Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Síða 15
Útgefið múm Auk breiöskífunnar sjálfrar og 12 tomma með fyrsta sniglinum af henni hafa múm leikiö inn á flBra aðra diska sem komu allir út áriö 1999: Náttúruóperan inniheldur tónlist eftir múm úr samnefndu leikriti I flutningi múm og Úrú- búrú-sextettsins. Flugmaöur, diskur meö lestri Andra Snæs Magnasonar á eigin Ijóðum, hljóðskreytt af múm. Asnakjálkar í apabúningu, remixdiskur með lögum eftir múm og Músíkvat. Kitchen Motors, safndiskur Tilraunaeldhúss- ins með upptökum frá tónleikum síðasta árs en þar er að finna upptöku af því þegar múm og Músíkvats tróðu upp á Kaffi Thomsen. Þetta eru bara þrír stafir og eitt Ihljóð. Kristín Anna: Og það speglast. Það er hægt að lesa það aftur á bak og áfram. Þið hafið stundum verið sökuð um aö spila bara á barnahljóðfœri. Örvar: En þetta eru ekki bama- hljóðfæri. Fólk segir þetta kannski af því að sum þeirra eru lítil og einlold. Við notum t.d. Moog, það er ekkert bamahljóðfæri. Xýlófónn er ekki bamahljóðfæri heldur full- Porðinshljóðfæri. Svo eram við með harmóniku og það er meira að segja gömlukallahljóðfæri. Gyða: Að vísu eigum við líka eina litla harmóníku. Kristin Anna: En hún gæti alveg verið dvergaharmóníka. Gunnar: Já, þess vegna væri al- veg eins hægt að saka okkur um að spila á dverga- og gömlukallahljóð- færi. Þeir sem hafa séð til ykkar á tón- leikum dást að þessu mikla og góða safni af hljóðfœrum sem þið hafið sankað að ykkur, stundið þið hljóð- fœraveiðar? Gunnar: Við höfum kannski ver- ið meðvitaðri í hljóðfærasöfnun- inni upp á síðkastið. Örvar: Minimooginn var keypt- ur fyrir of fjár af tónlistarmanni í Hafnarfirði sem hafði snúið sér að kristilegri tónlist og þurfti hann þess vegna ekki lengur. Wurlitzer- píanóið fundum við í kjallaranum í Austurbæjarskóla þar sem það hafði staðið ónotað í mörg ár. Kristín Anna: Tvær harmóníkur kejrptum við Örvar á útimarkaði í Danmörku. Örvar: Og við fengum melódík- una gefms en svo eigum við líka fullt af tölvugræjum, þær voru sko ekki gefms. Þær kostuðu PE-ning. Gunnar: Þökk sé Visa íslandi og Íraögreiðslum gátum við keypt þær. Visakortin okkar Örvars hafa ver- ið frekar heit síðustu tvö árin, næstum þvi logandi. En við eigum samt öll tækin núna. Við erum duglegir að borga. Hafið þið einhvern tímann haft eitthvaö upp úr því að vera í hljóm- sveit? Gunnar: Nei. Gyða: Nei. Örvar: Nei. IKristín Anna: Júúú, en ekki pen- inga. Sjáið þið fram á að geta einhvern tímann haft tekjur af tónlistinni ykkar? Gunnar: Ég sé ekki fram á það en ég mun að sjálfsögðu fagna því ef það gerist. Örvar: Alla tónlistarmenn á ís- landi dreymir um að lifa á þessu. Kristín Anna: Ég held að aila langi til að lifa á því sem þeim finnst gaman að gera. IÖrvar: Það langar okkur líka. Eigið þið sameiginleg áhugamál önnur en tónlist? Gunnar: í síðustu ferð okkar til útlanda keyptum við saman plötu- spilara og heilan haug af plötum. Kristín Anna: Við komum stund- um saman og hlustmn á plöturnar okkar. Við erum alveg vinir þó að við séum í hljómsveit. Örvar: Við stofnuðum líka íþróttafélag síðasta haust sem var með æfingar vikulega. Það entist í mánuð. Kristin Anna: Við stunduðum alls konar íþróttir, bandí, fótbolta og körfubolta. Og svo fengum við einu sinni kennara til að kenna okkur box. Við vorum búin að safna saman stórum hóp af mjög góðu fólki en það átti eitthvað erfitt með að mæta klukkan 12 á laugardögum. Æflö þið mikið fyrir tónleika? Gunnar: Nei. Það fer eiginlega meiri tími í að elda og hafa það náðugt. En það er alveg jafnnauð- synlegur undirbúningur og að spila saman. Þið skiptist mikið á hljóðfœrum á tónleikum, eruð þið búin að ákveóa hvað hver gerir áður en þið stígió á sviö, hver stendur hvar og hver spil- ar á hvað? Gyða: Við ákveðum það ekki á sviðinu. Örvar: Það litur kannski þannig út eh það er þá bara af því að við munum ekki hvað við áttum að gera. Gunnar: Við ákveðum hvað hver gerir fyrir tónleika en við skiptum samt við og við um hlutverk. Þannig halda lögin líka áfram að þróast. Á plötunni er eitt sönglag sem heitir ‘The Ballad of the Broken Birdie Records’ Um hvað fjallar þessi sorglegi texti? Örvar: Kveikjan að honum var sú að pabbi minn lánaði okkur eld- gamlar 78 snúninga plötur með upptökum af fuglasöng, American songbirds. Við ætluðum að nota hljóð af plötunum í þetta lag. Á meðan við voram að semja lagið var ég svo óheppinn að stíga óvart á plötubúnkann og brjóta allar plötumar. Þetta var mjög sorglegt atvik þannig að textinn samdi sig nokkum veginn sjálfur. Gunnar: Þetta voru eldgamlar plötur, ekki úr vínyl heldur postu- líni, ótrúlega fallegar og í flottum kassa. / teiknimyndasögunni innan í umslaginu á Asnakjálkum í apa- búningum kemur nafnið Bjarne Riis nokkuö oft fyrir, getið þió frœtt mig eitthvað um hann? Örvar: Hann er danskur reið- hjólakappi og þjóðhetja í Dan- mörku... Gunnar: Við Örvar höfum búið 3 sumur í Danmörku. Örvar: ...og þegar Tour de France er í gangi eru myndir af honum i öllum búðargluggum og framan á forsíðum allra tímarita. Gyða: Við lásum um hann í dönsku. Eruö þið forfallnir aódáendur Tour de France-keppninnar eins og Kraftwerk? Örvar: Nei, okkur finnst hún mjög leiðinleg en karakterinn Bjame Riis finnst mér spennandi. Aó lokum er ein sígild spurning sem brennur á mér: Hvaóa íslensk hljómsveit eóa tónlistarmaður hefur haft mest áhrif á ykkur? Múm: (í kór) Jónas Þórir. Örvar: Þá erum við að tala um skemmtaraplötuna sem hann gerði þegar hann var 19 ára. Sveitin milli sanda. Gunnar: Já það er alveg rosaleg plata. Við eignuðumst hana fyrir einhverja algera tilviljun og hlust- uðum stanslaust á hana. Örvar: Fyrsta kvöldið sem við hlustuðum á þessa plötu skrifuð- um við bréf til hans og spurðum hvort við mættum eitthvað vinna með þessa tónlist. En við þorðum aldrei að senda bréflð. Þessi plata hefur samt inspírerað okkur mjög mikið. Múm og Jónas Þórir, það væri nú ekki leiðinlegt hanastél. Um leið og ég kveð krakkana hvet ég þá tO að grafa upp bréfið og skella því í póst. Annars hefur hljóm- sveitin múm alveg nóg fyrir stafni. Þessa dagana er hún að semja tón- verk fyrir Prentsmiðjuna Odda sem er aðallega unnið úr hljóðum úr vélum prentsmiðjunnar og ein- hvem tímann á árinu verður farið til útlanda til að kynna plötuna. Auk þess dreymir þau um að vinna meira með Bjöllukór Bú- staðakirkju sem kom fram á út- gáfutónleikunum í Tjamarbiói og flutti eitt lag eftir múm. -Úlfur Eldjárn Leikffélag Hafnar* ffarðar sýnir um fsessar mundir mrtdð Hvenær kem- urðu aftur, rauðhærði riddarí? Frumsýníngin var síðasta iaugardag eg það má eiginiega segja að einn maður hafi stoiið senunni að öðrum Möstuðum, Sá heitir Hali- ftiússon og er 32 ára gamaii. Pað þarf kannski fáum að koma á óvart að Hali- dór geti ieikið því bróðir hans er enginn annar en ftadíusbróð- srÍnn Steinn Árr . .. mn i W1 .v- M V' iagnúss« eins athyglissjúkur og Steinn Ármann Halldór er enginn byrjandi í leik- listinni þó svo að hann hafi aldrei leikið sem atvinnuleikari. Hann lék fyrst fyrir Leikfélag Hafnarfjarðar fyrir um fimmtán árum og frá þeim tíma hefur hann leikið í mörgum uppfærslum leikfélagsins sem og stuttmyndum. Það nýjasta sem Halldór hefur tekið sér fyrir hend- ur er hlutverk í leikritinu Hvenær kemurðu aftur, rauðhærði riddari? „Þetta er vegatryllir sem gerist i frekar niðumíddum veitingavagni á sunnudagsmorgni. Allt gengur sinn vanagang þar til ákveðin per- sóna, sem ég leik, rekst þarna inn og hleypir öliu í bál og brand,“ seg- ir Halldór aðspurður um hvað verkið sé. Svo þú fékkst aö leika áhrifavald- inn? „Já, ég leik Teddy sem kemur þama inn og heldur öllum í gísl- ingu og í rauninni þvingar fólkið sem er þarna inni til að taka af- stöðu.“ Hvernig er það svo að leika vonda gœjann? „Það er ágætt þó svo að ég vilji halda því fram að hann sé góður innst inni en það er bara mín túlk- un,“ svarar Halldór hlæjandi. Já, er hœgt aó túlka þetta á marga vegu? „Það má eiginlega segja það, alla vega hefur verið smárifrildi í leik- arahópnum um hvemig eigi að túlka þessa persónu." Er ekki rétt hjá mér að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem þetta verk fer á svið hérlendis? „Jú, Nemendafélagið glímdi við þetta verk fyrir einhverjum árum og þá var ekki ómerkari maður en Valdimar Örn Flygenring í hlut- verki Teddy og svo held ég að það hafi einnig verið sýnt á Akureyri." Er Valdimar aó einhverju leyti fyrirmynd þín í hlutverkinu? „Nei, það get ég ekki sagt vegna þess að ég sá ekki uppfærsluna sem Valdimar var í og því var ég með ómótaðar skoðanir á hvemig hlut- verkið væri þegar ég byrjaði að glíma við það.“ Framtíðin óráðin Nú ertu að leika í þessu verki og hefur tekið þátt í mörgum uppfœrsl- um í gegnum tíðina; meó það í huga að þú hefur fengió mjög góða dóma fyrir frammistöðu þína hefur ekkert hvarflað aó þér að gera leikinn að þín aðalstarfi? „Það er margt inni í myndinni og maður veit aldrei hvað gerist á morgun," svarar Halldór en vill ekki gefa meira upp. Halidór var í skóla fyrir áramót en núna nýlega tók hann að sér stöðu tæknimanns í Kennaraháskólanum. Þeir sem hafa séð þig í þessu stykki segja aó þú farir hreinlega á kostum. Það hlýtur að virka sem gott spark í rassinn: „Jú, jú, það er mjög gaman, sér- staklega eftir alla þá vinnu sem maður er búinn að leggja á sig. Þetta er náttúrlega samhentur hóp- ur og góður leikstjóri og gott verk og það hjálpast allt að,“ svarar Hall- dór, hógværðin í fyrirrúmi. Bróðir Halldórs er stórleikarinn Steinn Ármann og því er ekki úr vegi að spyrja hvort Halldór sé betri leikari en bróðir hans. „Nei, og þó, ætli ég láti ekki bara aðra dæma um það,“ svarar Halldór hlæjandi. Þannig aó þú œtlar ekki að koma meó einhverja yfirlýsingu? „Nei, er það? Steinn er mjög fær leikari og það er alls ekkert fyrir mig að vera að bera okkur saman. Það er kannski sérstaklega erfitt vegna þess að maður er búinn að al- ast upp með honum og því sér mað- ur kannski einhverja galla hjá hon- um sem aðrir taka ekki eftir og svo sér hann örugglega fullt af göOum hjá mér.“ Eruð þið þá ekki alltaf aó gefa hvor öðrum ráð? „Jú, við höfum oft reynt að hjálpa hvor öðrum eitthvað með ráðlegg- ingar og annað.“ Það er ekkert takmark hjá þér að slá Steini við: „Nei, nei," svarar HaOdór hlæj- andi og bætir við að Steinn hafi, á sínum tíma, verið í Leiklistarskól- anum þegar hann hafi verið að dunda sér í Leikfélaginu. Hlær oft að eigin hugsunum Að eiga bróðir sem skarað hefur fram úr í leiklist getur ekki verið auðvelt fyrir mann eins og HaOdór sem er að dútla í leOdistinni sam- hliða vinnu og getur því ekki talist atvinnuleikari. Þó svo að um at- vinnumann og áhugamann sé að ræða er oft verið að bera þá saman og sá samanburður er ekki aOtaf sanngjarn. Setur þaó ekki pressu á þig aó vera bróðir Steins, er fólk að cetlast til aó þú gerir eitthvaö sem hann kannski gerir? „Það er svolítið erfltt að svara þessu. Já og nei. Stundum hef ég fundið fyrir þessu í sambandi við leiklistina og það er kannski best að lýsa því þannig að fólk er að setja samasemmerki miOi okkar vegna þess að við erum bræður og bara hvernig við erum,“ svarar Halldór og bætir því við að vitaskuld séu þeir bara tveir ólíkir einstaklingar. Hvernig dílar þú við svona utan- aðkomandi pressu? „Ég reyni bara að hunsa þetta, það þýðir ekkert annað. Samt verð ég nú að viðurkenna að ég fann mest fyrir þessu eftir að Steinn byrj- aði að grínast. Þá var allt í einu fuOt af fólki sem fór að krefjast þess af mér að ég færi að vera fyndinn eins og hann, segja brandara og eitthvað. Ég hef ekkert verið í þessu, Steinn hefur aOtaf verið spreOikarlinn í fjölskyldunni og ég læt honum það bara eftir.“ Ertu að segja að þú sért ekki húmoristi? „Ja,“ segir HaOdór en segir síðan ekkert meira heldur hlær mjög smitandi hlátri. Svo ræskir hann sig og heldur áfram: „Ég vO vitanlega segja að ég sé húmoristi en ég er kannski ekki að opinbera það eins mikið og hann gerir. Ég held því bara fyrir sjálfan mig en ég get þó alveg viðurkennt að ég hef oft hlegið að eigin hugsun- um en Steinn er aðeins meira fyrir athyglina.“ En þú, ert þú þá ekkert fyrir at- hygli? „AOa vega ekki eins mikið og Steinn,“ svarar HaOdór hlæjandi. Heyróu, eigum vió ekki að enda viðtalió með því að tala aðeins um Hvenœr kemuröu aftur, rauðhœrói riddari? „Jú, gerum það. Við skulum hvetja alla tO að koma og sjá verkið. Ég held að það sé alveg þess virði.“ -tgv 14. janúar 2000 f ÓkUS 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.