Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Síða 36
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 UV
‘4» borgarlíf
r
.. Orðiö menning í víóasta
skilningi þess orðs nær ekki
eingöngu yfir mannlífið á yf
irboröinu heldur líka yfir
þann heim sem oft er ekki
sýnilegur í dagsins önn eða
fólki ekki kunnugur. Þegar
svo ber undir að málefni eða
umrœðu á gráu svœði er
haldið í ósýnileikanum kem-
ur að því að menn mynda
sér fyrir fram ákveðnar
skoðanir um eitthvað sem er
á huldu en þyrfti alls ekki
að vera það.
Menningarheim samkyn-
hneigðra í Reykjavík mætti
auðveldlega fella undir þessa
skilgreiningu enda virðast
fœstir hafa nokkra hugmynd
um þann fjölbreytileika af
þjónustu og afþreyingu sem í
boói er fyrir homma og lesbí-
ur í dag. DVfór á stúfana
og kannaði málið í þeirri
von að varpa Ijósi á þennan
* menningarheim.
„Gay-parade"-ganga í
Reykjavík
Þaö er einföld staðreynd að sam-
kynhneigð sameinar alls kyns fólk
með ólíkar þarfir og viðhorf og þess
vegna starfar félagið á mjög breið-
um grundvelli," segir Þorvaldur
Kristinsson, formaður Samtakanna
‘78, þegar hann er inntur eftir
starfsháttum félagsins. „Samtökin
eru þannig allt í senn pólitískí bar-
áttufélag, menningar- og upplýs-
ingastofnun og á tíðum líknar- og
stuðningsfélag. Allt er þetta jafn
mikilvægt og hvað styður annað því
að stuðningur og upplýsing inn á
við og markviss pólitísk barátta út á
við verða alltaf að haldast í hend-
ur.“
Þorvaldur segir samtökin vera í
nánu samstarfi við fleiri samtök af
; ólíkum toga, bæði við þau sem starf-
rækt eru innan Háskóla íslands og
framhaldsskólanna, og ætluð eru
samkynhneigðum, og eins við MSC
ísland, klúbb samkynhneigðra karl-
manna sem hafa smekk fyrir karl-
mennsku og leðurfatnað.
Samstarf félaganna segir hann
koma skýrast fram í undirbúningi
Hinsegin daga en það er hin árlega
fagnaðar- og mannréttindahátíð
lesbía og homma á sumrin en í sum-
ar stendur til að halda svokallaða
„gay-parade“-göngu í Reykjavík
1 eins og tíðkast víða erlendis.
I
Netverk sem teygir
anga sína um heiminn
Þorvaldur nefnir einnig sérstak-
lega starf Samtakanna út í heimi
og segir gífurlega aukningu hafa
! orðið á áhuga erlendra homma og
| lesbía á Islandi. Hann bendir á að
starf Ragnars Ragnarssonar, fram-
kvæmdastjóra félagsins, snúist að
umtalsverðu leyti um það að svara
fyrirspumum erlendis frá. Fólk sé
þá að spyrjast fyrir um þjónustu
sem því standi til boða, svokallaða
„gay-friendly“ staði sem eru ýmist
gistihús, hótel, veitingastaðir,
! skemmtistaðir o.þ.h. sem lýsa sig
'hliðholla hommum og lesbíum og
hýra Reykjavík
- menningarheimur samkynhneigðra í Reykjavík kortlagður
MSC Island ^-------——
Spotlight famtoWn 78 Laugavegur
Dubliners
®ustui
Kaffibrennslan P,
-#f#22
Á næstu grösum
#Guesthouse Luna
Vitabar
#'Humarhúsið
Ráöhúskaffi
Gufubaöið í Vesturbæjarlaug
Nelly’s Café gat sér góðan oröstír
fyrir „dragshow“-sýningar en drag-
og pornókvöld hafa líka veriö vin-
sæl á Spotlight í gegnum tíöina.
bjóða þau sérstaklega velkomin.
„Þetta er stórt og mikið netverk
sem teygir anga sína út um allan
heim. Það skiptir okkur miklu
máli að geta sótt staði þar sem við
erum sérstaklega boðin velkomin
og verðum ekki fyrir aðkasti,"
segir Þorvaldur um mikilvægi
„gay-friendly“ staða.
Handbók fyrir samkyn-
hneigða ferðamenn
Aðspurður um hvort ekki sé
verið að mismuna fólki með því
að bjóða upp á sérstaka staði fyr-
ir homma og lesbíur segir Þor-
Vcddur hlutina ekki horfa öðruvísi
við þeim en öðrum íslendingum
sem leita eftir þjónustu á sumar-
stöðum eða sólarströndum sem
bjóða þá sérstaklega velkomna.
Hann segir „gay-friendly“ staði þó
aðeins vera einn af valkostum
samkynhneigðra á ferðalögum.
Þorvaldur getur þess að framboð
á þjónustu sem sérstaklega er ætl-
uð samkynhneigðum sé ört vax-
andi grein innan ferðamanna-
þ.jónustunnar í dag og nefnir í
þessu samhengi að um verulega
stóran markað og fjárhæðir geti
verið aö ræða.
„Samkynhneigðir virðast kom-
ast tiltölulega fyrr í álnir en aðrir
enda segir það sig sjálft þar sem
þeir sinna bamauppeldi í talsvert
minna mæli en aðrir og hafa yfir-
leitt ekki fyrir öðrum að sjá nema
þeim sjálfum. Af þessu leiðir að
samkynhneigðir ferðast oft meira
en aðrir og hafa meiri tíma og pen-
inga í afþreyingu ýmiss konar.
Skýr sönnun þessa er sú staðreynd
að árlega eru gefnar út handbækur
samkynhneigðra ferðamanna um
allan heim, s.s. Spartacus - the
international gay guide, sem er
fyrir karlmenn, og Gaya sem ætluð
er konum. Þetta eru uppflettirit
sem er skipt upp eftir löndum, upp-
færð árlega og gefa skýra og góða
heildarmynd af þeirri þjónustu
sem í boði er fyrir samkynhneigða
ferðamenn í hverju landi fyrir
sig.“
Hommahækjur í bland
Þegar framboð á „gay“ og „gay-
friendly" stöðum á íslandi er skoð-
að kemur i ljós að þar er um auð-
ugan garð að gresja og auðugri en
margan grunar. í flokki skemmti-
staða og kaffihúsa ber aö sjálf-
sögðu fyrst að nefna Veitingahúsið
22 við Laugaveg sem hefur verið í
eldlinunni um árabil. Tuttugu og
tveir er „blandaður staður með
fullt af lesbíum og „straight“ fólki
í bland ásamt einhverjum homma-
hækjum, eða „gay-hags“/“fag-
hags“ sem svo eru nefndir, eða
eins og einn innan hýra samfélags-
ins orðaði það, fyrir þá sem ekki
vita hverjar hommahækjurnar eru
þá eru það „straight" einstakling-
ar, yfirleitt kvenkyns, sem sækja í
selskap samkynhneigðra á „ein-
hverjum vinkonunótum", eins og
annar heimildarmaður orðaði það.
Loftið þar inni er venjulega mjög
slæmt svo að liggur við köfnun
enda bágborin loftræsting á staðn-
um. Á dansgóffinu, sem reyndar er
mjög lítið að flatarmáli, getur oft
myndast fln stemning um helgar
en olnbogaskot eru þeim mun al-
gengari. Annað sem setur leiðin-
legan blett á staðinn er sú stað-
reynd að „ákveðnum aðiliun", sem
flestir koma úr röðum homma og
lesbía, er hleypt fram fyrir biðröð-
ina sem myndast á annatímum.
Þessari reglu er reyndar getið á
miða á hurð staðarins en fer engu
að síður í taugamar á öðrmn sem
fyrir vikið þurfa að híma mun
lengur úti í kuldanum eftir því að
líta dýrðina augum. Er þó von á
því að þetta fari batnandi þar sem
heyrst hefur að staðurinn hafi dal-
að til muna í vinsældum eftir að
annar yfirlýstur „gay“ har var
opnaður síðla árs 1998.
Pornókvöldin vinsæl
Staðurinn, sem hér um ræðir, er
Spotlight og stendur á Hverfisgötu
þar sem Ingólfscafé var áður til
húsa. Margir telja þó stærðina há
honum, staðurinn sé allt of stór til
að hægt sé að skapa þessa „kósí“
klúbbastemmningu sem hommar
og lesbíur vilja gjarnan geta sótt í
og að því leyti sé 22 „klassíker sem
kominn er til að vera“, eins og
einn viðmælandi orðaði það.
Hannes Páll Pálsson, talsmaður
Spotlight, sagði samkynhneigða
vera 6 af hverjum 10 sem sæktu
staðinn en aðspurður um hvort
staðurinn væri fyrst og fremst
„gay“ staður sagði hann svo ekki
vera. Hommar og lesbíur væru þó
í meirihluta en samt sem áður
væri glórulaust að ætla að halda
úti stað fyrir þennan hóp ein-
göngu.
„Hvemig hafa viðtökumar verið
frá því þið opnuðuð staðinn og
hvað er boðið upp á?“
Kortiö er ekki tæmandi en sýnir vel
þá þróun sem oröið hefur á fram-
boöi af „gay“ og „gay-friendly“
samkomustöðum í miöbæ Reykja-
víkur og nágrenni.
„Gay” og „gay-friendl
- samkomustaðir í Reykjavík
#l»rír Frakkar
Öskjuhlíðin
VExa