Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Page 23
DV LAU G ARDAGUR 4. MARS 2000 mik s „Loosers" skipuðu 3 efstu sætin Þegar talið berst að þvi hvaða kostum góður pílukastari þurfi að vera gæddur, hvort sportið sé kostnaðarsamt og hvort einhverjar aðrar dillur einkenni heim pílu- kastarans hefur Hallgrímur þetta um málið að segja: „Góður pílu- kastari þarf fyrst og fremst að vera einbeittur og halda góðu jafnvægi. Það getur líka verið gott að stunda annars konar íþróttir, s.s. skokk, körfubolta, knattspymu eða lík- amsrækt sem eru meðal þeirra íþrótta sem sumir keppnismanna okkar stunda, en auðvitað er það bara persónubundið," segir Hall- grímur. „Iþróttin sjálf er ekki dýr og stofnkostnaður í lágmarki. Spjöld- in kosta um 4000 kr. og pílurnar, þrjár í pakka, á bilinu 1000-2000 kr. Mesti kostnaðurinn er kannski einkum fólginn í því að við þurfum að mestu leyti að borga ferða- og keppniskostnað sjálfir. Við höfum reyndar leitað í einhver fyrirtæki en það hefur gengið svona upp og ofan að fá fjárframlög frá þeim.“ Hallgrímur segir helstu duttl- unga pílukastara vera þá að keppn- ismenn merki sér gjarnan pUurnar með nafni. Nafn viðkomandi sé þá letrað á „plastfjaörir" pUunnar og þá fari ekkert á mUli mála hver eigandinn sé. „Annað sem mér dettur í hug og einkennir pUukast- iö hér á landi eru nöfnin á liðun- um. Þeim eru oftast gefin mjög hlé- dræg nöfn á borð við „pláguna" og „loosers" en svo eru líka tU „hig- hlandcrs", „knights" og „champ- ions“. Ég er einmitt í loosers," seg- ir Hallgrímur, en keppnismenn úr því liði skipuðu 3 efstu sætin á móti sem haldið var fyrir skemmstu þar sem HaUgrímur náði 2. sæti og verður því nafngift- in að teljast öfugmæli. svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Út með bílinn - inn með pílurnar Aðspurðir hvort Norðurlanda- mótið sem fram undan er taki ekki mikinn tima frá þeim segja HaU- grímur og Steingrímur vissulega svo vera. „Ef maður ætlar að ná ár- angri er ekki nóg að sækja bara æf- ingarnar hér á Grandrokk heldur þurfa menn að æfa sig heima, helst daglega," segir Steingrímur. „Hafið þið aðstöðu til að æfa heima við?“ „Það er auðvitað upp og ofan en ég get sagt þér frá einum sem kepp- ir í landsliðinu og er KR-ingur mik- iU. Hann er búinn að setja pílu- spjald upp á vegg og innrétta bU- skúrinn fyrir æfingaaðstöðu. Það kemst ekkert annað fyrir þarna inni á meðan hann er að æfa og bíUinn er meira að segja látinn standa úti yfir vetrartímann," segir Steingrím- ur og skeUir upp úr. Kastaði eins og engill Þegar talið berst að þvi hvort ís- lenska landsliðið í pUukasti viti eitt- hvað um andstæðingana sem mæta þeim á Norðurlandamótinu og hvort þeir hafi einhver ráð á tak- teinum segja þeir svo ekki vera. Þeir hafi ekki lagt neina rækt við slíkar njósnir en hitt sé annað mál að á löngum keppnisferli fari kepp- endur óhjákvæmilega að kannast hver við annan. „Ég man eftir ein- um Svía sem við kepptum eitt sinn við. Hann gekk inn í salinn eða skrykktist réttara sagt þar sem hann var með parkisonsveikina. Ég man að ég hugsaði með mér að þetta þyrfti ég að sjá enda átti ég bágt með að trúa mínum eigin augum. Þegar röðin kemur loks að honum skrykkist hann að spjaldinu og er aUur á iði en í því sem hann lyftir pUunni og miðar er eins og slokkni á honum og hann kastar eins og engiU. Ég hefði hreinlega ekki trúað þessu ef ég hefði ekki séð það með eigin augum,“ segir Steingrímur og hlær við. Spilað á föstudaginn langa Það á einnig vel við að heyra hljóð- ið í kvenspUurunum, enda hafa þær staðið sig vel á mótum að undanfórnu. Ein þeirra er Sonja Viktorsdóttir sem er hæst á stigamótum kvenna á þessu ári. „Ég kynntist pílukasti fyrst árið 1995 en fór að stunda það af kappi í kringum 1997. Fyrstu kynni mín af íþróttinni hófust einmitt á Grandrokk en ég var Ujótiega byrjuð að spila á mótum, m.a. á svoköUuðum fóstudags- ins langa-mótum." Sonja segir mikUvægast að vera vel útsofinn og í andlegu jafnvægi fyrir keppni. Sjálf stundi hún úti- vist og skíðaíþróttir og það sktii sér í góðu jafnvægi. „Ég fer í þessa keppni með því hugarfari að gera mitt besta. Svo verðum við bara að bíða og sjá til hvað framtíðin ber í skauti sér,“ segir Sonja að lokum. -KGP /rBestu vopnin gegn beinþynningu eru öllum aðgengileg ▼ ■■ Hollir lífshættir alla ævi eru besta vörnin gegn þessari vá. Hæfileg hreyfing, kalk og D-vítamín gegna þar lykilhlutverki. Lýsi og fjölvítamín eru heppileg D-vítamínuppspretta en þægilegasta leiöin til að tryggja sér nægilegt kalk er að drekka mjólk og neyta annarra mjólkurvara. „Mjólk" er samheiti yfir alla drykkjarmjólk, nýmjólk, lóttmjólk, undanrennu og fjörmjólk. Einnig mó fá kalk úr öðrum mjólkurvörum, s.s. osti og sýrðum mjólkurvörum. Hollusta styrkir bein! iliil BEINVERND ÍSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR Beinþynning er alvarlegur sjúkdómur sem árlega veldur um 1000 beinbrotum hér á landi. Eftir því sem meðalaldur þjóðarinnar hækkar fjölgar tilfellum. Ef ekkert verður að gert verður beinþynning eitt helsta heilsufarsvandamál nýrrar aldar. Við beinþynningu verður rýrnun á beinvef og beinin verða stökk. Hryggjarliðir falla saman, líkaminn verður hokinn og hætta á brotum eykst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.