Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
7
DV
Fréttir
Irving ekki
í Kópavog
Hafnarstjóm Kópavogs treysti sér
ekki til að úthluta Irving-olíufélaginu
lóð og aðstöðu við Kópavogshöfn eins
og sótt hafði verið um. Irving-olíufé-
lagið mun því ekki fá aðstöðu í Kópa-
vogi á næstunni ef og þegar það held-
ur innreið sína á íslenskan markað:
„Þarna er allt undir grjóti og menn
lögðu hreinlega ekki í það að fara að
úthluta þesari lóð fyrir eina umsókn,"
sagði Sigurður Geirdal, bæjarstjóri i
Kópavogi, eftir fund hafnarstjórnar.
„Það verður ekki fyrr en síðar á árinu
sem menn geta farið að gera sér von-
ir um lóðir þama og þá er Irving-olíu-
félagið velkomið eins og aðrir,“ sagði
Sigurður.
Fjölmargar fyrirspurnir hafa borist
bæjaryflrvöldum í Kópavogi varðandi
aðstöðu við höfnina en þar hefur far-
ið fram mikið uppbyggingarstarf að
undanfórpu og miklu grjóti verið ekið
í sjóinn til að auka landrými.
„Við gerum til dæmis kröfu um það
að öllum jarðvegi, sem mokað verður
upp vegna væntanlegrar byggingar
verslunarmiðstöðvarinnar Smáralind-
ar, verði ekið í Kópavogshöfn. Það er
ekkert smáræði," sagði bæjarstjórinn.
-EIR
Kopavogshöfn - eftirsóttur staður.
Öldu Viggósdóttur var sagt upp störfum hjá íslandspósti í fyrrahaust en hefur ekki fengiö neinar haldbærar skýring-
ar á skyndiiegri uppsögn. Hún hefur leitaö ráöa hjá lögfræðingi en ef hún fær ekki starfið aftur mun hún fara meö
mál sitt fyrir dómstóia.
Steingrímur og frú í Taílandi:
Alþýðumaður
á ferðalagi
- og í fyrsta sinn í hópferö
Það þótti til tíðinda sæta hjá
Taílendingum að fyrrverandi for-
sætisráðherra og seðlabankastjóri,
Steingrímur Hermannsson, kæmi
í heimsókn til landsins án allrar
Steingrímur Hermannsson, fyrr-
verandi forsætisráöherra, og
kona hans Edda Guömundss-
dóttir.
umgjarðar. Þannig gekk hann
um, einn af flmmtíu manna hóp,
eins og hver annar ferðamaður.
Fjölmiðlar gerðu sér mat úr
þessu og undruðust að hann væri
í fór með „venjulegu" fólki, fólki
úr öllúm stéttum, án öryggis-
varða. Samkvæmt heimildum DV
spilaði hann golf við sjómenn og
bílstjórann í hópnum, og í raun
hvem sem var og spjallaði við að-
stoðarstúlkur á golfvellinum.
Á Taílandi fer ráðuneytismað-
ur ekki ferða sinna án þess að ör-
yggisvörður sé með í för. Þannig
var mál málanna hve íslendingar
væru mikið alþýðufólk en hvað
segir Steingrímur um ferðina til
Taílands?
„Þetta var í fyrsta sinn sem við
hjónin fórum í hópferð og það var
mjög ánægjulegt. Það voru góðir
ferðafélagar en þetta er langt og
strangt ferðalag. En það eru mjög
flnir golfvellir þar ytra,“ sagði
Steingrimur um 3ja vikna ferð
þeirra hjóna en þau komu heim
síðastliðinn laugardag. Steingrím-
ur lofaði fólkið og sagði það mjög
vingjarnlegt og alúðlegt. En það
væri kostur við okkar ágæta land
hve við gætum farið frjálst ferða
okkar. -hól
Sagt upp störfum eftir áratugastarf:
Eins og ótíndur
glæpamaður
- segir Alda Viggósdóttir
„Það er ekki hægt að bjóða fólki
að vinna með henni,“ voru þau
orð sem Alda Viggósdóttir fékk að
heyra þegar henni var skyndilega
sagt upp störfum hjá íslandspósti
eftir 30 ára farsælt stcuf hjá fyrir-
tækinu.
Alda haföi starfað sem af-
greiðslustjóri við póstafgreiðsluna
á Hellu frá því í fyrravetur en þar
áður var hún stöðvarstjóri á Sel-
tjarnamesi. Siðastliðið haust var
borið á hana að viðskiptavinir
hefðu kvartað undan henni og hún
væri leyst timabundið frá störfum.
Alda hreinsaði borð sitt og fór suð-
ur. Daginn eftir varð hún sér úti
um lögfræðing. Rannsókn á máli
Öldu átti að taka vikutíma sam-
kvæmt upplýsingum Andrésar
Magnússonar starfsmannastjóra
en Alda beið i tæpa þrjá mánuði í
þeirri trú að hún fengi að halda
áfram störfum sínum.
Lögfræðingur hennar sendi
starfsmannahaldi íslandspósts
bréf 12. október síðastliðinn, stílað
á Andrés Magnússon starfsmanna-
stjóra, og krafðist þess að fá send-
ar allar ávirðingar sem til væru á
hendur Öldu en Alda hafði aldrei
heyrt ávæning af því að kvartað
hefði verið yfir henni, hvorki frá
viðskiptavinum né samstarfsfólki.
Andrés símsendi bréfið til baka
með þeim athugasemdum að ekki
þætti ástæða til að svara bréfi
þessu. Rúmum mánuði síðar send-
ir Andrés Öldu bréf um að hún
væri leyst frá störfum og hún
fengi greidd laun næstu 12 mán-
uði. Alda endursendi bréfið en
barst síðan uppsagnarbréf 4. janú-
ar.
Ævistarfið rifið af mér
Alda, sem hefur allan sinn stafs-
aldur haft góða samvinnu við sam-
starfsfólk sitt, tekur uppsögninni
ekki þegjandi og hljóðalaust. „Það
trúir þessu enginn sem hefur unn-
ið með mér öll þessi ár. Þetta er
ótrúleg ósvífni og þeir koma fram
viö mig eins og glæpamann,“ segir
Alda um aðfarimar. „Starfs-
mannastjórinn er sérfræðingur í
að brjóta fólk niður. Ég læt ekki
rífa af mér æruna. Þetta hefur ver-
ið mitt ævistarf," sagði Alda. „Ég
hef aldrei gert neitt samkomulag
um starfslok og hef ekki hugsað
mér það. Ég óska eftir að fá starf
mitt aftur ellegar mun ég kæra ís-
landspóst fyrir hvernig staðið er
að starfsmannamálum," sagði
Alda.
í samtali við Andrés Magnússon
sagði hann að starfsmönnum væri
ekki sagt upp störfum nema ærin
ástæða væri fyrir hendi. „Við höf-
um verið í samningaviðræðum við
Öldu og vonumst til að ná sam-
komulagi við hana,“ sagði Andrés.
Þegar er búið að ráða í starf Öldu.
Andrés vildi þó ekki ræða hennar
mál frekar þar sem um einkamál
fyrirtækisins væri að ræða.
-hól
Simi 530 2800
www.ormsson.is
KALDIR
(Í)inDesiT
IhJ Husavarna
Tilboð á kæl
frá 21. ianúar
~ ii íi' T!f iimiii'iififii