Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2000, Síða 29
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
33
DV
Tilvera
Nágrannastúlkan:
Aðeins sýnd á
miðnætti
Háskólabíó mun taka til sýningar
í kvöld bandarísku kvikmyndina
The Girl Next Door, sem er heim-
ildamynd um fyrirsætuna og klám-
leikkonuna Stacey Valentine. Það
sem gerir sýningu myndarinnar
sérstaka er að hún mun aðeins
verða sýnd á miðnætti þá daga sem
hún er í sýningu.
í myndinni er fylgst með lífi og
starfi Stacey og þótt vissulega sé
fylgst nákvæmlega með henni að
störfum þá er varla hægt að kalla
myndina klámmynd því meira er
gert úr því hvernig kaupin ganga á
eyrinni í þessum bransa, auk þess
sem einnig er fylgst með Stacey og
kærasta hennar sem einnig tekur
þátt í gerð klámmynda.
í myndinni, sem leikstýrt er af
Christine Fugate og hefur fengið
góðar viðtökur hjá gagnrýnendum,
er einnig hugað að fortíð Stacey
sem fæddist í Tulsa í Oklahoma.
Hún átti sér sama draum og margar
stúlkur, að verða fræg kvikmynda-
stjarna, og sendi ljósmyndir af sér
til hinna ýmsu blaða. Það sem hún
hafði upp úr því var að hún fékk
beiðni frá Husler um að sitja nakin
fyrir og tók hún því. Var hún stúlka
mánaðarins í september 1996. í kjöl-
farið fékk hún tilboð um að leika í
klámmyndum og segir hún að það
hafi fyrst og fremst verið pening-
arnir sem freistuðu hennar. í dag er
hún eftirsótt í tímarit og klámmynd-
ir og á næga peninga.
-HK
Winona Ryder í hlutverki Susonnu Kaysen
Var búin að hafa augastað á að leika Kaysen í ein sex ár, eða allt frá því að hún las bókina.
Það sem átti að verða stutt dvöl á hæli varð að tveggja ára dvöl:
Truflaðar stelpur
Stjömubió frumsýnir á morgun at-
hyglisverða kvikmynd, Girl, Inter-
rupted. Myndin er um reynslu rit-
höfundarins Susönnu Kaysen á geð-
veikrahæli en hún var lögð inn á
Tvær á geöveikrahæli
Winona Ryder og Angelina Jolie í hlutverkum sínum. Þær leika stúlkur með
ólíkan bakgrunn sem hittast á geðveikrahæli.
Claymoore-hælið á sjöunda áratugn-
um þar sem hún dvaldi í rúm tvö ár.
Árið er 1967. Hin sautján ára Sus-
anna Kaysen (Winona Ryder) er eins
og aðrir táningar á hennar aldri, ráð-
villt og óörugg sem reynir að fóta sig
áfram á lífsbrautinni. Eftir að hún
útskrifast úr menntó er eins og hún
rekist á vegg. Henni semur ekki við
foreldra sína, enda skilja þeir ekkert
í dóttur sinni. Til að bæta úr ástand-
inu ákveða foreldrar hennar að vísa
henni á sálfræðing. Eftir aðeins tutt-
ugu mínútna dvöl hjá sálfræðingn-
um er hún úrskurðuð andlega van-
heil og álítur sálfræðingurinn að
hún þjáist af „persónulegum óró-
leika“. Susanna er send til
Claymoore-hælisins. Á hælinu kynn-
ist hún nýjum vinum sem eiga eftir
að upplýsa leið hennar í leit að
sjálfri sér.
Sú sem er hvað mest áberandi er
hin villta Lisa (Angelina Jolie) sem
er sjarmerandi hættuleg. Aðrir sjúk-
lingar eru m.a. hin ofverndaða
pabbastelpa, Daisy (Brittany
Murphy), sem hefur dálæti á grilluð-
um kjúklingum, og Polly (Elizabeth
Moss) sem brennst hefur illa í and-
liti. Að endingu þarf Susanna að
velja á mUli tveggja heima, heimsins
innan veggja hælisins og þess heims
sem er öllu flóknari utan veggja
Claymoore-hælisins.
Winona Ryder hafði strax að lokn-
um lestri bókarinnar fyrir sex árum
haft áhuga á að leika Kaysen. Hún
segir að hún hafi fundið margt líkt
með unglingsárum sínum og fram
kemur i sögunni. Ryder hitti þó
aldrei höfundinn fyrr en Kaysen
heimsótti spítalann þar sem upptök-
ur fóru fram. Ryder segir að þær hafi
báðar verið hræddar við að hitta
hvor aðra. Kaysen hafði vitað af því
að Winona ætlaði sér hlutverkið, en
ótti þeirra var ástæðulaus. Báðar
segja að það hafi verið eins og þær
hafi strax talað eins og þær hafi
þekkst lengi
Leikstjóri Girl, Interrupted er
James Mangold sem vakti fyrst veru-
lega athygli með fyrstu mynd sinni,
Heavy, á Sundance-kvikmyndahátíð-
inni en það var árið 1996.1 kjölfarið
fylgdi lögguspennudramað Copland
með Robert De Niro, Harvey Keitel,
Sylvester Stallone og Ray Liotta.
-HK
Angelina Jolie:
í fótspor fööurins
Angelina Jolie er hratt rísandi
stjarna í Hollywood. Hún er tuttugu
og fjögurra ára og þrátt fyrir ungan
aldur hefur hún orðið mikla
reynslu enda ólst hún upp í
Hollywood innan um fræga fólkið
og var aðeins sjö ára þegar hún kom
fyrst fram í kvikmynd. Jolie þykir
einstaklega efnileg leikkona og hef-
ur þegar fengið tvenn Golden Globe-
verðlaun, verið valin besta nýja
leikkonan af gagnrýnendasamtök-
um og fengið tvær Emmy-tilnefning-
ar. Þriðju Golden Globe-tilnefning-
una fékk hún í ár fyrir leik sinn í
Girl, Interrupted og nú er hún til-
nefnd til óskarsverðlauna fyrir
sama hlutverk og þykir líkleg til að
hampa hinni eftirsóttu styttu á
sunnudagskvöld.
Jolie á ekki langt að sækja leik-
hæfileikana, hún er dóttir leikarans
Jon Voight sem ávallt hefur verið
talinn meðal betri leikara sinnar
kynslóðar. Hún var snemma ákveð-
in í að feta í fótspor föður sins og á
unglingsaldri sótti hún leiknám í
hinum þekkta skóla Lees Stras-
bergs, Theatre Institute, þar sem
hún fékk mikla reynslu í sviðsleik.
Áður en hún sneri sér alfarið að
kvikmyndum vann hún fyrir sér
sem sýningarstúlka, lék i nokkrum
tónlistarmyndböndum, meðal ann-
ars með Rolling Stones, Meat Loaf,
Lenny Kravitz og The Lemm-
onheads, og þá lék hún í myndum
bróður síns, James Haven Voight, á
meðan hann nam kvikmyndafræði í
USC School of Cinema.
Eftir að hún hóf leik i kvikmynd-
um hefur hún leikið í mörgum mis-
góðum kvikmyndum. Hennar bestu
hlutverk hafa verið í Playing by He-
art, Pushing Tin og sjónvarpsmynd-
inni Gia sem segja má að hafi skot-
ið henni upp á stjömuhimininn. Sú
mynd var byggð á ævi þekktrar ljós-
myndafyrirsætu sem haldin var
sjálfseyðingarhvöt og þegar hún lést
var hún forfallinn eiturlyfjaneyt-
andi.
Kvikmyndir Angelina Jolie
Lookin' to Get Out, 1982
Cyborg 2: Glass Shadow, 1993
Without Evidence, 1995
Hackers, 1995
Mojave Moon, 1996
Love Is All there Is, 1996
Playing God, 1997
Hell's Kitchen, 1998
Playing by Heart, 1998
Pushing Tin, 1999
The Bone Collector, 1999
Girl, Interrupted, 1999
Dancing in the Dark, 2000
Gone in Sixty Seconds, 2000
Angelina Jolie
Áður en hún sneri sér alfariö að kvikmyndum vann hún fyrir sér sem sýn-
ingarstúlka, lék í nokkrum tónlistarmyndböndum, meöal annars með
Rolling Stones, Meat Loaf og Lenny Kravitz.
Við mælum
með...
The Insider ★★★★
The Insider er einhver besta
kvikmynd sem gerð hefur verið um
fjölmiðlun og tekst leikstjóranum,
Michael Mann (The Last of the
Mohicans, Heat), að ná upp góðri
spennu í kvikmynd sem hefur sterk-
an boðskap og mikið raunsæi. The
Insider er einnig kvikmynd um göl-
miðlun, baráttu um fréttir og bar-
áttu við eigendur sem hugsa öðru-
vísi heldur en fréttamenn. Mann
fær góða hjálp frá frábærum leikur-
um, Russel Crowe og A1 Pacino.-HK
Brínging out the Dead ★★★★
Hér erum við enn á ný komin á
slóðir hrelldra sálna þar sem neyð-
arópin kveða við úr öllum áttum og
helvíti sjálft virðist í besta falli að-
eins einni hæð neðar. Myndir Scor-
sese lýsa kröftugum átökum og
birta okkur magnaðar sýnir þar
sem leitin að endurlausn og fyrir-
gefningu syndanna mynda grunn-
tóninn. -ÁS
American Beauty ★★★
Til allrar hamingju fer American
Beauty vel með þetta margþvælda
efni, gráa fiðringinn, óttann við að
eldast og lífsins allsherjar tilgangs-
leysi. Styrk og hljóðlát leikstjórn
ásamt einbeittum leikarahópi lyftir
þessari mynd yfir meðalmennskuna
og gerir hana að eftirminnilegu
verki. -ÁS
Magnoiia ★★★
Hér er áherslan lögð á þau
skemmdarverk sem unnin eru í
skjóli fjölskyldunnar, vanrækslu,
misnotkun og skeytingarleysi. Það
sem heppnast afar vel er samspil
þessara þráða sögunnar svo úr verð-
ur fallegur samhljómur og hjart-
næm lýsing á eðli mannlegra sam-
skipta. Samkenndin með persónun-
um á rætur sínar í þeirri vitneskju
að við erum öll tengd en það sem
tengir okkur er sú staðreynd að öll
erum við stök. -ÁS
Summer of Sam ★★★
Það er mikill kraftur í Summer of
Sam og sem fyrr er Spike Lee ekk-
ert að hlífa persónum sínum, rífur
þær niður jafnóðum og hann er bú-
inn að upphefja þær. Þrátt fyrir að
sumar hverjar séu ýktar þá eru þær
trúverðugar, eru í meira lagi orð-
ljótar og í samræmi við það um-
hverfi sem þær alast upp í. Lee
byggir ekki upp mynd sína í kring-
um eina eða tvær sögur, heldur
keðjuverkandi atburði, sem stund-
um virðast eins og tilviljanakennd-
ir, en allt stenst þetta nánari skoð-
un. -HK
Ftaskó ★★★
Aðall Fíaskó er hvernig á galsa-
fullan en um leið vitrænan hátt
þrjár sögur um ólík viðhorf til lífs-
ins tengjast. Myndin er fyndin og
um leið mannleg. í sinni fyrstu
kvikmynd i fullri lengd fer Ragnar
Bragason vel af stað. Það er viss
ferskleiki í kvikmynd hans og eng-
inn byrjendabragur á leikstjóminni
sem er örugg og útsjónarsöm. Hon-
um tekst að láta smáatriðin vera
mikilvæg fyrir framvindu sögunn-
ar, þá hefur hann góð tök á leikur-
um sem upp til hópa eru í sínu
besta formi. -HK
Græna mílan ★★★
Vel gerð og spennandi kvikmynd
með áhugaverðum söguþræði á mörk-
um raunsæis og þess sem enginn
kann skýringu á. Leikstjórinn, Frank
Daramont, sem einnig skrifar handrit-
ið, fylgir sögunni vel eftir og er lítið
um breytingar hjá honum. Þar af leið-
andi er myndin mjög löng, nánast
engu er sleppt, og hefði að ósekju mátt
stytta hana aðeins. Hún hefði þá sjálf-
sagt orðið skarpari með sterkari
áherslum á hið góða og illa. -HK