Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Page 12
12
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
Fréttir DV
Bill Clinton setur herforingjastjórnina í Pakistan út í kuldann:
Bumbur voru ekki barðar þegar
Bill Clinton Bandaríkjaforseti kom í
stutta heimsókn til Pakistans í síð-
ustu viku. Bandariskir fánar
skreyttu ekki götur Islamabad og
íbúar borgarinnar létu sér fátt um
fmnast. Þá lét Clinton ekki taka
mynd af sér með leiðtoga herfor-
ingjastjórnarinnar, Pervez Mus-
harraf hershöfðingja.
Allt er þetta til merkis um
kólandi samskipti Bandaríkjanna
og Pakistans, ólíkt þvi sem var þeg-
ar kalda striðið stóð sem hæst og
spyrna þurfti gegn áhrifum Sovét-
manna i sunnanverðri Asiu.
Hætta á frekari einangrun
Bandaríkjaforseti var heldur ekk-
ert að skafa utan af því þegar hann
varaði leiðtoga pakistönsku herfor-
ingjastjórnarinnar við því að þeir
yrðu að endurreisa lýðræði í land-
inu og hafa hemil á hryðjuverka-
mönnum í Kasmír-héraði sem hefur
lengi verið bitbein Pakistana og Ind-
verja.
„Það er hætta á þvi að Pakistan
verði enn einangraðra," sagði Clint-
on í sjónvarpsávarpi til pakistönsku
þjóðarinnar.
Athygli vakti að Clinton kom
ekki í forsetaþotunni til Pakistans
ræði,“ segir K. Subrahmanyam, ind-
verskur sérfræðingur í varnar- og
öryggismálum. „Myndin sem mun
sitja eftir í hugum fólks er af Clint-
on að dansa við þorpskonur á Ind-
landi og Clinton að laumast inn í
Pakistan með þrjár flugvélar sem
tálbeitu. Þessar myndir eru lýsandi
fyrir ástandið í ríkum Suður-Asíu.“
Enda þótt stuttur stans Clintons í
Pakistans hafi verið umdeildur inn-
an hans eigin ríkisstjórnar, verður
ekki um villst eftir heimsókn til
landanna beggja, Indlands og
Pakistans, að bandarísk stjórnvöld
taka lýðræði í Suður-Asíu fram yfir
einræði. Einnig má ljóst vera að
Bandaríkjamenn láta ekki fyrri af-
stöðu koma í veg fyrir að þeir séu
reiðubúnir að semja um fjölda erf-
iðra mála, allt frá viðskiptum til
kjamorkumála.
heldur í ómerktri lítilli einkaþotu
eins og forstjórar stórfyrirtækja
nota á ferðalögum sfnum.
Blekkingarleikurinn hófst á Ind-
landi þar sem Bandaríkjaforseti
hafði verið næstu daga á undan. í
stað þess að ganga um borð f banda-
ríska herflutningavél á flugvellin-
um í Bombay gekk Clinton fram fyr-
ir hana og að tveimur einkaþotum,
annarri merktri bandarískum
stjórnvöldum en hinni ómerktri.
Forsetinn fór 1 ómerktu þotuna og
flaug með henni til Islamabad. Þeg-
ar þangað var komið hélt leikurinn
áfram. Fimm límúsínur biðu Clint-
ons á flugvellinum og óku þær á
miklum hraða inn til borgarinnar.
Starfsmenn Clintons sögðu eftir á
að forsetinn hefði líklega skipt um
bíl einhvers staðar á leiðinni.
Ástæðan fyrir þessum miklu var-
úðarráðstöfunum var meðal annars
ótti við að hryðjuverkamenn létu til
skarar skríða gegn Bandaríkjafor-
seta. Versti óvinur bandarískra
Pervez Musharraf
Leiðtogi herforíngiastjórnarinnar
fékk ekki einu sinni mynd af sér
meö Clinton Bandaríkjaforseta þegar
sá síðarnefndi kom í heimsókn.
Bill Clinton vel fagnað á Indlandi í síðustu viku
Konur á Indlandi stráðu blómablöðum yfir Bill Clinton Bandaríkjaforseta þegar hann heimsótti þorp þeirra um daginn.
í landi óvinarins
Forstöðumaður rannsókna á sviði
varnarmála í Quaid-I-Azam háskóla
f Pakistan, Rifaat Hussain, segir að
Clinton hafi næstum því hagað sér
eins og í óvinalandi þegar hann var
í Pakistan.
„Stjórnvöld í Pakistan hafa alltaf
gengið út frá því sem vísu að þau
gætu stólað á Bandaríkin til að
bjarga sér í deilum við Indland.
Skilaboðin frá Washington núna
eru skýr: Ef þið gerist herskáir, tök-
um við málstað Indlands. Ef þið að-
hyllist ekki lífsgildi okkar, eruð þið
einir á báti,“ segir Hussain.
Einhverjir hernaðarsérfræðingar
leiða að því líkum að afstaða Clint-
ons gæti orðið til þess að pakistönsk
stjórnvöld leituðu nánari tengsla
við þrjú umdeild ríki í þessum
heimshluta, kjamorkuveldið Kína
og íslamsríkin Afganistan og íran.
Enginn spáir því að kuldinn í
samskiptunum við Bandaríkin
verði til þess að pakistanski herinn
stofni til alvarlegra átaka við Ind-
land, hvað þá kjarnorkustríðs. Sum-
ir stjórnmálaskýrendur segja að
pakistönsk stjórnvöld kunni að
sleppa alveg beislinu af uppreisnar-
mönnum í Kasmír sem hafa látið sí-
fellt meira að sér kveða undanfarna
mánuði. Enn aðrir segja að Mus-
harraf verði að sætta sig við það að
eina leiðin til að bjarga efnahag
landsins sé að endurvekja gamla
vináttu við Bandaríkin.
Herforinginn hefur sagst vilja
ræða við Indverja og lýst yfir því að
lýðræði verði endurreist. Hann
sagði þó á fimmtudag að einhver bið
yrði á því.
Byggt á Washington Post,
Sunday Times og Reuter.
stjórnvalda, milljónerinn og hryðju-
verkamaðurinn Osama Bin Laden,
heldur jú til einhvers staðar á þess-
um slóðum.
Sá á kvölina sem á völina
Stjórnmálaskýrendur í Pakistan
segja að Musharraf hershöfðingi
standi frammi fyrir erfiðum val-
kostum. Ef hann ræðst til atlögu
gegn hópum uppreisnarmanna í
Kasmir, á hann á hættu að kalla yf-
ir sig reiði voldugra hópa íslamstrú-
armanna innan Pakistans, þar á
meðal hluta hersins. Ef hann grípur
ekki til aðgerða er hætta á að Vest-
urlönd veiti Pakistan ekki lang-
þráða efnahagsaðstoð. Bandaríkin
veita mjög takmarkaða aðstoð og
viðskiptahömlur voru settar á 1998
eftir kjamorkutilraunir Pakistana.
„Pakistönsk stjórnvöld verða að
hugsa sig vandlega um núna. Þau
geta ekki haldið uppi núverandi
stefnu sinni í Kasmír og byggt upp
efnahagslífið á sama tíma,“ segir
Talaat Massood, fyrrum yfirmaður í
pakistanska hernum. „Við höfum
ekki efni á að verða settir út á hlið-
arlínuna en þeir eru til í Pakistan
sem vilja halda kalda stríðinu
áfram í eiginhagsmunaskyni. Ég
óttast að skilaboðin frá Washington
séu svo harðneskjuleg að þau kunni
að styrkja þessi öfl.“
Tónninn var allt annar í fjögurra
daga heimsókn Clintons til Indlands
þar sem honum var tekið með kost-
um og kynjum. I þeirra heimsókn
kom berlega í ljós að bandarísk
stjórnvöld taka nú Indverja fram yf-
ir Pakistana sem helsta bandamann
sinn í þessum heimshluta.
Þá benda ummæli Clintons og
ráðgjafa hans til þess að Banda-
ríkjamenn hafi færst skrefinu nær
því að fallast á afstöðu stjórnvalda á
Indlandi til Kasmír sem bæði Ind-
verjar og Pakistanar gera kall til.
Indverskar öryggisveitir sem gæta
indverska hluta héraðsins umdeilda
hafa orðið fyrir stöðugum árásum
uppreisnarmanna múslíma sem
nóta stuðnings Pakistana og vilja
frelsa trúbræður sína undan stjóm
hindúa.
Nú er kátt á Indlandi
Indverskir embættismenn voru
himin lifandi yflr áherslubreyting-
um Bandaríkjamanna. Þeir telja
þær löngu tímabæra viðurkenningu
á viðskiptatengslum landanna.
Það sem meira er um vert, ind-
verskir ráðamenn líta á gagnrýni
Clintons á hlutverk Pakistans í
Kasmír og ítrekaaðar yfirlýsingar
hans um að Bandaríkin muni ekki
miðla málum í deilunni, sem rétt-
lætingu á einarðri afstöðu sinni í
Kasmírdeilunni.
„Tilgangur heimsóknarinnar var
að gera pakistönsku þjóðinni grein
fyrir því að Bandaríkin styðji lýð-
Laumuspil í Pakistan
Bill Clinton Bandaríkjaforseti kom í ómerktri einkaþotu til Pakistans frá Ind-
landi um síðustu helgi. Var þaö meðal annars gert af ótta við að hryðjuverka-
menn létu til skarar skríða gegn forsetanum.
eins og þjófur um nótt
Laumaðist inn í landið