Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Page 30
> 4* y » '•5Í * Ef þér þykir virkilega sniðugt að brjóta flösk- ur I miðbænum um helgar þá ert þú álíka vel geflnn og gamall skötuselur. Þetta er bara fá- ránlegt tiltæki og getur mölvaö hausinn á systurdóttur þinni eða öðrum fullum ættingja sem gæti staðið nálægt þér fyrir einbera til- viljun. Og til hvers aö henda einhverri flösku? Ef þú heldur að það sé TÖFF með stóru T ættirðu að hugleiða að það er búið að gera þetta svona sjötíu þúsund sinnum áður eða oftar. Þetta er svona álíka töff og að skrifa skáldsögu um sveitastúlku sem kynnist spill- ingunni í Reykjavík eða mála mynd af als- berri konu með stóran rass og ávaxtaskál. að eiga fullt af vinum. Ef þú fyrir skaltu bara fara á stjá og öllu vinalegu fólki. Þeir sem bregðast illa við þér eru greinilega ekki efni I sanna vini en hinir... hver veit! Nema kannski þeir sem gefa þér einn á hann. Þá skaltu forða þér enda hefurðu ekkert aö gera við svoleiðis plebbavini. Þú hefur jú all- an rétt á að vera vandlátur. Varaðu þig samt á aumingjagóðu fólki sem talarviö þig af vor- kunnseminni einni saman. Þú vilt nefnilega vini sem kunna að meta þig vegna þinna sér- stöku eiginleika og ekkert aumingja- kjaftæði. Eins og það sé nokkurt mál að hringja í vinalínuna ef manni leiðist og þarf bara að tala við einhvern. Aumingjagöðir eru bara aumingjar sjálfir og hana nú. Góðir staðir til að leita að nýjum vinum eru til dæmis: Kafflvagninn, þarfmnurðu hvíta mið- aldra karlkynsvini; verslanamiðstöðin Kringl- an, hún flaggar æstum kvenkynsvinum á öll- um aldri, mörgum sveittum og barnmörgum; gleðibúllan Kaffibarinn, þar er að flnna alls konar lið á öllum aldri og af báðum kynjum, lið sem verður vonandi einhvern tímann eitt- hvað eða eitthvað svoleiðis. Kosturinn við vinaleitina á Kaffibarnum er sá að framtlðar- vinirnir eru flestir fullir svo það auðveldar spjallið svona fyrst um sinn. Svo eru alltaf hæg heimatökin á Hlemmi. Líficí eftir vmnu var gestur Listahátíðar 1980). Undanfarin ár hefur Maureen ferðast víða um heim með danssýningar, hafði um skeið aðsetur hjá La Mama í New York og kennir nú hjá Ex- perimental Theater Wing við New York Uni- versity. í Listaklúbbnum sýnir Maureen Flem- ing myndbandstökur af list sinni og greinir m.a. frá því hvernig hún notar margmiðlun og fjölbreytilega Ijóstækni á danssýningum sín- um. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Dagskráin hefst kl. 20.30 og húsið verður opnað kl. 19.30. Allir velkomnir. 18. janúar •K rár Gaukurinn kastar sér út í djúpu laugina enda rokk í þyngri kantin- um meðsveitunum Örkuml, Sein og Vigspá. Vissara að hafa kútana með hingað. í beinni á www.xnet.is Það er alltaf eins rólegt og rómanttskt á Café Romance þar sem breski píanóleikarinn Bubby Wann fer fimum fingrum um plnóið og slær engar feilnótur. Miðvikudagur 19. janúar •Krár / Herb Legowitz og Tommy White verða á slnum vikulegu djúphús- nótum á Sirkus. Athugið að hér er um vikulegan viðburð að ræða. Gott framtak sem kryddar miðvikuna. Hin stórskemmtilega |j hljómsveit Klamedía-X “ J með Áslaugu sem frontfigúru með tónleika á hinum nótunum á Gauknum. Tónleikarnir eru I beinni á www.xnetis e i k h ú s Hellisbúinn trallar I íslensku Óperunnl. Leik- stjóri er Sigurður Sigurjónsson og nánari upp- lýsingar fást I slma 551-1475. Sýningin hefst klukkan 20. Fimmtudágöf’ 20. janúar •Krár Funkmaster 2000 verða með geðveikt fun- ky sveiflu á Ozio. Héðan I frá er hægt að ganga að sveitinni vísri I Lækjargötunni alltaf á fimmtudagskvöldum. Hinir bráðmyndarlegu en umfram allt stór- skemmtilegu Papar I feiknaformi. í beinni á www.xnet.is hverjir voru hvar Á Skuggabarnum var margt um manninn um helgina að vanda. Þar mátti m.a. sjá veitinga- manninn Ingva Stelnar og Ijósmyndarann Baldur Bragason sem dagsdaglega myndar fá- klæddar unglingsstúlkur fyrir Séð og heyrt. Einar Bárðarson Hard Rock- kóngur var á staðnum, sem og Gunnar Hilmars- son, yflrþjónn á Rauðará. Hrönn klinka var mætt ásamt vinkonum, Stein- bergur Finnbogason fast- eignatröll leit inn, sem og Stelni sölumaöur hjá BT en hann var uppdressaður I smóking. Steini var þarna ásamt konunni sem hann ætlar að eyða llfinu með, henni Rakel, en þau voru ekki að gifta sig eins og hægt var að halda út frá fínheitunum á Steina. Músíkantinn og kvikmyndastjarnan Björn Jörundur og Sverr- ir litli með eldspýturnar voru einnig á staðnum. Magena hársnyrtir á Effect hélt upp á 25 ára afmælið sitt á laug- ardagskvöldiö og kom í limósínu á Skuggann með hópl af vinkonum. Siggi Hall kokkur var llka mættur og Stulli, yfir- kokkur á Perlunni, ásamt fleiri góöum úr Félagi matreiðslumeistara. Einnig mátti greina ofur- módelið Nönnu Guð- bergs, Sigga Hlö og frú, Friðrik Weisshapel, Berglindi Ólafs og Ivan Burkna , svaka flottan. Hanz, Ásgeir Kolbeins- son, fyrrverandi Bylgju- maður, og ívar „Islenski listinn" Guðmundsson klktu inn. Allir fasteigna- sölumennirnir og bilasal- arnir og verðbréfasalarnir sem enginn veit hvað heita voru auövitað llka mættir til að reyna við all- ar sætustu stelpur borg- arinnar. Á Rauða barnum á Einari Ben var einnig margt um manninn um helgina. Þar mátti m.a. sjá Henrikku á Grillinu og Árna, forstjóra Austur- bakka, I góöra vina hópi. Eyjólfur Kristinsson hélt upp á afmælið sitt I fríðum félagsskap og allt starfsliðið hjá GV-heildverslun gerði sér dagamun þvl að fylla upp I restina á staðnum. Þá fór ónefndur starfsmaöur Ikea þaöan út I -J k U S 14. janúar 2000 www.kraftwerk.de Stendur þú fyrir einhverju? Sendu upplýsingar i e-mail fokusSfokus.is / fax 550 5020 www.visir.is Þetta er náttúrlega frábær síða. Hér er að finna öll bestu lög Kraftwerks-flokksins og maður fær að leika sér með þau. Síðan er sáraeinfold, enginn texti til að vefjast fyrir manni, engar flækjur til að festa mann i, ekkert vesen. Það eina sem er á síðunni eru lögin og týpísk Kraftwerk-grafík sem maður getur leikið sér með í takt. Þessir frumkvöðlar rafrænu tónlistarinnnar svíkja mann seint og maður situr nánast dolfall- inn (með bros á vör) yfir tölvunni og hugsar: „Gargandi sniild!“ Hver man ekki eftir smellimum Antenna, Autobahn, Trans Europe Express, Radioactivity, The Robots, Numbers, The Man Machine, Pocketcalculator, Tour De France og Kling Klang. Rúsínan í pylsuendanum er síðan nýja lagið þeirra, Expo 2000, sem var samið í tilefni af heimssýningunni. En ef þið viljið fá allar upplýsingar um hana og tónleik- ana sem Kraftwerk heldur þar, flettið þá upp á bls. 23. IHQXJTSL 5t| Pínótónar flæða á Café Romance þar sem breski píanóleikarinn Bubby Wann fer fimum fingrum um nóturnar. •L e i k h ú s Fegurðardrottnlngin frá Línakri eftir Martin McDonagh verður sýnt I Borgarleikhúsinu. Gullna hliðiö er sýnt kl. 20 á stóra sviöi Þjóð- leikhússins. Sýningin er I leikstjórn Hilmis Snæs og prýðir hana fjöldi góðra leikara. Hellisbúinn reytir af sér brandara I fs- lensku Óperunni og skemmtilegheitin eru I leikstjórn Slg- urðar Sigurjónsson- ar. Sýningin hefst klukkan 20 og nán- ari upplýsingar eru I slma 551-1475. Góða skemmtun y/=Fókus mælir með j =Athyglisvert HANoa» Cjlyfja DV lögreglufylgd fyrir ónefndar óspekktir en við segjum hvorki hver það var né hvað hann gerði. Þaö sást tilSigga Hlö á Kaffi Viktor með Kamer- una á lofti og eigandi Skjás eins, Árni Þór Vig- fússon, sást á Prikinu I fylgd meö grafíker stöðv- arinnar, Geir Ólafssyni. Það var rólegt á Vega- mótum fyrri hiuta laug- ardagskvöldsins en þó mátti greina þar nokkur vel þekkt andlit. Eldon-bræður, Þór og Ari, sátu I rólegheitum yfir bjór ásamt ektakvinnu Ara, en Egill - Silf- ur-Egils - Helgasonvar einn og drakk sódavatn meö súpunni. Stefán Hrafn Hagalín, hinn kampakáti ritstjóri Tölvu- heima, átti fund með ný- hættum ritstjóra Vís- is.is, Ásgeiri Friðgeirs- syni, og fór vel á með þeim vefurum. Við borö- ið viö hliöina á þeim sátu vinkonurnar Hólmfríður Arnardóttir, heimspekingur og námskeiðahaldari, og Guðrún Halldóra Sigurðardóttir sem stillir villta unglinga I Lýöskólanum. Það var fámennt en góð- mennt á tónleikum Neðri strengja Austurbæjar I Kaffileikhúsinu á miðviku- dagskvöldið. Tengdamóðir kontrabassaleikarans, Valgerður Bjarnadóttir, lét sig ekki vanta, né heldur eiginmaður hennar, Kristó- fer Már Kristinsson. Við igkona Valgerðar, Rut Ing- ólfsdóttir fiðluleikari. Með henni voru Þórunn Ósk Marínósdóttir víóluleikari og Björn Thorarensen, eiginmaður hennar, ásamt fleiri góðum tónlistarmönnum. Hávarður Tryggva- son kontrabassaleikari var til að mynda ekki langt undan, kominn til að fylgjast með félaga sínum, Gunnlaugi Stef- ánssyni. Eiginkona Gunn- laugs, Guðrún Vilmundar- dóttir, leiklistarráðunaut- ur I Borgarleikhúsinu, gat aö sjálfsögðu ekki setið heima en samstarfsmenn hennar þar á bæ, sem einnig létu sjá sig voru, Valgeir Valdimarsson, framkvæmdastjóri ís- lenska dansflokksins, og þýski danshöfundur- inn Jochen Ulrich, en flokkurinn er einmitt að æfa verk eftir hann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.