Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2000, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2000
Viðskipti________________________________________________________________________________________x>v
Þetta helst: Viðskipti á VÞÍ 2.098 m.kr. Mest með hlutabréf, 1.340 rn.kr., sem er met ... Mest viðskipti með
bréf Landsbankans, 795 m.kr., og lækkuðu bréfin um 7,03% ... íslenski hugbúnaðarsjóðurinn hækkaði um 9,15%
...Eignarhaldsfél. Alþýðubankinn um 7,51% ... Pharmaco hf. lækkaði mest eða um 7,41% eftir miklar hækkanir ...
Hagnaður íslenskra
verðbréfa 49 milljónir
- umsvif aukast á öllum sviðum
Hagnaður íslenskra verðbréfa hf.
(áður Kaupþing Norðurlands hf.)
nam 49,2 milljónum króna á liðnu
Hagnaður
EUROPAY
110
milljónir
- velta debetkorta jókst
um 42% og kreditkorta
um 38%
Hagnaður EUROPAY íslands á ár-
inu 1999 nam tæpum 110 miUjónum
króna eftir skatta, samanborið við
108 milljóna króna hagnað á árinu
1998. Hreinar rekstrartekjur voru
samtals um 797 miUjónir króna og
hafa þær aukist um 22,8% frá fyrra
ári. Þessar tölur komu fram á aðal-
fimdi félagsins sem haldinn var fóstu-
daginn 11. febrúar. Eigið fé félagsins
nam rúmum 1.020 mUljónum króna í
árslok 1999 og hækkaði mUli ára um
162 miUjónir, eða um 19%. Eiginflár-
hlutfaU samkvæmt ákvæðum laga
um banka- og lánastofnanir var
14,9% I árslok. Niðurstöðutölur efha-
hagsreUmings í árslok 1999 námu
4.182 mUljónum króna og hafa hækk-
að um 1.189 mUljónir króna, eða um
tæp 40% mUli ára. Handbært fé frá
rekstri jókst um 54 mUIjónir króna og
nam 219 mUljónum króna í lok árs.
Aukningin mUli áranna 1998 og 1999
í veltu kreditkorta undir merkjum fé-
lagsins var rúm 38% en tæp 42% í
veltu debetkorta.
ári. Þetta er mun betri afkoma en á
árinu á undan þegar hagnaöurinn
var 2 milljónir króna.
Aukning varð á öllum sviðum
starfseminnar en félagið er eina lög-
gilta verðbréfafyrirtækið með höf-
uðstöðvar utan höfuðborgarsvæðis-
ins. Starfsfólki hélt áfram að fjölga
og voru starfsmenn 16 í árslok.
Heildartekjur félagsins námu
282.6 milljónum króna og jukust um
152% miðað við fyrra ár. Að frá-
degnum fjármagnsgjöldum og reikn-
uðum gjöldum vegna verðlagsbreyt-
inga, námu hreinar rekstrartekjur
185.7 milljónum króna en voru 69,7
milljónir króna árið 1998. Rekstrar-
gjöld hækkuðu úr 65,5 í 114,7 millj-
ónir króna. Að teknu tilliti til tekju-
og eignarskatts nam hagnaður árs-
ins síðan 49,2 milljónum króna.
Eignir félagsins í árslok námu
samtals 1,7 milljörð-
um króna. Eigið fé
nam 189,7 milljónum
króna og hækkaði úr
123,1 milljónum
króna króna á milli
ára. Eiginfjárhlutfall
reiknað út sam-
kvæmt lögum um
viðskiptabanka og
sparisjóði nemur
11,3% og CAD-hlut-
fallið var 11,73% en
það má lægst vera
8,0%. Hlutafé í árs-
lok 1999 nam 75,3
milljónum króna.
Mjög sáttur
Sævar Helgason framkvæmda-
stjóri segist ekki geta verið annað
en sáttur við árangur liðins árs.
„Þetta var i ýmsu tilliti
ár breytinga. Á árinu
urðu m.a. verulegar
breytingar á eignarað-
ild, farið var í umfang-
mikla stefnumótunar-
vinnu og við tókum
upp samstarf við eigna-
stýringar- og sjóða-
vörslufyrirtækið Áber-
deen, eitt hið virtasta í
heimi. Loks má nefna
þá breytingu sem gerð
var á nafni félagsins nú
um áramótin. Mest um
vert er auðvitað að
starfsfólkið hefur hald-
ið áfram að byggja fé-
lagið upp og ávinna því
traust viðskiptavina en á því trausti
byggjum við tilveru okkar,“ segir
Sævar.
Sævar Helgason, fram-
kvæmdastjóri Islenskra
veröbréfa
Kögun hækkað um
94% frá áramótum
Bréf í hugbúnaðarfyrir-
tækinu Kögun hf. sem
skráð eru á Opna tilboðs-
markaðinum hækkuðu um
16,5% i viðskiptum gær-
dagsins. Frá áramótum hef-
ur verð bréfanna hækkað
um 94%. Fjármálafréttir
Viðskiptastofu SPRON í
morgun ijölluðu m.a. um
hækkun á gengi bréfa Kög-
unar.
Gunnlaugur M.
Sigmundsson,
framkvæmdastjóri
Kögunar
Þar er bent á ýmsar
ástæður sem hugsanlega
hafa leitt til hækkunar á
gengi félagsins. Sem
kunnugt er keypti félagið
á föstudag 60% í Vefmiðl-
un ehf. sem rekur vefsetr-
ið NetDoktor.is. Markmið-
ið Kögunar með kaupun-
um er meðal annars að út-
víkka starfsemina inn á
svið reksturs vef- og net-
setra. Þá benda Fjármálafréttir á
að sjálfsagt hafi fyrirhuguð skrán-
ing á Aðallista VÞÍ haft jákvæð
áhrif sem og frétt á Viðskiptavefn-
um á Vísi.is i gærdag og í Við-
skiptablaðinu í liðinni viku þess
efnis að einn stærsti fjárfestinga-
banki Bretlands hafi metið danska
Internetfyrirtækið NetDoctor á
um 50 milljarða íslenskra króna.
Hagnaður Jarðborana 91 milljón króna
- ágætt uppgjör en gengið lækkaði
Hagnaður samstæðu Jaröborana
hf. árið 1999 var 91,2 milljónir
króna, samanborið við 71,0 milljón
króna árið áður. Hagnaðurinn á síð-
asta ári var heldur minni en sér-
fræðingar höfðu spáð í Viðskipta-
blaðinu í byrjun árs. Hagnaður ný-
liðins árs nam um 9,6% af heildar-
tekjum fyrirtækisins. Fram kemur í
tilkynningu frá Jarðborunum að af-
koman er í samræmi við þá áætlun
félagsins. Hins vegar lækkaði gengi
á bréfum félagsins nokkuð eftir að
uppgjörið var birt eða um 5,2%.
Heildarvelta samstæðu Jarðbor-
ana nam 945,8 milljónum króna en
var 652,4 milljónir árið á undan.
Veltan jókst því um 45% milli ára. í
tilkynningu félagsins kemur fram
að erlend verkefni nema um 17% af
heildarveltu Jarðborana. Rekstrar-
hagnaður án fjármunatekna var
123,9 milljónir króna, samanborið
við 92,5 milljónir árið á undan.
HeOdareignir Jarðborana voru
bókfærðar á 976,4 milljónir króna í
árslok 1999 og skiptust þannig að
fastafjármunir námu 713,9 milljón-
um en veltufjármunir námu 262,5
milljónum. í árslok 1999 nam eigið
fé félagsins 726,4 milljónum króna.
Eiginijárhlutfall í lok árs 1999 var
74,4% en var 78,5% í lok árs 1998.
Arðsemi eigin fjár nemur 14,8% en
var 13% árið á undan.
Á aðalfundi félagsins mun stjóm
Jarðborana leggja til að hluthöfum
verði greiddur 12% arður af hlutafé
eða um 31,1 milljón króna.
Gríöarleg viöskipti meö
Landsbankann
í gær voru alger metviðskipti
á VÞÍ. í heild sinni voru við-
skipti meö hlutabréf tæpar 1.200
milljónir króna. Þar af voru við-
skipti með bréf Landsbankans
fyrir tæpar 800 milljónir. í þess-
um viðskiptum lækkaði gengi
bankans um hvorki meira né
minna en 9 prósent. Þetta eru
langmestu hlutabréfaviðskipti
sem hafa átt sér stað á einum
degi, bæði í heild sinni og með
einstök félög. Það vekur athygli
að þessi viðskipti og þessi mikla
lækkun kemur nú stuttu fyrir
birtingu ársuppgjörs.
Krónan styrkist
íslenska krónan styrktist í
gær og í fyrradag í kjölfar vaxta-
hækkunar Seðlabankans á föstu-
dag.
Vísitalan fór úr tæplega 110 í
109,27 í litlum viðskiptum á
mánudaginn, fór svo i 109,40, þar
sem hún var fram yfir hádegi, en
þá styrktist hún og endaði dag-
inn í 108,96. Styrking dagsins
nam því tæpu 1% og er líklega
mesta breyting krónunnar á ein-
um degi frá því gengið var fellt
árið 1993. Vísitala krónunnar
stendur nú í 108,4 og hefur hún
því haldið áfram að styrkjast.
Loönufrysting fyrir
Japansmarkað
Loðnufrysting er hafin fyrir
Japansmarkað. Morgunfréttir
F&M greindu frá þessu i gær.
Þar kemur fram talið sé mögu-
legt að selja um 5000 tonn til Jap-
ans sem er mun minna en síð-
asta ár. Má ætla að nettótekjur
af þessum viðskiptum séu um
200 milljónir og skilaverð 40
krónur á kílóið. Þetta gæti gefið
jákvæða en litla framlegð af
starfseminni. Þar sem hráefnis-
verð er lægra hér en í Noregi og
stofhkostnaður við frystingu er
mikill má telja að Norðmenn
þurfi hærra skilaverð en íslend-
ingar en Norðmenn hafa nú
aukna möguleika á að frysta
loðnu vegna aukins kvóta.
Aukning hjá Barclays
Hagnaður Barclays-bankans
jókst um þriðjung á milli ára.
Morgunfréttir F&M greindu frá.
Ástæðan var fyrst og fremst góð
afkoma af markaðsstarfsemi
bankans. Mikill vöxtur neyslu
jók hagnað í viðskiptabanka-
starfseminni um 16% en afskrift-
ir útlána jukust einnig um 26%.
Barclays er með 500.000 við-
skiptavini á Netinu sem setur
hann í fyrsta sæti í Bretlandi en
bankinn væntir að notendur
verði 1 milljón í lok þessa árs.
tescn
Kveikjuþræðip
Verslun full af
nýjum vörum!
Albarkar.
Bensíndælur.
Bensínlok.
Bensínslöngur.
Hjólalegur.
Hosuklemmur.
Kúpllngar,
Kúpllngsbarkar og
undlrvagnsgormar.
Ralmagnsvarahlutlr.
Topa vökvafleygar
vlgtabúnaður.
Tlmareimar.
Vatnshosur
og strekkjarar.
Þurrkublöð.
i «
Kveikjuhlutir
varahlutir
...í miklu úrvali
Þjónustumiðstöð í hjarta borgarinnar
BRÆÐURNIR
BOSCH
Kerti
Lágmúla 9 • Sími: 530 2800 • Fax: 530 2820 §
1 BOSCH verkstæðið aðkeyrsla frá Háaleitisbraut