Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Blaðsíða 6
fSLENSKA AKCIÝ JINCASTOFAN EHF. / SÍA.IS
Frettir
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
x>v
■m<-
Sunnudagar eru
fjölskyldudagar
Kringlan er opin á sunnudögum
og þar finna allir í fjölskyldunni
eitthvaö við sitt hæfi.
■m ,
FLESTAR VERSLANIR
frákl. 13.00- 17.00
STJÖRNUTORG
skyndibita- og veitingasvæbib
frákl. 11.00-21.00
alla daga.
Abrir veitingastaðir og Kringlubíó
eru meó opió fram eftir kvöldi.
9
: m/w
Sá fyrir óhagkvæmni Fljótsdalsvirkjunar:
Ég hafði rétt
fyrir mér
- segir Guðmundur Ólafsson
Sandkorn
Guðmundur Ólafsson hagfræðingur
gerði á sínum tíma hagkvæmniút-
reikninga sem áttu að sýna fram á
hagkvæmni
Fljótsdalsvirkjun-
ar miðað við 120
þúsund tonna ál-
ver í Reyðarfirði.
Honum sjáifúm til
undrunar komast
hann að því að
slíkur kostur var
verulega óhag-
kvæmur.
Niðurstöður sín-
ar setti Guðmund-
ur á heimasíðu
sína í desember.
Nú hafa menn
horfið frá hug-
myndum um aö reisa 120 þúsund
tonna álver í Reyðarfirði og þess í
stað er gert ráö fyrir 240 þúsund
tonna álveri. Þá er líka gert ráð fyrir
breyttri virkjanaröð með Kárahnúka-
virkjun í stað virkjunar Eyjabakka.
„Mér sýnist að þessi þróun í mál-
inu núna sé bara staðfesting á því sem
ég var að segja. Ég hafði einfaldlega
rétt fyrir mér. Maður sá það alltaf að
Fljótsdalsvirkjun ein og sér bæri ekki
þennan fjárfestingarkostnað. Ef menn
bæta nú við álframleiðsluna þá hugsa
ég að þeir virkjanakostir sem nú eru
nefndir séu hlutfallslega ódýrari mið-
að við framleiðslugetuna. Ég hef ekki
séð neinar tölur en mér kæmi ekkert
Guömundur
Ólafsson
Boöið var upp á
minna álver en
menn ætluöu að
byggja.
á óvart aö þetta reyndist hagkvæmt.
Þarna er hins vegar um að ræða
miklu meira mannvirki en Fljótsdals-
virkjun.
Áttu að koma hreint fram
Það sem sló mig varðandi Fljóts-
dalsvirkjun var að menn voru að
bjóða upp á miklu minna álver en
menn ætluöu sér raunverulega að
byggja. Þetta átti að vera fyrsta skref
sem yrði þá auðvelt fyrir menn að
sætta sig við. Síðan átti að taka hin
skrefin í kjölfarið sem erfitt yrði að
standa á móti. Ég held að þetta hafi
verið alrangt. Menn áttu strax að
reyna að finna hagkvæmasta kostinn.
Það átti að segja það hreint út hvað
menn ætluðu að gera, hvort sem
menn ætluðu að reisa 240 eða 470 þús-
und tonna álver. Það hefði verið
miklu hreinlegra heldur en að ætla
sér að lauma inn framkvæmd með
einhverri lítilli óhagkvæmri virkjun
til að byrja með sem liti vel út á yfir-
borðinu."
Guðmundur telur mjög mikilvægt
að efla atvinnuflóruna með virkjun og
álveri fyrir austan. íslendingar þurfi á
því að halda að skapa fleiri atvinnu-
möguleika. Hins vegar megi alltaf
velta fyrir sér hvort einhverjir aðrir
kostir séu ekki hagkvæmari en að
selja orkuna til álvers. Þessi spurning
verði líka áleitnari ef hugmyndir
kæmu upp um t.d. 470 þúsund tonna
álver. -HKr.
Tal lækkar millilandasímtöl:
Sama verð úr GSM
og heimilissíma
- blöskrar hækkun hjá Landssímanum
Tal hefur nú lækkað verð á milli-
landasímtölum til útlanda úr GSM-
símum. Á blaðamannafundi hjá Tali
í dag sagði Þórólfur Ámason for-
stjóri að hvergi í
heiminum hefði
verið stigið sam-
bærilegt skref og
Talsmenn hafi
nú stigið. Nú
kosti jafnmikið
að hringja til út-
landa úr GSM-
síma og heimilis-
sima.
15. apríl nk.
byrjar Tal með
nýja útlanda-
_____ þjónustu fyrir
heimilissíma
sem kaliast TALsamband við út-
lönd. Þórólfur segir að frá og með
morgundeginum verði hægt verði
að skrá öll heimilisnúmer í þjónust-
una en þeir sem hafa GSM-síma frá
Tali fá þjónustuna sjáifkrafa. „Eftir
Þórólfur Arnason
Sama millilanda-
verö úr GSM-
síma og heimilis-
síma.
skráninguna notar fólk áfram for-
valsnúmerið 00 til útlanda og borg-
ar um 19 krónur á mínútuna til
helstu viðskiptalanda."
Blöskrar hækkun Landssíma
Þórólfur sagði að sér blöskraði
hækkunin á fastagjaldi hjá Landssím-
amun. „Þó reglur kveði nú á um að
verð til notenda eigi að vera í sam-
ræmi við kostnaðinn við þjónustuna
sjáum við enga þörf á að hækka gjöld-
in upp í 1111 krónur. Ekkert segir mér
að ekki sé hægt að minnka yfirbygg-
ingu dreifikerfis Landssímans og
lækka kostnaðinn við fastlínukerfið.
Gallinn er bara sá að í dag er enginn
hvati til þess. Ég vil benda á að fyrir
sama verð og kostar að eiga heimilis-
sima, þótt maður hringi aldrei, er
hægt að hringja í 111 mínútur milli
GSM-síma hjá okkur; Tal i Tal. Þessi
staðreynd ýtir enn frekar undir breytt
lífsmynstur þar sem fastlínukerfið
gegnir æ minna hlutverki í fjarskip-
um.“ -HG
PflR 5 E M J fl R T H fl SIŒR
PPLÝSINGHSlMI 5 8 8 7 7 B 8 SKRIFSTOfUSlMI 5 0 8 9 2 0 1
Sjóbirtingsveiðin hefst í dag
„Horfumar með vorveiðina eru
góðar og ég held að það eigi eftir að
veiðast vel. Hlýindin Síðustu daga
spila það stórt inn í,“ sagði Guxmar J.
Óskarsson, formaður Stangavéiðifé-
lags Reykjavíkur, í samtali við DV.
Sjóbirtingsveiðin byrjar fyrir alvöra í
dag og geta veiðimenn víða veitt.
„Við vorum fyrir skömmu fyrir
austan og þá vora horfumar ekki góð-
ar en þetta hefur breyst verulega. Við
erum með kvóta, eins og í Geir-
landsánni, fjóra fiska á stöngina.
Vatnamótin verða örugglega ekki
opnuð strax, þetta er eins og á norður-
pólnum þar niður frá. En þetta kemur
allt,“ sagði Gunnar enn fremur.
„Það hefur gengið feiknavel að selja
í Þorleifslækinn en við erum með 6
stangir og stöngin er á tvö þúsund.
Horfur með veiði eru góðar," sagði
Ingólfur Kolbeinsson í Vesturröst, en
hann selur veiðileyfi í Þorleifslækinn.
„Það veiðist ýmislegt í læknum,
eins og sjóbirtingur, bleikja, urriði, og
svo veiddust kolar uppi í fossi í fyrra.
Þeir hafa farið ansi langt, blessaðir,"
sagði Ingólfur í lokin. Ingólfur ætlaði
til veiöa um helgina, eins og reyndar
fleiri veiðimenn sem geta ekki beðiö
lengur.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur biður
upp á ýmislegt góðgæti í vorveiðinni,
eins og Hörgsá meðan brúar,
Tungufljót, Sogið og Hítará á Mýrum.
G. Bender
sfy Umsjdn:
Reynir Traustason
netfang: sandkorn@ff.ls
Plott Halldórs
Það er altalað
meðal þingmanna
að Halldór Ás-
grímsson utanrík-
isráðherra undirbúi
nú brotthvarf sitt
úr kjördæmi Aust-
firðinga. Vandi
hans var sá að
vegna Eyjabakka-
málsins komst hann ekki suður
þar sem andstæðingar biðu hans í
hrönnum. Nú rofar til á Eyjabökk-
um og þá opnast smuga. Menn segj-
ast merkja ákvörðun ráðherrans á
landsmálunum. Þannig sé það eng-
in tilviljun að nú sé um það rætt af
alvöru að heimasveit Halldórs,
Hornaijörður, fylgi suðurkjördæmi
en ekki Austfjörðum. Þama sé
Halldór að plotta í anda sögunnar
um Múhameð og fjallið. Fyrst Hall-
dór vill ekki fara til kjördæmisins
kemur kjördæmið til Halldórs...
Sænautakjöt
Hvalveiðar hafa i
ekki verið leyfðar j
um árabil við ís-
land en samt tekst |
fólki af og til að |
næla sér i hval-
kjötsbita. Opin-
berlega er þó ekki I
vitað til að neinn
aöili hér við land
stundi hvalveiðar. Nokkurt fram-
boð af hrefnukjöti og öðrum hval-
tegundum er hins vegar skýrt með
því að þar sé um að ræða kjöt af
sjálfdauðu eða að hvalir hafi ánetj-
ast og drukknað. Einstaka sögur
eru líka sagðar af hrefnum og hnís-
um sem hafa látist af slysforum er
bátar hafi keyrt á þær. Vestur á
fjörðum eru engin vandræði eða
feluleikur í kringum þessa hluti.
Þar veiðist ekki einn einasti hval-
ur og hefur ekki gert í mörg ár en
nægt framboð mun hins vegar vera
af sænautakjöti...
Sigrún skömmuð
Fréttamaðurinn
Haukur Holm
skrifar hvassa
grein í málgagn
Blaðamannafélags
íslands þar sem
hann tekur Há-
skóla íslands á
beinið vegna
kennslu í fjöl-
miðlafræðum. Haukur vekur at-
hygli á því að á vegum Háskólans
sé auglýst námskeið þar sem kenn-
arinn er eini doktorinn í fjölmiðla-
fræöum á íslandi. Það sem reitti
Hauk til reiði var að ekki átti að
kenna fólki réttu vinnubrögðin við
fjölmiðlun. Þvert á móti átti dokt-
orinn að hjálpa fólki að „sporna
gegn umfjöllun". Umræddur doktor
er væntanlega fyrrum sjónvarps-
fréttamaður, Sigrún Stefánsdótt-
ir, sem nú er lögst í þá iöju að
kenna fólki að flýja fjöbniðla...
Arfur frændanna
í frægu afmæli
Valgerðar Sverr-
isdóttur, sem
haldið var á
Grenivík í boði
ríkissjóðs framan
af en síðar Val-
gerðar sjálfrar,
fór Davíð Odds-
son forsætisáð-
herra á kostum og sagðist fá nýja
trú á innflutning norsks kúakyns
er hann leit dætur Valgerðar.
Ónefndur hagyrðingur orti af þessu
tilefni:
Boðskapurinn birtist skýr
er brölti hann á fætur:
Eins og norskar úrvalskýr
eru hennar dætur.
Fagur honum fannst að sjá
frænda vorra arfur,
og gimdarauga gaut þær á
gamall íhaldstarfur.