Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2000, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2000, Síða 17
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 17 DV ___________Menning Umsjón: Silja Aðalsieinsdótfir í kjól úr vatni Nína Björk Elíasson er söngkona í Dan- mörku. Ein af mörgum, vissulega, en líklega sú eina sem syngur drjúgan hluta af hverjum tónleikum á íslensku. „En ég segi yfirleitt frá því á undan um hvað ég ætla að syngja næst,“ segir hún, „og einn gagnrýnandi sagði að ég væri svo góður sögumaður að það gerði ekk- ert til þótt textamir minir væru á íslensku." Nína Björk hefur gefið út tvær hljómplötur, sú fyrri heitir Sortner du sky og er bæði á ís- lensku og dönsku; sú síðari sem kom út í fyrra heitir í kjól úr vatni og er eingöngu á ís- lensku. Titillinn er tekinn úr ljóði eftir Sjón sem hún syngur á plötunni: „Mig dreymdi konu í kjól úr vatni / með höfuð eins og sítrónur í gluggakistu / og vínglas í framréttri hendi.“ Önnur skáld sem eiga ljóð á plötunni eru Steinunn Sigurðardóttir, Sigurður Páls- son, Linda Vilhjálmsdóttir og nafna Nínu, Nína Björk Árnadóttir. Eftir þær tvær er magnaðasti seiðurinn á plötunni, „Tvö hjörtu": Segðu það nœturfjólunni segðu það morgunstjörnunni aó sársaukinn hafi flogiö inn í tvö stór hjörtu og sitji nú þar með vœngina sína slútandi. . . Tilfinningasamband nauðsynlegt Nína Björk er úr Reykhólasveitinni, dóttir Sigurðar Eliassonar tilraunastjóra sem þekkt- ur var um allt land á sinni tíð fyrir textann að Litlu flugunni hans Sigfúsar Halldórssonar. Hún varð stúdent 1965 frá MR og fór til Dan- merkur í tónvísindanám. Þar hefur hún ílenst siðan og starfað meðal annars við söng- og tal- kennslu. „En ég hef alltaf sungið með,“ segir hún. „Fyrst var ég beðin um að syngja við ýmis tækifæri en síðustu fimmtán ár hef ég æft með atvinnuhljóðfæraleikurum og undan- farin ár hef ég haldið fjölmarga tónleika með hljómsveitinni Klakka sem leikur með mér á diskunum, til dæmis í kirkjum og menningar- stofnunum af ýmsu tagi.“ Nína Björk hafði sungið alveg frá því að hún var bam en á menntaskólaárunum ruddi píanónámið söngnum að mestu út. En hann kom til baka og smám saman fór hún að semja sín eigin lög. Á nýju plötunni eru tíu lög eftir hana og fimm eftir gítarleikarann hennar, Danann Hasse Poulsen, sem er þekkt- ur á sínu sviði í heimalandinu. En hvernig er því tekið þegar hún syngur heila tónleika á ís- lensku? „Því er tekið mjög vel, en ef ég segi ekki frá efni textanna á fólk til að kvarta og biðja um skýringar!" Við nánari um hugsun riíjast auðvitað upp fjöldi söngvara sem hafa sungið á grísku, portú- gölsku, spönsku eða öðrum mál- um sem mað- ur kann ekki en hafa heillað með rödd og túlkun. Þar má nefna til dæmis hina frábæru Cesariu AKt'KKVRI I.-25. JÚNÍ Evora sem kemur á Listahátíð í vor - ekki þarf að skilja orðin til að nema inntakið og tilfmn- ingarnar hjá henni. Rödd Nínu Bjarkar og lögin sem hún syngur bera með sér ákveðinn hugblæ sem segir meira en mörg orð. „Já, það er líka mín reynsla," segir hún. „Þeg- ar ég var að syngja í Þýskalandi með tónlistar- mönnum víðs vegar að úr heiminum þá komu margir til mín á eftir til að kaupa plötuna mína - spánskar stelpur og franskar stelpur, pólskur tónlistarmaður og ítalskur strákur og fleiri, öll hálfskælandi yfir þessum óskiljanlegu textum! Sænskir útvarpshlustendur hafa beðið um meiri spilun á plötunum mínum og þegar ég söng á tónleikum í Eistlandi fyrir skömmu vildu menn heyra fleiri lög á íslensku." „Eitthvað þarf að höfða til mín í því, ein- hver tilfmning sem snertir mig og mig langar til að syngja um. Svo syng ég ljóðið - stundum mörgum sinnum - inn á segulband og smám saman verður lagið til. Stundum gerist það hratt, stundum ekki.“ - Gegnumgangandi finnst mér svolítið harmrænn tónn í lögunum, undirliggjandi tregi. „Já, slík ijóð höfða til mín,“ segir hún dræmt, „þó er miklu meiri kímni á þessari plötu en þeirri fyrri.“ Erfið í flokkun Þegar Nína Björk er spurð hvaða söngvari hafi haft mest áhrif á hana á ferlinum nefnir DV-MYND PJETUR Nína Björk Elíasson „1 Berlingske Tidende var nýi diskurinn minn gagnrýndur með klassískum piötum en í Politiken með djassplötum. En ég held að ég myndi setja mig í heimstónlistarbásinn ef ég aetti að flokka sjálfa mig. “ Treginn laöar Hljómsveitin Klakki er samnorræn, org- anistinn er norskur, gítarleikarinn og trommuleikararnir danskir, bassaleikarinn hálfislenskur. Þó er tónninn á plötunni frekar suðrænn en norrænn.. . „Það eina sem ég hef reynt er að hitta á tón- inn í ljóðinu," segir Nína Björk í vörn. „Oft er grunnstemning í ljóðum sem ég reyni að ná.“ - Lestu þá mikið af íslenskum ljóðum? „Nei, en ég les markvisst. Sæki mér leið- beiningar héðan að heiman og næ í ljóðabæk- ur í samræmi við þær.“ - Nú hefur sú þjóðsaga verið lífseig á ís- landi að ekki sé hægt að syngja óhefðbundin ljóð eða fríljóð. „Það er samt hægt!“ segir Nína Björk og skellir upp úr. „Það er meira að segja hægt að búa til furðu hefðbundin lög við óhefðbundin ljóð. Við Hasse ræddum lengi um þetta því ekki vildum við setja algera nútímamúsík við þessa texta“ - og hún tekur nokkra mishljóma tóna til útskýringar - „það hefði höfðað til færra fólks. Við lögðum okkur fram við að hafa tónlistina þannig að það væri auðvelt að hlusta á hana.“ - En hvað þarf ljóð að hafa til að þig langi til að semja við það lag? hún fyrst færeysku söngkonuna Anniku Hoydal. „Á námsárunum kom nokkrum sinnum fyr- ir að ég söng á sömu tónleikum og hún og ég var mjög hrifín af henni. Ég var að læra klass- ískan söng á þeim tíma sem fór ekkert sér- staklega vel í mig en hún stóð þarna á tré- klossunum sínum og söng lögin sín, alein á sviðinu, og ég hugsaði: „Það er líka hægt að gera svona!“ Björk finnst mér ofsalega góð en annars hlusta ég á blöndu af alls kyns tónlist.“ Nína Björk segist ýmist vera sett á bás með heimstónlist eða djasssöngvurum. „I Berl- ingske Tidende var nýi diskurinn minn gagn- rýndur með klassískum plötum en í Politiken með djassplötum. En ég held að ég myndi setja mig í heimstónlistarbásinn ef ég ætti að flokka sjálfa mig.“ Það er dýrt spaug að koma með heila hljóm- sveit til íslands og Nína Björk lætur sig dreyma um að komast í samband við íslenska tónlistarmenn sem hún gæti sungið með hérna heima. í fyrirsjáanlegri framtíð verða ekki tónleikar með henni hér á landi svo að- dáendur hennar verða að fara yfir hafið ef þeir vilja hlusta á hana milliliðalaust. Fyrir hina er alltaf diskurinn: 1 kjól úr vatni - sem Japis dreifir. Hátíð áhuga- leikfélaga Eiríkur Guðmundsson, Auður Jónsdóttir, Úlfhildur Dagsdóttir og Andrl Snær Magnason Þau eru meðal aðstandenda nýrrar ritraðar um veröldina, nútímann og okkur öll. Nú, þá, þannig og þegar Á morgun kl. 17.15 hefst dagskrá í Nýlistasafn- inu í tilefni af útkomu fyrstu bókanna í ritröðinni Atvik, nýrri ritröð sem bókaútgáfan Bjartur og ReykjavíkurAkademían, félag sjálfstætt starfandi fræðifólks, standa að. Á dagskránni munu að- standendur útgáfunnar, höfundar og þýðendur kynna efni bókanna. Ritröðin Atvik er vettvangur þar sem kynntar verða hugmyndir og rannsóknir með þýðingum og frumsömdum textum í hnitmiðuðum smárit- um. Henni er ætlað að örva umræðu um knýjandi efhi sem tengjast samtímanum með útgáfú á handhægum og ódýrum bókum í vasabroti; vasa- fræði. Atviksbækumar eru hugsaðar sem vopn til daglegs brúks, verkfæri til nota hér og nú til að skilja umhverfi sitt, breyta því og umskapa. Fyrsta Atviksritið heitir Tengt við tímann: Tíu sneiðmyndir frá aldalokum. Ritstjóri er Kristján B. Jónasson. Þetta er safn tíu texta þar sem tíu manns reyna að fmna taug milli sín og samtím- ans og eru höfundar þekktir ungir fræðimenn og rithöfundar, Eiríkur Guðmundsson, Auður Jóns- dóttir, Hjálmar Sveinsson, Andri Snær Magna- son, Úlfhildur Dagsdóttir, Hermann Stefánsson, Oddný Eir Ævarsdóttir, Ármann Jakobsson, Kristján B. Jónasson og Jón Karl Helgason. Annað í ritröðinni er safn ritgerða eftir Walter Benjamin, Listaverkið á tímum fjöldaframleiðslu sinnar. Ritstjóri er Hjálmar Sveinsson sem einnig ritar formála. Hugleiðingar þýska heimspekings- ins Walters Benjamin - sem hefur verið kallaður guðfaðir menningarffæða - hafa verið óþrjótandi brunnur fyrir alla þá sem hafa gert sér far um að skilja hvemig tæknilegar nýjungar hafa breytt skynjun, hugsun og lifsháttum okkar. Þriðja ritið er Frá eftirlíkingu til eyðimerkur, safn greina eftir franska heimspekinginn Jean Baudrillard undir ritstjóm Geirs Svanssonar. Baudrillard er nýstárlegur menningarrýnir sem hefur sett fram umdeildar kenningar um samtím- ann og hið póstmódemíska ástand. Veruleikinn er, segir hann, ekki lengur raunverulegur heldur ofur- og sýndarverulegur. í bókinni em væntan- legir lesendur boðnir velkomnir í „eyðimörk veruleikans". Ritröðin greinist í fjórar meginkvíslar sem eru auðkenndar með atviksorðunum nú, þá, þannig og þegar. Ekki er því um „flokka" að ræða held- ur vísa atviksorðin til íjölbreyttrar nálgunar og mismunandi sjónarhoma. Atviksbókunum er ætlað að draga fram athyglisverðar hræringar í menningarlífi hér á landi og erlendis, skýra þær og skilgreina. í ritstjóm Atvika sitja Davíð Ólafs- son, Hjáimar Sveinsson, Irma Erlingsdóttir, Sig- urður Gylfi Magnússon og Úlfhildur Dagsdóttir. Hláturgas til ísafjarðar Farandsýningin Hláturgas verður opnuð á Sjúkrahúsi ísafjarðar á morgun kl. 15 á leið sinni milli sjúkrahúsa kringum landið. Mönnum er loksins að skiljast að hláturinn lengir lífið ... Fyrirlestur um Bandalag íslenskra leikfélaga efnir til alþjóð- legrar leiklistarhátíðar á Akureyri dagana 21.-25. júní á sumri komanda - L2000 - í sam- vinnu við Reykjavík menningarborg. Tilefnið er 50 ára afmæli bandalagsins, sem var stofnað árið 1950 að frumkvæði Ævars Kvaran leikara. Þetta verður mikil veisla fyrir leikhúsáhuga- fólk með að minnsta kosti átta sýningum frá ís- lenskum leikfélögum af öllu landinu, og nú þeg- ar hefur verið tilkynnt um 3 leiksýningar sem koma erlendis frá. Frá Helsinki í Finnlandi kemur leikhópur- inn Kellariteatteri með sýninguna „Segðu sérðu regnið" eftir leikhópinn og IIppo Lukkar- inen. Þetta er óvenjulegur söngleikur sem not- ið hefur gífurlegra vinsælda í heimaborg sinni og fjailar um ýmis böl nútímans á gamansam- an og bjartsýnan hátt - eins og Finnum einum er lagið. Frá Riga í Lettlandi kemur leikhópur- inn Auskelis Limbazi Teatris með sýninguna „Á rúmsjó" eftir Slavomir Mrozek. Þetta er sprenghlægilegur gamanleikur eftir eitt vin- sælasta leikskáld Póllands. Sýning leikhópsins hefur fengið einróma lof í heimalandi sínu og var valin besta leiksýning áhugaleikfélaga í Lettlandi á síðasta ári. Frá Bergen í Noregi kemur leikhópurinn Ervingen með leiksýning- una „Morð í myrkri“ eftir Rolv Rolvsen. Þetta er glæpakómedía að hætti Norðmanna og hefur hlotið lof heima fyrir. Auk allra þessara leiksýninga verða sex leiksmiðjur í boði, götuleikhús, hátíðarklúbbur og ótal fleiri uppákomur vera skipulagðar fyrir jafnt unga sem aldna. Forseti íslands er vemdari hátiðarinnar. Með L2000-hátíðinni vill Bandalag íslenskra leikfélaga vekja athygli á því kröftuga og metnaðarfulla starfi sem fer fram innan að- ildarfélaga þess. Um leið gefst landsmönnum kostur á að kynnast því hve mikil gróska er í ís- lensku áhugaleikhúsi um þessar mundir. sæ- og vatnaskrímsli Á laugardaginn flytur Þorvaldur Friðriksson erindi um sæ- og vatnaskrímsli í tengslum við dagskrá Fræðaset- ursins í Sandgerði, Mannlíf við opið haf. Fyrirlesturinn fer fram í Fræðasetrinu, Garðavegi 1, og hefst kl. 15. Dagskrá Fræðaseturs- ins í Sandgerði stendur til ágústloka og er eitt af samvinnuverkefnum Reykjavikur - menningarborgar Evrópu árið 2000 og sveitarfélaga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.