Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 5 Fréttir Ólafur Sigurðsson, framleiðsluráðgjafi Nuka A/S: Upprisu þorsksins beðið - um 2000 kílómetrar milli starfsstööva Nuka DV, Nuuk: „Ég fer á milli frystihúsa Nuka A/S og endurskipulegg framleiðslu- ferlið auk þess að fylgjast með starfsmannahaldi," segir Ólafur Sig- urðsson, framleiðsluráðgjafi stórfyr- irtækisins Nuka A/S í Nuuk. Ólafur, sem verið hefur á Græn- landi í 16 mánuði, ferðast á milli þeirra 32 starfsstöðva sem fyrirtæk- ið rekur um allt Grænland. Alls starfa hjá Nuka undir stjórn íslend- ingsins Gunnars Braga Guðmunds- sonar um 600 manns. Um er að ræða geysilega stórt svæði sem Ólafur þarf að ferðast um eins og sjá má af því að á vesturströnd Grænlands eru tæplega 2000 kílómetrar á mUli nyrstu og syðstu starfsstöðva. Thule er útvörður Nuka í norðri en i suðri er frystihús skammt frá Hvarfi. Að auki eru tvær starfsstöðvar á aust- urströndinni. Önnur í Scores- bysundi og hin í Kuumiiut við Ang- magsalikfjörð. „Það fylgja starfinu mikil ferða- lög með tilheyrandi uppákomum. Ferðalögin standa svona 8 til 10 mánuði á ári. Ég er nánast búinn að sjá ailt sem tilheyrir veiðum og vinnslu hér. Meðal annars tók ég þátt í að fanga ísbjörn þó það teng- ist ekki starfi mínu. Þetta var í Kuumiiut, skammt frá Kulusuk, þar sem ég var að vinna að endurbótum á grálúðuvinnslunni. Einum starfs- manna frystihússins varð litið út um gluggann og hann sá þá ísbjöm- inn. Það varð uppi fótur og fit í þorpinu og við eltum hann á báti sem ég stjórnaði. Þeirri viðureign lauk með því að bangsi féll. Þorps- búar skiptu síðan fengnum eftir ákveðnum reglum. Sá sem fyrstur sér isbjöm á rétt á skinninu og veiðimaðurinn sem særir björninn á rétt á gæðakjöti úr afturhlutanum. Ég kærði mig ekki um kjötbita þrátt fyrir að hafa unnið til þess enda ekki tilbúinn að éta ísbjamarkjöt," segir Ólafur sem reyndar er bróður- sonur ísbjamarbanans Jóns Péturs- sonar, skipstjóra á Guðnýju ÍS frá Bolungarvík. Jón lenti í miklu fjöl- miðlafári eftir að hann og áhöfn hans fónguðu ísbjöm út af Homi fyrir nokkrum árum. „Þetta er kannski í genunum,“ segir Ólafur og glottir. Ólafur segir mikla spennu vera ríkjandi vegna uppgangs þorsk- stofnins. Því sé spáð að stofninn komi upp af krafti eftir hrunið mikla og allir horfi til þess efnhag- sævintýris sem því fylgi. „Það eru mikil sóknarfæri hér í veiðum og vinnslu. Það mun verða mikil aukning í vinnslunni næstu árin. Stóra málið er þó endurkoma þorsksins en því er spáð að hann komi af krafti á næstunni. Fiski- fræðingar spá því að hrunið sem varð á níunda áratugnum eða sú lægð sem stendur enn verði að baki og jafnvel á næsta ári. Menn bíða með uppbrettar ermar enda allt að 400 þúsund tonn i pottinum. Við Ólafur Sigurðsson, framleiðsluráðgjafi Nuka, í höfuöstöövunum í Nuuk. Hann er þó sjaldan þar því um 200 daga á ári er hann úti á iandi í einhverjum hinna 32 starfsstöðva sem fyrirtækið rekur vítt og breitt um Grænland. DV-mynd Reynir ætlum okkur að vera klárir í slag- inn þegar þorskurinn kemur. Reyndar er mikið til af tækjum og vélum síðan þorskurinn var til stað- ar en það þarf þó að taka upp nýj- ustu tækni sem þróast hefur ört frá því þorskurinn hvarf,“ segir Ólafur. „Þetta er mjög spennandi starf og alltaf eitthvað nýtt að sjá. Ég er ekk- ert á leiðinni héðan enda líður mér vel og ég kann vel við Grænlend- inga og þá sérstaklega konurnar sem eru ægifagrar,“ segir Ólafur og hlær. -rt , DAGANA 2. TIL 9. FEBRUAR. ÚTSALA DEKK OG FELGUR OG MARGT FLEIRA. VERÐ FRÁ 3.990 25-50% AFSLÁTTUR. ÁO'JS 2S.7CC-, IMU 19,900 ÞRAÐLAUS GJORGÆSLA ASTANDi 19.900 ALFELGUR 30% AFSLATTUR 14« KR. 7.716 15« KR. 8.172 4 STK- ALFELGUR OG NY NEGLD DEKK 14*' KR. 49.900 15" KR. 56.900 NY SNJODEKK b AFSLÁTTUR 155-10R13, 165-70R13, 1 75-70R13, 175-70R14, 185-70R14, 175 65R14, 185-65R14, 195-65R15, KR. 2.845 KR. 3.111 KR. 3.102 KR. 3.467 KR. 3.780 KR. 3.731 KR. 4.091 KR. 4.537 JEPPADEKK 30% AFSLATTUR 235-75R15, KR. 7.016 30x9,50R15, KR. 7.583 31x10,50R15, KR. 8.033 4 STK. MEÐ 15x8 ÁLFELGUM 30« DEKK + FELGUR, KR. 74.900 31” DEKK + FELGUR, KR. 77.900 SENDIBILADEKK 30% AFSLÁTTUR 185-R14, KR. 4.804 195-70R15, KR. 5.946 20-40% AFSLÁTTUR OPIÐ FRA KL 8-20 DEKK OG FELGUR AF NÝJUM BÍLUM ÁLFELGUR. 16x7, 6 GATA, DEKK 245-70R, 4 STK. KR. 25.000 ALFELGUR. 16X7, 6 GATA, NY DEKK, 265-75R16, 4 STK. KR. 60.000 ALFELGUR, 16x7, 5 GATA, DEKK, 265-75R15, 4 STK., KR. 20.000 VERSLUN SUPURLANDSBRAUT 16 108 REYKJAVIK - s. 588 9747.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.