Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Page 22
Það er vissara að panta giskingu i tima ef þú vllt ekki eyöa nottinni í eíhhverium almenningsgaröinum innan um tómar olfloskur. . Þegar nautunum er sleppt ut á góturnar er um að gera að hlaupa eins og maður eigi lífið að leysa enda a niaður það. Fjóldi manns særist ar hvert i hlaupinu. Smair og stórir taka þátt í hátíðinni sem varir í viku. Allir eru klæddir í hvít og rauö föt. Ef þú ert virkilegur spennufíkill þá er San Fermin-hátíðin á Spáni rétti áfangastaðurinn fyrir sumarferðalagið. Þar geturðu fengið þitt stærsta adrena- línkikk um leið og þú átt á hættu að verða fótumtroðinn af snaróðum nautum Lífshættu- leg hátíð Þjóðhátíðin í Eyjum, Reading- hátíðin á Englandi og danska Ro- skilde-festivalið blikna í saman- burði við San Fermin-hátíðina í borginni Pamplona á Spáni. Hátíð- in er ævagömul og má rekja allt aftur til ársins 1591 en hún er hald- in árlega frá sjötta til fjórtánda júlí. Á þessum tíma flykkist fólk hvaðanæva úr heiminum til Pamplona og hátiðin á síauknum vinsældum að fagna. Heimamenn taka þó mestan þátt í hátíðahöld- unum því þessa daga fá þeir hrein- lega frí í vinnunni og öll atvinnu- starfsemi borgarinnar liggur niðri. Þeir einu sem hafa eitthvað að gera eru barþjónar og skóbúðar- eigendur sem selja hvíta hlaupa- skó eins og heitar lummur. Hlaupið fyrir lífið Aðalaðdráttarafl hátíðarinnar er „encierrro" eða nautahlaupið. Hvem morgun um kl. 8 er sex snaróðum nautum sleppt út á götu í elsta hluta borgarinnar og ofurhug- ar láta reyna á manndóm sinn meö Þetta naut var fellt á hátíðinni árið 1977 og vó þá 610 kíló. í dag hang- Ir það mikið á pöbb einum í mið- bænum og virkar voða saklaust eins og blaðamaður fékk að sann- reyna. Þessi þykki, brúni drykkur minnir á súkkulaðibúðing og á, eftir því sem Spánverjarnir segja, aö lækna þynnku. því að hlaupa á imdan þeim. Vega- lengdin er 1000 metrar og ferðin endar inni í nautaatshring. Þeir hlauparar sem ná aö komast óskaddaðir inn í hringinn eru látn- ir berjast viö illskeytta kálfa en nautin sex fá þaulvanir nautabanar að reyna við seinna um kvöldið. Fjöldi manns hefur látið lífið á há- tiðahöldunum og árlega særast tug- ir manna. Slysin eru ekki eingöngu af völdum nautanna heldur er ann- ar lífshættulegur siður stundaður á hátíðinni. Á torginu Pamplona plaza er að finna styttu sem vinsælt er að klifra upp á og kasta sér það- an niður í mannfjöldann fyrir neð- an sem er tilbúinn að grípa viðkom- andi. Vandamálið er bara að þeir sem láta hafa sig út í þessa vitleysu eru yfirleitt vel í glasi og hinir sem ætla að taka á móti eru oft ekkert betri þannig aö útkoman getur orð- ið vægast sagt hræðileg enda malbikið hart. stæðið einn gistimöguleikinn. Það er 7 km frá bænum og þangað eru reglulegar rútuferðir. Annars er líka hægt að gera eins og svo marg- ir að útiloka vandamálið, því af hverju að sofa þegar það er partl? San Fermin gengur alla vega út á allt annað en að sofa. Um kl. 4 seinni partinn flykkist fólk út á göt- umar. Heilu fjölskyldurnar koma gangandi með risastórar fótur fullar af þjóðardrykk Spánverja, sangria. Eftir því sem rökkrið færist yflr magnast stemningin. Götulistamenn sýna listir sínar á torgum úti og alls staðar er tónlist. Fólk dansar á bör- unum og einnig á götunum. Á mið- nætti lýsa svo flugeldar upp himin- inn, sem sagt enn eitt tilefnið til að skála. Það er aldrei talað um að nú sé kominn tími til að hátta heldur er sungið og dansað til klukkan átta Það er dansaö á börunum og götunum og vínið rennur fram á rauöan morgun. um morguninn þegar menn eiga fót- um sínum f]ör að launa undan snaróðum nautunum. Og svo byrjar leikurinn á ný. -snæ Ekkert sofið Á meðan á há- tíðinni stendur fimmfaldast íbúa- tala borgarinnar og það getur verið erfitt að finna gistingu. Ef þú hefur ekki verið svo forsjáll að panta gistingu langt fram í tím- ann þá er tjald- — - ** •»»'•111111 | t skjol og eiga varla á hættu nautin troöi þá niður. 10 reglur fyrir þátttakendur í nautahlaupinu í Pamplona: 1) Þú verður að vera orðinn 18 ára gamall til þess að fá að taka þátt í hlaupinu. 2) Þú þarft að mæta á byrjunarreit fyrir kl. 7.30 þann morgun sem þú ætlar að keppa, annars færðu ekki að vera með. 3) Þú skalt eiginlega vera karlkyns, ef ekki, láttu a.m.k líta úr fyrir að þú sért það. 4) Þú átt að vera klæddur í hvít og rauö föt og vera í góðum hlaupaskóm. 5) Þú verður að vera í góðu formi. Ef ekki þá seturðu ekki bara sjálfan þig heldur líka aöra þátttakendur í hættu. 6) Það er bannað að ýta við öðrum hlaupur- um. Það er einnig bannað að stoppa eða beygja í veg fyrir aðra þátttakendur. 7) Það er bannað að hafa nokkuð í höndunum á meðan hlaupið er. Þetta þýðir að þú mátt t.d ekki hafá hníf þér til varnar ef þú yrðir svo óheppinn að naut réðist á þig. Þú mátt ekki heldur hafa myndavél til þess að taka myndir. 8) Það er bannað aö snerta, stríða eða á nokkurn annan hátt espa nautin á meöan á hlaupinu stendur. Ef þú dettur verðurðu að liggja alveg kyrr með hendur yfir höföi og bíða þar til nautin hafa farið fram hjá. Ekki hreyfa við eöa reyna að hjálpa öðr- um særðum þátttakendum, láttu hjálparsveit- ina um það. f ÓkUS 14. janúar 2000 22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.