
daga fyrir jól. Harry Potter skipar
nú annað sætið.
Bók Önnu Valdimarsdóttur sál-
fræðings, Leggðu rækt við sjálfan
þig, er nú í þriðja sæti listans en
salan á henni hefur farið stigvax-
andi þegar nær dró jólum. Ævisög-
ur skipa fjórða og fimmta sætið.
Ævisaga Jónasar Hallgrímssonar
er í fjórða sæti og annað bindi
Ævisögu Einars Benediktssonar er
í fimmta sæti. Sagan af bláa hnett-
inum eftir Andra Snæ Magnason
er í sjötta sæti og er því önnur
mest selda barnabókin í þessum
lista.
Útkall í Atlantshafi á jólanótt er
í sjöunda sæti en vinsældir henni
hefur haldist síðustu vikur. Þá kem-
ur ný bók inn á listann og fer beint
í áttunda sætið, 20. öldin, en Vaka-
Helgafell gefur hana út í þýðingu
Helgu Þórarinsdóttur, Ólafar Pét-
ursdóttur og Jóhannesar H. Karls-
sonar. Níunda sætið skipar bók
Þórs Whitehead, Bretarnir koma, og
Vandamál Berts er í því tíunda.
Hverju er skilað
En þrátt fyrir að jólapakkamir hafi
verið afhentir og búið sé að opna þá
er ekki þar með sagt að komin sé ró
yfir bókabúðimar. Nú flykkjast þiggj-
endur gjafanna í bókabúðimar til að
skila eða skipta bókunum.
En hvaða bókum ætli sé mest skil-
að? „Við erum að sjá bækumar á vin-
sældalistum koma til baka eins og
þær leggja sig. Svona listar hafa mik-
ið að segja um hvaða bók verður fyr-
ir valinu hjá fólkinu," segir Ingþór
Ásgeirsson, verslunarstjóri hjá Penn-
anum, Bókval á Akureyri.
Stutt er síðan bókabúðir vom opn-
aðar eftir jól og því í raun ekki hægt
að segja með vissu hvaða bækur rata
aftur í hillur bókabúðanna. En það
kemur ekki á óvart að mest seldu
bókunum er skilað þar sem margir
hverjir hafa fengið fleiri en eitt eintak
af sumum þeirra. En það má með
sanni segja að í ár hafi verið góð
bókajól og margar góðar bækur verið
gefharút.
Þessi listi er unninn úr sölutölum
eftirtalinna búða: Penninn-Eymunds-
son (2 verslanir), Hagkaup (5 verslan-
ir), Mál og menning (2 verslanir), Bók-
val á Akureyri og KÁ á Selfossi.
-hól
Framsóknarmenn eineltir
... ....
Uu^Ju/j
Halldór Ásgrímsson er að vonum sár
þessa dagana enda hefur hann og allt
hans lið orðið fyrir einelti fiölmiðla.
Ekki hefur framsóknarmaður mátt
hreyfa sig án þess að fiölmiðlar sneru
út úr og finndu út sviksamlegt athæfi
eða allavega siðlaust. Þannig var með
landbúnaðarráðherrann Guðmund
Bjarnason sem af alúð sinnti starfi
sínu. Hann hafði þann kross að bera að
þurfa að selja jarðir fyrir hönd síns
ráðuneytis. Eðlilega gat Guðmundur
ekki útilokað framsóknarmenn sem
kaupendur. Slíkt hefði ekki verið sann-
gjarnt enda starfar flokkurinn undir
ævagömlu slagorði sem sjálfur Stein-
grímur Hermannsson fann upp.
Steingrímur, sem sjálfur var eineltur
vegna grænna bauna, skipaði á sinum
tíma framsóknarmann sem flugmála-
stjóra og auðvitað fóru fiölmiðlamir á
kreik með sína útúrsnúninga. Þá sagði
Steingrímur með sinum hlíða og trega-
fulla rómi: „Menn eiga ekki að gjalda
fyrir að vera framsóknarmenn" og þar
við sat. Það er auðvitað tilviljun að
landbúnaðarráðherra fann sig knúinn til að selja
jörðina Hól gömlum kosningastjóra Framsóknar
sem meira að segja var úr allt öðru kjördæmi.
Það að jörðin fór á slikk hlaðin dýrmætum vatns-
réttindum var eðlilegt og réðist af markaðsveröi
sem allir vita að hoppar upp og niður. Þá var líka
tilviljun að varaþingmaöur Framsóknar fékk jörð
á slikk. Fjölmiðlarnir ærðust yfir báðum þessum
jarðasölum og reyndar fleirum sem er auðvitað
óskiljanlegt. Varaþingmaðurinn var úr allt öðru
kjördæmi en ráðherrann og hann má ekki gjalda
þess að vera framsóknarmaður.
Halldór formaður benti réttilega á það í DV í
gær að fiölmiðlamenn skálduðu gjarnan upp
fréttir í einelti sínu við framsóknar-
menn. Þá benti hann á að Finnur, verð-
andi seðlabankastjóri, og hann séu vin-
ir og hafi gjarnan gengið saman á fiöll.
Þannig hlýtur að teljast skiljanlegt að
formaður og varaformaður komi af fiöll-
um þegar erfið og viðkvæm málefni
flokksins ber á góma. Það voru fiölmiðl-
arnir sem hröktu Finn út úr pólitík
eins og svo marga fleiri góða drengi.
Fjölmiðlarnir voru nærri því búnir að
flæma Halldór sjálfan úr pólitik með
því að fá launsátursmenn til að póst-
leggja dreifimiða um að Halldór væri
kvótaerfingi. Auðvitað getur Halldór
ekkert gert að því þó hann eigi i vænd-
um kvóta og því ósvífið að kalla hann
sægreifa þegar hann er í hæsta lagi
sæprins.
Og enn ólmast fiölmiðlarnir gjörsam-
lega skilningslausir á það að menn eigi
ekki að gjalda fyrir að vera framsóknar-
menn. Hver dáðadrengurinn af öðrum
flýr einelti pólitíkurinnar til að komast
í vinnu sem ekki eltir þá heim. Guð-
mundur Bjarnason er hættur að selja
jarðir og kominn í fasteignirnar og Finnur fer
með ekkasogum i Seðlabankann og er þar með
hættur að selja banka. Sjálfur kapteinn Halldór
sætir enn einelti þar sem hann er fangi eigin
flokks og kemst hvorki lönd né strönd haldandi í
heiðri þá reglu að skipstjórinn fer seinastur frá
borði. Dagfari
Tilkall Kristins
Hrókeringarnar í kring um Fram-
sóknarflokkinn hafa verið á allra vör-
um síðustu daga. Reyndar var alltaf
við því búist að Páll Pétusson risi úr
sæti fyrir Valgerði Sverr-
isdóttur. En nú er eftir
honum haft að hann fari
hvergi. En skyldi svo
fara að Páll viki sæti
fyrir öðrum framsókn-
armanni á næstunni
spyrja menn hver sé
næstur i röðinni. í því
sambandi rifiast upp tilkall Kristins
H. Gunnarssonar, fyrrum allaballa,
tii ráðherrastóls sem hann viðraði fyr-
ir og eftir kosningarnar í vor. Reyndar
vildi Kristinn fá sjávarútvegsráðuneyt-
ið en það er upptekið sem stendur.
Ekki má þó gleyma að Kristinn var
gerður að formanni þingflokksins og
því kann hann að hafa skipt um skoð-
un...
Á raketturnar
Búist er við skítviðri á gamlárskvöld
og útlit fyir að skotglaðir verði að hafa
á sér hemil. Herdís Storgaard, sem
hefur verið mjög dugleg að minna á
hættuna sem er samfara
því að fikta með flugelda
og ítreka varúð, er orðin
ímynd slysavarna. í því
sambandi rifjast upp að
einu sinni var hægt að
kaupa ráðherrarakett-
ur þar sem andstæð-
ingar Ólafs Ragnars,
Steingríms, Jóns Baldvins og annarra
stjórnmálamanna gátu skotið þeim upp
í himingeiminn og sprengt þá. Ritari
viil síður en svo sprengja Herdísi og
styður hana til allra góðra verka. En
svo boðskapur hennar nái „alla leið“
og skotglaðir gæti að sér ætti auðvitað
að setja mynd af henni á hveija ein-
ustu rakettu...
Ólíkt aðhafst
Ærið misjafnt er hvað fyrirtæki gefa
starfsfólki í jólagjöf, ef eitthvað er yfir
höfuð gefið. Forráðamenn Samskipa
þóttu nokkuð rausnarlegir þegar þeir
gáfu starfsmönnum sín-
um hlutabréf í félaginu
að nafnvirði 10 þúsund
krónur. Er ekki annað
vitað en ánægja hafi
verið með þá ráðstöfun
meðal þiggjenda og
meðal gefenda er við
því búist að gjöfin
skili sér margfalt aftur í vinnufram-
lagi og almennri fórnarlund. Sand-
kornsritari hefur það hins vegar eftir
skipverja hjá öðru stóru skipafélagi að
þar hafi menn hlegið dátt að klappstól-
um sem bárust frá félaginu. Nokkrir
stólanna munu þegar hafa brotnað
undan þunga skipverja en þeir sem
eiga heila stóla spá nú í hvort þeir skili
sér ekki í betri vinnuaðstöðu þegar
menja á og mála úti á dekki...
Átti skjól í banka
Hagyrðingar landsins
sitja ekki auðum hönd-
um þegar skemmtilegir
atburðir gerast. Þessar
visur eftir ýmsa höf-
unda ferðast nú um
Netið með leiftur-
hraða:
Ýmislegt hér á sér stað
ofar skilning minum:
nú er Finnur oröinn að
undirmanni sínum.
Hverjum manni er mörkuð braut
misjafnt hlutverk fengum.
Trúlega er torleyst þraut
að taka við af engum.
Næstum kól i köldum stól
karl með ról í þanka.
Eftir jól, við Amarhól
átti skjól í banka.
Það passar bæði pent og flott
að pólitískur flagari
gefist upp og göslist brott
og gerist blýantsnagari.
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is