Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1999, Side 9
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
9
Utlönd
Rússar sækja af hörku fram í Grozní:
Uppreisnarmenn
láta undan síga
Uppreisnarmenn múslíma í
Tsjetsjeníu viðurkenndu í gær að
þeir hefðu þurft að láta undan síga
gegn stórsókn rússneskra her-
manna inn i héraðshöfuðborgina
Grozni og í fjallahéruðunum í suðri.
Ítar-Tass fréttastofan vitnaði
seint í gærkvöld í yfirlýsingu frá
Mozdok herstöðinni rússnesku að
sótt væri inn í Grozní úr mörgum
áttum og hefði gengiö vel að hrekja
uppreisnarmennina burt. Fram
kom að Rússar hefðu fellt sextíu
uppreisnarmenn í gær en að aðeins
tveir rússneskir hermenn hefðu
týnt lífi. Deilendur hafa ýkt mjög
mannfallið í liði óvinarins.
Movladí Údúgov, talsmaður upp-
reisnarmannanna, sagði frétta-
manni Reuters i gær að uppreisnar-
menn hefðu hörfað frá tveimur mik-
ilvægum hæðum í Grozní, þar á
meðal hæð í námunda við sjón-
varpstum. Harðir bardagar hafa
geisað þar undanfamar vikur.
Talsmaðurinn sagði að mannfall í
liði Rússa væri mikið og að upp-
reisnarmenn hefðu komið sér
tryggilega fyrir á hæðum lengra i
burtu.
Nokkrir erlendir fréttamenn voru
handteknir í Tsjetsjeníu i gær en
látnir lausir níu klukkustundum
síðar, að því er segir í bandaríska
blaðinu Washington Post. Fréttarit-
ari blaðsins var í hópi fréttamann-
anna.
Flóttakona á leiö heim til Tsjetsjeníu, meö ungt barn í fanginu, horfir út um
bílglugga viö Adler varöstööina í Ingúsjetíu. Rússneskir ráöamenn hafa sagt
síðustu daga að ekki sé langt í að uppreisnarmenn veröi sigraðir.
7/////////////////////J
staðgreiöslu- og greiðslu- dit
kortaaftlóttur og stighœkkandi Smáauglýsngar
A birtingargfsláttur fm 5ÍSSSE
Klettagarðar
ný brenna
Laugarásvegur
Vatnsmýri
Hagkaupsbrenna
Gelrssnef
Suðurhlíðar
Eúnsholt
:ylkisbrenna
Suðurfell
brennur
áramótum
Söfnun
í áramótabrennur
er nú aö mestu lokið.
Stærö bálkasta er takmörk-
unum háö og veröur hætt aö
taka á móti efni í þá þegar
leyfilegri hámarksstærð er náö.
Kveikt veröur í brennum kl. 20:30
nema viö Selásblett 11 verður kveikt
í brennu kl. 18:00.
Skerjafjörður
„Viö brennu og í næsta nágrenni viö hana \ |
er öll meöferö flugelda og annarra skotelda
sem hætta stafar af vegna ferils þeirra eftír
tendrun bannaöir. Þar er aöeins leyfilegt aö
nota stjörnuljós og blys, þó ekki skotblys.“ u
skv. drögum aö reglugerö um framleiöslu og
meöferð skotelda, dags. 06.12.1999,7. gr.
Víöa viö brennur verða uppákomur af ýmsu tagi,
s.s. söngur, tónlist og margt fleira. Alls staöar
veröur glatt á hjalla enda fer senn í hönd
nýtt árþúsund.
Ábending vegna þrettándabrenna
Nauðsynlegt er að fá leyfi Lögreglustjórans
í Reykjavík fyrir þrettándabrennum.
ilr
Gufunes
Fossaleynir
ný brenna
Leirubakki
Stór brenna Lítil brenna
Iþrótta- og tómstundaráö Reykjavíkur
Lögreglan í Reykjavík - Slökkvilið Reykjavíkur
Borgarverkfræöingurinn í Reykjavík