Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Síða 59

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Síða 59
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 afmæli n Baldur Sigurjónsson Baldur Sigurjónsson, trésmiður og organisti, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, verður níræður á morgun. Starfsferill Baldur fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð og ólst þar upp. Hann lærði trésmíðar hjá föður sínum og lauk sveinsprófi 1937. Baldur starfaði við smíðar á Djúpuvík á Ströndum i tengslum við síldarverksmiðjuna þar sumrin 1937-39. Þá starfaði hann við módel- smíði hjá fyrirtæki Guðmundar J. Sigurðssonar & Co. Baldur flutti á Akranes 1975 og starfaði þar á trésmíðaverkstæði Akraneskaupstaðar til 1984 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Baldur lærði orgelleik hjá Guð- mundi Gilssyni frá Arnarnesi í Dýrafirði. Hann stofnaði, ásamt öðr- um, Karlakór Þingeyrar er hann var sautján ára og var stjórnandi kórsins um sjö ára skeið. Þá var hann organisti við Þingeyrarkirkju um þrjátíu og fimm ára skeið. Jafnframt stjórnaði hann ýmsum kórum við margvísleg tækifæri á þessu tímabili, s.s. söng- kór vegna lýðveldishátíð- arhalda á Hrafnseyri við ArnarQörð 1944 og öðrum kór við minningarhátíð þar vegna hundrað og fimmtíu ára ártíðar Jóns Sigurðssonar forseta, 1961. Baldur sinnti oft org- anistastörfum í nærliggj- andi byggðarlögum en eftir að hann flutti á Akranes var hann organisti við Innra-Hólmskirkju í átta ár. Hann hefur þjónað með organleik og söngstjórn við þrettán kirkjur landsins með tuttugu og átta prest- um og þremur biskupum. Fjölskylda Baldur kvæntist 7.12. 1935 Ingi- björgu Magnúsdóttur, f. 7.6. 1914, d. 9.11. 1968, húsmóður. Foreldrar hennar voru Magnús Helgason, f. 28.2. 1872, d. 8.8. 1921, bóndi á Hofi í Dýrafirði, og Þuríður Benónýsdótt- ir, f. 30.12. 1883, d. 2.8. 1971, húsfreyja. Ingibjörg ólst upp hjá Guðmundi J. Sigurðssyni, vélsmið á Þingeyri. Synir Baldurs og Ingi- bjargar eru Pétur A. Bald- ursson, f. 22.6. 1933, hafn- arstjóri Grundartanga- hafnar, búsettur á Akra- nesi, kvæntur Önnu Helgadóttur húsmóður og eiga þau fimm börn; Svanur Baldursson, f. 18.2. 1948, starfsmaður við Ráðhús Reykjavíkur, í sambúð með Eddu Egilsdóttur póstfulltrúa og eiga þau tvö börn. Börn Péturs eru Baldur, f. 17.2. 1955, trésmiður, í sambýli með Lindu Sigvaldadóttur húsmóður og eiga þau þrjú börn; Helgi, f. 13.7. 1957, verktaki, í sambúð með Sigríði Valsdóttur ritara og eiga þau þrjú börn; Pétur, f. 12.11.1960, starfsmað- ur Norðuráls, í sambýli með Frey- dísi Frigg Guðmundsdóttur þroska- þjálfa og á hann fimm börn; Inga Áslaug, f. 27.4. 1965, tækniteiknari, gift Þorgeiri Kristóferssyni pípu- lagningarmeistara og eiga þau tvö börn; Guðlaug framkvæmdastjóri gift Guðna Gunnarssyni er starf- rækir heilsuræktarstöð í Los Angel- es. Börn Svans eru Ingi Sigurður, f. 7.5. 1982; Ásta Kristín, f. 27.2. 1989. Bróðir Baldurs er Pétur Sigur- jónsson, f. 25.10. 1913, trésmiður í Reykjavík, kvæntur Jónínu Jóns- dóttur húsmóður og eignuðust þau fimm börn en fjögur þeirra eru á lffi. Uppeldisbróðir Baldurs var Bragi Guðmundsson, sem er látinn, var kvæntur Elísabetu Einarsdóttur. Foreldrar Baldurs voru Sigurjón Pétursson, f. 29.7. 1872, d. 12.2. 1960, trésmiður á Þingeyri við Dýrafjörö, og Sigríður Jónsdóttir, f. 22.12. 1888, d. 8.10. 1977, húsmóðir. Baldur Sigurjónsson. Axel Jónsson Axel Jónsson veitingamaður, Ránarvöllum 2, Keflavik, verður fimmtugur á morgun. Starfsferill Axel fæddist í Hafnarfirði en ólst upp í Sandgerði. Hann lauk gagn- fræðaprófi frá Flensborg 1967, út- skrifaðist frá Hótel- og veitinga- skóla íslands 1973, og lærði mat- reiðslu hjá Hótel Loftleiðum 1968-72. Axel var skólabryti við Hérað- skólann á Laugarvatni 1973-78 en hefur starfað við eigin veit- ingarekstur á Suðurnesjum frá 1978, m.a. með veisluþjónustu, Veitinga- húsið Glóðina og Flugeldhús Atl- anta. Axel er nú ráðstefnustjóri á Hótel Keflavík. Axel er meðlimur í Lionshreyf- ingunni frá 1974 og félagi í Oddfell- owstúkunni Nirði í Keflavík frá 1980. Hann var varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1990-94. Auk þessa hefur Axel gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum. Fjölskylda Axel kvæntist 25.9. 1971 Þórunni Halldórsdóttur, f. 24.9. 1950, snyrti- fræðingi. Hún er dóttir Halldórs Friðrikssonar málara og Sigríðar Vilhelmsdóttir húsmóður. Börn Axels og Þórunnar eru Jón Axelsson, f. 22.7. 1972, rekstrarfræð- ingur í Keflavík, en sonur hans er Axel Jónsson, f. 6.1.1997; Fanný Sig- ríður Axelsdóttir, f. 7.12. 1978, nemi í Keflavík. Systkini Axels, sammæðra, eru Guðmundur Friðrik Sigurðsson, f. 28.6. 1946, endurskoðandi í Hafnar- firði; Valgerður Sigurð- ardóttir, f. 31.7. 1951, skrifstofumaður í Mos- fellsbæ; Ragnheiður Sig- urðardóttir, f. 24.5. 1953, matráðskona í Hafnar- firði; Björg Sigurðar- dóttir, f. 25.6. 1954, markaðsfulltrúi í Stokk- hólmi; Aðalheiður Dóra Sigurðardóttir, f. 4.1. 1964, skrifstofumaður í Hafnarfirði. Systkini Axels, sam- feðra, eru Vignir Jóns- son, f. 5.5. 1956, kennari Reykjavík; Þorsteinn Jónsson, f. 4.1.1958, kynn- ingarstjóri í Keflavík; íris Jónsdótt- ir, f. 25.3. 1963, myndlistamaður í Keflavík. Uppeldisbróðir Axels er Guð- mundur Jóelsson, f. 30.11. 1948, end- urskoðandi, Kópavogi. Foreldrar Axels eru Jón Axelsson, f. 14.6. 1922, fyrrv. kaupmaður í Sandgerði, og Jóna Gísladóttir, f. 24.6. 1923, húsmóðir í Hafnarfirði. Eiginkona Jóns er Bergþóra Þorbergsdótt- ir, f. 1.5.1925, húsmóðir. Eiginmaður Jónu er Sigurður Guðmunds- son, f. 30.11. 1923, fyrrv. skrifstofumaður. Axel og Þórunn munu taka á móti gestum í safnað- arheimilinu Innri-Njarðvík, laugar- daginn 4.3. frá kl. 19.50. Axel Jónsson. Guðný Halldórsdóttir Guðný Halldórsdóttir, húsfreyja I Reynihlíð i Mývatnssveit, varð sjötug á fimmtudaginn var. Starfsferill Guðný fæddist á Gunn- arsstöðum í Þistilfirði og ólst þar upp í foreldrahús- um. Hún flutti i Mývatns- sveitna 1950, giftist þar skömmu síðar og hefur verið húsfreyja í Reyni- hlíð síðan. Auk almennra húsfreyjustarfa í Reynihlíð hefur Guðný unnið við gestamóttöku í Hótel Reynihlíð sl. fimmtíu ár. Fjölskylda Guðný giftist 29.4. 1951 Snæbirni Péturssyni, f. 31.8. 1928, bónda í Reyni- hlíð. Hann er sonur Pét- urs Jónssonar, vega- vinnuverkstjóra og hótel- stjóra í Reynihlíð, og Kristínar Þuriðar Gísla- dóttur húsfreyju. Börn Guðnýjar og Snæ- björns eru Þuríður, f. 10.8. 1951, búsett í Mývatns- sveit, gift Agli Steingrímssyni og eiga þau þrjú böm; Þórunn, f. 19.2. 1953, búsett í Mývatnssveit, og á hún eina dóttur; Pétur, f. 29.12.1959, búsettur í Mývatnssveit, en kona hans er María Rúriksdóttir og eiga þau tvær dætur; Halldór, f. 19.3. 1966, búsettur í Ósló en kona hans er Gróa B. Jóhannesdóttir og eiga þau tvö börn; Bryndís, f. 21.1. 1968, búsett í Reykjavík, en maður henn- ar er Hjörtur Jónsson og eiga þau þrjú börn. Systkini Guðnýjar: Arnbjörg Halldórsdóttir, f. 4.2. 1922, húsfreyja í Réttarholti í Höfðahverfl; Óli Hall- dórsson, f. 1.8. 1923, d. 2.5. 1987, bóndi á Gunnarsstöðum; Árni Hall- dórsson, f. 25.7. 1925, d. 1997; Hall- dóra Halldórsdóttir, f. 13.2. 1928, húsmóðir í Hafnarfirði; Gunnar Halldórsson, f. 15.2. 1933, bóndi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði; Bryn- hildur Halldórsdóttir, f. 20.8. 1936, húsmóðir og hreppstjóri í Syðra- Lóni í Þistilfirði. Foreldrar Guðnýjar voru Halldór Ólason, f. 7.9. 1895, d. 28.7. 1975, bóndi á Gunnarsstöðum, og Þuríður Árnadóttir, f. 29.10. 1885, d. 22.6. 1982, húsfreyja á Gunnarsstöðum. Ætt Halldór var sonur Óla Sigurðs- sonar og Halldóru Halldórsdóttur í Hvalvatnsfirði. Þuríður var dóttir Árna Davíðs- sonar og Arnbjargar Jóhannesdótt- ur á Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Guðný tekur á móti gestum í Hót- el Reynihlíð laugardaginn 4.3. frá kl. 15.00. Guðný Halldórsdóttir. Þakka öllum œttingjum og vinum sem glöddu mig á áttrœðisafmœli mínu með skeytum, gjöfum og sérstaklega Kanadaferð á síðastliðnu sumri. Guð blessiykkur öll. Júlíus Jónsson Norðurhjáleigu V-Skajt. Til hamingju með afmæíið 5. febrúar 80 ára______________ Guðmundur Benediktsson, Laufásvegi 18a, Reykjavík. Guðmundur Bjarnason, Laufskógum 18, Hveragerði. 75 ára Egill Valgeirsson, Hrísateigi 25, Reykjavík. Guðrún E Halldórsdóttir, Grenimel 47, Reykjavík. Gunnar Hannesson, Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi. Ingibjörg St Kristjánsdóttir, Árskógum 6, Reykjavík. Jón Tryggvason, Grænumýri 10, Akureyri. Margrét Jóhannsdóttir, Bollagötu 14, Reykjavík. Sigurvaldi Guðmundsson, Vogatungu 27, Kópavogi. 70 ára_____________ Haukur Óskar Ársælsson, Lækjarsmára 6, Kópavogi, verður sjötugur á mánudag. Kona hans er Unnur S. Jónsdóttir. Þau taka á móti gestum í safnaðarh. Digra- neskirkju sunnud. 5.3. kl. 15-18. Sang Hoa Ly, Reynimel 90, Reykjavík. Sigríður Þ Sigurðardóttir, Ásholti 10, Reykjavík. 60 ára Friðrik H. Aðalbergsson, Árbakka 7, Seyðisfírði. Guðbjörn Pétursson, Vallargerði 24, Kópavogi. Pálmi Pétursson, Keilufelli 30, Reykjavík. Sigurður Þorláksson, Hlíðarvegi 22, ísafirði. 50 ára Arinbjörn Jóhannsson, Brekkulæk, Hvammstanga. Árni Friðriksson, Skólatröð 9, Kópavogi. Árni verður að heiman. Gunnar Hjálmarsson, Tjarnarbóli 12, Seltjarnarnesi. Helgi Þorvalds Gunnarsson, Starhólma 10, Kópavogi. Jón Benediktsson, Skaftafelli 2, Fagurhólsmýri. Lovísa Ásgeirsdóttir, Lerkilundi 14, Akureyri. Sigurlín Jónsdóttir, Rifshalakoti, Rangárváilasýslu. Svanhvít Gísladóttir, Bæ, Hofsósi. Tryggvi Gunnarsson, Flögusíðu 3, Akureyri. Þóra Þorvaldsdóttir, Hrannarbyggð 11, Ólafsfirði. 40 ára Birna R. Aðalsteinsdóttir, Hrisbraut 2a, Höfn. Freyja Ingólfsdóttir, Skeljagranda 1, Reykjavík. Guðmundur Þorsteinsson, Torfufelli 17, Reykjavik. Hrafnhildur Björgvinsdóttir, Holtsgötu 35, Reykjavík. Jóhanna Guðríður Linnet, Grófarsmára 24, Kópavogi. Júlía Sigurbjörg Stefánsdóttir, Holtsgötu 37, Sandgerði. Karl Knútur Ólafsson, Hlíðargötu 22, Sandgerði. Lilja Ósk Úlfarsdóttir, Kársnesbraut 93, Kópavogi. Ólafur Ingi Jónsson, Mýrum, Grundarfirði. Sigurður Garðar Steinþórsson, Staðarvör 6, Grindavík. yilhjálmur Þorleifsson, Álfhólsvegi 84, Kópavogi. Þórður Ingólfsson, Sunnubraut 7, Búðardal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.