Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1999, Blaðsíða 6
6
FTMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
Viðskipti
Þetta helst: Mikil viðskipti á VÞÍ, 1.688 m.kr. ... Þar af 412 m.kr. með hlutabréf. ... Úrvalsvísitalan
hækkaði um 1,48% og er nú 1.608 stig. ... Mörg félög hækkuðu mikið. ... KEA hækkaði um 15,8%. ...
Skagstrendingur hækkaði um 10%. Fiskiðjusamlag Húsavíkur lækkaði um 15,5%. ...
Mikil aukning í net-
verslun á íslandi
- sexföldun fyrir jólin miðað við sama tíma í fyrra
íslendingar versluöu sexfalt
meira á Netinu fyrir þessi jól en fyr-
ir jólin í fyrra, ef marka má við-
skipti í netverslunin Hag-
kaup@vísir.is. Þetta kom fram í
Viðskiptablaðinu sem kom út í gær.
Þorvaldur Jacobsen, framkvæmda-
stjóri Vísis.is, segir í samtali viö
Viðskiptablaðið að veltan hafi
hlaupið á tugum mUljóna fyrir
jólin. Að hans mati er það fyrst og
fremst aukin netvæðing sem skýrir
Óinnleystur
gengishagnaður
ORCA-hópsins
1,3 milljarðar
Lokagengi FBA síðastliðinn
miðvikudag var 3,6 og mark-
aðsvirði bankans er samkvæmt
því 23,8 miiljarðar króna en
hann var metinn á 9,5 mUljarða
í útboði fyrir ári, að því er fram
kemur í Viðskiptablaðinu í gær.
Gengishækkun frá upphaflega
útboðinu er þannig 150%. Fram
kemur í Viðskiptablaðinu að
óinnleystur gengishagnaður
þeirra sem stóðu að kaupum á
51% hlut rikisins í nóvember
síðastliðnum á genginu 2,8 nem-
ur rúmlega 2,4 mUljörðum
króna. Óinnleystur gengishagn-
aður þeirra aðUa sem stóðu að
Orca-hópnum, miðað við aö
kaup hópsins hafi farið fram á
meðalgenginu 2,8, nemur rúm-
lega 1,3 mUljörðum króna, miðað
við sömu forsendur, að því er
fram kemur í Viðskiptablaðinu
sem kom út í gær.
þrátt fyrir að mikið sé um
góðar hugmyndir. Net-
verslunin hefði getað orðið
miklu meiri í ár hefði
framboð á vöruflokkum
verið fjölbreyttara en það
var,“ segir Þorvaldur í
samtali við Viðskipta-
mUli ára er það min skoðun blaðið.
að þessi jól hafi verið porvaldur Hann segir stóran þátt í
ákveðin vonbrigði. Því jacobsen velgengni
miður eru mjög fáar ' Hagkaups@vísis.is vera
verslanir á Netinu hérlendis og samstarfið við Vísi en það tryggir
margar þeirra eru Ula útfærðar mikla umferð enda Vísir.is
aukninguna auk þess sem
almenningur er smám
saman að uppgötva þennan
einfalda verslunarmáta.
Þorvaldur telur þó að
verslunin hefði getaö orðið
enn meiri. „Þrátt fyrir þessa
miklu aukningu í netverslun
fjölfórnustu gatnamótin á íslenska
Netinu.
Þorvaldur bætti við að greinUega
mætti sjá að verslun á Netinu ykist
hlutfaUslega hraðar en aukning
notkunar Netsins. Aðspurður
sagðist hann reikna með aö
veldisvöxturinn yrði síst minni
mUli komandi ára. „Ég held að á
árinu sem brátt mun byrja muni
verslunin verða jafnari og þéttari og
á seinni hluta þess verði netverslun
orðin stór hluti heUdarverslunar í
landinu," segir Þorvaldur aö lokum.
Eimskip stofnar hlutafélag
um reksturinn í Kanada
- ný skrifstofa opnuð í Shelburne á Nova Scotia
Eimskip mun stofiia hlutafélag um
rekstur sinn í Kanada þann 1. janúar
nk. Hið nýja felag mun taka yfir aila
þjónustu og rekstur skrifstofúnnar í
St. John’s á Nýfúndnalandi auk þess
sem opnuð verður eigin skrifstofa f
Shelbume á suðurhluta Nova Scotia.
Markmiðið er að bjóða viðskiptavin-
um á svæðinu, sérstaklega fyrirtækj-
um í sjávarútvegi og tengdum grein-
um, fjölbreytta og örugga flutninga-
þjónustu, þar sem reglulegar og beinar
siglingar til Evrópu og Bandaríkjanna
eru mikilvægur þáttur.
Á næsta ári eru 10 ár síðan Eimskip
setti á fót skrifstofú á Nýfundnalandi
en félagið hóf reglulegar siglingar til
Argentia á Nýfúndnalandi 1989 og til
Shelbume Nova Scotia árið 1996. Skip
Eimskips hafa viðkomu í þessum höfii-
um bæði á vesturleið og austurleið, en
siglt er á hálfsmánaðar fresti frá
Reykjavík vestur um haf. Eimskip er
eina fyrirtækið sem býður beinar sigl-
ingar frá Evrópu og Bandaríkjunum til
og frá Nýfundnalandi og Nova Scotia.
Félagið hefúr meira en 110 viðkomur í
Kanada á ári, i Argentia og Shelbume.
Ólafúr Öm Ólafsson mun veita
starfseminni í Kanada forstöðu með
aðsetur i St. John’s á Nýfúndnalandi.
Dean Hansen verður ábyrgur fyrir
rekstrinum í Shelbume. Á vegum
Eimskips starfa 12 starfsmenn í
Kanada. Auk skrifstofa Eimskips í
Kanada era umboðsmenn á þremur
stöðum, F.K. Warren í Halifax og
McLean Kennedy í Montreal og
Toronto.
Endurtekur
sagan sig?
- dæmi um miklar hækkanir fyrir áramót
Innlausnarverð vaxtamiða
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Hinn 10. janúar 2000 er 28. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.B 1986.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 28 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 5.617,30
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. júlí 1999 til 10. janúar 2000 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna.
Athygli skal vakin á þvi að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 10. janúar 2000.
Reykjavík, 30. desember 1999
SEÐLABANKIÍSLANDS
Senn líður að áramótum og af því
tilefni er vert að rifja upp að loka-
verð ársins er mikilvæg stærð í
uppgjöri fyrirtækja og hlutabréfa-
sjóða. Viðskiptavefurinn á Vísi.is
greindi frá. Samkvæmt lögum um
lífeyrissjóði er þeim skylt að gera
upp árið á grundvelli markaðsvirð-
is hlutabréfa. Þegar litlu þarf að
kosta til að hækka verð hlutabréfa
sem hafa mikO áhrif á árangur árs-
ins er varla að undra að grunsemd-
ir vakni um að slíkt gerist.
Eignarhald á litlum félögum sem
lítil viðskipti eru með er oft sam-
þjappað hjá stofnanafiárfestum.
Þessum stofnanafiárfestum er í
mun að sýna árangur í ársuppgjör-
um sínum. Þannig má rifia upp þær
verðbreytingar sem urðu á einstök-
um félögum síðustu viku ársins
1998 en þar virtust Vinnslustöðin,
ÍS, Fiskiðjusamlag Húsavíkur,
Plastprent og KEA helst úr takti við
það sem hafði verið að gerast á
markaðnum og úr takti við þau við-
skipti sem á eftir komu. Það þarf þó
alls ekki að þýða að nokkur aðili
hafi verið að „krukka í gengið” en
það vekur vissulega spumingar um
hversu raunverulegt verðið var.
Þannig hækkaði gengi KEA um 30%
i síðustu viku síðasta árs, Plast-
prent um 23%, Fiskiðjusamlagið um
18%, ÍS um 17,5% og Vinnslustöðin
um 15%.
Verðhækkun íslenskra sjávarfurða
á gamlársdag var vísað til Fjármála-
eftirlitsins sem síðar taldi ekki tilefni
til að aðhafast frekar í málinu.
Viö þurfum nýja þjóöarsátt
Sveinn
Hannesson,
framkvæmda-
sfióri Sam-
taka iðnaðar-
ins, segir í
leiðara ís-
lensks iðnað-
ar að nú sé
þörf á nýjum
þjóðarsáttar-
samningum.
Hann segir að núverandi forysta
ASÍ sé veik og hafi lítið sem ekkert
umboð til að semja. Stjómvöld em
einnig gagnrýnd fyrir ónógt aðhald
í efhahagsmálum.
Gengi í DeCode hækkar
Gengi bréfa í DeCode, móðurfyr-
irtæki íslenskrar erfðagreiningar,
hefur hækkað umtalsvert að und-
anfomu. Bréfin hafa þannig hækk-
að að jafnaði um dollara á dag und-
anfarinn hálfan mánuð. Gengi
bréfanna var komið í tæpa 37 doll-
ara rétt fyrir hádegið í dag en var
33 dollarar rétt fyrir jólin. Þannig
liggur nærri að markaðsvirði fyr-
irtækisins sé nálægt 75 milljörðum
íslenskra króna.
Næststærstir í Eimskip
Kaupþing hf. hefur síðustu miss-
erin markvisst aukið eignarhlut
sinn í Eimskip hf. í síðustu viku
tilkynnti Kaupþing að eignarhlut-
ur þess væri orðinn 5,55% en var
3,84% fyrir. í október síðastliðnum
átti Kaupþing hins vegar 3,12%
hlut en um það leyti greindi Við-
skiptavefur Viðskiptablaðsins frá
því að eignarhlutur Kaupþings
nálgaðist brátt 5%. Markaðsvirði
Eimskips er nú um 40 milljarðar
króna og er verðmæti eignarhlutar
Kaupþings nú um 2,2 milljarðar
króna. Kaupþing er nú næststærsti
einstaki hluthafi Eimskips en að-
eins Sjóvá-Almennar hf. eiga
stærri hlut í félaginu. Þetta kom
fram í Viðskiptablaðinu í gær.
Starfsemi EJS gæöavottuö
Árið 1993 var mörkuð sú stefna
hjá EJS hf. að öll starfsemi fyrir-
tækisins yrði gæðavottuð sam-
kvæmt ISO 9001, alþjóðlegum
staðli, fýrir árslok 1999. Ákveðið
var að leggja áherslu á að fá vottun
á hugbúnaðarsviöið til að byija
með og náðist sá áfangi í septem-
ber árið 1996. Tveimur árum síðar,
í nóvember 1998, var öll þjónustu-
starfsemin vottuð og nú, árið 1999,
fékk sölu- og fiármálastarfsemin
vottun á starfsemi sina svo öll
starfsemi EJS er nú gæðavottuð
samkvæmt staðlinum ISO 9001.
Viðskiptablaðiö greindi frá.
Pharmaco fær umboð
Ákveðið hefur verið að
Pharmaco hf. taki við umboði fyrir
Aventis Pharma, nýtt fyrirtæki
sem varð til við samruna Rhone-
Poulenc Rorer og Hoecst Marion
Roussel. Hið nýja fyrirtæki verður
meðal fiögurra stærstu lyfiafyrir-
tækja heims. Pharmaco var fýrir
samrunann með umboð fyrir vörur
Rhone-Poulenc Rorer.
Bundesbank telur enga
þörf á vaxtahækkun
Emst Welteke, bankastjóri
þýska seðlabankans, segist enga
þörf sjá fyrir hækkun stýrivaxta
Seðlabanka Evrópu. Welteke á sæti
í bankaráði Seðlabanka Evrópu,
þar sem endanleg ákvörðun um
stýrivexti er tekin. Welteke telur
m.a. að lækkun rafmagnsverðs og
verðs i fiarskiptaþjónustu í kjölfar
aukinnar samkeppni muni halda
aftur af verðbólguþrýstingi á evm-
svæðinu.