Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Síða 10
10 ennmg MIÐVTKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 UV Æsa Sigurjónsdóttir listfrœöingur hefur rannsakaó ævi og verk Sigríöar Zoega Ijós- myndara sem uppi var á árunum 1889 til 1968 og er nú í brennidepli í upphafi menningarárs. Um síöustu helgi kom út bók Æsu um Sigríði, sýning var opnuö á um eitt hundraö Ijósmynd- um hennar í Hafnar- borg og loks var frum- sýnd heimildakvik- myndin í gegnum lins- una um líf hennar og starf „Sigríður Zoéga var í hópi fyrstu íslensku kvenljós- myndaranna," segir Æsa. „Hún var komin af reykvísku menntafólki, faðir hennar, Geir T. Zoega, var kennari og síðar rektor Menntakólans í Reykjavík. Hún fékk ung mik- inn áhuga á ljósmyndun og fékk vinnu hjá Pétri Brynj- ólfssyni sem rak umsvifa- mikla ljósmyndastofu í Reykjavík í byrjun aldarinn- Ljósmynd Sigríöar Zoéga af Einhildi Tómasdóttur húsfrú meö börnum sín- um, Sigríöi, Magnúsi og Óskari Jónasarbörnum (1919). myndir tók hún bara eftir pöntun. Hún er þessi klassíski borgaralegi stúdíóljósmynd- ari.“ Einfaldleiki í öndvegi - Var Sigríður góður ljós- myndari? „Það fer nokkuð eftir tíma- bilum eins og hjá öllum ljós- myndurum. Hennar frjóasta og besta tímabil er frá því að hún kemur heim frá námi og fram um 1930. Helsta einkenni hennar er ákveðinn einfald- leiki, og myndir hennar eru alveg lausar við tilgerð. Hún er fyrst og fremst með mann- eskjuna sjálfa, á stól, kannski við borð. Margir ljósmyndar- ar notuðu tjöld, jafnvel leik- tjöld í bakgrunn á þeim tíma en hún er aldrei með neitt slíkt. Hún setur sig yfirleitt í vissa fjarlægð frá viðfangsefn- inu. Kannski finnst manni barnamyndimar best heppn- aðar vegna þess að hún virð- ist hafa náð bestu sambandi við böm. Hún er laus við að vera ágeng en reynir að ná manneskjunni sem eðlileg- astri og það tekst henni oft vel.“ - Leit hún á sig sem lista- mann - eins og August Sander fornvinur hennar? hafði verið hjá og vædd nýjum tækjum. Það var sannarlega ekki algengt á þeim árum (og er varla enn) að ungar konur stofnuðu fyrir- tæki og því eðlilegt að telja hana meðal brautryðjenda á því sviði. Tæpu ári eftir heimkomuna, í april 1915, varð bruninn mikli í Reykjavík þegar mið- bærinn brann og þar með Austurstræti 14 og allar myndir og tæki Sigríðar. Þó að hún væri tryggð aö einhverju leyti var þetta hrikalegt tjón. En þær Steinunn hafa lagt fyrir á þessu eina starfsári því þær keyptu fljótlega ljósmyndastofu Péturs Brynjólfsson- ar sem þá var hættur starfsemi. 1917 fluttust þær svo í nýtt steinhús sem kennt er við Garðar Gíslason og ráku stofuna þar áratug- um saman. Árið 1955 gáfu þær Sigríður og Steinunn Þjóðminjasafni íslands allt ljósmyndaplötu- safn sitt, meira en 30.000 glerplötur, því Sig- ríður tók allar myndir á glerplötur nema sín- ar prívatmyndir, þær tók hún á filmur. Allt var þetta vandlega flokkað og númerað og spjaldskrá fylgdi með. „Meiri hlutinn er mannamyndir því Sig- ríður Zoéga var alla tíð fyrst og fremst í mannamyndum, bæði portrettum og hóp- myndum af öllu tagi,“ segir Æsa. „Hún þótti sérstaklega góður bamaljósmyndari. Nokkr- ar myndir tók hún líka í húsum manna, stofumyndir, og örfáar útimyndir en slíkar Áherslan á manneskjuna ar. Þar unnu þá marg- ar ungar stúlkur, fyrst og fremst við að retúss- era myndir, taka pant- anir og fleira, en þeim var haldið frá því sem var mest skapandi - að taka myndir." Sigríður gerði sér þetta ekki að góðu. Hún kynntist fjölmörg- um dönskum ljósmynd- urum sem komu hing- að í uppgrip meðan skortur var á menntuð- um ljósmyndurum inn- anlands, og svo fór að hún réðst í Danmerk- urför árið 1910, 21 árs. Reyndar var straumur íslenskra stúlkna til Hafnar á þeim árum, og flestar voru þær að leita sér menntimar af ýmsu tagi. Ekki gekk Sigriði vel að komast að sem lær- lingur á ljósmynda- stofu þar, en námskeið tók hún í Ijósmyndun, lærði undirstöðuna í handverkinu og tals- vert í efnafræði sem ljósmyndarar þurftu að kunna á þeim áium. Svo komst hún í sam- band við tvo afbragös kvenljósmyndara, Noru Lindström og Rósu Parsberg, og fékk vinnu hjá þeim. „En það var ekki það sem hún þráði,“ seg- ir Æsa, „alltaf lenti hún í þvi að retússera og dútla við frágang á myndum. Rósa hvatti hana þá til að leita til Þýskalands, þar væri auðveldara að komast í læri.“ Sigríður fór til Þýskalands vorið 1911 og eftir nokkurn tíma svarar hún auglýsingu frá ljósmyndara í Köln og fær starfið. Svo ótrúlega heppin var hún að ljósmyndarinn var August Sander sem nú er álitinn einn af meisturum 20. aldar í þessari grein. Hann leit þá þegar á sig sem listamann en var ekki orðinn eins frægur þá og hann varð síðar. Sigríður vann hjá Sanders frá sumrinu 1911 til vors 1914. Þá fór hún heim en þau August Sander héldu sambandinu meðan bæði lifðu. Sjálfstæður atvinnurekandi Sigríður opnaði ljósmyndastofu í Austur- stræti 14 strax og hún kom heim. Með sér fékk hún æskuvinkonu sína, Steinunni Thorsteinsson, sem hafði unnið hjá Pétri Brynjólfssyni, og þær fengu strax ótrúlega mikið að gera. Sigríður var ung og frísk, að- eins 25 ára, og vildi gera eitthvað nýtt, inn- blásin af þessum mikla listamanni sem hún Æsa Sigurjónsdóttir listfræöingur: Sigríöur var þessi klassíski borgaralegi Ijósmyndari. DV-mynd Hilmar Pór „Nei, hún leit ekki á sig sem listamann. Það er alveg á hreinu. Þar kemur ýmislegt til. Þegar hún kom heim frá námi gerði hún í stuttan tíma tilraunir með listræna Ijós- myndun þannig að við sjáum að hana lang- aði til að skapa listaverk í ljósmyndum. Svo fer hún út I þennan mikla atvinnu- reksttu- sem gekk mjög vel og hann tók alla hennar orku og tíma. Auk þess hafði hún sinn skammt af hlédrægni eins og algengt er meðal kvenna. Ef til vill hefur sambandið við Sand- er líka gert hana feimna. Það má sjá vissan skyld- leika með myndum þeirra, einfaldleikann og ýmsar uppstillingar til dæmis. En hún gerði sér fulla grein fyrir því hvað hann var mikill listamaöur." Það er geysilega gaman að skoða ljós- myndir Sigriðar, hvort sem maður hefur áhuga á andlitum, fatnaði á fyrri hluta aldar- innar, þróun í ljósmyndastíl, innanstokks- munum á heimilum og vinnustöðum eða ein- hverju enn öðru. Sýningin í Hafnarborg stendur til 28. febrúar. Reykjavík Egils Reykjavíkurmynd Egils Helgasonar blaðamanns og sjónvarpsstjörnu á sunnu- dagskvöldið var óvenjuleg og skemmtileg. Afstaða hans til borgar og ibúa minnti oft á annan íbúa 101, Hallgrím Helgason (þeir eru þó ekki bræður) - gagnrýnin en hlý- leg, fyndin en þó með alvöru upplýsingum. Helst mætti finna að því að endurtekning- ar voru nokkrar, bæði i máli og myndum, og kannski virkar ruglandi á útlendinga (sem manni skilst að fái að sjá þetta líka) hvað gamlar og nýjar myndir voru hverjar innan um aðrar án skýringa. Reyndar var kannski ekki nógu gott sam- band milli máls og mynda yfirleitt (enda tekur EgiO fram í helgarviðtali við Dag að Sjónvarpið hafi séð um myndskreytinguna og hann sé ekkert ýkja hrifinn af henni). Margt var þó vel gert i mynd, til dæmis voru flettiskiltin skemmtilega notuð - bara hugsanlega aðeins of oft... Stjörnuverðlaun Mikil þátttaka var í opnunardagskrá Reykjavíkur Menningarborgar Evrópu árið 2000 sem fram fór síðastliðinn laugardag á rúmlega 80 stöðum víðs vegar um borgina. Tugir þúsunda Reykvíkinga og gesta voru á ferðinni frá morgni til kvölds og til dæmis hefur ekki komið viðlíka fjöldi á einum degi í Ráðhús Reykjavíkur síðan það var form- lega opnað. Til viðbótar viö þá rúmlega 100 viðburði sem i boði voru gátu menningarborgarar tekið þátt í léttum stjömuleik sem fór fram á 10 stöðum. Stimplað var á sérstök stjörnu- kort, sem dreift var með Morgunblaðinu og DV og þurftu þátttakendur aðeins aö safna 5 stjömum til þess að geta skilað útfylltu spjaldi í pottana hjá upplýsingaboröi Ráð- hússins og Kringlunnar og í Árbæjarsafni. Hátt á þriðja þúsund kort skiluðu sér í pottana og í dag voru þrenn aðalverðlaun 'dregin út í beinni útsendingu Dægurmála- útvarps Rásar 2. Utanlandsferð fyrir tvo til Helsinki á tón- leika Radda Evrópu og Bjarkar hreppti Benedikt Alfonsson, Vatnsholti 8. Menningarpassa sem gildir fyrir tvo á alla viðburði menningarársins hlaut Guð- björg Guðmundsdóttir, Maríubakka 28. Ferð innanlands fyrir tvo á einhverja af þeim fjölbreyttu viðburðum sem eru á veg- um sveitarfélaga í samstarfi við Menningar- borg féll í skaut Hauks Þórs Harð- arsonar, Víkur- strönd 7. Auk þessa fá 700 þátttakendur, sem skilað hafa útfylltu leik- spjaldi, íslenska bók eða tónlistar- gjöf og munu þeir heppnu fá bréf á næstu dögum. Á myndinni er ungskáldið Davið Stefánsson að lesa upp í Kringl- unni. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir Bókmenntavefur Borgarstjóri opnaði á laugardaginn var - hinn mikla menningardag - bókmenntavef Borgarbókasafns sem er íslenski hlutinn af sameiginlegum bókmenntavef bókasaöia sjö menningarborga Evrópu árið 2000. Á sama tíma var opnuð sýningin Eining i fjölbreytni á efni frá þessum sjö borgum (Helsinki, Bergen, Boiogna, Prag, Kraká, Brussel og Reykjavík) í Foldasafni í Grafarvogi. Bókmenntavefurinn er að- gengilegur frá heimasíðu safns- ins: www.borgarbokasafn.is og þar má nú finna efni um og eftir sex ís- lenska rithöfunda, Einar Má Guðmundsson, Guðberg Bergsson, Guðrúnu Helgadóttur, Gyrði Elíasson, Steinunni Sigurðardóttur og Vigdísi Grímsdóttur. Vefurinn verður opnaður í heild sinni í Helsinki 29. febrúar og þá verður búið að þýða okkar hluta á ensku og dönsku. Verk- ið er unnið sem hluti af verkefnum menn- ingarársins og fékk meðal annars styrk frá Evrópusambandinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.