Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Page 68
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað f DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
f hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Afléttu farbanni vegna fréttar DV af niðurfellingu komubanns:
Einkafarbann
Flugleiða á Janet
- kemur mér spánskt fyrir sjónir, segir aðstoðarforstjórinn
„Það kemur mér afar spánskt fyr-
ir sjónir að þetta skuli hafa gerst.
Þetta er í bága við okkar vinnuregl-
ur - við gerum þetta ekki,“ segir
Einar Sigurðsson, aðstoðarforstjóri
Flugleiða, en að því er Róbert Árni
Hreiðarsson, lögmaður Janetar
Grant, fullyrðir færði ókunnur
starfsmaður Flugleiða athugasemd
við nafn Janetar i sölukerfi félags-
ins þannig að henni var neitað um
Á'Wfarmiðakaup hjá félaginu.
Róbert Árni segir athuganir sínar
hafa leitt í ljós að starfsmaðurinn
hafi lesið dagblaðafréttir af komu-
banni Janetar til Spánar og þvi gert
um það athugasemd í sölukerfinu.
Janet hafi því verið neitað um að
kaupa farmiða til Spánar með við-
'komu í London á skrifstofu félags-
ins þar til hún dró upp frétt úr DV
þar sem skýrt var frá því að komu-
banninu hafði verið aflétt.
Lögmaöur í heimsókn.
Róbert Árni Hreiöarsson, lögmaöur Janetar Grant, ásamt barnsfööur Janetar
og börnum þeirra, Ástþóri Mario og Móniku Ósk í Malaga
á Spáni 20. mars sl.
Hittir börnin á sunnudaginn
Einar staðfestir að þegar Janet
hafi pantað farmiða símleiðis hafi
starfsmaður söluskrifstofunnar fært
inn áðurnefnda athugasemd við
bókun hennar. „Við vitum ekki enn
hvernig athugasemdin var sett inn
en hún var um að hún væri skil-
ríkjalaus og gæti þar af leiðandi lent
í vandræðum. Þetta eru ekki upp-
lýsingar sem við ætlumst til að séu
skráðar," segir Einar.
Janet Grant er nú að ferð-
búast og heldur til Spánar á
sunnudagsmorgun.
„Það var stúlka á sölu-
skrifstofunni á Laugavegin-
um sem sagðist hafa séð DV
á kaffistofunni og fært mig
inn í tölvuna. En hún var
ósköp indæl og tók mig strax
út þegar ég sýndi henni frétt-
ina úr DV um að komubann-
inu til Spánar hafði verið
aflétt," segir Janet. Hún hef-
ur ekki hitt bömin sín tvö
frá því henni var vísað frá
Spáni fyrir rúmu hálfu ári og
ætlar að koma þeim á óvart á
sunnudaginn. „Þau halda að
þau séu að fara út á flugvöll
að ná í frænku sína frá
Barcelona," segir Janet og
biður DV að koma þakklæti
á framfæri til allra sem hafa
stutt hana í þessu erfiða
máli.
-GAR
brother P-touch 9400
Stóra merkivélin sem þolir álagið
10 leturgeröir
margar leturstærðir
16 leturstillingar
prentar í 10 linur
borði 6 til 36 mm
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
flutt i
Skipholt 50 d
Verkamannasambandið:
15 þúsund á leið í verkfall
„Við erum búnir að
vera í viðræðum við
þessa atvinnurekend-
ur frá því í haust
ekkert gengur. Því
verðum við að
þau tæki sem við
um,“ sagði Björn
ar Sveirisson, formað-
ur Verkamannasam-
bandsins, eftir
ákveðið var í gær
boða til verkfalls fé-
lagsmanna um land
allt frá og með næstu
mánaðamótum verði
það samþykkt á félags-
fundum. „Menn eru alltaf að tala
um óskilgreindan mannauð sem er
fólginn er í tveggja milljóna króna
mönnum i einhverj-
um banka úti i bæ.
En þegar við förum
fram á 15 þúsund
króna hækkun ofan
á kauptaxta okkar
félagsmanna þá er
að við séum að
ríða þessu þjóðfélagi
til helvítis. Sjálfur
forsætisráðherra
tekur til sín á annað
hundrað þúsund
króna launahækkun
í gegnum kjaradóm
en engin minnist á
að hann sé að ríða
þjóðfélaginu til helvítis,“ sagði
Björn Grétar Sveinsson.
-EIR
Björn Grétar Sveinsson.
Erum ekki aö ríöa þjóöfélaginu
til helvítis.
Sökkvandi trilla í ísafjarðardjúpi:
Feðgum bjargað á
síðustu stundu
Feðgum var bjargað úr sjávar-
háska 20 sjómílur út af Rit í ísa-
fjarðardjúpi laust eftir klukkan 21 í
gærkvöldi. Bátur feöganna, Birta
Dís, frá Vestmannaeyjum, sem gerð
er út frá Súgandafírði sendi út neyð-
arkall um klukkan 20 í gærkvöld en
þá hafði báturinn lagst á hliðina.
Björgunarsveitir voru þegar kallað-
ar út og öllum skipum og bátum á
•svæðinu var stefnt á slysstað.
Skipverjar á Hrönn ÍS frá Suður-
eyri voru fyrstir á staðinn og tókst
þeim að bjarga feðgunum á síðustu
stundu en þá var báturinn við það
að sökkva.
Að sögn björgunarsveitarmanna
var mikið lán að sjór var lygn og
veður gott. I gærdag var þó ísing á
miðunum. Ekki er ljóst hvers vegna
Birta Dis lagðist á hliðina en bátur-
inn hafði verið á línuveiðum i ísa-
fjarðardjúpi.
-EIR/KS/rt
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
DV-MYND GVA
Milljón bollur.
Lárus bakari í Suöurveri er glaöbeittur meö bollurnar sínar og klár í slaginn á
bolludaginn sem er á mánudag. Hvert bakarí í landinu bakar 18-25 þúsund
bollur fyrir bolludaginn og reikna bakarar meö tæpum fjórum bollum á mann.
Alls eru því bakaöar um milljón bollur á landinu öllu og í þær fara 25 þúsund
lítrar af rjóma.
Rannsakar bókhald Sæunnar Axels ehf:
Kröfur nema
DV Akureyri:
Kröfúlýsingafrestur í eignir þrota-
bús fiskverkunar Sæunnar Axels ehf. í
Ólafsfirði er útrunninn. Að sögn Ólafs
Biigis Ámason, skiptastjóra þrotabús-
ins, nema lýstar kröfúr í búið 841 millj-
ón króna.
Kröfunum má skipta í þrennt, veð-
kröfur nema 513 milljónum, almennar
kröfur 111 milljónum og forgangskröf-
ur um 17 milljónum. Þegar talað er um
forgangskröfúr er aöallega átt við laun
og launatengd gjöld, s.s. orlof, lífeyri og
í þessu tilfelli laun vegna uppsagnar-
641 milljón
frests þar sem skipveijar á bátnum
Kristjáni ,sem var í eigu fyrirtækisins,
koma mikið viö sögu.
Embætti Skattrannsóknarstjóra og
og Ríkistollstjóraembættið hafa ákveð-
ið að rannsaka bókhald fyrirtækisins.
Frá þvi var greint í gær.
Ólafúr Birgir skiptastjóri vildi htið
ræða um hvað væri til skiptanna í þrota-
búinu, eða hvers virði það væri sem til
er. Um er að ræða fasteignir og lítilræði
af afúrðum, en báturinn Kristján, sem
var nánast yfirveösettur eins og allar
aðrar eignir fyrirtækisins, hefur verið
seldur fyrir 50 milljónir. -gk