Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1999, Qupperneq 22
50
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
Afmæli
Tryggvi Bjöm Stefánsson
Tryggvi Björn Stefánsson læknir,
Brekkutúni 4, Kópavogi, er flmm-
tugur í dag.
Starfsferill
Tryggvi fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í Vogahverfinu. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1969,
embættisprófi í læknisfræði frá HÍ
1980, stundaði nám í almennum
skurðlækningum í Vásterás í Sví-
þjóð 1984-89 og framhaldsnám í
skurðlækningum og skurðlækning-
um ristils og endaþarms í Uppsölum
- í Svíþjóö frá 1990 og lauk doktors-
prófi þaðan 1994.
Tryggvi var aðstoðarlæknir á
Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri 1980-81 og
1983-84, heilsugæslulækn-
ir á Siglufirði 1981-82,
hefur starfað á skurð-
lækningadeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur frá 1994
og auk þess á St. Jósefs-
spítala í Hafnarfirði frá
1995.
Tryggvi hefur átt sæti í
samninganefnd sjúkra-
hússlækna frá 1996.
Fjölskylda
Tryggvi kvæntist 29.11. 1974
Sigursveinsdóttur, f. 11.1.
Tryggvi Björn
Stefánsson.
Unni
1949,
sjúkraliða. Hún er dóttir
Sigursveins Friðriksson-
ar, bifreiðastjóra á Akur-
eyri, og Sveinbjargar
Rósantsdóttur húsmóð-
ur.
Böm Tryggva og Unnar
eru Lilja Tryggvadóttir,
f. 23.10.1978, nemi í verk-
fræði við HÍ; Friðrik Þór
Tryggvason, f. 13.12.1984,
nemi; Valgerður
Tryggvadóttir, f. 3.5.1988,
nemi.
Systkini Tryggva eru
Stefánsson, f. 25.7. 1941,
eðlisverkfræðingur og kennari við
Þórarinn
háskólann í Þrándheimi í Noregi;
Guðrún Stefánsdóttir, f. 9.6. 1947,
ráðgjafi við áfengismeðferðarstofn-
anir í Svíþjóð; Valgerður Stefáns-
dóttir, f. 8.9. 1953, forstöðumaður
Heymar- og talmeinastöðva; Ástríð-
ur Stefánsdóttir, f. 10.2.1961, læknir
og siðfræðingur, dósent við KHÍ.
Foreldrar Tryggva: Stefán Guðna-
son, f. 5.8. 1911, d. 3.4. 1988, forstjóri,
og Anna Þórarinsdóttir, f. 23.7.1918,
sjúkraþjálfari.
Tryggvi tekur á móti vinum og
ættingjum að heimili sínu að
Brekkutúni 4, Kópvogi, á afmælis-
daginn milli kl. 18.00 og 21.00.
Hafsteinn Þórðarson
Hafsteinn Þórðarson, framleiðslu-
stjóri og sölumaður hjá Glerborg
ehf., Fjóluhvammi 13, Hafnarfirði,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Hafsteinn fæddist í Reykjavík og
2 ólst þar upp í Vesturbænum við
Bræðraborgarstíginn. Hann gekk
fyrstu bamaskólaárin í Bamaskóla
Vesturbæjar sem var í gamla Stýri-
mannaskólanum við Öldugötu, var í
Melaskólanum frá tíu ára aldri, í
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, fyrst
í JL-húsinu við Hringbraut og síðan
við Vonarstræti, en þar lauk Haf-
steinn gagnfræðaprófi 1966.
Hafsteinn hóf störf hjá Cudogleri
haustið 1966, starfaði hjá Glerverk-
smiðjunni íspan á upphafsárum
hennar 1969-72, var þá einn af stofn-
, endum Glerborgar í Hafnarfirði þar
sem hann starfar enn í dag sem
sölumaður og framleiðslustjóri. Þá
stofnaði Hafsteinn fyrirtækið Gler
og spegla efh. 1991 sem vinnur i
nánu samstarfi við Glerborg.
Hafsteinn bjó í Hlíðunum um
skeið en flutti til Hafnarfjarðar 1975
þar sem hann bjó fyrst í Laufvangi
en flutti síðan í Fjóluhvamm þar
sem hann býr enn.
Hafsteinn hefur gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum. Hann var félags-
maður í Junior Chamber-hreyfing-
unni í þrettán ár, landsforseti henn-
ar 1987-88, var formaður Fimleika-
félagsins Bjarkar í Hafnarfirði
1994-96 og hefur átt sæti í stjóm
Fimleikasambands íslands frá 1994
og verið gjaldkeri þess frá 1996. Þá
hefur hann setið í stjórn íþrótta-
bandalags Hafnarfjarðar í rúm fjög-
ur ár.
Fjölskylda
Eiginkona Hafsteins er
Anna Björk Daníelsdótt-
ir, f. 1.5. 1955, sjúkraliði
við Landspitalann. Hún
er dóttir Daníels Kr. Dan-
íelssonar, fyrrv. sjúkra-
liða við Kópavogshælið,
og Margrétar Þorsteins-
dóttur sem starfaði við
Borgarspítalann.
Böm Hafsteins og
Önnu eru Pálína Margrét,
f. 28.1.1976, hagfræðingur
í framhaldsnámi I Þýska-
landi; Ása Marin, f. 26.6. 1977, nemi
við KHÍ; Daníel Þór, f. 14.12. 1984,
nemi í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði.
Systur Hafsteins eru Bára Þórðar-
dóttir, f. 21.9.1948, gift Herði Sveins-
syni; Laufey Þórðardóttir, f. 13.5.
1963, gift Víði Ámasyni.
Foreldrar Hafsteins:
Þórður Kristjánsson, f.
13.1. 1924, d. 30.6. 1990,
forsetabílstjóri, leigubíl-
stjóri og síðan verslunar-
maður í Reykjavík, og
k.h., Pálína Margrét Haf-
steinsdóttir, f. 1.1. 1930,
fyrrv. ræstitæknir hjá
Pósti og síma, nú búsett í
Kópavogi.
Ætt
Þórður var sonur Krist-
jáns Pálssonar og Dan-
fríðar Brynjólfsdóttur en þau
bjuggu lengi að Hólslandi í Eyja-
hreppi á Snæfellsnesi.
Pálina er dóttir Hafsteins Sigur-
bjamasonar og'Laufeyjar Jónsdótt-
ur sem bjuggu að Reykholti á
Skagaströnd.
Hafsteinn
Þóröarson.
Sigurður
Sigurður Marísson,
Aðaltúni 18 í Mosfellsbæ
verður fertugur á
gamlársdag.
Starfsferill
Sigurður er fæddur í
Reykjavík en fluttist með
fjölskyldu sinni til
Keflavíkur eins árs og
ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskóla Suðumesja í
desember 1978 og út-
skrifaðist sem
vélfræðingur frá Vélskóla íslands
vorið 1984. Hann lauk sveinsprófi í
vélsmíði voriö 1986. Loks lauk hann
prófi í hugbúnaðar-tæknifræði frá
Hogskolen i Agder, Grimstad í
Noregi, vorið 1997.
Hann vann við fiskvinnslustörf á
sumrin frá íjórtán ára aldri og síðan
Sigurður Marísson.
tvær vertíðar i
hraðfrystihúsi KASK á
Höfn í Hornafirði. Hann
vann sem vélstjóri á
fiskiskipum á sumrin
meðan á námi stóð í
Vélskólanum, var jafn-
framt vélstjóri í einn
mánuð á
flutningaskipinu
Hvalvík, vann í
Vélsmiðju Njarðvíkur fi:á
1984 til 1990 með
nokkrum hléum, fyrst
sem nemi en síðan sem
vélsmiðasveinn.
Hann starfaði við veðurathuganir
á Hveravöllum á Kili veturinn
1986-1987 ásamt Kristínu konu
sinni.
Hann var öryggisvörður hjá
Fhigmálastjóm í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli
Marísson
frá 1990-1994 og starfar nú sem
forritari í tölvudeild Búnaöarbanka
íslands síðan vorið 1997.
Hann var trúnaðarmaður
öryggisvarða í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar hjá SFR 1991-1994.
Hann var ritari stjómar Félags
íslendinga í Suður-Noregi 1995-1997.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 1.6. 1985
Kristínu Auði Jónsdóttur ritara.
Foreldrar hennar eru Jón
Sigurbergur Kortsson og Guðleif
Selma Egilsdóttir. Böm þeirra eru:
Ólafur, fæddur 30. nóvember 1987,
og Petrún, fædd 17. maí 1989.
Systkini Sigurðar em: Ingibjörg
Guðný, fædd 30. apríl 1963,
verkakona, búsett í Keflavik;
Margrét, fædd 6. apríl 1969,
verkakona. búsett í Gerðahreppi;
Viðar Þór, fæddur 16. júlí 1976,
flugnemi, búsettur í Keflavik.
Foreldrar Sigurðar: Málfríður
Sigurðardóttir, f. 16. ágúst 1941,
ræstitæknir, og m.h., Marís
Hvannberg Gíslason, f. 16. des. 1935,
verkamaður, bús. í Keflavík.
Ætt
Foreldrar Málfríðar: Guðný
Runólfsdóttir, f. 3. okt. 1913, d. 2.
jan. 1980, húsfreyja í Garðabæ, og
Sigurður Þórðarson, f. 19. ágúst
1912, d. 21. des. 1978, endurskoöandi
í Reykjavík.
Foreldrar Marísar: Petrún Anna
Dóróthea Jónsdóttir, f. 30. ágúst
1909, fyrrum þema til sjós, bús. í
Hafnarfirði, og Gísli Björgvin
Magnússon, f. 30. maí 1905, d. 27.
jan. 1977, bifreiðarstjóri í Keflavík.
Sigurður tekur á móti gestum á
heimili sínu eftir klukkan 14.00 á
gamlársdag.
Afmæli
Margrét Frímannsdóttir:
Kosningarnar rísa hæst í minningunni
„Á kosningaári er það jafn-
an þannig að kosningar og allt
sem þeim tilheyrir rís hæst
þegar maður lítur til baka yfir
árið og svo er einnig nú. Nú
var kosningabaráttan öðruvísi
en oft áður að því leyti að það
var lítið um pólitískar rökræð-
ur og i mínu kjördæmi á Suð-
urlandi voru t.d. ekki sameig-
inlegir kosningafundir," segir
Margrét Frímannsdóttir, tals-
maður Samfylkingarinnar.
Margrét segir kosningaúr-
slitin á Suðurlandi hafa verið
mjög góð fyrir Samfylkinguna
en úrslitin í öðrum kjördæm-
um hafi ekki komið sér á óvart. En hvemig
sér hún pólitíska landslagið á nýju ári?
„Það verður mjög viðburðaríkt,
við erum að undirbúa flokks-
stofnun og að kjósa okkur for-
ystu. Þar með fáum við fastan
sess sem við höfum ekki haft til
þessa. Ef ég gef mér það að rik-
isstjómin haldi saman, sem ég
er þó ekki viss um vegna þess
að þar er ekki sami samhljóm-
ur og áður, þá á ég ekki von á
miklum breytingum úr þeim
herbúðum.
Hvað varðar mig persónulega
þá ber hæst á árinu sem er að
ljúka að við eignuðumst okkar
annað bamabam, Matthias
Mána, og bamsfæðing er alltaf
sama kraftaverkið," segir Margrét. -gk
Steingrímur J. Sigfússon:
Árið sem
ævintýri
„Það er af mörgu að taka en fyrst og
fremst hefur árið verið viöburðaríkt
og ævintýralegt. Öll saga Vinstri
hreyfingarinnar - græns framboðs
rúmast innan ársins, alveg frá því við stofnuðum fyrsta
kjördæmafélagið á Norðurlandi eystra i upphafi ársins,"
segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG.
„Það má segja að þetta hafi verið ævintýri líkast og
það er ánægjulegt að sjá árangur erfiðis síns. í pólitík-
inni eru hins vegar um þessar mundir veðrabrigði, staða
ríkisstjórnarinnar er að breytast og nýtt pólitískt lands-
lag aö festast í sessi. Ég held að umhverfis- og virkjunar-
mál eigi eftir að vera áfram áberandi á næstu misserum,
einnig byggðamál og ýmis velferðarmál, m.a. i tengslum
við kjarasamningsagerð.
Hvað mig sjálfan varðar hefur árið verið gott og gjöf-
ult. Ég er með bam á fyrsta ári í uppvexti og svo enduð-
um við á því að flytja okkur í nýtt húsnæði," segir Stein-
grímur. -gk
x>v
Tll hamiiigju
með afmælið
30. desember
85 ára
Davíð Guðmundsson,
Hæðargarði 33, Reykjavík.
80 ára
Þormóður Haukur
Jónsson, fyrrv. bif-
reiðarstjóri, Ugluhól-
um 12, Reykjavík,
verður áttræð-
ur á morgun. Hann
tekur á móti
gestum á heimili dóttur sinnar,
Noröurvangi 24, Hafnarfirði, á
gamlársdag kl. 14.00-17.00.
Magnús Guðmimdsson,
Heiðargerði 55, Reykjavík.
75 ara
Dagmar Árnadóttir,
Skiphóli, Garði.
70 ára
Hjalti Kristjánsson,
Hjaltastöðum, Húsavík.
Hörður Jóhannesson,
Hjarðarholti 3, Akranesi.
60 ára_______________________
Kristján Ólafsson,
Bjarkarbraut 11, Dalvík.
Eiginkona hans er Valgerður
Guðmundsdóttir. Þau taka á
móti gestum í safnaðarheimili
Dalvíkurkirkju á afmælisdaginn
frá kl. 19.00.
Svava Björg Karlsdóttir,
Mararbraut 21, Húsavik.
50 ára
Karitas
Erlingsdóttir
húsmóðir,
Háabarði 15, Hafnar-
firði. Maður hennar
er Bergþór Bergþórs-
son,
starfsm. hjá ísal. Tekið verður á
móti ættingjum og vinum í
Kiwanishúsinu í Hafnarfirði,
Helluhrauni 22, kl. 20.00-23.00.
Kristjana
Kristjánsdóttir,
fulltrúi framkvæmda-
stjóra Geðhjálpar,
Hlíðarhjalla 52, Kópa-
vogi. Maður hennar
er Pétur A. Maack. Þau taka á
móti ættingjum og vinum í Húsi
verslunarinnar, 14. hæð, í kvöld
frá kl. 19.00.
Anna Kristín Kristinsdóttir,
Byggðarenda 9, Reykjavik.
Björn Valdimar Gunnarsson,
Framnesvegi 24, Reykjavík.
Elísabet María Pétursdóttir,
Hlíðarvegi 15, Bolungarvík..
Gísli Öm Ólafsson,
Reykjavíkurvegi 22, Hafnarfirði.
Hafsteinn Þórðarson,
Fjóluhvammi 13, Hafnarfirði.
Jóhannes Ragnarsson,
Holtaseli 32, Reykjavík.
Nanna Bjömsdóttir,
Glæsivöllum 19a, Grindavík.
Sigríður Jónsdóttir,
Blómvangi 3, Hafnarfirði.
Tryggvi Bjöm Stefánsson,
Brekkutúni 4, Kópavogi.
40 ára
Alda G. Jóhannesdóttir,
Rekagranda 2, Reykjavík.
Dagbjartur Harðarson,
Grundargötu 70, Grundarfirði.
Dagbjört Guðmundsdóttir,
Skeiðarvogi 87, Reykjavík.
Guðrún Lilja Ingólfsdóttir,
Hlíðarhjalla 73, Kópavogi.
Hallur Ægir Sigurðsson,
Stekkum 13, Patreksfirði.
Hannes Clemens Pétin-sson,
Laugamesvegi 90, Reykjavík.
Hjörleifur Þórarinsson,
Heiðvangi 72, Hafnarfirði.
Ólafur ÞorkeU Helgason,
Draumahæð 10, Garðabæ.