Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Síða 22
22
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________X>V
Gettu betur í 15 ár
- fyrrum spyrlar keppninnar spurðir spjörunum úr
Spurningakeppni framhaldsskól-
anna hefur um árabil skipað fastan
sess í hjörtum íslendinga. Ár eftir
ár kemur fólk saman fyrir framan
viðtækin á fóstudagskvöldum til að
sjá nemendur í framhaldsskólum
landsins glíma við misjafnlega erfið-
ar spurningar í leik þar sem and-
rúmsloftið verður oft og tíðum raf-
magnað þegar hvert stig skiptir
máli. Þegar þar er komið sögu hafa
liðin mátt heyja langa og erfiða bar-
áttu á öldum ljósvakans og aðeins
þeir bestu komast alla leið í Sjón-
varpið. Það er þvi ekki fjarri lagi að
segja að heiður hvers skóla, sem
þangað nær, sé i veði enda allir sem
vettlingi geta valdið, bæði skóla-
stjórnendur, þéttvaxnir klappliðs-
stjórar og aðrir nemendur, komnir
saman til að fylkja liði og styðja við
bakið á sínum skóla með tilheyr-
andi hamagangi.
Gamlar og rótgrónar kenndir
landans til síns skóla brjótast þá oft-
ar en ekki fyrirvaralaust upp á yfir-
borðið að nýju og virðulegustu
heimilisfeður eiga það til að berja á
brjóst sér og gnísta tönnum allt eft-
ir því hvernig skólanum þeirra
vegnar hverju sinni. Uppskeru-
hátíðin er svo að sjálfsögðu hið
margrómaða lokaeinvígi, eins og
þaö sem fram fór í gær, þar sem
keppt er um fyrsta sætið og verð-
launabikar Ríkisútvarpsins, hljóð-
nemann.
DV ákvað að halda sína eigin
spumingakeppni þar sem lagðar
voru spurningar fyrir núverandi og
nokkra af fyrrverandi spyrlum þátt-
anna.
Davið Þór, sem var spyrill í Gettu
betur frá ‘96-’98, eða alls þrisvar
sinnum, mætti öruggur til leiks og
svaraði helmingnum rétt sem verð-
ur að teljast þokkalegt því hann
náði besta árangrinum. Þvi sem
hann vissi svaraði hann nokkuð ör-
ugglega en hann hafði á orði að
spurningarnar væru einum of erfið-
ar og nefndi þá sérstaklega spum-
Davíö Þór Jónsson, sigurvegari í spurningakeppni spyrla áriö 2000, segir
breytinga þörf á því fyrirkomuiagi þáttanna sem nú er.
O Hvað heitir Gunnar Dal réttu
nafni?
Halldór Sigurðsson
© Eftir hvaða listakonu er útilista-
verkió Móöurást i Mœðragaröin
um í Reykjavík?
Nínu Sæmundsson
© Hvað á tónlistarmaóur aó gera
þegar stendur da capo í tón-
verki!
Þá á hann að byrja aftur
frá upphafi
Rétt svör:
Spurningar
nr. 3, 4, 7, 9, 10
Samtals rétt 5 af 10
Stefíin Jon H
■jfssmn
Rétt svör:
O Hvaó er vatnað járnoxíö ööru
nafni nefnt?
Ryð
Spurningar
nr. 4, 5, 7, 8
© Hvaö aöferö fann Clarence
Birdsey upp til aö halda
matvœlum ferskum?
Frystingu
© Viö hvaöa mann (fullt nafn) er
Fahrenheit kenndur?
Gabriel Daniel Fahrenheit
© Hvaö land stjórnaði New York
upphaflega?
Holland
Samtals rétt 4 af 10
J Í|£&SLdJ
Rétt svör:
Spurningar
nr. 2, 7, 9
© Á mörkum hvaöa þriggja sýslna
eru Botnsúlur?
Ámessýslu, Borgarfjarðar-
sýslu og Kjósarsýslu
Samtals rétt 3 af 10
Steiiiuiiii Si
© Á hvaöa fjalli eru Hátindur og
Kistufell?
Esjunni
© 1 hvaöa stjörnumerki er Linda
Pétursdóttir, fyrrverandi
feguröardrottning?
Steingeit
Rétt svör:
Spurningar
nr. 2 og 7
Samtals rétt 2 af 10
Spurningarnar erufengnar úr Trivial Pursuit.
inguna þar sem beðið var um fullt
nafn Fahrenheits. í spurningunni
um hvaða land hefði stjórnað New
York upphaflega bætti Davíð um
betur og nefndi að borgin hefði ver-
ið kölluð New Amsterdam á þeim
tima sem er vissulega rétt. í spum-
ingunni um hvaða sýslur liggi að
Botnsúlum vantaði aðeins eina
sýslu upp á að rétt svar næðist en í
spurningunni hvaða stjömumerki
Linda Pétursdóttir tilheyrði kom
svarið á augabragði.
Aðspurður um hvað honum finn-
ist um keppnina í dag segir hann
breytinga þörf. „Það þarf að gjör-
breyta skipulaginu á keppninni. MR
hefur borið höfuð og herðar yfir
aðra í þessari keppni mörg undan-
farin ár og það er kominn tími á
nýtt blóð. Mér finnst eins og mörg
liðin séu búin að stúdera hvert ein-
asta smáatriði keppninnar og því
þarf einnig að breyta. Mér finnst t.d.
hraðaspurningamar hafa alltof mik-
ið vægi,“ segir Davíö.
Stefán Jón tók við keppninni árið
1991 og sá um hana í 4 ár. Hann er
því öllum hnútum kunnugur þegar
spurningakeppni er annars vegar og
lét tilleiðast að taka þátt í þessari
litlu spumingakeppni okkar. Stefán
giskaði rétt á sýslurnar sem liggja
aö Botnsúlum en klikkaði á Esjunni
og spumingunni um Lindu Péturs-
dóttur, eins og reyndar allir hinir
sem tóku þátt, nema Davíð sem
væntanlega hefur auga fyrir fleim í
fari kvenna en fegurðinni einni.
Þegar talið barst að Gettu betur
og hvað Stefáni fyndist að betur
mætti fara vildi hann lítið segja en
bætti við í góðlátlegu gríni að hann
veitti ekki fjölmiðlaráðgjöf nema
gegn gjaldi.
Logi er, eins og allir vita, núver-
andi spyrill þáttanna Gettu betur en
hann hefur verið í því hlutverki síð-
astliðna tvo vetur. Aðspurður um
hvort hann myndi hugleiða að taka
Stefán Jón og Andrés Indriðason færöu keppnina Gettu betur í þaö horf
sem hún er í núna.
að sér keppnina að ári liðnu sagði
hann það koma vel til greina. Þegar
spurningarnar voru lagðar fyrir
Loga tók hann sér langan um-
hugsunarfrest og velti hverri spum-
ingu fyrir sér af mikilli gaumgæfni
áður en svarið kom. Sérstaklega var
staldrað við spuminguna um úti-
listaverkið og listakonuna en sú
spurning hafðist þó í lokin og rétt
svar kom. Logi kom þó nokkuð verr
út en þeir Davíð Þór og Stefán Jón
og lenti í þriöja sæti.
Steinunn Sigurðardóttir rithöf-
undur kom að keppninni veturinn
1990 og var spyrill þáttanna en hún
er eina konan sem gegnt hefur
þeirri stöðu. Steinunn svaraði ein-
ungis tveimur spurningum rétt en
sjálf segist hún hafa það sér til
málsbóta hversu ákaflega gleymin
hún sé. Steinunn lenti því í botnsæt-
inu. Um níundu spuminguna segir
hún það klaufaskap af sinni hálfu
að hafa ekki tengt Kistufell við Esj-
una fyrr en eftir á.
Steinunn á góðar minningar af
samstarfi sínu við Magdalenu
Schram sem samdi spurningarnar
fyrir þættina en tekur fram að þetta
sé mest stressandi starf sem hún
hafi nokkru sinni innt af hendi
enda oft heitt í kolunum, auk þess
sem spyrillinn þurfi að standa
frammi fyrir fullum sal af fólki sem
getur verið taugatrekkjandi. Hún
minnist einkum tvíburanna frá MS
sem unnu keppnina þetta sama ár
en að hennar sögn voru þeir hreint
ótrúlegir.
í ár eru fimmtán ár síðan spum-
ingakeppnin Gettu betur fór fyrst í
loftið en það var á því herrans ári
1986, þegar tíska níunda áratugar-
ins var í algleymingi og lakkrís-
bindin allsráðandi, sem þátturinn
hóf göngu sína. Áriö áður hafði hið
vinsæla spurningaspil, Trivial
Pursuit, komið út á íslensku og í
kjölfarið fór af stað miklu spum-
ingaæði hér á landi og endaði með
þvi að sjónvarpsmenn sáu sér leik á
borði. Reyndar voru hugmynda-
smiðimir að keppninni tveir fram-
haldsskólanemendur, annar úr MR
en hinn úr Verslunarskólanum.
Þættimir voru ekki nema 30 mínút-
ur að lengd og aðeins undanúrslit
og úrslit keppninnar voru sýnd í
sjónvarpi. Engin skemmtiatriði
voru í þáttunum sem voru teknir
upp í Sjónvarpshúsinu og klapplið
voru mun fámennari, auk þess sem
skipt var um spyrla á hverju ári.
Þetta fyrirkomulag hélst til ársins
1991 þegar Andrés Indriðason og
Stefán Jón Hafstein tóku við þáttun-
um og færðu í það horf sem við
þekkjum í dag.
Stjórnendur þáttanna
fra upphafi:
1986 Jón Gústafsson
og Þorgeir Ástvaldsson
1987 Hermann Gunnarsson
1988-’89 Vernharður Linnet
1990 Steinunn Sigurðardóttir
1991-94 Stefán Jón Hafstein
1995 Ómar Ragnarsson
1996-’98 Davíð Þór Jónsson
1999-? Logi Bergmann Eiðsson
Logi heföi svo sannarlega falliö á
tíma ef hann heföi keppt í Gettu bet-
ur því hann tók drjúga stund í aö
svara hverri spurningu.
Steinunn segist hafa fengist viö
ýmislegt um dagana en ekkert í
líkingu viö Gettu betur.