Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Side 12
12 MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2000 Spurningin Hefurðu farið á útsölurnar? Rakel Þormarsdóttir nemi: Nei, en ég á kannski eftir að líta i kring- um mig. Ingunn Einarsdóttir nemi: Já, ég keypti bol í Sautján. Ég ætla að reyna að versla meira. Gunnar Þór Gunnarsson nemi: Nei, ég hef ekki farið á neina. Gunnar Freyr Þórisson nemi: Já, er búinn að kaupa smá. Reikna með að kaupa meira. íris Georgsdóttir skrifstofu- stúlka: Nei, er ekki búin að fara og ætla alls ekki. Hildur Þórarinsdóttir nemi: Nei, ekki neitt. Ætla reyndar að kíkja í dag. Lesendur Er stjórnarsam- starfið að veikjast? öfl innan Framsóknarflokks ókyrrast „Og þá hlýtur Sjálfstæöisflokkurinn líka aö bregöa á þaö eina ráð aö rjúfa stjórnar- samstarfið aö fyrra bragöi og bjóða Vinstri grænum til sængur meö sér.“ - Ríkis- stjórn Sjálfstæöis- og Framsóknarflokks. Óskar Óskarsson skrifar: Flestir sem fylgjast með fréttum af íslenskum stjóm- málum þykjast kenna veruleg- an titring meðal sumra fram- sóknarmanna á vinstri vængn- um sem stundum hafa verið nefndir „órólega deildin" inn- am Framsóknarflokksins. Þessi hópur framsóknarmanna, sem þó er ekki fjölmennur, virðist leggja allt kapp á að reka fleyg í stjómarsamstarf Sjálfstæðis- flokkins og Framsóknarflokks- ins. Hent er á lofti flest sem forystumenn sjálfstæðismanna segja eða gera og síðan túlkað sem svo að formaður Fram- sóknarflokksins sé því andsnú- inn og afar óánægður, að ekki sé sagt leiður á, að þurfa að dansa eftir pipu samstarfs- flokksins í flestum greinum. Það siðasta sem maður les i blaðinu Degi (en blaðið virðist sífellt verða sér úti um tilefni til orðahnippinga í garð Sjálfstæðis- flokksins og þá sérstaklega formanns hans) er að formaður Framsóknar- flokksins vilji endurskoða kvótakerf- ið en formaður Sjálfstæðisflokksins vilji engu breyta! Og nú er það helst uppi á teningi Framsóknarflokksins, samkvæmt málgagni stjórnarandstöðunnar, Degi, að i bigerð sé sérstök „sátta- herferð" Framsóknarflokksins fyrir breytt fyrirkomulag í kvótakerfinu sem muni taki nýja stefnu eftir hinn svokallaða Vatneyrardóm. Talsmaður þessarar sáttaherferðar og þingmaður Framsóknarflokks- ins, Jón Kristjánsson, segir að sjáv- arútvegurinn geti ekki lifað við sí- felldar kærur og óvissu yfirvofandi. Sem er meira en rétt hjá þingmann- inum. En taki óánægðir þingmenn Framsóknarflokksins að skírskota til nýrrar og sérstakrar „herferðar" og krefjist þess að flokkurinn breyti um stefnu með það að leiðarljósi að Hæstiréttur staðfesti Vatneyrar- dóminn má ljóst vera að þar er stefnt að illdeilum í stjórnarsam- starfinu. - Og þá hlýtur Sjálfstæðis- flokkurinn líka að bregða á það eina ráð að rjúfa stjórnarsamstarfíð að fyrra bragði og bjóða Vinstri græn- um til sængur með sér. Samstarf sjálfstæðismanna við VG er ekki óhugsandi þegar litið er til sjávarútvegsmála almennt og samkomulag eða sérstök bókun um stjórnarstefnu varðandi Fljótsdals- virkjun er fráleitt útilokuð. Og víst er að þau mál sem fram undan eru í efnahagsmálum og kjaramálum yrðu auðleysanlegri með VG í stjómarráðinu en tví- eða marg- skiptan Framsóknarflokkinn. - Að sjálfsögðu er Samfylkingin ekki til umræðu og nýtist ekki í heilu lagi til stjórnarþátttöku. Gott er að hafa gler í skó... Carl J. Eiríksson verkfr. skrifar: Hinir sjálfskipuðu „sérfræðing- ar“ sem halda áfram baráttu sinni fyrir því að 21. öldin sé hafin grípa til ýmissa ráða til að blekkja fólk. Þeir sem ekki eru þeim sammála eru kallaðir „bókstafstrúarmenn". Þeir sem vilja bíða til loka þrítug- asta apríl, áður en mánaðamótin apríl/maí renna upp, þeir eru þá líklega „bókstafstrúarmenn". Eitt ráðið sem „sérfræðingarnir" nota er að slá öllu upp í grín með öf- ugmælum og rugli, jafnvel rithöfundar taka þátt í þessu. Einn „sérfræðing- urinn“ skrifaði að þegar bam yrði ell- efu ára hæfist fyrsta ár þess í öðr- um áratug! Annar skrifaði að Jesú hefði verið sjö nátta þegar árið 2 rann upp. Einn skrifaði að það væri almenn mál- venja að „hlaupa yfir fyrsta æviárið þegar aldur manna er reiknaður" og að barn væri „eins árs við fæð- ingu“ en hætti að vera eins árs á eins árs afmælinu (!) en eftir það aftur kallað eins árs næstu tólf mán- uði eftir afmælið. Saman við ruglið blanda „sér- fræðingarnir" síðan hárréttum at- hugasemdum sem fæstir taka mark á vegna þess að fólk ályktar að þeir séu bilaðir menn. - Til þess mun leikurinn gerður. Carl J. Eiríksson. Þarf að hagræða láglaunastefnunni? Guðrún María Óskarsdóttir skrifar: Hve mikill hluti láglaunafólks á íslandi er óvirkur þátttakandi í samfélaginu sökum þess að það nær því ekki að greiða skatta til sam- neyslunnar sökum lágmarkstaxta- greiðslu launa? Hve miklum hluta er refsað fyrir það eitt að ná skatt- leysismörkum og lenda þar með undir þeim hópum er ekki greiða skatta sökum launa undir skattleys- ismörkum? Það er nokkuð einkennilegt til þess að vita í góðærinu að vinnu- veitendur gefi fyrir fram þá yflrlýs- ingu að fyrirtækin séu rekin á lág- launastefnunni, með því að hafna tilboði um hækkun lægstu launa og frestun samninga í eitt ár. Það gef- „Mönnum kynni aö bregða viö ef haldinn væri úti- fundur allra þeirra er taka laun undir 100.000 krón- um á almennum vinnumarkaði." - Mótmælafundur á Ingólfstorgi. Launþegar mótmæla sjálftöku alþingis- manna á launum. ur tilefni til efasemda um raunveru- lega afkomu hinna ýmsu fyrirtækja í íslensku atvinnulífi. Hægt virðist vera að hækka laun starfsmanna hins opinbera í anda góðærisins og markaðslaunastefnu - þ.e. sumra, ekki annarra, og afls ekki þeirra sem enn eru undir 100.000 krónum eftir margra ára starfsaldur. Hvaða réttlætissjón- armið kann hið op- inbera fram að færa er það hækkar einn hóp umfram annan? Varla getur slíkt talist gott fordæmi? Nema skrifa eigi það sem mistök mis- heppnaðrar til- raunastarfsemi til þess að fela mönn- um vald tfl þess að ákveða laun sín sjálfir? Mönnum kynni að bregða við ef haldinn væri úti- fundur aflra þeirra er taka laun undir 100.000 krónum á al- mennum vinnumarkaði. En ekki er ólíklegt að það þyrfti til svo í ljós kæmi hve margir ná því ekki að baða sig í geislum góðærissólarinn- ar og sjá aðeins ský í stað sólar, þrátt fyrir vinnu frá morgni til kvölds. DV Sjónvarpsfréttir kl. 22 rýrar í roðinu HaUdór Ólafsson skrifar: Ég hef orðið fyrir vonbrigðum með seinni fréttir Ríkissjónvarps- ins. kl. 22. Sannarlega hefði verið hægt að gera þennan fréttatíma að flnum aðalfréttatíma kvöldsins en þarna eru mest endurtekningar frá fréttum kl. 19 ásamt stuttu heims- homi sem stúlka les undir hrað- myndasýningu sem minnir á Gög og Gokke-myndir í árdaga. Það er óþarfi fyrir Sjónvarpið að efha til fréttaupprifjunar kl. 22 ef uppskeran er ekki viðameiri en raun ber vitni. Margir bjuggust við að hér yrði létt einhverju af sjónvarpsokinu um kvöldmatarleytið og fært til seinni frétta. Kastljósið lofar góðu og það ætti miklu betur heima í seinni fréttunum til að gera þær áhrifa- meiri og eftirsóttari. Sleppa mætti þá alveg fréttum kl. 19 og koma með því til móts við fólk við kvöldborðið. Á að drepa Pinochet? Selma hringdi: Mér þykir vera uppi typpið á fyr- irbærinu Amnesti International sem er sagt vera mannréttindasam- tök með mannkærleik að leiðar- ljósi. Þau hafa nú krafist þess að fá aö skoða niðurstöður úr læknis- rannsókn á Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, sem setið hefur í stofufangelsi í Bretlandi. Samtökin vilja nú ásamt öörum álíka góðgerðasamtökum láta senda Pinochet þennan til Spánar, til Frakklands, Belgíu og um allar koppagrundir þar sem hans er kraf- ist til að sitja undir yfirheyrslum um gjörðir sínar á valdatíma hans. Hvað sem öllu líður er karlinn orð- inn 84 ára, heilsutæpur og væntan- lega varla að marka orð hans leng- ur. Hann skal samt á píningarbekk- inn fyrir orð mannúðarsinna. Og varla linna þeir látum fyrr en karl hefur verið drepinn eða eitthvað enn verra á undan. Hvað amar eig- inlega að þessu fyrirbæri, Amnesti Intemational, ég spyr bara? Uppynging í Flugleiðabatteríi Soffía Jónsdóttir skrifar: Það sló víst óhug á einhverja, eða ætti ég að segja hneykslun, þegar rekstraraðili Flugleiðahótelanna ákvað að segja upp konum með háan starfsaldur innan hótelanna. Víst er sárt að þurfa að yfirgefa vinnustað sinn, og það langt um aldur fram, ef ekkert annað er til- efnið. En svo brýnt sem stjómend- um hótelanna hefur þótt að losa sig við aldraðar hótelkonur þá hlýtur hiö sama að gilda um borð í flugvél- um Flugleiða þar sem þónokkuð ber á öldrun sumra þeirra kvinna sem enn em á faraldsfæti í þjón- ustu við farþegana og mismunandi léttar á brúnina. Áberandi er hve þjónustulið Atlantaflugfélagsins er yngra og áberandi lipurra, auk þess sem farkostimir eru stærri, rýmri og nútímalegri. Flugleiðir ættu því að ganga hreint til verks og stefna að allsherjar uppyngingu í batteríi sínu, frá þjónustuliði og upp úr. Aldrei neitt aöhafst Gunnar Bjömsson skrifar: I fréttum var talsvert gert úr þvi, bæði í blöðum og á ljósvakamiðlun- um, þegar starfsmenn í efri lögum Búnaðarbankans og fleiri nýttu sér vitneskju um hækkun hlutabréfa í Búnaðarbankanum og festu kaup á þeim. Verðbréfaþing íslands átti að hafa sett allt í gang, eins og það er stundum kallað, vegna málsins. En, eins og venjulega, var ekkert að- hafst af þess háifu, þess aðeins get- ið að herða þyrfti á reglum til aö fyrirbyggja svipaða uppákomu fyr- ir „næsta hring“ sem dansaður verður í verðbréfasirkusnum. Og við hverju var að búast af Verð- bréfaþingi sem sjálft er í eigu bank- anna, m.a.? Er þetta ekki dæmigert í eftirlitsgeirum þeim sem aðhald eiga að hafa með fjármálaveltunni, opinberri sem einkavæddri?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.