Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2000, Blaðsíða 28
32 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 Tilvera x>v Mel Gibson Föðurlandsvinur í næstu kvikmynd sinni, The Patriot. Föðurlands- vinurinn The Patriot er ný kvikmynd sem frumsýnd verður 30. júní í Banda- ríkjunum. Um er að ræða rándýra mynd Roland Emmerich (Indepen- dence Day, Godzilla) leikstýrirog gerist meðan á sjálfstæðisbaráttu Bandaríkjamanna stóð á átjándu öld. Mel Gibson, sem hefur ekki leikið í sögulegri kvikmynd frá því hann gerði Braveheart, leikur stríðsmann mikinn sem hefur hætt öllum vopnaviðskiptum og er orð- inn fjölskyldumaður en tekur upp þráðinn aftur til verndar fjölskyldu sinni þegar átökin nálgast heimili hans. Hann sér fljótlega að eina leið- in til friðar er að þjóðin sameinist gegn Englendingum. Handritið skrifaði Robert Rodat en hann skrif- aði síðast handritið að Saving Pri- vate Ryan. Auk Mel Gibson leika í The Patriot Heath Ledger, Joely Richardson, Tom Wilkinson, Chris Cooper og Tcheky Karyo. -----------— Æi George Clooney Er í átökum við náttúruna í The Per- fect Storm. Fullkominn stormur í hinni ágætu stríðsmynd, Three Kings, voru í aðalhlutverkum Ge- orge Clooney og Mark Wahlberg. Þeim hefur greinilega líkað sam- starfið vel því þeir eru nú mættir í annarri kvikmynd, The Perfect Storm, sem leikstýrt er af Wolfgang Petersen (Das Boot, Air Force One). Þeir Clooney og Wahlberg eru enn í miklum átökum en nú eru það nátt- úruöflin sem eru óvinurinn en í myndinni, sem byggð er á stað- reyndum, segir frá atburðum sem áttu sér stað 1991 þegar einn versti stormur sem sögur herma gekk yfir og fiskibátar hurfu. Segir frá björg- unarmönnum, fjölskyldum sjó- manna og örlögum þeirra í mynd- inni. Auk Clooneys og Wahlbergs leika í myndinni Diane Lane, Mary Elizabeth Mastrantonio, Karen Allen og John C. Reilly. Stjörnufans í Time Code Lítið hefur farið fyrir leikstjóran- um Mike Figgis (Leaving Las Vegas) undanfarin misseri. Síðustu kvik- myndir hans, Miss Julie og The Loss of Sexual Innocence voru gerðar á óháða markaðinum og vöktu ekki mikla athygli. Figgis er nú aftur kom- inn til Hollywood og verður nýjasta kvikmynd hans, Time Code, frum- sýnd í vor. Ekki er um dýra kvik- mynd að ræða því myndin er tekin upp á einum degi með handtökuvél. Um er aö ræða svarta kómedíu um lífsstíl Los Angelesbúa. Fjöldi þekktra ieikara tekur þátt í þessari tilraun Figgis. Má þar nefna Salma Hayek, Stellan Skarsgard, Jeanne Tripp- lehorn, Kyle MacLaglan, Saffron Burrows, Julian Sands, Holly Hunter og Laurie Metcalf. Maðurinn á tunglinu: Grínisti leikur grínista Burtons, Ed Wood. Um tíma voru það margir góðir leikarar sem sóttust eftir því að fá að leika Andy Kaufman. Danny DeVito segir að hann hafi þó fljót- lega hugsað með sér að þetta væri hlutverk fyrir Jim Carrey og ekki vantaði áhugann hjá Carrey, sem hafði unnið stórsigur í The Truman Show. George Shamberg, umboðsmaður Kaufmans, sem fylgdist með kvik- myndagerðinni frá upphafi segir: „Það þarf tónlistarmann til að leika tónlistarmann og það þarf grínista til að leika grínista. Það komu margir þekktir leikarar í prufutökur þegar við vorum að velja í hlutverkið, en það var aðeins upptakan með Jim Carrey sem var fyndin. Hann skildi tímasetn- inguna sem nauð- synlegt var að hafa til að geta túlkað Andy“. i Að lokum má ; geta þess að | Andy Kaufman G og Jim Carrey '[i eiga sama af- g§ mælisdag, 17. janúar. -HK Maðurinn á tunglinu Jim Carrey þyk- ir sýna afburða- leik í erfiðu hlutverki og hefur fengið lof fyrir leik sinn, þótt hin 6000 manna amer- íska kvikmynda- akademía hafi gengið fram hjá honum við tilnefningu til óskarsverðlauna. Andy Kaufman og umboðsmaður hans Jim Carrey og Danny De Vito í hlutverkum sínum, en Danny DeVito var mótleikari Kaufmans í sjónvarpsþáttaröðinni, Taxi. Að það skyldi vera gerð kvik- mynd um Andy Kaufman var hrein tilviljun í afmæli hjá Michael Dou- glas. Meðal boðsgesta voru Milos Forman og Danny DeVito. Forman rifjar upp samtal þeirra: „Það vildi svo til að við sátum saman við borð, ég og Danny, og samtal okkar beind- ist að Andy Kaufman. Danny byrj- aöi að segja mér sögur af honum og mann Andy Kaufmans). í kjölfarið fóru þeir að leita uppi fólk sem hafði komið inn í líf hans. Til að skrifa handritið voru fengnir Scott Alexander og Larry Karaszewski en þeir höfðu skrifað handritið að The People vs. Larry Flynt, sem Milos Forman leikstýrði. Þá höfðu þeir einnig skrifað frábært handrit að kvik- mynd Tim Á morgun verður frumsýnd í Sambíóunum, í Háskólabíói, á Ak- ureyri og í Keflavík, Man on the Moon, sem er nýjasta mynd Jims Carreys. Hann fékk nýlega Golden Globe verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni. Carrey er í hlutverki leikarans og grínistans, Andys Kaufmans sem lést um aldur fram árið 1984 úr krabbameini, aðeins 35 ára að aldri. Þótti hann mikill furðufugl og var sárt saknað, ekki síst af kollegum hans úr skemmt- anabransanum. reynslu sinni af að vinna með hon- um. Þegar ég sagði að ævi hans gæti orðið stórkostleg kvikmynd var ég nánast tekinn á orðinu." Danny DeVito, sem er einn aðaleigandi í stóru kvikmyndafyrirtæki, hóf strax undirbúninginn en það liðu fimm ár þar til upptökur ioks hófust. Þegar Forman og DeVito höfðu loks komið sér saman um að gera kvikmyndina, sagði Danny DeVito: „Þú leikstýrir og ég framleiði og leik George Shapiro (umboðs- Hver var Andy Kaufman? Að segja að Andy Kaufman hafi verið frumkvöðull sem grínisti gæti allt eins verið rangfærsla. Það væri allt eins hægt að kalla hann prakkara því það voru ekki bara áhorfendur sem fengu að kenna á grini hans. Hann átti það til að gera vinum sínum Ijótan grikk sem ekki fór alltaf vel fyr- ir brjóstið á þeim. Kaufman var reyndar orðinn svo þekktur fyrir sín furðulegu uppátæki og hneykslanlega framkomu að fjölmargir héldu andlát hans bara vera hrekk. Andy Kaufman er, eins og svo margir af frægum gamanleikurum af hans kynslóð, útskrifaður frá Satur- day Night Live sjónvarpsþáttaröð- inni. Hann hafði eins og félagar hans byrjað feril sinn í hinum ýmsu klúbbum og gekk stundum fram af áhorfendum eins og þegar hann gekk inn á svið með bók undir hendi og sagðist ætla að lesa The Great Gatsby frá upphafi til enda. Hann byrjaði samviskusamlega á titilsíðunni og hver ætti réttinn á útgáfunni og hélt síðan áfram. Áhorfendur sem komu til aö sjá grínista vissu ekki hvaðan veðrið stóð á þá og þegar yfir lauk las Kaufman fyrir tómum sal. Þetta er aðeins ein saga af mörgum furðuleg- um sögum af Kaufman, sem enginn kvaðst í raun þekkja því hann væri alltaf að leika. Andy Kaufman varð frægur þegar hann fékk hlutverk Latka Gravas í sjónvarpsþáttunum Taxi. í þeim þátt- Andy Kaufman Einn uppfiningasamasti grínisti sem uppi hefur verið og gerði oft í því að ganga fram af fólki. um voru íjölmargir stórleikarar sam- tímans að stíga sín fyrstu skref, þar á meðal Danny DeVito, Christopher Ll- oyd, Tony Dansa, Judd Hirsch og Marilu Henner. Latka var í raun per- sóna sem Andy hafði skapað áður og oft notað á sviði. Meðleikendur hans segja reyndar að hann hafi verið svo djúpt sokkinn í persónuna að enginn leið hafi verið að ná sambandi við Andy sjálfan, hann hafi sífellt verið í karakter, hvort sem slökkt hafi verið á myndavélunum eður ei. Tony Clifton var nafn á öðrum karakter Andys. Sú persóna var frek- ar viðurstyggileg: feitur og hallæris- legur barsöngvari sem fannst ekkert skemmtilegra en að móðga konur og klípa í þær. Eitt af furðulegri uppá- tækjum Andys var að heimta það af framleiðendum Taxi-þáttanna að Tony Clifton yrði ráðinn sem leikari í einn Taxi-þáttinn. Andy þóttist svo fara í frí og sagði meðleikurum sín- um ekki hvernig væri í pottinn búið. Það er skemmst frá því að segja að Tony Clifton lék svo hörmulega og hegðaði sér svo illa við tökur þáttar- ins að hann var rekinn og hent út úr stúdíóinu af öryggisvörðum. Allar þessar uppákomur og margar fleiri má sjá í myndinni. Andy Kaufman greindist með krabbamein í lungum um miðjan des- embermánuð 1983 (hann hafði aldrei reykt nema þegar hann var að leika Tony Clifton) og fimm mánuðum síð- ar var hann allur. Kaufman lét ekkert af gríninu þótt að dauða væri kominn. Umboðsmaður hans, George Shapiro, sagði að stuttu eftir áramót hafi Andy kallað á hann: Andy: „George, þú verður að koma mér í Letterman Show.“ George: „Af hverju?“ Andy: „Vegna þess að hann mun ör- ugglega spyrja mig hvað ég hefði feng- ið i jólagjöf og ég get þá svarað: Krabbamein." -HK Milos Forman Ef hægt er að segja með sanni að einhver kvikmyndaleikstjóri geri fáar kvikmyndir en góðar þá á það betur við um Milos Forman en flesta aðra. Milos Forman fæddist í Tékkóslóvakíu 18. febrúar 1932 og var skírður Jan Tomas Forman. I síðari heimstyrj- öldinni voru for- eldrar hans sendir í útrýmingarbúðir nasista í Auschwitz þar sem þau voru tekin af lífi. Hann var einn efnilegasti kvikmyndagerðarmaður Tékka þeg- ar rússneskir skriðdrekar drápur frelsishugmyndir Tékka árið 1968 og flúði Forman þá til Bandaríkj- anna og hefur búið þar síðan. Þau eru orðin mörg óskarsverðlaunin sem kvikmyndir Formans hafa fengið en metið var sett með Amadeus, sem fékk níu óskara. Hér á eftir fer listi yfir þær átta kvikmyndir sem Milos Forman hefur leikstýrt eftir að hann kom til Bandaríkjanna, en í Tékkóslóvakíu leikstýrði hann nokkrum myndum sem sumar hverj- ar unnu til stórra verðlauna á kvik- myndahátíðum, má þar nefna The Firemans Ball og Blonde In Love. Taking Off, 1971 One Flew over the Cuckoo’s Nest, 1975 Hair, 1979 Ragtime, 1981 Amadeus, 1985 Valmont, 1989 People vs. Larry Flynt 1996 Man on the Moon, 1999 Milos Forman ásamt Jim Car- rey, sem hér er í gervi Tony Cliftons.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.