Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2000
tennmg
17
Kristnitakan á íslandi
Nú er, eins og alþjóð veit,
runnið upp hið mikla há-
tíðaár þegar þess verður
minnst að þúsund ár eru
liðin frá trúskiptum á ís-
landi og mestu landafund-
um norrænna manna. Jón
Hnefdl Aðalsteinsson pró-
fessor er fremstur sérfræð-
inga okkar um kristnitök-
una og Háskólaútgáfan hef-
ur í tilefni þessara tíma-
móta endurútgefið tvær
bækur hans um það efni,
aðra á íslensku: Kristnitak-
an á íslandi, og hina á
ensku: Under the Cloak. A'
Pagan Ritual Turning Point
in the Conversion of
Iceland, doktorsritgerð
Jóns Hnefils sem hann
varði við Háskólann í Upp-
sölum 1979. Þær eru endur-
útgefnar óbreyttar en báð-
um fylgir nýr bókarauki
höfundar. Af íslensku bók-
inni eru þúsund eintök sér-
staklega helguð þúsund ára
kristni í landinu og gefm út
tölusett og árituð.
í þessum ritum setur Jón
KristnÍtakan á íslandi
Jón llnefill Aðalsteinssun
Hnefill fram nýstárlegar
og róttækar kenningar um
hvað mestu hefði ráðið um
að íslendingar tóku kristni
með friðsamlegum hætti á
Þingvöllum fyrir þúsund
árum. í bókaraukum nú
rennir hann frekari stoð-
um undir fyrri niðurstöð-
ur og gagnrýnir ýmis
nýrri rit um efnið.
Jón Hnefill var prófess-
or í þjóðfræði við Háskóla
íslands og Háskólaútgáfan
og Félagsvísindastofnun
hafa gefið út greinasafn á
ensku eftir hann um þau
efni undir heitinu A Piece
of Horse Liver í þýðingu
Terry Gunnell. I greinun-
um fjallar Jón Hnefill með-
al annars um fórnir og
fórnarathafnir á þingum,
heiðnar goðsagnir og
helgisiði eins og þeir koma
fram í miðaldaritum sem
kristnir menn skráðu, þró-
un vætta eins og trölla og
álfa gegnum aldirnar og
umbreytingu sögulegra at-
vika í munnlegri geymd.
-------------\
ennþá
í fiillum gangil
OG MARGT FLEIRA SEM KEMUR A OVART
Tegund Vélarstærð Hestöfl ABS Loftpúðar CD Innbyggður barnabílstóll, Spólvörn
VW Passat 1.8 20v 125 já 4 stk nei nei nei
MMC Galant 2.0 16v 137 já 4 stk nei nei nei
Nissan Maxima 2.0 16v 140 já 2 stk já nei nei
Volvo S40 2.0 16v 140 já 4 stk nei nei nei
Hyundai Sonata 2.0 16v 137 já 4 stk já í aftursæti já
Verð frá
2.195.000
2.295.000
2.925.000
2.298.000
1.948.000
MiAoA or vnA ciátfcÞ’inta híla f nlli im titfolli im
SPOLVORN
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1280
VERÐ
.948.000
SJÁLFSKIPTUR
TCS spólvörn er staðalbúnaöur f Sonata. Spólvörnin er sívirk og vinnur meö ABS kerfinu til að gera bílinn
fullkomlega stöðugan við allar aðstæður. Ef beygja er t.d. tekin f hálku eða lausamöl flyst aflið yfir á það
framhjólið sem hefur mest grip þannig að ökumaður heldur auðveldlega fullri stjórn. TCS spólvörnin er
aðeins eitt dæmi af mörgum um þann búnað sem Sonata hefur umfram aðra bíla í sama verðflokki.
HYunoni
mera
afollu