Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Qupperneq 33
T>W LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
ýjÉvikmyndir *>
Úthlutun til einstakra leikstjjóra
-1980-2000
milljónir króna á núvirði
0 20 40 60 80 100 120 14C
Lárus Ýmir Óskarsson. Hann er sá leikstjóri sem hef-
ur fengið mest úr kvikmyndasjóöi miðað við fjölda
mynda og verðskuldar heist nafnbótina „styrkjahöfö-
inginn".
styrkjahöfðingi en hann geröi aðeins
eina kvikmynd, Ryð, með styrk úr
Kvikmyndasjóði. Hann fékk til þess
34,6 milljónir á núvirði en aðeins 12
þúsund áhorfendur komu að sjá mynd-
ina. Þetta gerir samanburð við aðra
Lárusi mjög óhagstæðan.
Hvað erborgað með hverjum
Eins og sjá má í töflu hér til hliðar
er gerð tilraun til að tengja framlag
Kvikmyndasjóðs til einstakra mynda
t.d. með því að deila því á fjölda áhorf-
enda. Myrkrahöfðinginn kemur sýnu
verst út úr þeim
samanburði og
reyndar á Hrafn
Gunnlaugsson þrjár
efstu myndimar á
þeim lista. Það eru
aðeins Draumadísir
Ásdísar Thoroddsen
sem komast upp í
þriðja sæti en sú
mynd fékk afar litla
aðsókn þótt hún
væri ekki sérlega
dýr. Athygli vekur
að á listanum yflr
þær 10 myndir sem
koma verst út í sam-
anburði styrkveit-
inga og aðsóknar á
Friðrik Þór aðeins
eina mynd sem er
Skyttumar.
Sú mynd sem
kemur best út úr
þessum samanburði
er Með allt á hreinu
sem Ágúst Guð-
mundsson gerði
með Stuðmönnum.
Þar kemur tvennt
til. Styrkur Kvik-
myndasjóðs til
hennar var lágur en
aðsóknin sú mesta í sögu íslenskrar
kvikmyndagerðar til þessa.
Hvað er tapstyrkur?
Tapstyrkur er skrýtið hugtak sem
kemur þó einu sinni fyrir í plöggum
Kvikmyndasjóðs. Það henti stundum
íslenska kvikmyndagerðarmenn að
veðsetja ailar eigur sínar í listrænum
bjartsýnisflogum. Einu sinni sá Kvik-
myndasjóður sig tilneyddan til að hífa
menn úr skuldafeni. 1990 fékk Atóm-
stöðin samtals 1,9 milljónir í tapstyrk
og einnig Guðný Halldórsdóttir vegna
Kristnihalds undir Jökli.
Mvndin sem
aldrei var gerð
Þegar flett er til-
kynningum Kvik-
myndasjóðs um styrk-
veitingar i 20 ár, eins
og gert við við
vinnslu þessarar
greinar, kemur margt
forvitnilegt í ljós.
Einn flokkurinn er
myndir sem aldrei
voru gerðar. Kvik-
myndasjóður hefur
oft lagt styrki til kvik-
mynda sem aldrei litu
dagsins ljós og sér-
stakasta dæmið er án
efa verkefnið Skálda-
saga sem Ágúst Guð-
mundsson fékk
tvisvar sinnum styrk
til að vinna handrit
að á árunum 1983 og
1985, samtals rúmar
4,2 milljónir á nú-
virði.
Ágúst fékk reyndar
tvisvar sinnum styrk
til að gera risastóra
kvikmynd sem átti að
heita Hamarinn og
krossinn en skilaði
styrknum í bæði skiptin því ekki
tókst að fá fjármagn.
Erindisleysan mikla hét kvik-
mynd sem Eyvindur Erlendsson
reyndi að gera á árunum 1985-86.
Eyvindur fékk samtals 16,2 milljón-
ir á núvirði til gerðar myndarinnar
en leysti aldrei út seinni styrkinn
en sá fyrri, 6,6 milljónir, fór í kostn-
að.
Umbi, fyrirtæki Guðnýjar Hall-
dórsdóttur, fékk 1,2 milljónir í
handritsstyrk út á Jörund hunda-
dagakóng 1991. Sú mynd bíður enn
en Ágúst Guðmundsson er reyndar
líka að hugsa um að gera mynd um
ævi Jörundar með breskum fram-
leiðanda.
Frægasta kvikmyndin sem aldrei
var gerð var áreiðanlega Meffl sem
ýmsir listamenn voru orðaðir við.
Meffl átti að verða alheimsgullkálf-
ur sem bæri hróður íslenskra kvik-
myndagerðarmanna vítt um heim.
Meffl fékk tvisvar styrk upp á sam-
tals 23 milljónir, árin 1987 og 88 en
styrkjunum var skilað þegar allt
féll um sjálft sig.
Þorsteinn Jónsson sem gerði
Atómstöðina fékk tvisvar sinnum árið
1985 styrk, samtals 1,2 milljónir, út á
verkefni sem hét Ljósbrot og aldrei
varð að veruleika. Margir hafa fengið
lága handritsstyrki í gegnum árin út á
Friðrik Þór Friöriksson Friðrik hefur gert jafnmargar
myndir og Hrafn Gunnlaugsson þrátt fyrir iægri fram-
lög úr Kvikmyndasjóöi. Mynd hans, Englar alheims-
ins, stefnir í að slá aðsóknarmet íslenskra kvikmynda.
verkefni sem síðan hefur aldrei
heyrst meira af en hefði verið gaman
að sjá verða að kvikmyndum. Hér
mætti nefna menn eins og Valgeir
Guðjónsson sem ætlaði að skrifa eitt-
hvað sem hét, Maðurinn sem fékk
högg á höfuðið.
Myndimar sem enginn veit
neittum
Nokkrar myndir voru framleidd-
ar sem gleymast engum sem þær
sáu en fengu engan styrk úr Kvik-
myndasjóði eða af einhveijum öðr-
um ástæðum komast ekki á blað.
Þama era tvær „hvítar“ myndir
efstar á blaði. Önnur er Hvíti vík-
ingurinn sem Hrafn Gunnlaugsson
gerði en vildi ekki kannast við. Hin
er Hvítir mávar sem Stuðmenn
gerðu í kjölfar vinsælda fyrri
myndar. Mávamir náðu aldrei flugi
þrátt fyrir lítinn styrk frá Kvik-
myndasjóði. Enginn veit hve marg-
ir komu að sjá hana. Enginn virðist
heldur vita neitt um myndir eins og
Nei er ekkert svar, sem fáir sáu, og
Óskaböm sem Jóhann Sigmarsson
er búinn að basla við að gera í
nokkur ár. Eftir 20 ár er kvik-
myndavorið sennilega liðið en þá
er að minnsta kosti sumar ennþá.
-PÁÁ
9000r~8^TO
8.000
Myrkra-
Hin helgu vé Draumadísir í skugga
Krónur
Með allt Land og Útlaginn Djöflaeyjan Englar
á hrelnu synir Alheimsins
*Enn í sýningu
Einfaldlega stærri og betri
MIIM'
Suðurveri & Mjódd, s. 533 3000