Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2000, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2000, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2000 7 Fréttir Iðnskólinn: „Frímann" skammaður - lofar að gera þetta aldrei aftur „Ég var ekki rekinn. Aðstoðar- skólameistarinn skammaði mig fyr- ir athæfið og ég lofaði að gera þetta aldrei aftur,“ sagði Helgi Runólfs- son, nemandi í Iðnskólanum, sem hringdi í útvarpsstöð i ófærðinni í fyrramorgun og tilkynnti að öll kennsla félli niður í Iðnskólanum vegna óveðurs. „Ég var sjálfur kom- inn i skólann á réttum tíma en hitti þar einhverja krakka sem sögðu mér að það yrði engin kennsla fyrir hádegi. Þá ætlaði ég að láta vin minn vita svo hann þyrfti ekki að vera að berjast í skólann en náði ekki sambandi við hann. Þá datt mér i huga að hringja í útvarpið ef hann skyldi vera að hlusta," sagði Helgi sem er á átjánda ári og stund- ar nám í tölvufræðum í Iðnskólan- um. Símhrihging hans varð til þess að fáir mættu í skólann og átti það jafnt við um nemendur sem kenn- ara. Fyrir bragðið er Helgi nú nefndur „Frímann" í Iðnskólanum. Þegar Ingvar Ásmundsson skóla- meistari var inntur eftir viðbrögð- um skólayfirvalda vegna tilkynn- ingar nemandans vora skilaboðin þessi: „Umræddur maður er ekki nemandi við þennan skóla.“ Þegar það var borið undir Helga sjálfan, svaraði hann: „Víst er ég í Iðnskólanum." -EIR Misvísandi fuUyröingar vegna Ánastaöa á Mýrum: Erum ekki að tala um sömu hrossin - segir Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir Hjónin Hilmar Kristinsson og Linda Magnúsdóttir hjá Sókn gegn sjálfsvfgum. „Því miður eiga margir um sórt aö binda og hugleiöa þaö aö svipta sig lífi“. Sókn gegn sjálfsvígum: Þögul hróp í þján- ingu þagnarinnar „Maður skyldi ætla að þeir sem hrópuðu hæst hefðu tekið hrossin sín og farið með þau suður til að- hlynningar. En sumir komu þeim fyrir annars staðar, þ. á m. á bæ þar sem aðrir hafa þurft að sjá um fóðr- unina því maðurinn sem þar býr er farinn. Og enn er einn hestur þama sem eigandinn hefur verið beðinn um að taka en hefur ekki gert enn.“ Þetta sagði Gunnar Gauti Gunn- arsson, héraðsdýralæknir á Hvann- eyri, um ástand og eftirlit með hrossum að Ánastöðum á Mýrum. Gunnar Gauti sagði að búið væri að útvega síld og grasköggla handa þeim 25 hrossum sem eftir eru, auk miklu betra heys en þeim hefði ver- ið gefið áður. Búið væri að gefa hrossunum ormalyf og vítamín. Forðagæslumaður leiðbeindi ábú- anda með fóðrun þeirra. Gunnar Gauti sagði að þau hross sem hefðu verið til umræðu í frétt- um vegna lélegs ástands hefði verið búið að taka frá Ánastöðum áður en smölunin fór fram þann 4. febrúar sl. „Því sáum við þessi hross aldrei," sagði hann. „Eigendur voru að taka þessi hross á siðustu dögum áður en við komum þarna og fara með til Reykjavíkur. Þau hafa hugs- anlega verið mjög slæm en um það get ég ekki dæmt því ég sá þau ekki. Fréttatilkynning, sem sveitarstjóm- in sendi frá sér, var einungis miðuð við þau hross sem við sáum þama. Þess vegna er þetta misvísandi, ann- ars vegar varðandi illa útlítandi hross, sem dýralæknirinn í Reykja- vík hefur sagt að hafi komið til sín, og hins vegar sá hópur sem ég hef farið yfir ásamt forðagæslumanni og ráðunaut." Janet Grant: Spánarbanni verði aflétt Janet Grant hefúr óskað eftir því formlega við spænsk yfirvöld að þau aflétti sem fyrst af henni fimm ára banni við að koma til Spánar og ann- arra landa Evrópusambandsins. Janet segir í bréfi sínu að með bann- inu bijóti Spánveijar á mannréttind- um hennar sem móður tveggja bama en þeim var ekki heimilað að fylgja Janet frá Spáni þegar hún var flutt þaðan nauðug í júlí í fyrra. Róbert Ámi Hreiðarsson, lögmað- ur Janetar, er nú staddur á Spáni og mun þar ganga erinda skjólstæðings síns. -GAR Aðspurður um hve mörg hross á Ánastöðum væru ófundin enn, sagði Gunnar Gauti að fjögur væru enn ófundin. Einn hestur hefði kom- ið í leitimar eftir að smalað var. „Það fór mannskapur til að smala margar eyðijarðir sem eru á þessum slóðum. Víðáttumar eru mjög mikl- ar þarna. En maður sem býr á næstu jörð ætlaði að athuga hvort þau hefðu farið saman við hans stóð.“ -JSS Líknarfélagið Sókn gegn sjálfsvíg- um stendur fyrir stuðningshópum fyrir þá sem eru í sjálfsvígshugleið- ingum og fyrir þá sem misst hafa ást- vin vegna sjálfsvíga. Allir em vel- komnir en fundimir eru haldnir hvert miðvikudagskvöld að Héðins- götu 2, klukkan átta. „Við erum að aðstoða fólk við að komast út úr þögninni og vinnum undir kjörorðinu: Þögul hróp í þján- ingu þagnarinnar. Margir eiga um sárt að binda og ftnnst ekkert ganga upp í lífinu. En við aðstoðum þá sem líður illa við að finna tilgang til að halda áfram,“ segja hjónin Hilmar Kristinsson og Linda Magnúsdóttir hjá Sókn gegn sjálfsvigum. Á fúndunum era haldnir stuttir fyrirlestrar um sjálfsvíg, þunglyndi, ótta, fyrirgefhingu, að sættast við for- tíðina og að horfast i augu við sjálfan sig, svo eitthvað sé nefnt. Hiimar sagði marga sem leita til þeirra vera með slæma sjálfsímynd og sjá lífið ekki í réttu ljósi. Hilmar og Linda hafa auk þess beitt sér fyrir forvam- arstarfi í skólum landsins en umræða um sjálfsvíg ungs fólks hefúr verið af skomum skammti. „Stjómvöld þurfa að gera sér grein fyrir að þetta er þjóðarvandamál," segir Hilmar en sjálfsvíg era alltof algeng hér á landi og þá sérstaklega meðal ungra manna. Líknarfélagið hefur auk þess starf- rækt Liflinuna en hægt er að hringja þangað hvenær sem er sólarhrings- ins. Síminn er 577 5777. -hól Uppliföu Exp§rl§ncB thc Maglc ofAS/400 Nýherji efnir til ráðstefnunnar „Experience the Magic of AS/400“ (Akoges salnum, Sóltúni 3,2.hæð,Reykjavík, föstudaginn 18. febrúar nk. klukkan 9.00 til 16.15. Dagskrá ráðstefnunnar Nýjungar ÍASI400 Notkun Operations Navigator AS/400 í opnum heimi AS/400 og NT miðlari Network Station Manager fýrirAS/400 ASI400 sem skráa- og prentmiðlari Það heitasta íAS/400 Undirtitill ráðstefnunnar er „Ég vissi ekki að AS/400 vélin mín gæti þetta". Fyrirlestrar fara fram á ensku og eru að mestu leyti haldnir af erlendum IBM sérfræðingum. Ráðstefnan byggist á fyrirlestrum og sýnikennslu. í lok ráðstefnunnar fær einn heppinn þátttakandi IBM WorkPad að gjöf. Þátttökugjald er 1.500 kr. Innifalið í þátttöku er kaffi, hádegismatur og léttar veitingar í lokin. Þátttaka tilkynnist til Nýherja fyrir ló.febrúar nk.í tölvupóstfangið omar@nyherji.is, í síma 569 7700, 569 7870 (Júlíana) eða í fax nr. 569 7859. NÝHERJI www.nyherji.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.