Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 Spurningin Hefuröu oröiö fyrir óþæg- indum lausra katta? Haukur Hauksson: Nei. Jón Möller: Nei, en þeir eiga ekki að fá að vera lausir. Jóhannes Erlingsson nemi: Nei, en þeir eiga alls ekki að fá aö vera lausir. Karen Dröfn Hafþórsdóttir nemi: Já, það er ’vægast sagt óþolandi að hafa þá breimandi fyrir utan húsið hjá sér. Þeir eiga alls ekki að fá að vera lausir. Vigdís Sigurðardóttir nemi: Nei, en þeir eiga ekki að fá að vera laus- ir, þeir skapa ónæði hjá fullt af fólki. íris Rise nemi: Nei, en þeir eiga ekki að fá að vera lausir. Lesendur Afrek samhliða námi - skíðaíþróttin dýrust íþrótta Kristinn Björnsson, okkar besti skíöamaöur. - Margir ungir menn lofa góöu en þurfa aö æfa og keppa viö bestu hugsanleg skilyrði, þau eru ekki fyrir hendi hér á landi. Sveinn Amdal Torfason, skíðaþjálfari á Dalvik, skrifar: Á síðustu árum hafa íslend- ingar verið að sækja í sig veðr- ið í skíðaíþróttinni og einna helst í alpagreinunum. Krist- inn Bjömsson hefur staðið sig vel og komið íslandi á kortið i skíðaheiminum. Margir ungir og efnilegir skíðamenn eru á hraðri uppleið og munum við sjá til þeirra á næstu árum. Allir þeir sem hafa verið að bæta sig í íþróttinni hafa dvalist erlendis við æfingar þar sem enginn skóli hér á landi býður upp á námsbraut fyrir skíðafólk sem vill stunda iþrótt sína af metnaði. En til stendur að VMA á Akureyri setji upp slíka námsbraut og til þess að hún geti gengið er margt sem þarf að huga að. Eins og háttar til hér á landi þegar þetta er skrifað er hvergi á landinu hægt að stunda skíði. Á Norðurlöndum standa fólki til boða æflngar í skíðamennta- skólum sem eru margir reknir af ríki hvers lands. Þetta eru viðurkenndir skólar og fá krakkamir metinn námsárangur. Sjálfur hef ég stundað nám við skíðamenntaskóla í Noregi. Mér er tjáð að samnorræn samvinna við alla framhaldsskóla sé á milli þess- ara landa. Á sínum tíma sótti ég um svokallaðan dreifbýlisstyrk sem er veittur þeim námsmönnum hér á landi sem ekki geta stundað nám í heimabyggð. Ég fékk afsvar og var sagt að ég gæti stundað nám við íþróttabraut hér á landi. Styrkurinn hefði komið að verulegu gagni. Þar sem ég hef unnið við skíða- menntaskóla erlendis veit ég svolít- ið um hvemig líflð í skólunum er. Margir halda að það sé rosalegt „sport“ að fara í skíðamenntaskóla en það þarf nokkuð meira til. Það er ekkert annað en stanslaus vinna. í hverjum árgangi eru 10-15 krakkar, hver úr sinni áttinni. Allir hafa brennandi áhuga á iþrótt sinni, allt snýst um íþróttina. Það eru æfingar 2-3 sinnum á dag og heildaræfinga- tími er frá 4-8 tímum á dag. Til að árangur náist í íþróttinni þarf þenn- an tíma í æfingar. í skólunum eru þjálfarar sem hafa þjálfaramenntun og langa starfsreynslu. Skíðaíþróttin er sennilega sú íþrótt hér á landi sem er dýrust. Oft er um að ræða hundrúð þúsunda króna. Það er umhugsunarvert að íslensk stjómvöld skuli ekki sjá sér fært að styrkja okkar íþróttafólk. Þá er ég ekki bara að tala um skíðaí- þróttina. Dreifbýlisstyrkurinn er þessu fólki mjög mikilvægur og get- ur yerið þáttur i því að hjálpa okk- ur íslendingum að eignast fleiri af- reksmenn í íþróttum. Carrie systir, frábær bók A.R.G. skrifar: Nýlega áskotnaðist mér bók sem ég ætlaði hreint ekki að nenna að lesa í bráð vegna þess að hún var 412 blaðsíður. Ég vissi þó að hér var um frægt verk mikilsvirts höfundar að ræða. Þetta var fyrsta skáldsagan sem kemur út á íslensku eftir bandaríska rithöfundinn Theodore Dreiser og eitt hans fremsta verk. Skjaldborg gefur söguna út í fram- úrskarandi og vandaðri þýðingu Atla Magnússonar. Raunar er þýð- ingin að mínu mati afrek og nær fyllilega þýðingum Snæbjarnar Jónssonar heitins á sínum tíma, t.d. á Tess af d’Urberville. Hér er saga um hina „föllnu konu“ sem þó er skrifuð með ailt öðrum hætti en þekkst hafði áður í Bandaríkjunum og þótt víðar sé leit- að. Það versta við svona bók er það eitt að það er erfltt að leggja hana frá sér fyrr en yfir lýkur. Frásögn- inni vindur fram með þeim hætti að lesandanum þykir sem atburðir hennar, líka þeir hrapallegustu og dæmalausustu, hefðu ekki getað orðið með öðrum hætti, líkt og seg- ir í ágripi um höfundinn í eftirmála í bókinni. Ég vil hvetja fólk sem metur góð þýdd erlend bókmenntaverk að láta ekki slíka perlu í skáldsöguformi fram hjá sér fara. Höfundurinn fékk ekki nóbelsverðlaun þótt hann ætti þau skilið að margra mati árið 1930 þegar þau hlaut Sinclair Lewis fyrstur bandarískra rithöfunda. Og það álit studdi William Faulkner í viðtali við Matthias Johannessen árið 1955. Ég hef ekki séð Carrie systir mik- ið auglýsta hér en þar er eftir miklu að slægjast fyrir þá sem hafa unun af meitluðum texta og mergjuðum mannlýsingum á fólki í mismun- andi stéttum og umhverfl sem tíðk- aðist í Bandaríkjunum á fyrstu árum síðustu aldar. Fólk sem ekki gleymist „Viö íslendingar höfum líka átt frábæra grínista og þaö í ýmsum starfsgrein- um.“ - Tveir góðir sem ekki gleymast, Bob Hope grínisti og Ólafur Thors, stjórnmálamaður og fyrrv. forsætisráöherra. Skarphéðinn Einarsson skrifar: Á ferð minni í Bretlandi fyrir stuttu átti ég þess kost að njóta eins konar sjónvarps- veislu sem var alls ráðandi í breskum fjölmiðlum um síð- ustu jól. Ég minn- ist m.a. Larry King á CNN sjónvarps- stöðinni þar sem Einársson. hann ræddi við hinn rúmlega 90 ára Bob Hope. Bob er einhver fræg- asti og vinsælasti skemmtikraftur sem Bandaríkjamenn hafa átt. Bob kom til íslands árið 1943 og skemmti hermönnum í Andrews íþróttahús- inu við Suðurlandsbraut (síðar Hálogalandi). Hann kom líka 1954 til Keflavíkur og skemmti í bíói með sama nafni (Andrews theatre). í þessum þætti með Larry King þjónusta allan sólarhringinn i—1 /—1 r \ /—1 r \x) /—1 'J'jL) -J fJj'J Lcsendur geta sent mynd af sér með bréfum sínum sem birt verða á lesendasíðu var Bob spurður hvort hann myndi sitt fyrsta skemmtiaðriði en það var „í hvora áttina snýst rófan á svín- inu?“ Bob svaraði samstundis: „Við sjáum það þegar þú ferð út á eftir". Við íslendingar höfum lika átt frá- bæra grínista og það í ýmsum starfs- greinum. - Mér dettur í hug saga er varðaði einn stórbrotnasta stjórn- málamann allra tíma á íslandi, Ólaf Thors. Hann var á fundi í Keflavík fyrir kosningar 1953 og talaði um mikilvægi sjávarins fyrir okkur. Ein- hver í salnum hrópaði: „Hvem andsk... heldur þú að þú vitir um sjó, maður sem drullast ekki úr rúmi fyrr en kl. 11“? Ólafur svaraði og benti á manninn um leið: „Þú mynd- ir ekki fara fyrr á fætur ef þú værir giftur henni Margréti rninni." Trúnaði viðhald- ið í skýrslum Adda Sigurjónsdóttir skrifar: Mér flnnst alveg rétt af yfir- lækni geðdeildar LSP og yfir- lækni heilsugæslustöðvarinnar í Árbæ að neita að afhenda mið- lægum gagnagrunni sjúkragögn. Þeir væru i raun að brjóta trún- að við sjúklinga ef þeir gerðu það, og ég vona að fleiri yflr- læknar annarra heilsugæslu- stöðva sjái sóma sinn í að við- halda trúnaði sínum við sjúk- linga sína. Ef yfirvöld bæru ein- hverja virðingu fyrir þjóðinni hefðu þau sent inn á hvert heim- ili eyðuhlað þar sem hver og einn gæti gefið leyfi sitt fyrir því að gögn um hann yrðu flutt í gagnagrunninn i stað þess að láta fólkið um að nálgast sjálft eyðublöð á heilsugæslustöðvum um að viðkomandi vilji ekki láta gögn sín í gagnagrunninn. Þetta er mikið siðleysi hjá yfirvöldum. islensk frétta- mennska Ólafúr Stefánsson skrifar: Það er athyglisyert að bera saman fjölmiðla á íslandi og er- lendis. Hér eru stjórnmálamenn látnir í friði með fjármál sín. Þegar þjarmað er að Kohl, fyrrv. kanslara, þá sleppur Ólafur Ragnar Grimsson við rannsókn. Margoft hefur Morgunblaðið bent á (t.d. 19. sept. árið 1998) og spurt um milljónatuga misræmi í bókhaldi Alþýðubandalagsins í formannstíð Ólafs. Samt spyrja fjölmiðlamenn hann einskis. Þeir gætu að minnsta kosti spurt, því ekki hefur Ólafur neitt að fela, eða hvað? Ekki geta ís- lenskir fréttamenn skýlt sér á bak við að ekki megi spyrja for- seta. 1 ísrael er Weismann forseti spurður spjörunum úr um millj- ónatuga misræmi í fjármálum. Hver er virkilega munurinn á þessum tveimur forsetum? Auð- vitað enginn þótt í sitt hvoru landinu búi. Hótanir Þorsteins Más Garðar Björgvinsson skrifar: Þorsteinn Már Baldvinsson hótar því að flagga inn skip- um sínum sem eru erlendis. Hann á í raun engin skip. Þau eru þjóðareign, því sameiginleg fiskimið lands- Garöar manna eru veð- Bjórgvinsson. sett fyrir þeim. Þorsteinn hótar aukinni rányrkju og auknum hryðjuverkum gegn lífríki hafs- botnsins. Hótanir þessar eiga að hræða hæstvirtan Hæstarétt ís- lands með tilliti til Vatneyrar- málsins. Þetta eru afar athyglis-. verð ummæli sem Þorsteinn Már lætur frá sér fara og ættu lands- menn að geyma þau í hugskoti sínu um sinn. Hvers vegna kattaútrýmingu? M.H.G. skrifar: Hvað gengur að fólki? Hvers vegna á að „hreinsa" miðbæinn af kisum? Eftir því sem ég best veit þá eru 99% katta í miðbæn- um búsettir inni á heimilum hjá fólki. Og þó að svo væri ekki. Hvað gefur þá mannskepnunni rétt til þess að útrýma kisum. Hvers vegna hafa mannskepnur meiri tilverurétt í þessum mið- bæ en kisurnar? Kettir eiga sér sitt líf, sína kunningjaketti, upp- áhaldsvini og uppáhaldsmat. Þeir láta vita ef það er eitthvað sem þeir eru ekki sáttir við og það sama gera þeir ef þeim líkar vel. Þeim fmnst gott að sofa og gaman að leika sér. Kannast ekki allir við þetta? Hvernig væri að sýna lífi þeirra smá virð- ingu? Ég á ekki fleiri orð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.