Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Síða 27
DV
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
Helgarblað
Katazeta gengur með dreng undir belti:
Mikki
syngur fyrir
son sinn
Michael Douglas missti það út úr
sér um helgina að unnusta hans,
velska leikkonan Catherine Zeta
Jones með hrafnsvarta hárið, gengi
með dreng undir belti. Það sem
meira er, verðandi faðirinn er þegar
farinn að syngja fyrir soninn með
engilblíðri röddu sinni og gæla við
kúluna á unnustunni um leið.
Katazeta á von á sér eftir fjóra
mánuði, að því er virðulegir reikni-
meistarar segja. Verðandi móðirin
er þrítug en bamsfaðirinn 55 ára.
Eins og sæmir öllum sómakærum
foreldrum, ætla þau Katazeta og
Mikki ekki að gera barninu sínu
það að vera lausaleikskrógi. Hjóna-
vígsla er á dagskránni og er þegar
farið að undirbúa hana.
Breska blaðið Mail on Sunday
greindi frá því um helgina að turtil-
dúfumar ætluðu að játast hvort
öðru i rómantískum kastala í
Skosku hálöndunum.
Stórleikarinn Michael er, að
sögn, búinn að leigja hinn virðulega
Skibo-kastala í tvær vikur í septem-
berlok og greiddi fyrir um sex miUj-
ónir króna.
Skibo-kastali er ekkert slor. Land-
areignin er í stærra lagi og við hann
er golfvöllur, sem kemur sér ágæt-
lega fyrir brúðhjónin verðandi. Þau
Katazeta og Mikki
Hollywoodpariö glæsilega giftir sig í
skoskum kastala í haust.
eru jú bæði miklir áhugamenn um
þessa göfugu íþrótt. Auk þess geta
þau og gestir þeirra rennt fyrir lax í
nærliggjandi veiðiá eða bara látið
sér nægja að dást að útsýninu. Það
er ekki af verri endanum, ekki frek-
ar en annars staðar í hálöndunum.
Þess má geta að bandaríski
stáljöfurinn Andrew Carnegie bjó
eitt sinn í Skibo-kastcda.
27
TJALDVAGNAR & FELLIHÝSI
Stórsýning
laugardag 11-16
Sunnuda g 13-16
14
VAGNAR
Í5AL
alla helgma
næg bílastæói
velkomin I nýjan & stórglæsilegan sýningarsal
www.evro.is
Skeifunni Grensásvegi 3 stmi 533 1414 tax 533 1479 evro@islandia.is
Hollir lífshættir alla ævi eru besta vörnin gegn
þessari vá. Hæfileg hreyfing, kalk og D-vítamín
gegna þar lykilhlutverki. Lýsi og fjölvítamín eru
heppileg D-vítamínuppspretta en þægilegasta leiðin
til að tryggja sér nægilegt kalk er að drekka mjólk og
neyta annarra mjólkurvara.
„Mjólk“ er samheiti yfir alla drykkjarmjólk, nýmjólk, léttmjólk, undanrennu
og fjörmjólk. Einnig má fá kalk úr öörum mjólkurvörum, s.s. osti og
sýröum mjólkurvörum.
Hollusta styrkir bein!
BEINVERND
ÍSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR
Við beinþynningu verður rýrnun á beinvef og beinin
verða stökk. Hryggjarliðir falla saman, líkaminn
verður hokinn og hætta á brotum eykst.
„Bestu vopnm gegn
beinþynningu eru
öllum aðgengileg"
Beinþynning er alvarlegur sjúkdómur sem árlega
veldur um 1000 beinbrotum hér á landi. Eftir því sem
meðalaldur þjóðarinnar hækkar fjölgar tilfelium. Ef
ekkert verður að gert verður beinþynning eitt helsta
heilsufarsvandamál nýrrar aldar.