Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2000, Blaðsíða 20
H
MÍÐVIKUDAGUR 29. MARS 2000
Oddur Jacobsen fermdist í Færeyjum:
Fermingar
samstarfsverk-
efni presta og
kaupmanna
- og allt of mikil læti á íslandi
„I Færeyjum er þetta allt öðruvísi. Þar
kostar ekki eins mikla peninga að ferma.
Þegar ég fermdist fékk ég mjög lítið i ferm-
ingargjöf og þetta hefur ekki breyst mikið
þar. Hér á íslandi er engu líkata en ferming-
ar séu samstarfsverkefni presta og kaup-
manna. Það eru allt of mikil læti í kringum
þetta hér. Þetta nær engri átt eins og þetta er
orðið,“ segir Færeyingurinn Oddur Jacobsen
sem fermdist í Havnar kirkja í Þórshöfn
haustið 1974. Hann býr núna í Breiðholtinu
með ijölskyldu sinni og stundar bílaviðgerð-
ir í Reykjavík enda lærður vörubilavirki í
Færeyjum. Þegar Oddur fermdist var lítil
veisla þar sem aðeins nánasta fjölskylda var
saman komin í kaffiboði. Ólikt því sem hér
tíðkast er fermt í Færeyjum bæði að vori og
hausti.
„Ég fermdist bara af því að það er hefð og
mér var sagt að gera það. Svo hefúr þetta
breyst hjá mér því nú er ég orðinn ásatrúar-
maður svo ekki hefur fermingin breytt
miklu.“
Oddur segist fá miklu betri útskýringu á
tilurð heimsins í ásatrúnni auk þess sem þar
eru engar dýrar fermingar. „I ásatrúnni er
maður bara maður sjálfur, lifir í sátt við um-
hverfið og náttúruna og er sjálfúm sér sam-
kvæmur. Ég þarf ekki að lifa eftir einhvetj-
um kenningum sem enginn skilur eins og í
kristnu trúnni,“ segir Oddur Jacobsen.
-GS
Oddur Jacobsen: „Égfermdist bara afþví
að það er hefð og mér var sagt að gera
þaö." DV-MYND GS
Bretta pakkar fyrir börn
kr. 24.900,-
Bretta pakkar fyrir unglinga
kr. 29.900,
Vertu ekki út úr myndinni!
0>V>v?
sla, vöxun og skerping fylgir öllum brettum
g..; ' ■
-í V:::”
..
■ ■ ■ . ■■ .
n u í| n v o g u » 2
TTABUD % REYKJAVIKUR
5 6 2 - 1 8 0 0
* gildir til 22. apríl
4776 36-41
6.990 Beige
9052 39-46
4.900 Svart
4771 36-41
6.990 Beige
7277 40-46
3.900 Svart
SKOuERSLUN
KÚPAVOGS
3691 36-41
6.500 Beige.
Hamraborg 3 - simi 5541754.