Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 I>V Fréttir Réttarhöld í Espigeröismálinu - ákæruvaldið gegn Elísi Ævarssyni, 26 ára: Manndrápsmaðurinn brast í grát fyrir dómi - Elís sagði leigubílstjóra sínum blóðugur frá því að hann hefði banað konu DV-MYND TEITUR Gengiö í sal til aö svara til saka Sakbomingurinn gekk spariklæddur í dómsalinn en meö úlpuhettu um höfuðið. Hann settist síðan við hlið verjanda síns meö handjárnin. Eftir aö hann tók hettuna af sér óskaði dómarinn eftir því að lögreglumenn tosuöu járnin af honum. „Mig langaði að taka mitt eigið líf og var kominn í mikið geðveikisástand ... út af ítrekuðum mistökum í lífinu og fíkniefnaneyslu. Ég get ekki útskýrt hvers vegna ég gerði þetta,“ sagði Elís Ævarsson, 26 ára, og brast í grát þar sem hann sat við hliðina á verjanda sínum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær þegar Sigríður Friðjónsdóttir sak- sóknari hóf að spyrja hann út i tildrög þeirra atburða sem áttu sér stað í fjöl- býlishúsinu Espigerði 4 síðdegis fóstu- daginn 3. desember. Elís er ákærður fyrir að hafa banað áttræðri konu, Sigurbjörgu Einarsdótt- ur, á heimili hennar. „Ég vildi að ég ætti einhverja skýr- ingu á þessu. Ég var langt leiddur alkó- hólisti og vímuefnafikill - það er það eina sem getur skýrt þetta þó það sé engin afsökun," sagði Elís. Þegar sækjandinn spurði sakbom- inginn hvemig hann hefði ætlað að svipta sig lífí sagði hann: „Ég ætlaði að henda mér niður af svölunum." Einnig kom fram í gær að Elís hafði ákveðið fyrir voðaatburðinn að gera öðrum eitthvað illt. Tók ákvörðun um verknaðinn fyrir fram Elís kvaðst hafa veriö nýbúinn að ljúka einni af fjölmörgum vímuefha- meðferðum sínum þegar hann féll 7-8 dögum fyrir manndrápið í Espigerði. AUa þá daga hefði hann verið búinn að neyta morflns, e-taflna, amfetamíns, alkóhóls í miklu magni og kannabis- efna og inn á milli hefði hann tekið ró- and lyf eins og mogadon og diazepam. „Ég hafði ekki sofið í tvo eða þijá sól- arhringa," sagði ákærði og kvaðst í rauninni lítið muna „nema gloppótt". „Ég var í mjög miklu geðveikisástandi, ég var reiður og stjómlaus. Aðallega út í sjálfan mig.“ Þegar sækjandinn spurði hvenær sú hugmynd heföi kviknað að taka líf annars kvaðst Elís ekki vita það ná- kvæmlega - það gæti hafa verið 10 mínútum áður en voðaatburðurinn átti sér stað. „Ég veit ekki hvað ég hugsaði. Ég æddi af stað,“ sagði hann. Hann kvaðst hafa ætlað að gera sjálfum sér eitthvaö illt. „Mér fannst þetta leið til að öskra mig út,“ sagði hann og átti við vímuefnaástand sitt og dapurlegt lífshlaup sem hófst með áfengisdrykkju strax við 9 eða 10 ára aldur og vimuefnaneyslu 12 ára. Fór beint í ÁTVR eftir mann- drápið Dóttir aldraðrar konu sem bjó í íbúð beint á móti íbúð móður Elísar í fjölbýl- ishúsinu í Espigerði bar fyrir dómi í gær að fyrir atburðinn hefði Elís bank- að þar upp á - á sokkaleistunum, snyrti- legur en í ákaflega annarlegu vímu- og/eða áfengisástandi. Hann hefði feng- ið að hringja en símtalið verið mjög stutt. Síðan hefði hann farið út. Skömmu síðar sagðist Elís hafa far- ið á næstu hæð fyrir neðan þar sem hin látna bjó. Síðan lýsti hann því hvemig hann stakk hana tvisvar til þrisvar í hálsinn og konan féll í gólfið fyrir framan hann. Eftir það tók hann 2-3 þúsund krónur úr veski hennar í eldhúsinu, gekk út í blóðugum galla- buxum og síðan út úr húsinu og sem leið ná niður í ÁTVR í Kringlunni. Áður en hann yfirgaf ibúð konunnar þvoði hann sér um hendumar og hníf- inn sinn sem hann bar ávallt á sér. Óttar Sveinsson „Einkaleigubílstjórínn" vissi um atburöinn Þegar Elís hafði keypt sér bjórkassa i ríkinu hringdi hann á leigubílstjóra sem gjaman ekur honum. Hann kom og náði í hann og ók með Elís að heim- ili vinar hans við Skúlagötu. Vitnis- burður leigubílstjórans fyrir dómi í gær var athyglisverður: Hann sagði m.a. að Elís hefði sagt sér að hann hefði „drepið" konu - inn- an við klukkustund eftir voðaatburð- inn. „Ég stakk hana í hálsinn," hafði bílstjórinn eftir Elísi þegar sá síðar- nefndi var að stíga út úr bílnum á Skúlagötu. Bílstjórinn kvaðst vissulega heyra ýmisiegt í starfi sínu en af einni ástæðu kvaðst hann sérstaklega hafa haft áhyggjur af Elisi sem hann þekkti. „Hann fór hálfpartinn að gráta þegar hann sagði þetta,“ sagði leigubílstjór- inn. Hann kvaðst hafa séð blóð á galla- buxum Elísar. Þegar leið á kvöldið og nóttina og hann fékk fregnir um voðaatburð í Espigerði varð bílstjóranum ljóst að Elís hefði að líkindum framið hræði- legan verknað. Lögreglan hringdi í bíl- stjórann og bauðst hann að morgni til að koma og upplýsa um samskipti sín við Elís daginn áöur og um kvöldið. Elís var handtekinn á laugardeginum. Espigerðismálið hefur verið tekið til dóms. Niðurstöðu Ingibjargar Bene- diktsdóttur héraðsdómara er að vænta síðar í nýhöfnum mánuði. Stuttar fréttir Ætlar á norðurpólinn |j^ ? n að félagi hans, Ingþór ekki aleinn á pólnum því Svíarnir Göran Kropp og Ola Skinnarmo fóru þangað frá Síberíu 1. mars síðastliðinn. Gangan á norður- pólinn gekk vel hjá Haraldi Erni Ólafs- syni pólfara í gær. Þá gekk hann 19,3 km og hefur nú samtals gengið 122 km. Vísir.is greindi frá. Gallar á frumvarpi Samtök iðnaðarins telja í umsögn sinni að verulegir gallar séu á frum- varpi sem liggur fyrir Alþingi um breytingar á samkeppnislögunum og segja það mikil vonbrigði að ekki skuli tekið á málsmeðferðarreglum og skipan samkeppnisráðs og áfrýjun- amefndar. Vísir.is greindi frá. Flóttamenn til Siglufjarðar Páll Pétursson félagsmálaráðherra hefur gert samkomulag við stjórn Siglufjarðarkaupstaðar um að þangað komi 20 til 25 ílóttamenn frá Krajina- héraði í fyrrum Júgóslavíu. Nýtt gagnasamband Nýtt ljósleiðarasamband er komið á milli Landspítala Fossvogi og Landspítala Hringbraut. Nýlega var samið við fyrirtækin Lina.Net og ís- landssíma um slíka tengingu. Þetta samband er eitt öflugasta gagnasam- band sem komið hefur verið á milli tveggja húsa hér landi. Nýtt varðskip Smíðalýsing að nýju varðskipi ligg- ur nú fyrir og var kynnt á fundi Sól- veigar Pétursdóttur dómsmálaráðherra í gær. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að skipið verði 105 metra langt og búið fullkomnasta búnaði til gæslu- og björgunarstarfa. Áætlaður kostnaður við smíöi skips- ins er 2.423 milljónir. Fínn Miðill og Skjár einn: Samningaviðræður á veitingahúsum Ánægjuleg heimsókn Forseti íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, kynnti sér starfsemi Krabbameinsfélags íslands í gær. Forsetinn sýndi starfsemi krabba- meinsfélagsins mikinn áhuga og sagöi Guörún Agnarsdóttir félagið eiga í honum góðan bandamann. Níu vilja Þjóð- minjasafnið Níu sóttu um starf þjóðminjavarðar en umsóknarfrestur um starfið rann út síðdegis í gær. Umsækjendur eru: Adolf Friðriksson, Bjami F. Einars- son, Gísli Sigurðsson, Kristín Huld Sigurðardóttir, Hjörleifúr Stefánsson, Margrét Hermanns Auðardóttir, Mar- grét Hallgrímsdóttir, Ólína Þorvarðar- dóttir og Steinunn Kristjánsdóttir. Menntamálaráðuneytið mun senda umsóknimar til umsagnar þjóðminja- ráðs og í kjölfarið ákveður menntamála- ráðherra hver hreppir hnossið. -EIR „Við höfúm haldið ótal fundi með forsvarsmönnum á Skjá einum yfir há- degis- og kvöldverðum en niðurstaða er ekki fengin,“ sagði C. J. Jones, fram- kvæmdastjóri Fíns Miðils, um hugsan- legt samstarf útvarpsstöðva fyrirtækis- ins í Aðalstræti og sjónvarpsstöðvar- innar sem að undanfómu hefur leitað með logandi ljósi að nýju hlutafé í reksturinn, sem kunnugt er af fréttum DV. „Viö ætlum ekki að kaupa Skjá einn og stöðvar okkar em ekki til sölu. Þetta snýst allt um samstarf,“ sagði C. J. Jones sem hefur tröllatrú á framtíð Skjás eins: „Sjónvarpsmál á íslandi em í hraðri framþróun og er það helst að þakka starfmu sem unnið hefur veriö á Skjá einum. Þeir eiga vafalltið eftir að græða mikla peninga áður en langt um - segir C.J. Jones C.J. Jones Hefur tröllatrú á framtíö sjónvarps- stöövarinnar Skjár einn. líður og sjálfir erum við alltaf að líta eftir nýjum möguleikum. Þá vil ég geta þess að Ríkissjónvarpiö hefúr einnig verið að gera góða hluti og á sinn þátt í þeirri góðu gerjun sem er í sjónvarps- málum á íslandi," sagði C.J. Jones sem samhliða samningaviöræðum við stjómendur á Skjá einum vinnur að því að koma útvarpsstöðvum fyrirtæk- is síns út um land allt en þær hafa hingað til verið bundnar við suövest- urhomið. Meðal stöðva sem Finn Mið- ill rekur em FM, Gullið, X-ið og Klassík FM. Bókaútgáfan Vaka-Helgafell keypti sig nýverið inn i rekstur Fíns Miðils og samkvæmt heimildum DV hefúr Ámi Samúelsson bíókóngur áhuga á aö selja þaö litla sem hann á eftir í fyr- irtækinu. -EIR Hálf milljón í dag verður dreginn út síðasti vinningurinn í Afmælisleik Vísis.is, en þó hann sé síðastur er hann síður en svo sístur. Nú þegar hafa sex manns unnið sér inn 50.000 þúsund krónur hvert með því að sprengja blöðrur á síðum Vísis.is. Fýlgist með símagjaldi Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ætlar að fylgja fast eftir frekari lækkim- um á símakostnaði Landssimans á móti hækkun fastagjalds- ins. Dagur greindi frá. Óánægja með gjaldskrá Neytendasamtökin lýsa megnri óá- nægju með gjaldskrárbreytingar Landssímans sem taka eiga gildi í dag. Samtökin skora á stjóm fyrirtækisins að endurskoða gjaldskrána til að vega upp á móti 100% hækkun á fastagjaldi Símans. Neytendasamtökin telja að stjóm fyrirtækisins fari ekki að til- mælum Póst- og fjarskiptastofhunar um að lækka önnur gjöld til mótvægis við lögbundna hækkun fastagjaldsins og með breytingunum fái fyrirtækið stórauknar tekjur, þvert á yfirlýsingar forstjóra þess fyrir helgi. -ja/HG
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.