Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1999, Page 15
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
43
Fréttir
Seldu rækju og harðfisk I nafni Hjálparstarfs kirkjunnar:
Fisksalar undir fölsku flaggi
- þóttust vera að selja fyrir veik börn í útlöndum
DV, Suðurlandi:
„Það bankaði maður upp á hjá
okkur í fyrrakvöld og spurði hvort
ég vildi ekki kaupa rækju af sér. Ég
sagðist ekki borða rækju en þá
spurði hann „En harðfisk? Ég er
með alveg úrvalsgóöan harðfisk,
steinbíturinn er til dæmis ekki full-
harðnaður.“
Hann sagðist selja vöruna á veg-
um Hjálparstarfs kirkjunnar og
vera safna fyrir veik böm í útlönd-
um. Reyndar sagöi hann fyrst Hjálp-
arstofnun kirkjunnar. Það vakti
grunsemdir hjá mér svo ég hringdi
í GSM-númer hjá Biskupsstofu og
lét þá vita af þessu. Þar könnuðust
menn ekkert við að nokkur væri að
selja á þeirra vegum,“ sagði árvökul
húsmóðir í Biskupstungum, sem lét
vita af óprúttnum sölumönnum þar
í sveit, við ÐV.
Konunni fannst sölumennirnir
vera frekar tortryggilegir og ólík-
legt að ferðir þeirra væru þess er-
indis sem þeir sögðu þær vera. „Það
er algengt að bankað sé upp á hjá
okkur til að selja eitthvað en þá eru
sölumennimir yfirleitt með eitt-
hvað sem sannar erindi þeirra.
Þessir vom öðruvísi en venjulegir
sölumenn. Það var eins og erindið
stæði í þeim. Þeir voru tveir í bíln-
um, rauðum Toyota-jeppa, sem var
ábyggilega bremsulaus eftir akst-
urslaginu að dæma. Þegar þeir fóru
héðan sá ég að þeir héldu að næsta
bæ þar sem eldri maður býr. Ég
hringdi strax í hann og sagði hon-
um grun minn. Þeir komu hingað
ofan úr sveit, ég hef ekki heyrt
hvort þeir hafa verið að selja þar en
það er ekki ólíklegt," sagði húsmóð-
irin.
„Við bmgðumst skjótt við eftir að
fengum upphringingu um menn
sem voru við sölumennsku og kváð-
Útskrifaöir nemendur frá FVA ásamt Þóri Ólafssyni skólastjóra og Herði Ó. Helgasyni aðstoöarskólastjóra.
DV-mynd Daníel
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi:
Brautskráir 41 nemenda
DV, Akranesi:
Laugardaginn 18. desember fór
fram brautskráning nemenda í FVA
á haustönn 1999. Brautskráður var
41 nemandi: 34 stúdentar, 3 nemend-
ur i rafvirkjun, 2 nemendur í vél-
smiði, 1 nemandi af uppeldisbraut
og 1 nemandi í rafsuðu.
Margir nemendanna náðu af-
bragsgóðum námsárangri og hlutu
ýmsar viðurkenningar fyrir. Viður-
kenningu fyrir bestan árangur á
stúdentsprófi hlaut Gauti Jóhannes-
son en námsárangur hans var sér-
lega glæsilegur. Gauti hlaut einnig
viðurkenningu fyrir ágætan náms-
árangur í raungreinum, íslensku,
sögu og stærðfræði. Veitt voru verð-
laun úr minningarsjóði Þorvalds
Þorvaldssonar, fyrrum kennara
skólans. Verðlaunin hlaut Unnar
Bachmann fyrir framúrskarandi ár-
angur í stærðfræði og eðlisfræði.
Hann hlaut einnig viðurkenningu
fyrir ágætan námsárangur í nátt-
úrufræði, sögu, tölvufræði og
þýsku. Anna Berglind Halldórsdótt-
ir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan
árangur í stærðfræði, þýsku og í
viðskiptagreinum. Ingibjörg Gests-
dóttir hlaut viðurkenningu fyrir
góðan árangur í dönsku. Sigrún
Halla Gísladóttir hlaut viðurkenn-
ingu fyrir góðan árangur í eðlis-
fræði, efnafræði, líffræði, stærð-
fræði, þýsku og viðskiptagreinum.
Valþór Ásgrímsson hlaut viður-
kenningu fyrir ágætan árangur í
ensku, frönsku, raungreinum og
stærðíræði. Þóra Björg Jónsdóttir
hlaut viðurkenningu fyrir ágætan
námsárangur i íslensku, dönsku,
ensku og þýsku. Loks hlaut Þór-
bergur Guðjónsson viðurkenningu
fyrir ágætan árangur í dönsku,
stærðfræði og viðskiptagreinum.
Verslunarmannafélag Akraness gaf
verðlaunin fyrir námsárangur í við-
skiptagreinum. -DVÓ
SigluQörður:
Ný gjafavöruverslun
„Ég fékk hugmyndina að setja upp
gjafavöruverslun seint í sumar. Þá
var þetta húsnæði að losna og mér
fannst það passa ágætlega án telj-
andi breytinga fyrir litla verslun og
lét verða af þessu. Ég opnaði í lok
október og get ekki annað en verið
mjög ánægð með viðtökur bæjar-
búa,“ sagði Kolbrún Gunnarsdóttir.
eigandi gjafavöruverslunarinnar
Moniku á Siglufirði. Verslunin er
við aðalgötuna í bænum og er með
mikið úrval af gjafavöru sem er sér-
lega smekklega fyrir komið í litlu en
vinalegu húsnæði. Gjöfum er pakk-
að inn eftir óskum viðskiptavina.
Einnig eru þarna á boðstólum ýms-
ar tegundir af te og kaffi. -ÖÞ
Kolbrún Gunnarsdóttir, eigandi Moniku, fékk hugmyndina í sumar og hikaöi
ekki.
ust vera frá Hjálparstarfi kirkjunn-
ar. Við sendum út tilkynningu um
að það væri enginn á okkar vegum
að selja á þessu svæði,“ sagði Jónas
Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri
Hjálparstarfs kirkjunnar, við DV
vegna þessa máls. Jónas sagði að
því miður væri oft verið að nota vel-
vild fólks til Hjálparstarfs kirkjunn-
ar í óheiðarlegum tilgangi.
„Við ráðleggjum fólki að fara var-
lega þegar bankað er upp á hjá því
og menn segjast vera frá einhverj-
um góðgerðarsamtökum að selja
einhverja hluti. Það á að spyija þá
að nafni eða fá að sjá einhverja
pappíra upp á erindið. Ábyrgar
stofnanir fara heldur ekki út í
svona sölu án þess að kynna það vel
fyrst. Ef einhverjir eru að selja í
okkar nafni þá eru þeir vel merktir,
með merkta vöru og hafa skilríki
upp á að þeir séu að selja fyrir okk-
ur,“ sagði Jónas Þórir. Hann sagði
að þetta væri í fyrsta skipti sem
hann heyrði af sviksemi sem þess-
ari rétt fyrir jól. -NH
Gefum
okkur öllum betri framtíd
Ert þú aflögufær?
fyiit þiit htutskipti
vr'
'IT
IL
/
'Mi