Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2000, Side 6
22
MiÐVIKUDAGUR 29. MARS 2000
Af hverju borgaraleg ferming?
Ekki til-
búinn
að lofa
að trúa
- sagði Sveinn Einarsson
Sveinn Einarsson var eitt þeirra bama
sem tóku þátt í borgaralegri fermingu í Há-
skólabíói þann 19. mars. sl. Börnin, sem
vom 49 að tölu, tóku virkan þátt í athöfninni
og flutti Sveinn m.a. ávarp við þetta tækifæri
eins og önnur fermingarsystir hans.
,Uú, ég flutti ávarp um hvemig námskeið-
ið var og hvað við vomm að læra. Við lærð-
um um lífið og tilvemna og hvemig það er
að verða fúllorðinn. Mér finnst að ég hafi
lært mikið á þessu. Maður lærir t.d. hvemig
maður tekur erfiðar ákvarðanir og annað.“
- Af hveiju borgaraleg ferming?
„Ég var bara ekki tilbúinn að lofa því að
trúa á Guð - allavega ekki strax. Það getur
verið að ég geri það seinna. Ég held að þetta
sé góð lausn fyrir þá sem ekki vilja fara
hefðbundna leið hjá kirkjunni. Ég held ég
myndi ráðleggja öllum sem em eitthvað ef-
ins að fara í gegnum þetta.“
- Er þetta annars svipað og kirkjuleg
ferming?
,Já, ég held það. Það er haldin veisla og
allt svoleiðis. Ég er mjðg ánægður með
þetta. Krakkamir koma hver úr sínum skól-
anum,“ sagði Sveinn og taldi af þeirri
ástæðu frekar ólíklegt að fermingarsystkinin
héldu hópinn eftir athöfnina.
Faðir Sveins, Einar Ólafsson, segir að
dóttir sína hafi líka farið í gegnum borgara-
lega fermingu fyrir þrem ámm. Sjálfúr
fermdist Einar í kirkju og sagði bæði borg-
aralegu fermingarfræðsluna og athöfnina
talsvert ólíka. Þama væri farið í stöðu ung-
lingsins, siðfræði, ábyrgð og samskipti við
foreldra og annað fólk. Farið væri í málefni
sem snúa að unglingum, svolítið um vímu-
efni og samskipti kynjanna. Lögð er mikil
áhersla á umburðarlyndi gagnvart skoðunum
og trú annarra en leiðbeinandi var Jóhann
Björnsson, heimspekingur. Einar telur borg-
aralegu ferminguna góða lausn fyrir þá sem
em í vafa, standa utan trúfélaga eða era í
öðm trúfélagi en þjóðkirkjunni. Þetta gefi
krökkum úr þessum hópum tækifæri til að
taka þátt í fermingarathöfn eins og öðrum
krökkum.
Einar segir að það hafi verið samkomulag
í fjölskyldunni að hafa þetta svona. Hann
segist hins vegar hafa gert bömunum grein
fyrir því að þau væm ekki að loka á það að
fermast á kristilegan hátt ef þau vildu gera
það einhvemtíma seinna. Einar sagði að
þetta hefði verið hátíðleg athöfn án þess að
vera nokkuð uppskrúfuð.
-HKr.
*
[
Sveinn Einarsson
„Ég held að þetta sé góð lausn jyrir þá sem ekki vilja fara hefðbundna leið hjá kirkjunni.
arfi/boð
• Svefnpokar
• Bakpokar
•Gönguskór
• Flíspeysur
• Útivistarfatnaður
Faxafeni 12 • 108 Reykjavík • S: 588 6600
atttmd)
Apolartec