Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Síða 29
Lífid eftir vmnu
Salka - ástarsaga eftir Halldór Laxness er
sýnd klukkan 20 I Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Hér má sjá þær stöllur, Maríu Ellingsen og
Magneu Björk Valdimarsdóttur, leika Sölku af
mikilli list og hafa þær hlotið einróma lof fyrir.
Frankie og Johnny, sem Al Pacino og Michelle
Pfeiffer léku svo eftirminnilega í samnefndri
mynd hér um árið, er sýnt á fjölum Iðnö. Sýn-
ingin hefst kl. 20.30, síminn I miðasölunni er
530 3030.
•Opnanir
Páll Guömundsson á Húsafelli og Thor Vil-
hjálmsson opna saman sýningu í splunkunýj-
um sýningarsal Gallerís Reykjavíkur við Skóla-
vörðustíg klukkan 16. Páll sýnir sín einstöku
steinþrykk og svellþrykk, en Thor hefur samið
Ijóð og handskrifað þau inn á myndirnar.
Gunnar Kvaran sellóleikari mun ylja gestum
um tóneyrað á opnuninni.
Vjgdís Finnbogadóttir
hefur valið verk saman á
sýningu eftir uppáhalds-
listamenn sína. Sýningin
ber yfirskriftina Þetta vil
ég sjá og verður opnuð
kl. 16 I Gerðubergi. Vig-
dís hefur eingöngu valið
verk eftir konur, en með-
al þeirra sem eiga verk á
sýningunni eru systurnar
Ragna og Ráðhildur Ingadætur, Sigrún Eld-
járn, Olga Bergman og Kristjana Samper..
Sýningin stendur til 6. febrúar.
Síöustu forvöö
Síðustu 10 árin hafa hátt 1100 listamenn sýnt
í Galleríi Sævars Karls. Helmingurinn af þess-
um listamönnum er nú með verk samsýningu
I galleríinu i tilefni 10 ára afmælis þess. Sýn-
ingin er jafnframt tileinkuð aldamótunum.
•Fundir
Málþing um dr. Sigurð Nordal og verk hans
verður haldið í Norræna húsinu kl. 14 á vegum
Stofnunar Sigurðar Nordals. Um hvað fjallar
bók Sigurðar Nordals, íslenzk menning?
Hvernig var menningarumræðan á íslandi
1942, þegar bókin kom út? Hvernig kemur rit-
ið heim við umræður um evrópska þjóðernis-
stefnu þá og nú? Hver er
afstaðan til fræða Sig-
urðar Nordals nú? Þetta
verður m.a. rætt á mál-
þinginu. Þar flytja Ár-
mann Jakobsson bók-
menntafræðingur, Jón
Karl Helgason bók-
menntafræðingur, Krist-
ján B. Jónasson rithöf-
undur og Sigriður Matthí-
asdóttir sagnfræðingur
erindi. Að þeim loknum taka frummælendur
þátt í pallborðsumræðum um Islenzka menn-
ingu eftir Sigurð Nordal og menningu á Islandi
við aldarlok. Úlfar Bragason, forstöðumaður
Stofnunar Sigurðar Nordals, stjórnar umræð-
unum. Allir velkomnir.
•Sport
Stjörnuleikur KKÍ í körfubolta hefst klukkan
16 á Strandgötu.
Þrir leikir fara fram I kvennahandbolta klukkan
16.30. Fram mætir ÍR í Safamýrinni, FH og
ÍBV spila í Kaplakrika, og Grótta/KR spilar á
móti Val á Seltjarnarnesi.
Sunnudagúív
16. janúar
•Krár
G. R Lúðviksson treður upp með söng og tón-
list á Kringlukránni.
Pínótónar flæöa á Café Romance þar sem
breski píanóleikarinn Bubby Wann fer fimum
fingrum um nóturnar.
Það verða seiðandi tónar og rólegheit í aöal-
hlutverki á Gauknum í í kvöld enda ekki hægt
að halda uppi stanslausri keyrslu.
Sportkaffi, Þingholtstræti 5, býður upp á eftir-
farandi leiki á sjónvarpsskjánum: Newcastle-
Sóuthampton kl. 15.45 og Udinese móti AC
Milan kl.19.22.
Caprí spilar aö vanda á sunnudagsböllunum í
Ásgarði Giæsibæ
•Klassík
Bachkantötur verða
fluttar í Hallgrímskirkju.
Flytjendur eru Mótettukór
og kammersveit Hall-
grímskirkju ásamt ein-
söngvurum.
Kammermúsíkklúbbur-
inn heldur sína fjórðu
tónleika á þessu starfs-
ári kl. 20.30 í Bústaða-
kirkju. EÞOS-kvartettinn flytur. Flutt verða verk
eftir Beethoven, Debussy og Haydn.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tón-
leika i Akureyrarkirkju kl. 17.00. Þeir eru
óvenjulegir því þetta eru málmblásaratónleik-
ar sem haldnir eru i samvinnu við Serpent en
Sköpunarkraftar Thors Vilhjálmssonar rithöfundar og Páls Guðmundssonar á Húsafelli munu renna saman á fyrstu
sýningu Gallerís Reykjavíkur. Þeir eru báðir í miklu uppáhaldi hjá Guðfinnu A. Hjálmarsdóttur sem stendur á milli
þeirra.
I miklu yppahaldi
Það kannast líklega margir við
verslunina Liti og fóndur sem
Guðfinna A. Hjálmarsdóttir
hefur starfrækt í tuttugu ár á
Skólavörðustíg 16. Hún rekur
verslunina ennþá en sonur henn-
ar sér um afgreiðslustörfin. Sjálf
hefur hún flutt sig á aðrar hæðir
i húsinu þar sem hún er með
annars konar en skáskylda starf-
semi. Á síðustu menningarnótt
opnaði hún Gallerí Reykjavík þar
sem hún hefur hingað til selt
myndlist. í gallerinu er að finna
verk eftir fjörutíu listamenn en
hingað til hafa einungis verið
haldnar þar „stuttsýningar" á
verkum þeirra.
Guðfmnu fannst það aldrei nóg
að hengja upp verk i ófullnægj-
andi aðstöðu og þvi var stefnan
alltaf sú að opna sérstakan sýn-
ingarsal í 145 m2 húsnæði í kjall-
aranum. Þar munu verk ein-
stakra listamanna fá að njóta sín
I framtíðinni því draumurinn
hefur ræst. Sýningarsalurinn er
tilbúinn og á morgun verður opn-
uð sýning með verkum Páls Guð-
mundssonar á Húsafelli og Thors
Vilhjálmssonar. „Það stóð alltaf
til að sýningin yrði opnuð á milli
jóla og nýárs en það gat ekki orð-
ið af því þar sem mappa með
steinþrykktum myndum Páls og
ljóðum Thors var ekki tilbúin,"
segir Guðfinna. „En nú er mapp-
an komin út og hægt að opna sýn-
inguna."
Þú ert sem sagt fyrst til að opna
nýtt gallerí á nýrri öld?
„Já, það er satt! Ég hafði ekkert
hugsað út í það,“ segir Guðflnna.
Hún hefur sjálf fengist við að
mála meðfram verslunarrekstrin-
um. „Ég hef málað frá blautu
barnsbeini, en fyrir nokkrum
árum fór ég I Myndlista- og hand-
íðaskólann og var þar þrjú ár í
málaradeild. Síðan flutti ég mig
yfir í grafíkina og er þar núna á
öðru ári,“ segir hún. Guðfínna
tekur sjálf þátt í sýningum og á
nú verk á samsýningu í Lang-
holtskirkju sem á eftir að ferðast
um kirkjur landsins.
„Þeir listamenn sem eru í
sölugalleríinu munu koma til
með að hafa forgang í sýningar-
salnum. Ég er eingöngu með verk
eftir núlifandi listamenn en þeir
eru á öllum aldrei. Elías B. Hall-
dórsson og Pétur Fi’iðriksson eru
með þeim elstu en þeir yngstu
eru nýútskrifaðir myndlistar-
menn.
Guðfinna valdi að setja upp
verk Thors og Páls á fyrstu al-
vörusýningunni í Gallerí Reykja-
vík. „Af því að þeir eru í miklu
uppáhaldi hjá mér. Páll ætlar að
sýna grjótþrykk og svellþrykk en
Thor ljóð. í möppunni, sem núna
er komin út, verða steinþrykks-
myndir eftir Pál sem Thor hefur
samið ljóð við. Hann skrifað þau
inn i verkin með eigin rithönd og
því er óhætt að segja að þetta sé
svolítið sérstakt." Sýningin verð-
ur opnuð klukkan 16 á laugardag
og mun Gunnar Kvaran sellóleik-
ari spila við opnuna.
Serpent er hópur tónlistarfólks sem áhuga
hefur á flutningi tónlistar sem ekki er fast-
skoröuð í flokka, þ.e. sinfóníutónlist, iúðra-
sveit, kvartett, kvintett o.s.frv. I þetta sinn eru
það trompetleikarar, hornleikarar, básúnuleik-
arar, túbuleikarar og slagverksleikarar úr SN
og Serpent sem leiða saman tóna sína.Stjórn-
andi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Á tónleik-
unum verður m.a. frumflutt verkið „I tilefni
dagsins" sem Tryggvi Baldvinsson samdi sér-
staklega fyrir þessa tónleika.
tLeikhús
Stjörnur á
morgunhimni
er rússneskt
leikrit sem ger-
ist 1980 á
Ólympíuleikun-
um í Moskvu.
Allt utangarðs-
fólk borgarinnar er tekið og lokað inni á með-
an á leikunum stendur. Við fylgiumst með
nokkrum vændiskonum í þessari innilokun og
kíkjum aöeins inn í hugarfylgsni þeirra. Sýn-
ingin hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda.
Hún hefst kl. 20 í Iðnó. Síminn er 530 3030.
Leikritið Bláa herbergiö verður á Stóra sviðinu
í Borgarleikhúsinu. Stykkið er eftir David Hare
en byggt á verki Arthurs Schnitzer. Sýningin
hefst klukkan 19.
Fyrir börnin
Afaspil eftir Örn Árnason er komið á fjalirnar á
litla sviðinu i Borgarleikhúsinu. Hér er sjálfur
Sjónvarpsafi, besti vinur barnanna, i góðum
gír með glens og fleira. Sýningin hefst kl. 14.
I dag klukkan 14 og 17 verö-
ur hið vinsæla verk, sem er
jafnan uppselt á, Glanni
glæpur í Latabæ, sýnt i
Þjóðleikhúsinu. Púlið hjá
Magnúsi Scheving og félög-
um heldur áfram. Síminn í
miðasölu Þjóðleikhússins er
551 1200.
•Síöustu forvöö
I Listasafni íslands lýkur sýningunni Vormenn
í íslenskri myndlist. Á henni eru verk lista-
manna sem komu fram á fýrstu áratugum
þeirrar aldar sem senn er að Ijúka og lögðu
grunninn að nútímamyndlist hér á landi. I sal
1 eru verk eftir Þórarin B. Þorláksson, Ás-
grímJónsson, Jón Stefánsson og Jóhannes S.
Kjarval sem með landslagstúlkun sinni lögðu
grunn að islenskri landslagslist og áttu stóran
þátt í að móta sýn okkar á landið. I sal 2 lýk-
ur einnig sýningu á verkum eftir þær Kristínu
Jónsdóttur og Júlíönu Sveinsdóttur, sem voru
fyrstar íslenskra kvenna til aö helga sig mynd-
listinni, og þá Finn Jónsson, Gunnlaug Blöndal
og Jón Þorleifsson sem allir áttu þátt í að færa
nútímaleg viðhorf inn í íslenska myndlist á
mótunarárum hennar.
Leikritið Hvenær kemurðu
aftur rauðhærði ridd-
ari? eftir Mark Medoff
verður sýnt í Hafnar-
fjarðarleikhúslnu.
Leikstjóri er Viðar
Eggertsson og sýning-
in hefst klukkan 20.
Furðuleikhúsið sýnir leikritið Frá goðum til
guðs kl. 11 í Engjaskóla. Hér er sýnt hvernig
tilveran var á tímum vikinga og hvaöa áhrif
kristnin hefur haft á viðhorf
og lífsgildi í samfélaginu.
#Sport
Fyrstu deildar kvennalið Hauka og Afturelding-
ar í handbolta mætast viö Strandgötuna klukk-
an 20.
Þá er loksins komiö að íslandsmóti í innan-
hússknattsþyrnu karla og kvenna. Mótið er
haldið í Laugardalshöll.
Mánudagur
17. janúar
*Krár
Það er alltaf eins rólegt og rómantískt á Café
Romance þar sem breski píanóleikarinn
Bubby Wann fer fimum fingrum um pínóið og
slær engar feilnótur.
Það verða seiðandi tónar og rólegheit í aöal-
hlutverki á Gauknum í í kvöld enda ekki hægt
að halda uppi stanslausri keyrslu.
•Fundir
Maureen Fleming, dansari
og danshöfundur, fjallar
um efnið The Chang-
ing Role of Art in
Society í Lista-
klúbbnum í Þjóð-
leikhúskjallaranum.
Maureen kom hingað
fyrst árið 1996, er hún
sýndi verk sitt, Eros, á Lista-
hátíð í Reykjavík. Hún fæddist í Japan, lærði
klassiskan dans og einnig buthodans undir
handleiðslu Kazuo Ohno og Min Tanaka (sem
d h a f
Hamborgari og flug
Það er ekki að spyrja að Ein-
ari Bárðar. Hann er þrumar inn
hverju þrusutilboðinu á fætur
öðru á Hard Rock. í tilefni af
því að Reykjavík er menningar-
borg árið 2000 býður hann nú
öllum þeim sem fljúga með ís-
landsflugi frá Akureyri, Egils-
stöðum og Vestmannaeyjum
hamborgaramáltíð á Hard Rock.
Við spyrjum hins vegar: Er eitt-
hvað menningarlegt við ham-
borgara? Er ekki hægt að lokka
landsbyggðarfólkið í bæinn með
einhverju öðru? Annars má
geta þess að Islandsfiug er
einnig með annað tilboð í gangi
þessa helgi. Höfuðborgarbúar
geta flogið til Akureyrar fyrir
einungis 2000 krónur. Það eru
engir hamborgarar innifaldir í
þessu tilboði og miðar bókast á
Netinu.
Góða skemmtun
AUuffmkl.
t
{
ar
V
#
xf
14. janúar 2000 f Ókus
29