Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Síða 13
Tólf íslenskir myndlistarmenn halda í dag
utan til Frakklands þar sem þeir munu auka
hróður sinn í frönskum myndlistarkreðsum:
strandhögg
Féllust í faðma
listarmenn í víking suður til Mið-
jarðarhafsins. Þeir búa allir á ís-
landi nema Inga Svala Jónsdóttir
sem býr í Berlín og fer þaðan.
Hrafnkell Sigurðsson var að vísu
á einhverjum flækingi síðast þeg-
ar fréttist og hvar Hallgrímur
Helgason er staddur í tilverunni
er ekki alveg á hreinu - þó við
höfum séð hann sniglast hér á rit-
stjórninni í líki Grim. En úr al-
vörunni í listina.
Myndlistarmennirnir tólf eru
auk hinna fyrrnefndu: Daníel
Magnússon, Birgir Andrésson, Sig-
urður Árni Sigurðsson, Katrin Sig-
urðardóttir og Gjömingaklúbbur-
inn (Dóra, Jóní, Eirún og Sigrún).
Þetta er góður hópur sem sýndi all-
ur - nema Gjömingaklúbburinn og
Inga Svala - ásamt frönskum lista-
mönnum í Gerðarsafni síðastliðið
sumar. Nú ætla þau að hittast aftur
í franska strandbænum Sete en
hann er örskammt frá háskólaborg-
inni Montpellier - sem margir ís-
lendingar þekkja eingöngu af góðu.
Á þessum árstíma er íslenskt sum-
ar þarna suður frá, jafnvel ögn
hlýrra og örugglega sólrikara. Him-
ininn er heiðblár og sjórinn ennþá
blárri - enda uppnefndur The Big
Blue af heimamönnum (þeir eru
svo sleipir í ensku).
Það er gott að vera myndlistar-
maður og geta ferðast á suðrænar
slóðir um hávetur í nafni listagyðj-
unnar - og útskýrir það kannski
ásóknina í myndlistardeild Lista-
háskóla. En þau þykjast auðvitað
ætla að vinna , íslensku konumar
og karlarnir. Niðri í Sete er starf-
andi listamiðstöð sem stjómað er
einarðlega af franskri madame.
Noelle Tissier kynntist íslandi
fyrst fyrir tæpum tíu árum þegar
hún var prófdómari í listaskólan-
um i Cérgy-Pontoise skammt frá
París. Þar var einn íslenskur náms-
maður að ljúka framhaldsnámi, sá
fyrsti af fleirum, Sigurður Ámi
Sigurðsson. Noelle var kynnt fyrir
Sigurði af einum kennara hans,
listfræðingnum Bernard Marcadé,
en hann ætlar einmitt að skrifa um
listamennina í bók sem kemur út
mjög bráðlega. Noelle bauð Sigurði
Áma að sýna hjá sér í Sete um árið
og hefur síðan haldið tryggð við
hann.
Leiðir Gerðarsafns og Noelle
lágu hins vegar ekki saman fyrr en
fyrir rúmum tveimur árum. Þá fór
forstöðumaður Gerðarsafns, Guð-
björg Kristjánsdóttir, í ferðalag til
Frakklands og kom við í Sete að
áeggjan Sigga. Guðbjörg og Noelle
féllu nánast í faðma og ákváðu
I tröppunum í Gerðarsafni skömmu fyrir brottför: Hallgrímur Helgason viröist ánægður með að fá að ferðast með Jóni,
Sigrúnu, Eirúnu og Dóru. Haraldur Jónsson er undir rússneska hattinum en sú sem fer fyrir hópnum heitir Katrín Sigurð-
ardóttir. Hinir strákarnir voru ekki byrjaðir að pakka niður og komust þess vegna ekki í myndatöku.
strax að setja upp fransk-íslenska
sýningu saman. Fyrst á íslandi, svo
i Frakklandi.
Síðari hluti sýningarinnar Út úr
korti verður opnuð í Sete næsta
fostudag, 21. janúar, en þangað til
munu íslensku listamennirnir
dunda sér við að setja upp alveg
splunkuný verk í franska safninu.
„Við vildum búa til tvær ólíkar
sýningar, enda er sýningarsalurinn
í Sete mun stærri en sá í Gerðar-
safni,“ segir Guðbjörg. „Stærðin er
líka ástæðan fyrir því að lista-
mennimir eru fleiri í Frakklandi
en i Gerðarsafni." Gjörningaklúbb-
urinn mun að sjálfsögðu standa
fyrir einum af sínum víðfrægu
gjömingum á opnuninni en stelp-
umar eru þegar komnar í starthol-
umar með að slá í gegn í Frans.
Yfirskriftin Út úr korti vísar til
landfræðilegrar legu Sete og Kóp-
vogs á Evrópukortinu. Sete snýr
andlitinu í átt að Alsír en frá Kópa-
vogi er stutt yfir til Grænlands sem
eins og allir vita er næsti bær við
Norður-Ameríku. Fókus treystir á
íslensku myndlistarmennina að
þeir breiði út orðspor íslenskrar
myndlistar i frönskum suðurlands-
kreðsum, þótt erfitt geti reynst að
standa þeim á sporði heimamönn-
um; Tissier, Marion Lachaise, Phil-
ippe Ramette (alltaf góður), Hughes
Reip (íslandsvinur), Jacques Julian
og Paul Poivreau (mætti halda að
þetta væri tíska).
-MEÓ
GIUMSVÖTN
Gulu- o(| öskusprenglncjar i Grírns
vötnnm. Gos tíófsl fyrfr norðan
Grímsvötn þmin 30. seplcmbor
1096 og halöi í lör meö sör tílaup
i Skoiðatá.
Útsalan stendur sem hæst NÝU lOBTMÍMWÚ-
30-60% afsiáttur
NANOQ>
Kringlunni 4-12 ■ www.nanoq.is
14. janúar 2000 f ÓkUS
13