Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 %ðta! Páll Rósinkrans, fyrrum söngvari Jet Black Joe: Snýr aftur í rokkið - er rokkari og vil ekkert fela það Hljómsveitin Jet Black Joe. Páll leiddi hana til mikilla vinsælda en sneri baki viö henni vegna óreglu og þess lífsstíls sem fylgdi tónlistinni. „Rokkiö er ekki endilega frá djöflinum. Paö er til rokk sem dýrkar djöfulinn en þaö á ekki viö um allt rokk.“ Páll Rósinkrans er 26 ára gamall framkvœmdastjóri hjólbaröaverkstæöis í Kópa- vogi. Hann er stuttklipptur og brosmildur piltur með góöa söngrödd og óslökkvandi áhuga á tónlist. Undanfarin rúmlega fiögur ár hefur Páll einkum sungið trúarlega tónlist fyrir bræö- ur sina og systur í Krossin- um á samkomum þar á hverjum sunnudegi. Sú var tíöin að Páll var meó rauðleitan hármakka niður á mitt bak og leiddi hljómsveitina Jet Black Joe sem kom fram á sjónarsvióið 1992 og þótti ein sú efnileg- asta sem œska landsins hafói heyrt í um áraraðir. Jet Black Joe náði miklum vinsœldum á íslandi, gaf út plötur sem dreift var erlend- is og fór í hljómleikaferöir um Evrópu og víðar. Þetta var draumur allra sem ein- hvern tímann hafa séð sjálfa sig í hillingum í glansbún- ing á sviði framan við mannhaf öskrandi aðdá- enda. Jet Black Joe stefndi á heimsfrœgð og ein höfuðá- stæða þess aó draumurinn virtist vera að rætast var öfl- ug söngrödd Páls Rósin- krans og hrífandi sviðsfram- koma. Drengurinn er fœddur rokkari. Þetta sögðu allir, aldnir sem ungir og hrifust með. Ég er hættur og farinn Það kom því verulega flatt upp á tónlistarheiminn þegar Páll lagði frá sér hljóðnemann árið 1996, sagð- ist vera hættur i hljómsveitinni og vildi snúa baki við þessum lífshátt- um og því óreglusama líferni sem fylgdi rokkinu. Hann sagðist hafa fundið Jesú Krist, tekið hann inn í hjarta sitt og gert að leiðtoga lífs sins. Hann sagðist hafa fundið trúna í Krossinum og hvatti fólk til þess að gera slíkt hið sama. Flestir kann- ast við orðalagið úr fermingarheit- inu: Vilt þú leitast við af fremsta megni að gera Jesúm Krist að leið- toga lífs þíns. Flest okkar láta nægja að segja feimnislegt já við það tæki- færi. Páll fór aðrar leiðir. Síðan hefur tíminn liðið og lítið farið fyrir Páli nema þegar „gospel“- hljómsveit sem hann stýrir hefur birst opinberlega og einnig gaf hann út geisladisk í eigin nafni fyrir þremur árum síðan sem heitir Páll Rósinkrans, I believe in you. Þar var tónlist af trúarlegum toga á ferðinni. Palli snýr aftur Það voru því margir sem ráku upp stór augu þegar Páll Rósin- krans birtist á skjánum í sjónvarpi allra landsmanna síðastliðið laugar- dagskvöld og söng eitt af lögunum fimm sem kepptu um þátttökurétt í Eurovision-söngvakeppninni. Þetta var hefðbundin dægurtónlist og hvergi minnst á Guð. DV hitti Pál Rósinkrans í æfing- húsnæði hljómsveitar hans við Dalshraun og spurði hvort þetta væri hinn nýi Rósinkrans. Söngvari sem stefndi á Eurovision? „Mér hefur nú aldrei fundist þessi keppni sérstaklega spenn- andi,“ sagði Páll og glotti. „Þetta vildi þannig til að Valgeir Skagtjörð tók þátt I undankeppn- inni og bað mig að syngja fyrir sig „demo“ sem ég gerði. Svo þegar lag- ið var tekið inn varð ég að fylgja því á enda. Ég býst við að ef það hefði sigrað hefði ég fylgt því alla leið en ég reiknaði nú ekki með því. Þetta var litið og sætt lag.“ Hreinræktað rokk og ról Hljómsveitin sem æflr í skúrnum baka til í Dalshrauninu hefur ennþá vinnuheitið Christ Gospel Band. Hljómsveitina skipa gítarleikarinn Baldur Ingi sem leikur á „slash“-gít- ar, bassaleikarinn Sævar Þór, trommuleikarinn Guðni Gunnars- son og Páll sjálfur sem leikur á gít- ar og syngur. Þetta er ekki gospel, þetta er rokk og ról? „Jú, það er auðvitað ekkert ann- að,“ segir Páll. „Við höfum verið að æfa talsvert undanfarna mánuði, aðallega rokktónlist sem ég hef samið og verðum fljótlega tilbúnir til þess að koma fram opinberlega. Við höfum reyndar þegar komið fram á tónleik- um í Hafnarfirði fyrir Marita-sam- tökin sem vinna að vímuvömum með unglingum. Síðan stefnum við á disk á þessu ári sem sennilega mun bera mitt nafn og sennilega fær hljómsveitin nýtt nafn.“ Hvað er að vera „cool"? Að sögn Páls mun hljómsveitin leika rokktónlist eins og þá sem fell- ur unglingum helst í geð og mark- miðið er einnig að sýna unglingum fram á að rokktónlist og vímuefna- neysla fer ekki endilega saman. „Það er haldið að unglingum mjög brenglaðri ímynd af því hvað er að vera „cool“. Það er ekki að vera ofurölvi, ælandi og slefandi. Ég skil mjög vel að rokkið er sú tónlist sem unglingarnir skilja best og það er sú tónlist sem ég hef alltaf haft mest gaman af. Það er hins vegar engin ástæða til að setja alltaf sama- semmerki milli tónlistarinnar og þess lífsstíls sem í mörgum tilvik- um fylgir henni. Við viljum skilja þetta að og sýna unglingum að það er til betra líf án vímuefna þar sem rokktónlistin á sinn sess. Flestir unglingar prófa vímugjafa af einhverju tagi. Það er staðreynd. Flesta unglinga skortir góðar fyrir- myndir því foreldrar eru þeim ekki nægilegt styrk fyrirmynd og flestir unglingar hafa því rangar hug- myndir um það hvað felst í heil- brigðu lífi. Við viljum sýna þeim fram á annað.“ Felum ekki að við erum rokkarar Af einhverjum ástæðum eiga margir erfitt með að samræma imynd rokkarans að hinum frels- aða, hreinlynda og heittrúaða tón- listarmanni. „Það er engin þversögn í þessu. Við erum rokkarEU- og þurfum ekk- ert að fela það. Stór hluti af því að gangast Jesú á hönd er löngun til þess að færa öðrum fagnaðarerindið því aðeins frelsaðir komast til himnaríkis. Öll tónlist er sköpuð Guði til dýrðar og við erum sköpuð til að þjóna Guði með þeim hæfi- leikum sem hann gaf okkur. Við megum ekki grafa þessa hæfíleika niður eins og mörgum finnst að ég hafi kannski verið að gera.“ Jesus is the rock En segja ekki leiðtogar Krossins að rokkið sé tónlist djöfulsins? „1 þungri rokktónlist, eins og var mjög vinsæl fyrir nokkrum árum, er enn er oft sungið um djöfulinn og honum lyft upp. Slík tónlist er frá djöflinum en það er ekki öll rokktónlist. Rokkið er hluti af mér og hefur verið það og verður alltaf. Mér fannst hér áður frekar hallærislegt að koma fram sem rokkari og pré- dika vímulaust líf en ég sé núna að það er ekkert athugavert við það. Það er ekkert líf að vera alltaf út- úrruglaður af dópi. Rokkið á ekki að stjórna lífi manns til slæmra hluta heldur góðra. Cliff Richard sagði: „Jesus is the rock and he rolls my blues away.““ 14 ára í Nirvana En var ekki óreglan og lífsstíllinn ástæða þess að Páll sneri baki við rokkinu á sínum tíma? „Ég fékk trúarlegt uppeldi í æsku en fannst alltaf gaman af tónlist. Ég var 14 ára gamall kominn í skóla- hljómsveit i Hafnarfirði sem hét Edrú. Seinna breyttum við nafninu í Nirvana og vissum þá ekki um fyr- irmyndina úti í heimi. Ég gekk með poppstjömudrauma í maganum og hellti mér af mikilli ákefð út í þetta. Þegar ég var aðeins 17 ára gamall vorum viö komnir á fullt með Jet Black Joe og ég var staðráðinn í fylgja þessu eftir og afla mér þeirrar reynslu sem ég gæti út úr þessu ævintýri. Mér varð fljótt ljóst að meira og minna allir í þessum tónlistar- bransa, sem maður mætti og kynnt- ist, voru annað hvort alkóhólistar eða neyttu vímuefna af öðru tagi. Þetta er alls ekki sú hlið sem al- menningur sér og neysla er miklu meiri en maður gæti haldið. Þetta á bæði við um fólkið sem er í tónlist- inni og einnig kynnist maður alls konar þekktum einstaklingum sem koma fram eins og þeir lifi heil- brigðu lífi en eru á kafl í dópneyslu. Ég tók þátt í þessum lifnaði og reykti hass, drakk áfengi og prófaði ýmislegt sem fylgir þessum lífsstfl. Á Jet Black Joe-árunum vann ég ekkert heldur var bara í hljómsveit- inni og dróst stöðugt lengra inn í þennan lífsstU. Jet Black Joe dvaldi lengi í HoUandi og Belgíu og þar er afstaða til flkniefna mun frjálslegri en hér heima og borgir eins og Amsterdam hafa laðað að sér aragrúa fólks sem þrífst í skjóli þess. Þar sá ég þennan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.